Morgunblaðið - 02.11.1985, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER1985
Flutningavél lendir í
návígi við orrustuþotur
Stokkhólmi, 31. október. Frá Krik Lyden, ^réttaritara MorgunhlaAsins.
BRESK yfírvöld lýstu yfír í dag aö
verið væri aö rannsaka hvað hæft
væri í kvörtun um að flutningaþota
frá breska flugfélaginu Kondair
hafi verið hætt komin er tvær orr-
ustuþotur flugu þétt upp að henni
yfir Norðursjónum 22. október.
Orrustuþoturnar fóru það ná-
lægt flutningavélinni að lítill
gluggi losnaði af skrokk hennar
vegna breytingar á þrýstingi inni
í vélinni.
Vélin var á leið frá Eskilstuna
í Svíþjóð til Stanstead á Bret-
landi þegar atvikið átti sér stað.
Sænska flugumferðareftirlitið
hefur ekki gefið út neinar yfirlýs-
ingar um atburðinn, en talsmenn
breska flughersins og bresku
flugumferðarstjórnarinnar segja
að rannsókn fari nú fram á veg-
um sameiginlegs flugumferðar-
ráðs bæði hersins og hins opin-
bera.
Plugumferðarstjórnin kvað
ekkert yrði gefið upp um rann-
sókn málsins til þess að hvetja
flugmenn til að gefa skýrslu um
atvik, sem þetta.
Hvorki er vitað hvar flutninga-
vélin var nákvæmlega stödd, né
hverrar þjóðar orrustuþoturnar
voru.
Sú tilgáta hefur komið fram
að flutningavélin hafi villst inn
á æfingasvæði og flugmenn orr-
ustuvélanna hafi í misgáningi
ráðist að henni í þeirri trú að um
æfingaskotmark væri að ræða.
Yfirvöld breska flughersins
neita að segja nokkuð um málið,
en yfirmaður Kondair segir að
árásin hafi verið gerð að yfir-
lögðu ráði.
DIANA prinsessa af Wales fékk góðar viðtökur er hún heimsótti Belf-
ast á Norður-frlandi í síðustu viku og hafði hún því drjúga ástæðu til
að brosa.
AP/Símamynd
Fyrsta skipti t Belfast
• Þið sendiö okkur teikninguna og við
sendum öll gögn um hæl — ykkur að
kostnaðarlausu.
• Við sjáum um flutningsskjöl og toll-
pappíra.
• Margir flutningsmöguleikar.
• Við flytjum vöruna hvert sem er á ís-
landi.
• Hjá okkur starfar íslenskur fram
kvæmdastjóri.
• Biðjið um tilboð — Berið saman —
Sjáið hvaö unnt er aö sparal
— Sparið peninga!
Flugvélaverk-
smiðjur sýknaðar
vegna flugslyss
Seattlc, I. nóvember. AP.
MÁLSÓKN á hendur flugvélafram-
leiðandanum Boeing, þar sem krafíst
var 100 milljóna dollara skaöabóta
vegna hraps júmbóþotu frá ind-
verska flugfélaginu Air India nálægt
Bombay, hefur verið hætt. Dómurinn
úrskurðaði að slysið hefði orðið
vegna mistaka flugmanns.
I flugvélinni voru 213 manns og
létust þeir allir, er vélin hrapaði
skömmu eftir flugtak frá Bombay,
en hún var á leið til Dubai í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum. Aðstandendur þeirra er lét-
ust höfðuðu mál á hendur Boeing—
flugvélaverksmiðjunum, þar sem
þeir töldu að stjórntæki flugvélar-
innar hefðu ekki verið í fullkomnu
lagi. Flugvélaverksmiðjurnar báru
því hins vegar við að flugmaðurinn
hefði verið ofdrykkjumaður og
hefði eitt sinn verið settur í bann
vegna ofdrykkju. Vélin hrapaði á
nýársdag árið 1978.
Geimferð Challenger.
Oberpaffenhoven, Vestur-Þýskalandi, 1. nóv-
ember. AP.
BRÆÐSLUOFN, sem ætlaður er til
tilrauna í Spacelab-rannsóknarstöð-
inni er kominn f lag aftur, eftir að
hafa bilað vegna geimryks, en
geimferjan Challenger lenti óvænt í
rykskýi í geimnum, en ekki var vitað
af tilvist þess þar.
