Morgunblaðið - 25.08.1985, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
B 19
Ráðstefna
um sjávar-
strendur, ár
og aurburð
DAGANA 2.-4. september verdur
haldin alþjóðleg rádstefna að Hótel
Loftleiðum, sem hlotið hefur nafnið
„Iceland Coastal and River Symp-
osium".
Megin viðfangsefni ráðstefn-
unnar verður þýðing aurburðarins
fyrir þróun stranda og árfarvega
og flutningur aursins eftir land-
grunninu. Suðurströnd íslands
verður þar sérstaklega í sviðsljós-
inu og áhrif jökulánna og elds-
umbrota, bæði undir jökli og í sjó,
á þróun hennar. Ennfremur verð-
ur þar fjallað um hvaða áhrif
sjávarstöðubreytingar hafa á
þróunina og hvaða áhrif mann-
virkjagerð bæði við strendur og í
árfarvegum geta haft bæði í nútíð
og framtíðinni.
Dr. Per Bruun er aðalhvatamað-
ur þess að þessi ráðstefna er hald-
in hér. Hann hefur veitt íslend-
ingum margvíslega ráðgjöf við
mannvirkjagerð. Hann hefur verið
prófessor í Þrándheimi, Kaup-
mannahöfn og Bandaríkjunum en
rekur nú í Danmörku alþjóðlega
ráðgjafastofu um strandmann-
virki.
Að ráðstefnunni á Hótel Loft-
leiðum standa Háskóli íslands,
Vita- og hafnarmálaskrifstofan,
Orkustofnun, Landsvirkjun, Haf-
rannsóknastofnun og Vegagerð
ríkisins.
Á ráðstefnunni verða flutt yfir
40 erindi um þessi mál, þar af um
30 af erlendum þátttakendum frá
11 þjóðum. Erindin fjalla jöfnum
höndum um vandamál við hagnýta
mannvirkjagerð og um fræðilegan
bakgrunn þeirra.
Mæst þegar þú aetlar að
kikja á eina BETU
skaltu líta tll okkar.
f Vldeospólunni er eltt
besta úrval landsins af
bæði BETA OG VHS myndum.
VideoSpólan
Holtsaötu 1. sími:169 69
Minolta býöur stœrsta úrval ZOOM
Ijósritunarvéla sem völ er ó, enda ZOOM
tœknin þeirra eigin uppfinning. Meö
ZOOM bjóöast nœr ótakmarkaöir
minnkunar og stœkkunarmöguleikar.
Minolta Ijósritunarvélarnar taka fró 15 til
50 eintök ó min., hafa allt aö 1500
eintaka pappirsforöa og eru allar meö
kyrrstœöu myndboröi.
ZOOM UÓSRITUNARVÉLAR - HREIN TÖFRATÆKI
EkJARAN m REVKJAVIK S'IMI 83022 MINOLTA
um leið og þú litur í t)æinn
haust-vetur ’85
Dragtir — Blússur — Buxur — Peysur — Jakkar