Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
21
Ný reglugerð um gæðamat á
kjöti væntanleg á þessu ári
Staðarbakka, 28. janúar.
í GÆR, 27. janúar, var almennur
bændafundur haldinn í félags-
heimilinu Asbyrgi í Miðfirði.
Fundarboðendur voru Búnaðar-
samband Vestur-Húnavatnssýslu
og Hagsmunaf élag sauðfjár-
bænda. Frummælendur voru þeir
Sigurgeir Þorgeirsson, sauðfjár-
ræktarráðunautur og Magnús
Friðgeirsson, sölustjóri búvöru-
deildar SÍS.
í ræðu sinni skýrði Sigurgeir frá
því, að væntanleg væri á þessu ári
ný reglugerð um gæðamat á kjöti.
Lýsti hann í stórum dráttum þeim
breytingum sem þar væru fyrir-
hugaðar. Kvaðst hann vona að ef
vel tækist til um framkvæmd gæti
hún orðið öllum til hagsbóta. Fram-
leiðendur fengju réttlátara mat á
kjötið og hægara fyrir neytendur
að fá þá vöru sem hveijum og einum
hentaði best. Þá lýsti hann einnig
tildrögum þess, að hann, ásamt
öðrum manni, voru sendir til Banda-
ríkjanna til að kynna sér söluhorfur
á íslensku dilkakjöti þar, en eins
og öllum væri kunnugt hefði árang-
ur af þessari ferð ekki orðið sá sem
margir vonuðust eftir. En þótt svo
hefði farið í þetta sinn væri ekki
ástæða til að gefast upp við þessa
tilraun.
Magnús ræddi um sölumál af-
urðasölunnar, breytingu á neyslu-
venjum hér innanlands og þar með
minnkandi neyslu á dilkakjöti á síð-
ustu árum og um leið minnkandi
framleiðslu hjá bændum. Hann taldi
ekki sanngjarnt, að þar sem að
kjötframleiðsla í landinu væri meiri
en seldist innanlands, þá væri sauð-
fjárbændum einum gert að draga úr
framleiðslu sinni, en enginn kvóti
væri settur á svína- og kjúklinga-
framleiðslu. Þá nefndi hann ýmsar
nýjungar sem afurðasalan væri að
koma í framkvæmd til að skapa
meiri ijölbreytni í framleiðslunni og
auka þar með söluna.
Hann ræddi einnig um sendi-
nefndina til Ameríku og árangur
þeirrar ferðar. Ekki virtust frum-
mælendur vera sammála um öll
atriði í því máli, en þeim kom saman
um að frásagnir í fjölmiðlum um
þau mál hefðu oft verið villandi og
jafnvel alrangar. Að loknum fram-
söguræðum voru ftjálsar umræður
og komu margar fyrirspurnir, sem
frummælendur svöruðu. Fundurinn
var fjölsóttur og fór hið besta fram.
Benedikt.
Fyrirlestur á vegnm SVS og Varðbergs:
Hlutverk Norðurlanda
og slökun spennu
LAUGARDAGINN 1. febrúar
halda Samtök um vestræna
samvinnu (SVS) og Varðberg
sameiginlegan hádegisfund í
Átthagasal Hótel Sögu, og
verður fundarstaðurinn opnað-
ur klukkan tólf.
Mary Dau, sendiráðunautur í
dönsku utanríkisþjónustunni og
rithöfundur um sovézk málefni,
flytur framsöguerindi á ensku um
„Hlutverk Norðurlandaþjóða við
að draga úr spennu milli austurs
og vesturs" og svarar síðan fyrir-
spumum.
Aðgangur er heimill félags-
mönnum í SVS og Varðbergi; svo
og gestum félagsmanna.
Mary Dau hefur starfað í
danska utanríkisráðuneytinu frá
árinu 1963 og var m.a. staðgeng-
ill sendiherra í Moskvu á árunum
1980—1984. Meðal rita hennar
má nefna bækumar „Rússar á
Borgundarhólmi" („Russeme paa
Bomholm") og „Danmörk og
Sovétríkin 1944—1949“. Á síðast-
liðnu hausti kom síðasta bók
hennar út, „HANSEN OG
Ivanov", sem fjallar um slökunar-
stefnuna í samskiptum stórveld-
anna, afvopnunarviðræður og
hlutverk Evrópuríkja í stórvelda-
Mary Dau
samskiptum. Sú bók hefur hlotið
einkar lofsamlega dóma.
(Fréttatilkynning)
Könnun Jafnréttisráðs á íþróttafréttum:
Konur komast varla á blað
Á VEGUM Jafnréttisráðs hefur farið fram könnun á íþróttaefni
dagblaðanna með tilliti til umfjöllunar um íþróttaiðkanir kvenna og
karla. Sambærileg könnun var gerð á vegum ráðsins fyrir þrem árum
og í ljós kemur að litlar sem engar breytingar hafa átt sér stað á
þessum tíma á íþróttaefni varðandi íþróttaiðkanir kvenna.
