Morgunblaðið - 11.01.1986, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.01.1986, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986 Svívirðilegnr róg- ur Þjóðviljans — eftir Guðmund G. Þórarinsson Skrif Þjóðviljans hinn 7. jan. sl. eru með slíkum eindæmum, að ekki verður undan vikist að gera þau að umtalsefni. í mínum huga hefur Þjóðviljinn ekki verið hátt skrifaður og reynsla mín af blaðinu þann tíma, sem ég hefi fengist við stjórnmál, er sú, að á þeim bæ skipti sannleikurinn ekki miklu máli. Tilgangurinn helg- ar meðalið. Þessi skrif hinn 7. jan. sl. eru íÍb bUÖ pfHTCiGnAimA VITAITIG 15, S. 26020,26065. Opið 1-4 LANGHOLTSV. 4ra herb. íb., 80 fm. Sérinng. V. 1850-1900 þ. KAMBSVEGUR. 3ja herb. íb„ 80 fm. Sérinng. V. 1650 þús. BOLLAGATA. 2ja herb. íb„ 45 fm. Sérinng. V. 1250 þús. GRETTISGATA — 1. HÆO. 3ja herb. íb„ 85 fm. í nýbyggingu. Tilb. u. trév. V. 2,3 millj. BORGARHOLTSBRAUT KÓP. 4ra herb. íb„ 120 fm á 1. hæö. Suöursvalir. Bílsk.r. V. 3050 þ. LEIFSGATA 1. HÆÐ. 4ra herb. íb„ 100 fm. Suðursv. V. 2250 þ. LAUGARNESV. — 1 HÆÐ. 4ra herb. íb„ 117 fm auk einstakl- ingsíb. í kj. Nýjar innr. V. 3,2 m. ÁSGARÐUR — RAÐHÚS. Raö- hús 116 fm. Garöur í suöur. V. 2550 þús. Bergur Oliversson hdl., Gunnar Gunnarsson hs: 77410. nánast skólabókardæmi um, hvem- ig óvandaðir aðilar geta troðið mannorð borgaranna niður í skít- inn. Málatilbúnaður Birt er frétt um stórfelld skatt- svik hjá fyrirtæki, auðvitað órök- studd og engra heimildarmanna getið. Látið er að því liggja, að um sé að ræða einhver stórfelldustu skattsvik, sem upp hafi komið hér- lendis, á annað hundrað milljóna króna hafi verið skotið undan skatti. En fyrirtæki sem slíkt er ekki ábyrgt, því er stjómað af einstakl- ingum. Dreginn er fram einstaklingur, Guðm. G. Þórarinsson, og til þess að taka af allan vafa, er maðurinn auðkenndur sem fyrrverandi þing- maður og gjaldkeri Framsóknar- flokksins. Engin tvímæli skulu um hver maðurinn er. Síðan em tengsl mannsins við fyrirtækið og ábyrgð hans rakin. Cterkurog k/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Hafnarfjörður Til sölu m.a.: Opiö ídag kl. 13-16. Sléttahraun. Falleg og björt 2ja herb. endaíb. á 2. h. V. 1,6 m. Hólabraut. 3ja herb. góö enda- íb. á 2. hæð og tvö herb. í kj. Inngangur m. annarri íbúö. Fal- leg lóð. V. 2,1 millj. Austurgata. 3ja-4ra herb. efri hæð í tvíb. V. 1,8-1,9 millj. Hraunhvammur. 3ja-4ra herb. neöri hæð í tvíb. V. 1,6 millj. Hringbraut. 5 herb. steinh. á tveim hæöum. Tvö eldhús. Góö- ir stækkunarmögul. Stór lóö. V. ca. 2 millj. Miövangur. 2ja og 3ja herb. íbúöir. V. frá 1,7 millj. Goðaland. 200 fm fallegt raöh. á einni hæð. Markárflöt. 190 fm glæsil. hús m. 54 fm bílsk. Njarövík. 153 fm gott hús m. stórum bílsk. og viöbyggingu. Skipti á eign í Hafnarf. æskil. Ámi Gunniaugsson hn Austurgötu 10, sfmi 50764. 5IMAR 21150-21370 SOtUStJ LARUS P VALDIMARS LOGM JOH ÞORÐARSON HOL Opiö i dag frá kl. 1-5 — Bjóðum til sölu m.a.: Ný úrvalsíbúö Viö Neöstaleiti á 1. hæó 2ja herb. 68 fm nettó. Sérþv.hús Sólverönd. Fullgert bílhýsi fylgir. 3ja herb. íbúðir við: Hjarðarhaga — Furugrund — Krummahóla — Brekkubyggö Gb. — Hjallabraut Hf. — ódýra 3ja herb. íb. i gamla vesturbænum sem er laus strax. 4ra herb. íbúöir við: Holtagerði Kóp. — Vesturberg — Kríuhóla — ódýra 4ra herb. rishæð í Smáíbúðahverfi. . 