Morgunblaðið - 02.07.1985, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLl 1985
Fulltrúar Slésvík-Holtstein
áheyrnarfulltrúar í Norðurlandaráði
Kiel, 29. jnní. Frá blaóamanni Morgunblaós-
ins, Birni Vigni Sigurpábwyni.
FORSETTI fylkisþingsins i Slésvík-
Holstein í Norður-Þýskalandi,
Kudolf Titzck, hefur varpað fram
þeirri hugmynd við Þorvald Garðar
Kristjánsson, forseta Sameinaðs Al-
þingis, að Slésvík-Holstein fái eftir-
leiðis að senda áheyrnarfulltrúa á
þing Norðurlandaráðs. Hugmynd
þessi var sett fram í opinberri veislu
í tilefni af Kielarviku, þar sem Rich-
ard von Weizaker var meðal gesta
og í kjölfar ræðu sem Þorvaldur
Garðar Kristjánsson flutti fyrir hönd
fulltrúa allra þjóðþinga Norður-
landa. í þessari rsðu minnti Þor-
Slysavarnafélag íslands hyggst efna
til námskeiðs fyrir sjómenn, dagana
9.—12. júlí nk.
Fjallað verður um helstu þætti ör-
yggismála, svo sem lífgun úr dauða-
dái, skyndihjálp, meðferð gúmmí-
báta og annarra björgunartækja um
borð í skipum og í höfnum, flutning
með þyrlum, lög og reglur um búnað
skipa svo og brunavarnir og slökkvi-
störf.
valdur Garðar á sameiginlegan
menningararf Norðurlanda og þessa
nyrsta hluta Þýskalands og jafn-
framt að einu sinni hefðu Islend-
ingar og íbúar Slésvík og Holstein
lotið sama konungi, það er Dana-
kóngi.
Í dag, sunnudag, lýkur hér i
Kiel, höfuðborg Slésvík og Hol-
steinfylkis, Kielarvikunni
svonefndu. Kielarvikan er í bland
alþjóðleg siglingakeppni, listahá-
tíð sem að þessu sinni er tileinkuð
tónlistinni og stór alþjóðlegur úti-
markaður með matvöru og hand-
unnum varningi viða að úr heim-
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða frá SVFÍ, Landsambandi
slökkviliðsmanna, Landhelgisgæsl-
unni og Siglingamálastofnun.
Þess má geta að síðasta námskeið
um öryggismal sjómanna, sem SVFÍ
gekkst fyrir þótti takast vel og kom-
ust þá færri að en vildu.
(Fréttmtilkynning)
inum. En Kielarvikan er ekki án
pólitísks ívafs. Til hennar er boðið
af hálfu Kielarborgar fulltrúum
norrænu þjóðþinganna, sem for-
svarsmenn Kielarborgar og Slés-
víkur-Holsteinsfylkis leggja
greinilega mikla áherslu á að
treysta tengslin við.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagðist í samtali við Morgunblaðið
taka uppástungu Rudolf Titzck al-
varlega og muni hreyfa henni við
viðeigandi aðila innan Norður-
landaráðs. Þorvaldur Garðar hef-
ur verið hér í forsvari sendinefnd-
ar íslenskra alþingismanna, en
hana skipa auk hans, þeir Stefán
Guðmundsson, Karl Steinar Guð-
nason og Helgi Seljan. Að auki eru
hér fulltrúar allra annarra nor-
rænna þjóðþinga, þar á meðal
fulltrúar Færeyja og Álandseyja
svo og var fulltrúum Grænlend-
inga boðið, en þeir gátu ekki þegið
boðið, því að á sama tíma, eða 21.
júní þegar sólargangur er hæstur,
héldu þeir uppá þjóðhátíðardag-
inn sinn og nýjan fána.
í opinberri veislu i tilefni Kiel-
arvikunnar fór Rudolf Titzck for-
seti fylkisþingsins þess á leit við
Þorvald Garðar að hann beitti sér
fyrir því að Grænlendingar yrðu
meðal norrænna gesta að ári. í
svari sínu hældi Þorvaldur Garðar
forsvarsmönnum Kielarborgar og
Slésvíkur-Holsteinfylkis fyrir víð-
sýni í samskiptum sínum við hinar
norrænu þjóðir og kvaðst munu
taka málið upp við fulltrúa græn-
lenska þingsins, næstu nágranna
íslendinga, þegar þeir kæmu í
opinbera heimsókn til Alþingis. I
samtali við Morgunblaðið sagði
Þorvaldur Garðar að sú heimsókn
væri ráðgerð nú í haust.
