Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986 Kennarar við Grunnskóla ísafjarðar: Krefjast 50 þúsund kr. lágmarkslauna Reiðubúnir að segja upp fyrir 1. febrúar ísafirði, 29 .janúar. KENNARAR við Grunnskóla ísa- fjarðar hafa gert kröfu um 50 þúsund króna lágmarkslaun og hafa lýst sig reiðubúna til að segja upp störfum 1. febrúar næstkomandi þannig að þeir gætu látið af störfum 1. febrúar. Þóra Karlsdóttir, trúnaðarmað- ur kennara við skólann, sagði í Hreinn aðstoðar- maður Matthíasar HREINN Loftsson, viðskiptafræð- ingur, hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Matthíasar Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins. Hreinn Loftsson var aðstoðarmaður Matth- íasar er hann gegndi störfum við- skiptaráðherra og áður var hann deildarstjóri í ráðuneytinu. Formaður Iðju með lista við stjórnarkjör BJARNI Jakobsson, formaður Iðju, mun ásamt fleiri núverandi sljórnarmönnum í Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, vera með framboð í undirbúningi til stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs félagsins. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins verður á lista Bjama fólk úr Sjálfstæðis-, Framsóknar- og Alþýðuflokki. Áður er kominn fram listi Guðmundar Þ. Jónssonar, for- manns Landssambands iðnverka- fólks. Framboðsfrestur rennur út klukkan 11 í fyrramálið, föstudag. viðtali við Morgunblaðið að það væi-i algjör tilviljun að kennarar á Isafirði færu fyrstir kennara með kröfugerð gagnvart ríkinu, en það Iofaði ekki góðu um fram- takssemi Kennarasambandsins að enn væri verið að rífast um 5% launahækkun, sem Albert Guðmundsson þáverandi fjár- málaráðherra hefði lofað kenn- urum á síðasta sumri. Þóra sagð- ist treysta því að almenningur sæi að krafan um 50 þúsund króna lágmarkslaun fyrir kenn- ara væri eðlileg og sjálfsögð. Jón Baldvin Hannesson, skóla- stjóri á Isafirði, sagðist taka undir kröfur kennara. Hann sagði að ekki mætti setja samasemmerki á milli launakrafna kennara og annarra launþega, þar sem kennarar hefðu dregist mjög aftur úr í launum og hefðu bæði menntamálaráðherra og forseti íslands getið þess nýlega í fjölmiðlum. Hann sagði að af 18 kennurum, sem ráðnir voru að grunnskólanum síðastliðið haust hefðu 14 verið réttindalausir. - Úlfar. Frá vinstri: Þröstur Arnason 13 ára, Héðinn Steingrímsson 11 ára og Hannes Stefánsson 13 ára. Þrettán ára skák- meistari Reykjavíkur Þröstur Arnason, yngsti skákmeistari Reykjavíkur frá upphafi ÞRETTÁN ára piltur, Þröstur Árnason, varð í gærkvöldi yngsti skákmeistari Reykjavík- ur. Hann hlaut 9 vinninga á Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk í gærkvöldi. Helsti keppi- nautur hans og jafnaldri, Hann- es Stefánsson, varð að sætta sig við jafntefli gegn Héðni Stein- grímssyni, sem er aðeins 11 ára og hiaut 8 vinninga. Skákþingið var sannarlega mót þessara pilta. Þröstur Árnason hlaut 9 vinn- inga. í 2—3. sæti eru Hannes Stefánsson og Arnaldur Loftsson með 8 'A' vinning. Þess má geta, að mótsstjórn Reykjavíkurskák- mótsins hefur ákveðið að bjóða Þresti og Hannesi ásamt sex stigalausum skákmönnum á mót- ið. Þresti og Hannesi er boðið vegna frábærrar frammistöðu við skákborðið að undanförnu. Ásamt þeim er Þorsteini Þorsteinssyni, Guðmundi