Morgunblaðið - 11.01.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR11. JANÚAR 1986
15
Minning:
Helgi H. Hjartar-
son, Grindavík
Fæddur 14. desember 1922
Dáinn 31. desember 1985
í gær kvöddum við elskulegan
tengdaföður minn og afa okkar,
Helga, er andaðist á heimili sínu
að morgni gamlársdags. Ekki get-
um við látið hjá líða að minnast
hans með fáeinum fátæklegum
þakkarorðum þó á slíkum stundum
sé manni orða vant.
Á heimili hans og Kæju kom ég
fyrst fyrir sautján árum. Fyrstu tvö
árin í búskap okkar Harðar vorum
við á Helgafelli. Var mér tekið þar
með einstæðri hlýju, góðvild og
einlægri vináttu sem ætíð einkenndi
Helga og sú vinátta hefur haldist
síðan.
Helgi Einar og Ármann Ásgeir
kveðja nú afa sinn með sárum
söknuði, samband þeirra við afa
sinn var einstætt, mótað af ást og
umhyggju og samverustundir þeirra
bæði á Helgafelli og í sumarhúsi
afa og ömmu út í eyjunni Knannar-
nesi á Mýrum eru okkur öllum
ógleymanlegar. Síðastliðið sumar
verður Helga Einari ógleymanlegt
því þá var hann með ömmu og sinni
og afa í eyjunni sem var þeim svo
kær og þar undu þeir nafnamir sér
saman við leik og störf.
Við þökkum nú elsku afa og
tengdaföður fyrir allt sem hann
gerði fyrir okkur og var okkur í
þessu lífí og biðjum nú algóðan guð
að taka hann í sinn faðm og varð-
veita hann.
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir
og synir.
Margrét
Árnadótt-
ir — Kveðja
Fædd 14. mai 1911
Dáin 3. janúar 1986
Okkur, systkinin að Malarási 1,
Reykjavík, langar að kveðja ömmu
okkar, Margréti Ámadóttur, í
hinsta sinn og þakka fyrir alla þá
hlýju og velvild sem hún sýndi
okkur gegnum árin. Sérstaklega
komu sér alltaf jafn vel sokkamir
og vettlingamir sem hún sendi
okkur og ptjónaði við eldhúsborðið
meðan hún sagði okkur sögur eða
þegar hún rifjaði upp gamlar minn-
ingar frá bemskudögum.
Okkur eldri systkinunum er það
minnisstætt er við notuðum eina
af sögunum sem hún sagði okkur
til ritgerðarsmíði í menntaskóla.
Svo viljum við fyrir hönd okkar
yngri systkinanna þakka ömmu
fyrir þau fallegu orð og bænir sem
hún kenndi okkur að nota.
Að lokum viljum við votta afa
okkar innilegustu samúð.
Egill, Margrét, Hjálmar
og Aníta Osk
VJterkurog
^3 hagkvæmur
auglýsingamiðill!
2 jBflygmtMnfoifo
BARNAFATA-
OTSALAN
ER HAFIN
ALLT AÐ 70% AFSL.
&
VÖRUMARKAÐURINN
ÁRMÚLA
SÍMI 686113
SUÐURLANDSBRAUT 16 — SÍMI 35200
r f « \ • M L mhí I 16 I m L j
l/ r • í æ hJ lll i — -
I JMr 1B w || | 111 1
l — i »■ 1 jH j
■ m m -m ~ m ® 1