Það nýmæli sem mesta athygli
vekur frá íslenskum sjónarhóli er
íslandsbásinn á alþjóðlegum úti-
markaði á stjórnborða sjálfs ráð-
hússins í Kiel, þar sem Island er
kynnt sem ferðamannaland og
seldar prjónavörur í gríð og erg að
ógleymdum helstu skáldverkum
Halldórs Laxness, kavíars frá
Artica og lýsi. Þessi íslandskynn-
ing er þó ekki uppkomin á Kiel-
arvikunni að frumkvæði ferða-
mannasamtakanna eða útflutn-
ingssamtakanna, heldur er hún
einkaframtak þriggja kvenna um
þrítugt, sem allar eiga það sam-
eiginlegt að hafa numið i Kiel og
verið spurðar að því fyrir ári
hvers vegna í ósköpunum íslend-
ingar væru ekki á meðal sýnenda.
Konurnar eru Lovísa Birgisdóttir,
sem er að læra til doktors í haf-
botnsfræðum hér við Kielarhá-
skóla, Danfríður Skarphéðinsdótt-
ir, þýskukennari frá Akranesi sem
var hér fyrir ári við framhalds-
nám og Björg Þorleifsdóttir lífeðl-
isfræðingur menntuð héðan frá
Kiel en stundar nú stundakennslu
við Háskóla íslands.
Kiel er um 250 þúsund manna
borg, en yfir Kielarvikuna þre-
eða fjórfaldast íbúatalan í borg-
inni og flestir aðkomumanna eru
frá Suður-Þýskalandi, komnir
Að sögn Margrétar S. Björns-
dóttur, endurmenntunarstjóra
Háskóla íslands, er það skóla-
málanefnd HÍK er ákveður efni
einstakra námskeiða í samvinnu
við fagfélög, en hún sér aðeins um
framkvmæd námskeiðanna.
Fulltrúi HÍK í endurmenntun-
hingað til að „sjá hafið“ eins og
þeir sjálfir segja. Útimarkaðurinn
hér í Kiel snýst að miklu leyti um
sölu á matvöru og handunnum
listiðnaði og sem oftar bera Danir
ægishjálm yfir aðrar þjóðir á
kaupþingum sem þessum, en hér
er að finna flesta stærstu fram-
leiðendur á mat- og drykkjarvöru.
tslensku stúlkurnar þurfa þó
ekkert að kvarta. Þær sendu að
vísu milli 30 og 40 íslenskum fyrir-
tækjum boð um að annast kynn-
ingu fyrir þau á þessari Kielar-
viku en fengu naumast svör nema
frá innan við um tíu aðilum og
flestir þessir aðilar eru á ferða-
málasviðum. Þessir aðilar hafa
hins vegar fengið framlag sitt
ríkulega uppskorið miðað við þann
fólksfjölda og þá sölu sem fram
hefur farið í íslenska sýningar-
básnum. Einkum eru það þó
prjónavörur Akraprjóns og Icever
sem renna út, ásamt ferðabækl-
ingum og skáldverkum Halldórs
Laxness í þýskum útgáfum. Und-
irtektir á Kielarvikunni eru slíkar
að stúlkurnar þrjár eru nánast
staðráðnar í að endurtaka þátt-
töku íslands að ári í þessari Kiel-
arviku og munu þá leggja mun
meiri áherslu á sölu á hvers kyns
íslenskri matvöru.
arnefndinni, Aldís Guðmunds-
dóttir, sagði þegar hún var spurð
um hvenær kennarar hefðu hlotið
frummenntun í friðarfræðslu:
„Það liggur fyrir háskólaráði
reglugerð um að endurmenntunar-
nefnd, sem starfað hefur í nokkur
ár verði gerð að stofnun. f drögun-
um kemur fram að hlutverk stofn-
unarinnar er ekki einungis að
endurmennta fólk á þeim sviðum
þar sem það hefur áður hlotið
menntun, heldur einnig að halda
allskyns fræðslunámskeið." Aldís
sagði að með umræddu námskeiði
væri verið að reyna að undirbúa
kennara undir umræður um þessi
mál, sem gætu komið upp hvenær
sem er í hvaða kennslustofu sem
er: „Þetta er ekki hugsað sem
námskeiðs um það hvernig eigi að
koma friðarfræðslu inn í skólana,
heldur eru fengnir sérfræðingar
til að fjalla um þessi mál. Þannig
hafa kennarar eitthvað hlutlaust
og bitastætt í höndunum, beri
friðarmál á góma í kennslustund."