Gíslasyni, Jóni Garðari Viðarssyni, Tómasi Björnssyni og Ólafi Kristjánssyni boðið til móts- Tafir Rússa hækkuðu olíu- farm um 11,5 milljónir kr. — Lækkun útsöluverðs frestast þess vegna um tvo mánuði — Hagkvæmara orðið að nota svartolíu á fiskiskipin GASOLÍUFARMUR olíuskips sem fór frá Sovétríkjunum í fyrradag áleiðis til íslands hækk- aði um 11,5 milljónir kr. vegna þess að Rússar sendu það af stað i fyrradag í staðinn fyrir laugar- Fljúgandi furðuhlutur? Furðuljós sást á himni á Djúpavogi og við Grímsey á sunnudagskvöld „ÉG VAR á leið heim um klukkan tiu mínútur fyrir níu á sunnu- dagskvöldið. Þá sá ég grænt ljós á himninum í norðvesturátt," sagði Guðjón Sigurðsson 17 ára gamall piltur á Djúpavogi. „Ljósið sást í nokkrar sekúndur. Það fór álíka hratt og flugvél og voru eldglæringar langt aftan úr því.“ Furðuljós sáust einnig í Grímsey og í Kelduhverfi á sunnudagskvöldið. dag eins og áætlað var. Ef skipið hefði verið lestað á fimmtudag, þegar Rotterdamskráning gasol- íu var í lágmarki, hefði gasolíu- farmurinn orðið 17,3 milljónum kr. ódýrari en raun varð á. Farm- urinn er 16.000 tonn. Olíukaupin frá Sovétríkjunum eru eins og kunnugt er miðuð við verðskrán- ingu í Rotterdam sem er við- kvæm fyrir hverskonar sveiflum í framboði og eftirspurn á heims- markaði. Þessi 3 daga dráttur á lestun skipsins er innan þeirra marka sem Rússar hafa heimild til og að sögn Kristjáns B. Ólafssonar deildar- stjóra hagdeildar Olíufélagsins Skeljungs hf. breyta þeir oft lestun- ardögum eftir því hvort heimsmark- aðsverðið er á upp- eða niðurleið. Kristján sagði að kaupin á þess- um farmi á tæpa 200 dollara tonnið gerði það að verkum að útsöluverð hvers gasolíulítra þyrfti að vera 11,95 kr., 5 aurum hærra en það er nú. Olíufélögin myndu þó ekki fara fram á hækkun sem því næmi vegna óvissunnar á markaðnum. Ef farmurinn hefði verið lestaður á laugardag eins og áætlað var hefði verið hægt að Iækka útsöluverð gasolíu niður í 11,68 kr. og niður í 11,56 kr. ef farmurinn hefði verið keyptur á því verði sem gilti fyrir viku. Að sögn Kristjáns veitir það verð sem gasolíufarmurinn var keyptur á að þessu sinni ekki svigrúm til lækkunar á útsöluverði gasolíu, eins og raun er orðin á með bensfn- og svartolíuverðið. Sagði hann að út- söluverð hvers lítra í þeim farmi sem nú var keyptur væri 10,22 kr. og ef næsti farmur frá Sovétríkjun- um yrði á sama verði og gengið héldist óbreytt, yrði hægt að lækka útsöluverð gasolíunnar um 1,60 kr., eða úr 11,90 kr. í 10,30 kr. í apríl. Áætlað er að næsti gasolíu- farmur komi í lok mars. Kristján sagði að fyrirframsamn- ingar ríkisins um meginhluta olíu- og bensíninnkaupa landsmanna gæfu olíufélögunum ekkert svigrúm til hagkvæmra innkaupa. Nú semdi ríkið um öll svartolíuinnkaupin, 97% bensínkaupanna og 75—80% gasol- íunnar. „Ef við fengjum að sjá um mun stærri hluta innkaupanna myndum við geta náð jaftigóðum samningum og ríkið eða jafnvel betri," sagði Kristján. Þegar boðuð lækkun svartolíu kemur til framkvæmda verður svartolían orðin 25% ódýrari en gasolían. Svartolíulítrinn fer niður í 8,88 kr. en gasolían kostar 11,90 kr. Kristján taldi að verðmunurinn yrði þá orðinn það mikill að hag- kvæmara yrði fyrir útgerðarmenn að nota svartolíu