Morgunblaðið - 25.08.1985, Síða 30

Morgunblaðið - 25.08.1985, Síða 30
30 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985 || fclk í fréttum fyrir 25 árum SIGRÍÐUR GEIRSDÓTTIR Kosin þriðja fegursta kona heims 1960 Fékk ótal atvinnutilboð erlendis Sirrý Geirs. MorKunblaðift/Bjarni Sigríður Geirsdóttir sem varð fegurðardrottning Íslands árið 1959 lagði land undir fót ári síðar til Langasands og tók þátt i keppninni um ungfrú alheim. Þar var hún kosin þriðja feg- ursta kona heims og í kjölfar þess hlaut hún ótal atvinnutilboð. Á þessum tíma sagði hún í viðtali við Morgunblaðið að óvíst væri hvað taka myndi við að lokinni keppni, en allavega myndi hún búa þar vestra um hríð. Blaðamaður heimsótti Sigríði sem nú er búsett í Reykjavik og bað hana að rifja aðeins upp at- burðinn fyrir 25 árum og segja frá því hvað hún hefði haft fyrir stafni síðan keppnin fór fram á Long Beach. „Þetta var afskaplega mikil vinna. Ég hef tvisvar sinnum í líf- inu lagt virkilega hart að mér um tíma og það er þegar ég skrifaði BA-ritgerðina mína í Háskólanum og svo er ég tók þátt í þessari feg- urðarsamkeppni. Það var eins gott að ég var vel hvíld þegar ég lagði af stað því vinnan byrjaði um leið og ég steig upp í flugvélina. Ferðalagið sjálft tók allavega 36 klukkustundir því það tók 12 tíma að fljúga til New York, þar var bið í aðra tólf tíma og svo tók það sama tímafjölda að fljúga niður til Los Angeles. Þegar þangað var komið þá fékk ég hálftima til að klæðast skautbúningi og hafa mig til en síðan var flogið til Long Beach þar sem keppnin fór fram. Þar tóku við strangar æfingar og sviðssetningar. Ég stóð ákaflega vel að vígi, því ég var vön því frá unga aldri að koma fram. Faðir minn var í utan- ríkisþjónuslunni í mörg ár og við bjuggum í Svíþjóð. Þá var gest- kvæmt heima og mikið um veislu- höld og það var ekki óalgengt að maður þyrfti að koma fram fyrir hönd íslenskra barna í Svíaríki. Ég var lengi í ballet og þegar árin liðu fór ég að koma fram opinber- lega og syngja." Það er óhætt að segja að Sig- ríður eða Sirrý eins og vinir henn- ar kalla hana hafi haft ástæðu til að vera bjartsýn það vel stóð hún sig kvöldin þrjú sem undanúrslita- keppnin stóð yfir. Fyrsta kvöldið fékk hún verðlaun fyrir að taka sig best út í sundfatnaði, þá fyrir að flytja bestu ræðuna og að lok- um var hún kosin eftirlætisfyrir- sæta ljósmyndara. „Já, veistu, svona fyrst til að byrja með er ekki laust við að við værum hálfspældar fyrir Islands hönd ég og frú Ólöf Swansson, sem tók á móti okkur íslensku stúlkunum, yfir því að hafa ekki unnið titilinn. Ég verð að játa að fiðringur var farinn að fara um mig því ég hafði fengið góða umfjöllun, hlotið nokkur verðlaun og var svo komin Hún var í 10 ár búsett í Bandaríkjunum og starfaði þar við að leika í kvikmyndum, í sjónvarpsauglýsingum o.fl. Ótal atvinnutilboð tóku að streyma til Sigríðar að lokinni keppni. í úrslit þar sem við vorum fimm að keppa um efstu sætin. En það var ýmislegt sem eyði- lagði fyrir mér'þarna í lokin. Ég var í kjól sem var of þröngur að neðan og gerði það að verkum að ég gat ekki gengið eins og skyldi og svo var ég bara með eina ræðu tilbúna sem ég flutti í undanúr- slitunum. Þegar kom svo að því að ég komst í aðalúrslit stóð ég uppi ræðulaus því enginn héðan að heiman hafði búist við því að ég næði svona langt. Á síðustu stundu varð ég svo að sjóða saman eitthvað til að flytja en hafði auð- vitað margt annað á minni könnu." Að lokinni keppni fluttist Sig- / Þrír íslenskir bræður liðsforingjar í úrvalsliði rír íslenskir bræður þeir Pétur Anthony, Bruce Ivar og Brian Holly, synir Barböru og ívars Guðmundssonar fyrr- verandi alræðismanns íslands í New York, hafa verið sæmdir liðsforingjanafnbót í úrvalsher- liði Bandaríkjanna (United States Marine Corps). Bræðurnir eru allir fæddir í Kaupmannahöfn en ólust upp í Danmörku, Pakistan og í Bandaríkjunum. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim bræðrum er Pétri var afhent skipunarbréfið í nafni forseta Bandaríkjanna, en bróð- ir hans, Bruce, stjórnaði liðsfor- ingjaeiðtökunni eftir að hafa lesið forsetaskipunína. Frá vinstri: Pétur Anthony, Brúsi ívar og Brjánn Hoily.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.