í námskeiðslýsingu segir:
„Námskeið ætlað framhaldsskóla-
kennurum, en þó opið grunnskóla-
kennurum. Rannsóknir víða er-
lendis hafa sýnt fram á svo ekki
verður um villst að kjarnorku-
vígbúnaðarkapphlaupið hefur
vakið umtalsverðan ótta meðal
barna og unglinga. Á námskeiðinu
verða kynntar rannsóknir á sál-
rænum áhrifum kjarnorkuvígbún-
aðar á börn og unglinga. Haldnir
verða fyrirlestrar lækna og eðlis-
fræðinga um ógnir og áhrif kjarn-
orkustyrjaldar. Kynnt verður og
rætt erlent námsefni í friðar-
fræðslu, bæði lesefni og mynd-
bönd. Rætt verður hvort æskilegt
sé að taka upp slíkt námsefni í
íslenskum skólum."
Námskeiðið tekur átta klukku-
stundir og umsjón hefur Guðríður
Sigurðardóttir, félagsfræðingur.
Auk hennar flytja erindi, Hans
Kr. Guðmundsson, eðlisfræðingur,
Guðjón Magnússon, aðstoðar-
landlæknir, Högni Óskarsson, geð-
læknir, Páll Bergþórsson, veður-
fræðingur og Sigurður Björnsson
læknir.
fHwgimÞIftfrtfc
Ásk, ifiarsimirm er 8X33
Farið á lýðháskóla í Noregi
Inni í miðju landi, frábær náttúrufegurð, alþjóðlegt
andrúmsloft, ýmsir valmöguleikar í námi. 4 laus
pláss. Vinsamlegast skrifiö eftir nánari upplýsing-
um til:
Hardanger folkehögskole,
5774 Lofthus, Norge,
sími 00947-54-61180.
Kventöfflur
meö kílhæl og þægilegu innleggi.
T0PP
Visa Euro Diner’s (amexo) 21212
----SKðR-DfH
VELTUSUNDI 1
JÚLÍ 1985.
Metsölubækur á ensku
Full Círcle
Dell Kr. 405
Danielle Steel
Tender is the Storm
Avort Kr. 3S5
Johanna Lindsay
And Ladies of the Club
Berkley Kr. 536
Hefen Hooven Santmyer
The Haj
Bantam Kr. 446
Leon Uris
Mississippi
Ðantam Kr. 355
Dana Fuller Roas
Valking Drum
Bantam Kr. 355
Louls L’Amour
Possessions
Pocket Kr. 405
Judith Michael
The Wheel of Fortune
Fawcett Kr. 446
Susan Howatch
Twin of lce
Pocket Kr. 355
Jude Deveroux
Lincoln
Ðallantine Kr. 446
Gora Vklal
Summer Harvest
Signet Kr. 355
Madge Swindels
Deep Six
Pocket Kr. 355
Clive Cussler
The Return to Oz
Del Rey Kr. 266
Joan Vinge
Switch
Signet Kr. 355
William Bayer
First Lady From Plains
Fawcett Kr. 355
• Roaalyn Carter
Einnig sllar bækur á „Nsw York Time»“ metsölulistanum. Koma í flugi
beint úr prentun. Allar íslenskar bækur, (þar á meðal) handbækur, mat-
reiðslubækur, ferðabækur, orðabækur o.fl. Yfir 100 titlar af amerískum
tímaritum, ásamt þýskum blöðum að ógleymdum dönsku blöðunum á
hverjum mánudegi.
Aðrir útsölustaðir:
30% afslátur af
fjölda góðra enskra
bóka.
BOftA
HUSIÐ
LAUGAVEGI 178, Sfmi SSS-780.
INÆSTA HUS VIO SJONVARPIOI
Drsifing: Þorsteinn Johnson hf.
Kort — Pappírsvörur — Ritföng
Psnninn, Hallarmúla.
Psnninn, Hafnarstrasti.
Hagksup, Skaifunni.
Mikligarður við Sund
Bóksbúó Ksflavíkur.
Griffill, Síóumúla 36.
Embla, Völvutelli
Úlfsralsll, Hsgsmsl 67.
Flugbsrinn, Rsykjsvíkurflugvelli.
Bóksbúð Jónsssr, Akureyri.
K.Á., bóksbúö, Sslfossi.
Bókbar, Hsfnsrfirói.
Bókhlsðsn, Glrssibaa.
Snerra, Moafallaavsit.
Gríms, Gsrðsbæ
Bóksbúð Brsíðholts, Arnsrbskka 2.
Bókssksmmsn, Akranssl.
Bokabúð BMvars, Hafnarfirði.
Æflng á björgun úr gúmmíbáL Maðurinn er hífður upp í þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar.
Námskeið í öryggismálum sjómanna
Háskóli íslands og HÍK:
Endurmenntun
í friðarfræðslu
ENDURMENNTUNARNEFND Háskóla íslands og skólamálanefnd Hins
íslenska kennarafélags hafa ákveðið að gangast fyrir endurmenntunarnám-
skeiði fyrir framhaldsskólakennara í friðarfræðslu á kjarnorkuöld 29. og 30.
ágúst, þá eru einnig önnur námskeið fyrirhuguð.