á þau skip sem mögulegt væri. Taldi hann að þessi munur væri eðlilegur og bjóst við að hann héldist. Um mitt síðasta ár var útsöluverð á gas- og svartolíu orðið svipað, um 11 krónur lítrinn, og skiptu þá margir útgerðarmenn yfir á gasolíu vegna þess að það var talið hagkvæmara. En nú hefur dæmið aftur snúist við að því er virðist. Guðjón var í bíl á leið heim til sín, en hann býr svolítið innan við þorpið. Þegar hann hafði séð ljósið fór hann beint til Sigurðar Gísla- sonar lögreglumanns og sagði honum frá því. Sigurður hringdi þá í ýmsar áttir og kannaði hvort hér hefði getað verið um flugvél að ræða. Svo reyndist ekki vera. Einhveijir heyrðu drunur um svip- að leyti, en Guðjón sagðist vera búinn að bera saman tímann og virðast þær hafa heyrst fimmtán mínútum áður en hann sá furðu- Ijósið. Hann sagði að ólíklegt væri að drunumar hefðu fylgt ljósinu, sagði Guðjón Sigurðsson. Sama kvöld sáu nokkrir Gríms- eyingar einnig furðuljós á himn- um. Biaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Jóninu Sigurðardóttur, en hún er ein þeirra. Jónína sagð- ist hafa verið inni í stofu um níu- leytið á sunnudagskvöldið að horfa á sjónvarpið þegar hún sá skært ljós fyrir utan gluggann. „Mér fannst ljósið vera hvítt á lit og það var lengi að fara hjá. Ég hélt að þetta væri flugvél. Rétt áður en ljósið hvarf komu eldglær- ingar aftan úr því og þá áttaði ég mig á því að þetta var eitthvað annað en flugvél," sagði Jónína. Hún sagðist ekki geta Imyndað sér hvað þetta var. Olafur Jóhann- esson eiginmaður Jónínu sá einnig ljósið rétt áður en það hvarf. Jónína sagði að Grímseyingar hefðu haft samband við loft- skeytastöðina á Siglufirði og spurst fyrir um hvort flugvélar eða skip hefðu e.t.v. verið þama á ferðinni, en svo reyndist ekki vera. Einnig var haft samband við vamarliðið, en engar flugvélar frá þeim voru á þessum slóðum. „Hef ekki leitað ráða hjá borgars1jóranum“ — segir Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra um gagn- rýni Daviðs Oddssonar á meðferð hans á lánamálum stúdenta „RÁÐLEGGINGAR eru góðar hvaðan sem þær koma, en ég hef ekki leitað ráða hjá borgarstjóranum og óska eftir að hann hinkri við þar til þar að kemur," sagði Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra þegar leitað var álits hans á gagnrýni Davíðs Oddssonar borgarstjóra á meðferð hans á málefnum Lánasjóðs íslenskra náms- manna. í ræðu sinni á aðalfundi Fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja- vík hvatti Davíð til þess að forráða- menn þjóðarinnar, sem trúnaðar- störfum gegna að hálfu sjálfstæðis- manna, standi þannig að málum, að andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins næðu ekki að ófrægja ákvarðan- ir þeirra og rangtúlka, svo andstaða við áform stjómvalda verði meiri en raunveruleg efni standa til. Nefndi borgarstjóri lánamál stúd- enta sérstaklega af þessu tilefni og sagði m.a. að fara yrði varlega í að skerða kjör námsmanna. Sverrir Hermannsson sagði einn- ig, þegar álits hans var leitað: „Ég hélt að borgarstjórinn væri meiri kjarkmaður en þama kemur fram, en gjet ekki skipt mér af því þó kosningaskjálfti grípi menn. Annað hef ég ekki um þetta að segja,“ sagði Sverrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.