Könnunin var framkvæmd af
Fríðu Björk Pálsdóttur þjóðfélags-
fræðing og athugaði hún íþrótta-
fréttir dagblaða á tímabilinu 2.-21.
nóvember 1985. í könnuninni kom
fram að umfjöllun um íþróttir
kvenna, íþróttaafrek þeirra og
íþróttakonur almennt eru í ósam-
ræmi við hlutfallstölu þeirra í
íþróttasambandi íslands. Konur eru
rúmlega 30% af íþróttaiðkendum
innan sambandsins. Niðurstöður
könnunarinnar eru m.a. þær að í
fyrirsögnum er vísun til kvenna
hlutfallslega 3,4% en 3,3% árið
1982. Til karla var vísað í 33,8%
tilvika sem er veruleg breyting frá
fyrri könnun, en þá var vísað til
þeirra í 81,3% tilvika. Fyrirsögnum
sem vísuðu til hvorugs kynsins eða
beggja í senn hafði hins vegar fjölg-
að um tæp 50%.
Akureyri:
Höfuðkúpu-
brotnaði í
samkvæmi
Akureyri, 27. janúar.
UNGUR maður höfuðkúpubrotnaði
er hann féll niður stiga í húsi á
Akureyri, þar sem hann var í
samkvæmi aðfaranótt laugardags.
Hann liggur nú í Fjórðungssjúkra-
húsinu og er á batavegi.
í greinum er fjallað um konur í
3,9% af heildartexta, en í 83,1%
fjallað um karla árið 1985. Ef litið
er á texta auk mynda var hlutfall
kvenna árið 1982 2,5% en 3,2% árið
1985. Hlutfall karla bæði árin var
rúmlega 80%.
Hlutfall mjmda af konum og
körlum hefur lítið breyst. Árið 1982
voru 4,3% myndanna af konum,
88,7% af körlum og 7% voru al-
mennar íþróttamyndir. Árið 1985
voru 5,3% mynda af konum, 87,0%
af körlum og 7,7% almenns eðlis.
Hlutfallstala þess rýmis sem mynd-
imar taka er svipað og hlutfall
kynja varðandi fjölda mynda.
Flestar greina sem fjalla um
konur árið 1985 eru um handknatt-
leik, 67,5%, og körfuknattleik
23,3%. Greinar um íþróttir karla
eru að mestu um knattspymu,
50,8%, og handknattleik 28,8%.
íþróttaefni dagblaðanna árið
1982 var 7,6% af heildarefni þeirra
árið 1982, en 6,0% árið 1985.
Jazz í Stúdenta-
kjallaranum
JAZZKVÖLD verður í St.údenta-
kjallaranum í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, 30. jan.
Kvartett skipaður eftirtöldum
hljóðfæraleikurum leikur: Pétur
Grétarsson, trommur, Bjöm Thor-
oddsen, gítar, Stefán S. Stefánsson,
saxófónn og fleiri og fleiri blást-
urs.hl.f. Gunnar Hrafnsson, kontra-
bassa.
Tónleikarnir hefjast um kl. 21
og er aðgangur ókeypis.
Fræðsluvikan á Kjarvalsstöðum:
Fyrirlestur um krabbameins-
frumur og eiginleika þeirra
FRÆÐSLUVIKA Krabba-
meinsfélags íslands stendur nú
sem hæst á Kjarvalsstöðum.
Opið er daglega klukkan 14 til
22. Sérstök dagskrá er dag
hvern og í dag, fimmtudag, er
dagskráin sem hér segir:
14.15 Kvikmynd. „Af einni
frumu". 15 mínútur. íslenskt
tal.
15.00 Kvikmynd. „Hvers vegna
að . hætta?" 15 mínútur. fs-
lenskt tal.
17.00 Kvikmynd. „Bijósta-
myndatökur". 15 mínútur.
Enskt tal. Læknir verður við-
staddur til að svara spuming-
um.
20.30 Fyrirlestur. Gunnlaugur
Geirsson: Krabbameinsfmmur
og eiginleikar þeirra.
SP0RTV0RU
W%
APQT ATnPTTP
xTlT UliTÍl 1 UJlu
DÚNÚLPUR 2.990
STREDSSKÍÐABUXUR 990
GÖNGUSKÍDASKÓR 1.490
VATTHÚFUR290
l‘M ATHLETTIC GALLAR 990
VATTBUXUR750
SKÍÐAGALLAR BARNA 1.990
SKÍDAGALLAR 2.790
SKÍÐASAMFESTINGAR 1.490
ROCKY-JAKKAR 1.290
PÓSTSENDUM
KREDITKORTAMÓNUSTA
»hummePif
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA38 REYKJAVÍK SlMI83555