Hollendingurinn sem tekur þátt
í geimferðinni fór í „sleðaferð" á
miklum hraða í morgun og lauk
henni í mjög góðu ásigkomulagi að
sögn. Þessar sleðaferðir eru til
þess ætlaðar að kanna jafnvægis-
viðbrögð mannslikamans þar sem
þyngdarleysi ríkir.
Áhöfn geimferjunnar hafði tek-
ist að framkvæma þrjár tilraunir í
bræðsluofninum áður en hann bil-
aði. Hún getur nú haldið áfram
þar sem frá var horfið.
Húsbyggjendur og verktakar
Bræðslu-
ofn bilaði
Það er dýrt aö byggja, um það eru allir sammála. Því
er mikilsvert að spara peninga þar sem því verður við
komiö.
Fyrirtækið Jonis Trelast er þekkt á öllum Norðurlöndum
vegna flutninga þess á byggingavörum frá verksmiðjum
beint til kaupanda. Fyrirtækið útvegar og flytur timbur,
glugga, huröir. Dlötur. innréttinaar oa einanarun.
Veður
víða um heim
Laogst Hmt
Akureyri +3 tkýjaó
Amtterdam 5 9 skýjaó
Aþena 20 léttakýjaó
Bracelona 20 rykmistur
Berlín 1 5 tkýjaó
BrQteel 2 9 tkýjaó
Chicago 7 12 rigning
Dublín 4 10 heióskfrt
Feneyjar 13 þoka
Frankfurt 0 6 tkýjaó
Gent 3 16 rigning
Helsinki 0 6 tkýjað
Hong Kong 22 26 hoióekfrt
Jerúaalem 13 22 heiðekírt
Kaupmannah. 1 9 skýjað
LatPalmas 26 akýjað
Littabon 12 20 heiðekírt
London 7 10 ekýjeð
Lot Angelea 16 24 heiðakírt
Lúxemborg 5 þokumóðn
Malaga 23 heiðekírt
Mallorca 22 léttakýjað
Miami 26 30 heiðtkírt
Montreal +2 10 heiðtkírt
Motkva 2 4 •kýjað
NewYork 10 13 tkýjeð
0*16 +3 8 tkýjað
Parít 4 7 tkýjað
Peking 1 16 heiðakirt
Reykjavík 3 léttakýjaó
Rtó de Janeiro 20 35 heióakírt
Rómaborg 15 21 rigning
Stokkholmur 2 8 heióakírt
Sydney 15 21 tkýjaó
Tókýó 15 16 rigning
Vínarborg 4 6 þoka
Þórahötn 2 haglól
Úrslitakeppni um
N orðurlandamei s t-
aratitilinn hefst í dag
Osló, 1. nóvember. Frá Jan Krik Laure, fréttaritara Morgunblaósins.
Á HÁDEGI á morgun, laugardag,
hefst úrslitakeppni um Norður-
landameistaratitilinn í skák milli
Simons Agdestein, Jóhanns Hjart-
arsonar og Helga Ólafssonar.
Leiðrétting:
Venstre — ekki
Radikale Venstre
í frétt í Morgunblaðinu i gær,
föstudag, um brottrekstur Ove
Guldbergs, fyrrum utantíkisráð-
herra Dana, frá Alþjóðasambandi
frjálslyndra flokka, var sagt, að
Guldberg hefði verið fulltrúi Rad-
ikale Venstre. Svo er ekki, heldur
var hann fulltrúi Venstre eins og
flestir vita. Uffe Ellemann-Jensen,
núverandi utanríkisráðherra, er
heldur ekki formaður Radikale
Venstre, hann er formaður Vens-
tre. Er beðist afsökunar á þessum
meinlegu mistökum.
Mótið fer fram í Gjövik í Noregi á
Rica-hótelinu.
Þeir hafa allir verið útnefndir
stórmeistarar og urðu jafnir og
efstir á Norðurlandameistara-
mótinu í skák, sem haldið var í
ágústmánuði í sumar. Þeir neit-
uðu að taka þátt í hraðskákmóti
þá sem átti að gera út um það
hverjum bæri titillinn. Þeir
munu tefla sex umferðir og
mæta hvorum hinna tvisvar siri
efstir og jafnir, vinnur sá titil-
inn sem efstur var á stigum á
mótinu í sumar.
ERLENT