0 ■ w ■ - * Sérbýli í vesturborginni Endaraðhús skammt frá Einimel meö 4ra-5 herb. íb á pöllum. Alls um 165 fm. Skuldlaus eign. Laus strax. Eignaskipti möguleg. Einbýlishús — makaskipti Höfum á skrá einb.hús og raðhús í Garöabæ, í Reykjavík, á Seltj.nesi, i Smáibúöahverfi, Breiöholti, bæöi í smíöum og fullbúin. Margskonar eignaskipti möguleg. Laugarnes — Langholtsvegur j^| £ — nágrenni nBaananrannannM Góð 3ja herb. íb. óskast. FASTEIGNASALAN Traustur kaupandi. LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370 1) Þjóðviljinn upplýsir að Guðm. G. Þórarinsson hafi verið stjórnar- formaður og annar frair.kvæmda- stjóri fyrirtækisins til haustdaga 1984. Það er auðvitað mjög mikilsvert atriði. Þjóðviljinn telur, að um stór- felld skattsvik sé að ræða í nokkur ár. Skattskýrsla fyrir árið 1985 hefur ekki verið lögð fram. Hlýtur því að vera um að ræða 1984 og árin þar fyrir framan. Því þarf að koma fram, að þessi einstaklingur hafí borið ábyrgðina árið 1984 og árin þar á undan. Þannig er ljóst að tímabilið stemmir. 2) Þjóðviljinn upplýsir, að Guðm. G. Þórarinsson hafí verið stjómar- formaður þann tíma, sem um ræðir. Öllum er ljóst, að stjómarformaður ber mikla ábyrgð á gerðum fyrir- tækisins. 3) Þjóðviljinn upplýsir, að Guðm. G. Þórarinsson hafí verið annar framkvæmdastjóri fyrirtækisins þann tíma, sem um ræðir. Öllum á þannig að vera ljós ábyrgð mannsins. 4) Þjóðviljinn upplýsir, að Guðm. G. Þórarinsson sé einn stærsti eig- andi fyrirtækisins þannig, að öllum séu ljósir hagsmunir mannsins í málinu. 5) Til þess að koma þessu örugg- lega til skila til alþjóðar dugar ekkert minna en að birta söguna á forsíðu blaðsins. Og ekki bara á forsíðu, heldur yfír þvera forsíðuna með heimsstyijaldarletri. 6) Til þess að gulltryggja það, að ekki fari fram hjá neinum, hvílík- ur glæpamaður hér er á ferð, er nafn mannsins, Guðm. G. Þórarins- son, tekið í fyrirsögnina. Enginn, sem sér Þjóðviljann, getur misst af þessari frétt. Engum, sem sér Þjóðviljann, getur blandast hugur um, að um stórfellt afbrot er að ræða. Enginn, sem les Þjóð- viljann, getur ruglast í því, hver ber ábyrgðina. Guðm. G. Þórarinsson á að sækja til saka. Sannleikur og raunveruleiki Sannleikurinn, sem líklega held- ur sjaldan vöku fyrir þeim Þjóðvilja- mönnum, er hins vegar þessi: 1) Guðm. G. Þórarinsson seldi eignarhlut sinn í fyrirtækinu í árs- lok 1978 og hefur engra hagsmuna átt að gæta í þessu fyrirtæki síðan. 2) Guðm. G. Þórarinsson lét af störfum sem stjómarformaður í fyrirtækinu um leið og hann seldi sinn eignarhlut og hefur aldrei setið í stjóm fyrirtækisins síðan. 3) Guðm. G. Þórarinsson starf- Guðmundur G. Þórarinsson „Rakalausar fullyrð- ingar um svívirði- legustu afbrot eru birt- ar um einstakling. Vill einhver reyna að geta sér til um tilgang- inn? Það er raunalegt fyrir heiðvirt alþýðufólk að eiga sér slíkt málgagn.“ aði hjá fyrirtækinu sem fram- kvæmdastjóri nokkra mánuði árið 1983 eða frá apríl 1983 fram í janúar 1984. Starfssvið hans var mest öflun viðskiptasambanda erlendis, ýmis samningagerð og viðræður við er- lend fyrirtæki. Guðm. G. Þórarinsson fór ekki með daglega stjóm eða mannafor- ráð í fyrirtækinu, ekki með fjármál og hafði ekki prókúm fyrir fyrir- tækið. Þegar hann hóf störf var uppgjöri ársins 1982 lokið. Þegar hann hætti var uppgjör ársins 1983 ekki hafið. 4) Frá jan. 1984 hefur Guðm. G. Þórarinsson ekkert haft með málefni fyrirtækisins að gera. Hvernig finnst mönnum þetta nú koma saman við málflutning Þjóð- viljans og þann þunga, sem hann leggur í fréttina? Hvaða merkingu hafa orðin róg- ur og lygar í íslenskri tungu, ef þau lýsa ekki þessum athöfnum Þjóðvilj- ans? Rógur Af því, sem að framan segir, hlýt- ur mönnum að vera ljóst, að mál- flutningur Þjóðviljans er hraksmán- arlegur. En við þetta bætist, að blaðið vinnur gegn betri vitund. Guðmundur Þórðarson lögfræð- Afmæliskveðja: Jóhann G. Benedikts- son tannlæknir