Morgunblaðið - 07.11.1985, Side 24
24
———--------------------------■
Nýtt félags-
heimili Fáks
tekið í notkun
NÝTT félagsheimili Hestamannafélagsins
Fáks var formlega tekið í notkun á laugar-
daginn. Á fjórða hundrað manns mættu
í kaffihlaðborð um daginn en um kvöldið
var sviðaveisla og dansleikur.
Félagsheimilið ásamt skrifstofuhús-
næði er tæplega 500 fm að stærð. Húsið
er staðsett á Víðivöllum, félagssvæði
Fáks, og er þaðan gott útsýni yfir skeið-
völlinn. Að sögn Arnar Ingólfssonar
framkvæmdastjóra Fáks var húsið
byggt að mestu leyti í sjálfboðavinnu.
Formaður byggingarnefndar var Birgir
Rafn Gunnarsson gjaldkeri Fáks. Húsið
teiknaði Þorvaldur Kristmundsson
arkitekt.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1985
Frá kaffisamsætinu í nýja félagsheimilinu á laugardaginn.
Morgunblaðið/Sig.Sigm.
Valdimar Jónsson, formaður Fáks, tv., þakkar
Erni Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Fáks vel
unnin störf við byggingu nýja félagsheimilsins.
Biskup íslands, afhjúp-
ar minnisvarða um
Matthías Jochumsson
BISKUP íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, mun afhjúpa minnisvarða
um Matthías Jochumsson iaugardag-
inn 9. nóvember nsstkomandi.
Minnisvarðinn stendur á Stekkjar-
holti í landi Skóga í Þorskafirði og
er hann reistur í tilefni af því að
þann 11. nóvember eru liðin 150 ár
frá fæðingu Matthíasar. Bauta-
steinninn er 180 sentimetra hár
stuðlabergsdrangur sem tekinn var
úr Vaðalfjöllum. Á hann hefur verið
settur koparskjöldur með mynd af
Matthíasi eftir Helga Gíslason
myndhöggvara og áletrun.
Eftir að minnisvarðinn verður
afhjúpaður verður farið út að
Reykhólum en þar verður sam-
koma í tilefni afhjúpunarinnar.
Vestfjarðaleið verður með auka-
ferð á laugardagsmorguninn og til
baka um kvöldið ef næg þátttaka
verður. Pantanir þurfa að berast
Vaðalfjöll
fyrir hádegi föstudaginn 8. nóv-
ember.
Freyjulundur. Morgunbiaðið/Ami
Stykkishólmur:
Hús Kvenfélagsins vígt
Stjkkisbilmi, 28. oktðber. ° °
ÞAÐ VAR mikill hátíðisdagur hjá Kvenfélaginu Hringurinn í Stykkishólmi
í gær, en þá var vígð og tekin í notkun félagsmiðstöð þeirra í skrúðgarði
bæjarins. Séra Gísli H. Kolbeins lýsti vígshi og blessaði heimilið, en formað-
ur félagsins, Kristborg Haraldsdóttir, flutti sögu byggingarinnar.
Það var fyrir ári að sú hugmynd
var reifuð á kvenfélagsfundi að
byggja hús fyrir starfsemi félags-
ins um leið og hugað væri að
aukinni starfsemi. Þessi hugmynd
fékk þann byr að seinasta vetrar-
dag á þessu ári tók Auður Júlíus-
dóttur fyrstu skóflustunguna, en
Auður hefur haft umsjón með
skrúðgarðinum undanfarin ár.
Trésmiðjan ösp sá síðan um grunn
og húsið undir þak og annaðist
teikningar, en rafmagn sá Raf-
húsið sf. í Stykkishólmi um. Kven-
félagskonur, makar þeirra og börn
unnu þarna mikla sjálfboðavinnu
og var húsið innréttað frágengið
og húsgögn komin í það fyrir
vígslu. Húsið er hringlaga og fag-
urt á að líta og sómir sér vel í
garðinum. Það er 42 fermetrar og
í því eru sæti fyrir 40 manns.
Vígslukaffi var og 40 konur mætt-
ar og síðan var fyrsti fundur kven-
félagsins á vetrinum. Þar var hús-
inu gefið nafn en áður hafði verið
óskað eftir uppástungum meðal
félagskvenna. Bárust alls 25 tillög-
ur og við atkvæðagreiðslu hlaut
nafnið Freyjulundur flest atkvæði.
Ég spurði formanninn hvað hús-
ið myndi kosta og sagði hún verðið
vera rúma milljón og færi eftir
hversu mikið sjálfboðavinnan væri
metin.
Húsið er einn stór salur, lítill
áhaldaklefi og snyrtiaðstaða og
eldhúsaðstaða er í salnum. Konur
hafa verið duglegar að afla fjár
og munu litlar skuldir hvíla á hús-
inu.
Þegar fréttaritari átti þarna leið
um voru konur að vinna muni á
basar sem halda á fyrst í desem-
ber. Var mikill hugur í þeim og
mikill áhugi fyrir hlutaveltu í
næsta mánuði. Hvað skyldu þau
vera mörg kvenfélögin á landi voru
sem starfa í eigin húsnæði.
Stjórn kvenfélagsins skipa nú:
Kristborg Haraldsdóttir formaður
og meðstjórnendur Þórhildur
Pálsdóttir og Ásta Jónsdóttir.
Arni.