Morgunblaðið - 25.08.1985, Page 36
36 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
® 1985 Universal Press Syndicate y-ie.
/, E9 setlcx. eJdci ab fci lánahc^
pen'iviqcK; bcxrrx. a£ liitx ci PcLeiiruX'"
ást er ...
að brosa
TM Rm. U.S. Pat. Off.-aH
»1985 Los Angeles Tlmes
rlghts reserv
>s Syndicate
Blessaður taktu myndavélina
af maganum, allir halda
okkur útlendinga!
Með
morgunkaffinu
l>að eina sem gera þarf tepp-
inu til góða er að mölverja
það.
HÖGNI HREKKVÍSI
' V
Þyrftu þessir menn ekki að hafa íslensk byssuleyfi spyr bréfritari.
Ná öll íslensk lög
yfir varnarliðið?
Einn furðu lostinn skrifar:
Eg held að fyrir mörgum hljóti
að hafa farið eins og mér nú und-
anfarið, að ég á ekki orð yfir
stjórnvizku landsfeðra, þegar
landsmenn hafa mátt horfa á sí-
felldar uppákomur, þar sem stöð-
ugt er verið að efna til óvinafagn-
aðar í málum er varða Varnarliðið
sem hér hefur verið frá 1951 sam-
kvæmt varnarsamningi íslands og
Bandaríkjanna.
Einn ráðherranna segist hafa
komist að því, að fyrir Varnarliðið
gildi ekki íslenzk lög og verði þar
úr að bæta snarlega.
Mér er því spurn: Er ekki næsta
skrefið til dæmis, að krefjast þess,
að bannaður verði allur vopna-
burður á flugvellinum, nema dát-
arnir afli sér byssuleyfa hjá
dómsmálaráðherra, sem raunar
lika er landbúnaðarráðherra og
banna alla hermennsku, sem ekki
leyfist meðal landsmanna?
Ég er smeykur um, að mér eða
mínum leyfist ekki að bera byssu
án byssuleyfis, eða geyma vígvélar
í garðinum hjá mér. Ég er líka
smeykur um, að íslenzkir flug-
menn fengju á baukinn hjá yfir-
völdum og flugvélar þeirra yrðu
snarlega stöðvaðar, ef þeir tækju
upp á því að festa á þær byssur.
Varnarliðið hlýtur því að verða
að afla leyfa fyrir slíkt hjá ís-
lenzkum yfirvöldum.
Því spyr ég: Hvers vegna á bara
að fara eftir sumum íslenzkum
lögum í þessum málum, en ekki
öllum?
Óskiljanlegt að banna bjórlíki
KJ. skrifar:
Nú er ég kominn í svo fúlt skap
að ég hreint og beint neyðist til að
setjast niður og skrifa þér línu
þótt pennalatur sé.
í flestum blöðum er sagt frá því
21. og 22. ágúst að Jón Helgason
menntamálaráðherra hafi ákveðið
að banna sölu á hinu svokallaða
bjórlíki frá og með 15. september
næstkomandi. Ég er nú svo sem
enginn sérstakur aðdáandi þessa
svokallaða bjórlíkis en þó finnst
mér það lýsa fádæma ósvífni
ráðherrans að taka með þessum
hætti fram fyrir hendurnar á fólk-
inu i þessu landi með því að banna
því að drekka þann vökva sem það
hefur neyðst til að koma sér upp í
stað alvöru bjórs.
Mér finnst eins og öllum öðrum
íslendingum stórhlægilegt hvern-
ig alþingismönnum tókst að gera
sig að fíflum í bjórmálinu í vor en
þetta finnst mér bæta gráu ofan á
svart. Svo þykist hann geta skýlt
sér bakvið einhverjar reglugerðir
um að dómsmálaráðherra sé
heimilt að ákveða hvernig vín sé
framreitt. Heyr á endemi.
Það er greinilegt á öllum at-
höfnum ráöherrans að hann er
ekki mikið fyrir vín sjálfur. Hann
þekkir ekki þá gremju sem fyllir
mann, svo fremi maður drekki,
þegar tekið er á þennan hátt fram
fyrir hendurnar á manni. „Hönd
mín er ófrjáls því ég er íslending-
ur“ yrkir Ásgeir Hvítaskáld í
kvæði sínu um bjórinn og með
þessu áframhaldi líður ekki á
löngu áður en þetta gildir um allt
áfengi.
Forsjárhyggja stjórnvaldanna
er óþolandi. Það er hægt, með góð-
um vilja að skilja hvers vegna
svona hægt gengur að fá bjór
leyfðan, en það hversvegna á að
banna það sem hefur verið leyft og
ekki valdið stjórtjóni er óskiljan-
legt.
Nóg komið af SÍS veldi
Neytandi skrifar:
Nú finnst mér nóg komið af
þessu blessuðu SÍS-veldi. Ég fór í
afurðasölu SfS um daginn og ætl-
aði mér að kaupa annars flokks
lambakjöt. Það reyndist ekki til
svo ég hafði farið fýluferð. Nú
held ég heim á leið aftur og hugsa
mér að hafa þá bara samband við
stórmarkað KRON í Kópavogi
símleiðis og biðja um að mér yrði
sent það sem mig vanhagaði um.
Kl. 10.30 næ ég samhandi en er þá
beðin að bíða, sem ég geri, dágóða
stund. Loks rofnar sambandið, en
ég hrindi aftur og er enn beðin að
bíða. Eftir nokkra stund kemur
einhver í símann og biður mig að
hringja seinna því nú séu allir í
kaffi.
Svo er verið að tala um kjötfjall
og lambakjötsbirgðir en auðvitað
gefst maður bara upp á þessum
eltingarleik.
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til
fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal ernis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisróng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvsðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
1