Kæri Jóhann Gunnar. Þar sem þú dvelur fjarri ættar- landi vom á þessum merkisdegi, (9. jan.), þá vil ég nota tækifærið til þess að óska þér til hamingju með 70 ára afmælisdaginn. Ég valdi þann kost að senda þér þessa kveðju á þennan hátt þar sem ég hef grun um að hún berist þér fyrr en ég hefði sent hana með pósti, og ég veit þú hafðir uppi óskir um að fá „línuna" senda ekki sjaldnar en einu sinni í viku. Ég hirði ekki um að rekja ættar- tölu þína, enda ertu öllum hnútum kunnugur þar, en viss er ég um að æskufélagar og vinir frá Húsavík hugsa hlýlega til „Gumpa“ í dag. Svo er eflaust um fleiri, því svo mörgum hefur þú lagt til af lífsvisku þinni og manngæðum. Ég el þá ósk í bijósti að ég hafí ekki brugðist þér er ég, úr hendi þinni, þá það lófagull er þér þótti vænst um og ég hef geymt og reynt að ávaxta, eftir bestu getu. Á tím- um gullbóka og stjömureikninga tel ég 300% nokkuð gott. Ég veit ég mæli fyrir munn vina þinna og ættingja hér heima á Fróni er ég endurtek heillaóskir þér til handa á afmælisdegi þínum og óska þér langra lífdaga og góðrar heim- • komu. ingur, framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins, tjáði mér, að blaðamaður Þjóðviljans hefði hringt til sín hinn 6. jan. sl. eða daginn áður en for- síðufréttin birtist. Guðmundur Þórðarson sagði blaðamanninum, að Guðm. G. Þórarinsson væri ekkert í fyrirtækinu, ætti ekkert í því, en hefði unnið þama í nokkra mánuði fyrir að minnsta kosti tveim ámm. Eftir að hafa fengið þessar upp- lýsingar birtir Þjóðviljinn forsíðu- fréttina. Nú skyldi maður ætla, að þessar upplýsingar hefðu gefíð tilefni til þess að kanna málið nánar. Nei. Þjóðviljann skiptir sannleikurinn engu máli, ef koma skal höggi á einstakling. Rakalausar fullyrðingar um sví- virðilegustu afbrot em birtar um einstakling. Vill einhver reyna að geta sér til um tilganginn? Það er raunalegt fyrir heiðvirt alþýðufólk að eiga sér slíkt mál- gagn. Málsókn Auðvitað á ég enga leið aðra en að stefna blaðinu. Það verður að hnekkja svona rógi með dómi. Svona skrif em ekki bara siðlaus, þau hljóta að vera lögbrot líka. Það er illa komið, ef blaðamanna- stéttin telur sér sóma að svona vinnubrögðum. Reyndar hlýtur sú stétt manna að verða að fara að gá að sér. Það er ekki unnt að meðhöndla æm borgaranna sem skít á götunum. Ég mun líka kæra þessi skrif Þjóðviljans til siðanefndar blaða- mannafélagsins. Láti hún þetta ekki til sín taka, verða fleiri en ég undr- andi. Þessir menn mega ekki hverfa svo langt aftur, að þeir séu í beinni hættu með að fara að ganga á fjór- um fótum. Um aðdróttanirnar gegn fyrir- tækinu get ég ekkert sagt. Ég einfaldlega þekki málið ekki. Þar verður sannleikurinn að koma í ljós og öllum best að fella enga dóma, fyrr en hann liggur fyrir. Hitt er mikið umhugsunarefni, hvemig ríkisíjÖlmiðill eins og sjón- varpið hefur meðhöndlað þetta mál. Sjónvarpið hellir yfir þjóðina upplýsingum um mál, sem er í athugun og dómur er nánast felld- ur, þótt.kæra liggi ekki fyrir. Ékki meira um það að sinni. Einhvers staðar segir: „Nýir siðir með nýjum herrum." En illa er ég svikinn ef dómgreind íslensku þjóð- arinnar segir henni ekki að svona vinnubrögð fela í sér mikla hættu. Væri ég framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska verslunarfélagsins mundi ég umsvifalaust krefjast opinberrar rannsóknar á þessum fréttaflutningi sjónvarpsins og heimildum þess. . Höfundur er verkfræðingvr og fyrrverandi aiþingismaður. Með bestu kveðjum og þökkum. Þinn tengdasonur, Arnar Einarsson. P.s. Þú kyssir Höllu frá okkur öllum. Sami

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.