Morgunblaðið - 25.08.1985, Side 26

Morgunblaðið - 25.08.1985, Side 26
26 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985 + Útför fööur okkar, EIRÍKS K. JÓNSSONAR mólara, Gnoóarvogi 52, veröur gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 27. ágúst kl. 15.00. Fyrir hönd systra okkar, Jón og Halldór Eiríkssynir. Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, KNUT HELLAND húsasmlóur, Hrauntungu 71, Kópavogi, veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju þriöjudaginn 27. ágúst kl. 13.30. Þeir sem vilja minnast hins látna látiö liknarfólög vinsamleg- ast njóta þess. Droplaug Helland, Arndís Inga Helland, Óskar Þormóðsson, Birgit Helland, Hreinn Frímannsson og barnabörn. Legsteinar Ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiöjan Helluhrauni 14 sími 54034 222 Hafnarfjöröur. Minning: Asgeir Jónsson fv. deildarstjóri Látinn er Ásgeir Jónsson frá Tröllatungu í Kirkjubólshrepi, fæddur 7. október 1899. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 26. þ.m. kl. 13.30. Foreldrar Ásgeirs voru Jón Jónsson og Halldóra Jónsdóttir og ólst hann upp í stórum systkina- hópi. Hann var af þeirri aidamótakynslóð sem hefur borið samfélag okkar í gegnum stórstíg- ar breytingar í bættri afkomu og lifnaðarháttum. Vorið 1921 er Ásgeir einn af 27 búfræðingum sem ljúka námi í Bændaskólanum á Hvanneyri. Rétt er hægt að ímynda sér það andrúmsioft sem ríkt hefur með þeim skólasveinum á Hvanneyri þetta vor. Þeir stóðu þá frammi fyrir byltingu í möguleikum til ræktunar og uppbyggingar í sveit- um landsins. Þetta varð Ásgeiri hvatning til þess að auka enn við þekkingu sína og svala opnum huga og vinn- andi hönd. Hann fer í Lýðháskóla í Danmörku og starfar þar við ræktunartilraunir. Eftir heimkomuna er hann við störf hjá Búnaðarfélagi íslands, aðallega við tilraunir í ræktun. Á miðju ári 1936 ræðst hann til starfa hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga við kaup og sölu á landbúnaðarvélum og starfar þar í rúmlega þrjátiu ár. fierra GARÐURINN AÐALSTFUETI9 S 12234 Það var gott fyrir mig, sem þessar línur skrifa, að koma í Sambandið haustið 1961 og fá að vinna með Ásgeiri Jónssyni. Ástundun, reglusemi og velvild ríkti um úrlausn allra verkefna í höndum Ásgeirs. Búvélaverslunin óx hratt á þessum árum og kallaði á sífellt starf við útvegun véla, varahluta og viðgerðir. Ásgeir þekkti mjög vel til þarfa bænda og var óþreytandi í eril- sömu starfi sínu. Þegar hann svo árð 1966 ákvað að hverfa frá þess- um störfum sakir aldurs var hans lengi saknað af okkur samstarfs- fólkinu og viðskiptavinum. Árin á eftir starfaði hann lengi sem þing- vörður í Alþingi og hefur þar sem annars staðar reynst traustur liðsmaður, enda heilsuhraustur, léttur í hreyfingum, glaðvær, háttvís og sérstakt snyrtimenni. Þegar hann dró sig í hlé frá löngum starfsdegi naut hann kyrrláts ævikvölds með eftirlif- andi konu sinni, Símoníu Sigur- bergsdóttur. Hún bjó honum fal- legt heimili á Laugateigi 23 hér í borg. Þar var Ásgeir umvafinn hlýju og gleði í kyrrlátu heimilis- lífi. Sonur þeirra er Halldór húsa- smiður, kvæntur Sigriði Maríu Jónsdóttur og eiga þau tvíbura- syni, Ásgeir Símon og Jón Einar, nú tíu ára. Margar munu þær vera hamingju- og gleðistundirnar sem afi og amma hafa átt með þessari ungu og myndarlegu fjölskyldu. Á sínu yngri árum mun Ásgeir hafa lagt sérstaka rækt við iþrótt- ir og útilíf. Hann keppti með róðr- arsveit Ármanns og stundaði göngu- og skíðaferðir. Meðal ann- ars gekk hann með félögum sínum yfir Sprengisand og í gegnum starf sitt og útilíf gjörþekkti hann land og þjóð og skildi því betur þarfir þess og möguleika. Ásgeir hélt góðri heilsu alla ævi en þó dapraðist honum sjón baga- lega nú síðustu árin, þótt hann léti lítið á því bera. Hann varð því nú undir það síðasta að leggja niður sínar reglulegu útivistarferðir en naut umönnunar sinnar góðu konu. Nú þegar leiðir skilur er margs að minnast og margt að þakka. Minningarnar eru bjartar og hlýj- ar. Við hjónin viljum þakka fyrir þá vináttu og tryggð sem við höf- um notið hjá Ásgeiri og Símoníu nú þegar Ásgeir er kvaddur. Bless- uð sé minning hans. Gunnar Gunnarsson Blómmtofa Fnðfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavlk. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar viö öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.