Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR30. JANÚAR1986
Hinsta för Challengers
Geimskotið ekki
eins og vera átti
Rætt við íslending í Flórída
„FYRIR þá, sem oft hafa fylgst með geimskoti áður, var
augljóst þegar reykbólstrinn myndaðist að eitthvað hafði
farið úrskeiðis. En áhorfendur, sem fylgdust með fyrsta sinni
héldu að allt væri með felldu, að eldsneytisflaugarnar hefðu
einfaldlega verið að falla frá,“ segir Pétur Stefánsson, náms-
maður í Melbourne í Flórida.
Kaupmaður ákallar Bandaríkjamenn
Þjóðarsorg rikir nú í Bandarikjunum eftir að geimferjan Challenger fórst og öll áhöfn hennar.
Þessi kaupmaður i New Hampshire hengdi ákali til bandarisku þjóðarinnar á glugga búðar sinnar
og bað Bandaríkjamenn að vera hugrakka eins og áhöfn Challenger og Christa McAuliffe og sækja
guðsþjónustu til að biðja fyrir sjömenningunum, sem fórust.
Meiriháttar bilun
hefur átt sér stað
Houston,'29. janúar. AP.
SAMTÖL stjórnstöðvar geimferjunnar og flugmanna Chall-
engers voru með venjubundnum hætti fyrstu 60 sekúndur
flugsins, en eldsprenging grandaði feijunni 74 sekúndum
eftir að hún hóf sig á loft frá Kanaveralhöfða. Eftirfarandi
fjarskipti áttu sér stað:
Þulur stjórnstöðvar: 10-9-
9-7-6, hreyflar komnir í gang,
4-3-2-1, og hún hefur sig til
flugs. Geimfeijan hefur sig á loft
í sína 25. ferð og hún er komin
upp fyrir turn skotpallsins.
Mike Smith, flugmaður:
Framkvæmum veltu.
Stjórnstöð: Skilaboð móttek-
in, velta, Challenger.
Þulur: Challenger hefur velt
sér og er kominn á rétta stefnu.
Dregið hefur úr vélarafli niður í
94%. Venjulegt hreyfilafl mestan
hluta flugsins er 104%. Brátt
verður aflið minnkað í 65%. Aflið
er nú 65% og hreyflamir þrír
starfa eðlilega. Eldsneytisrennsli
úr þremur tönkum er eins og
vera ber. Rafstöðvamar þijár
starfa vel. Hraðinn er 22.057 fet
á sekúndu (1.400 mflur eða 2.240
km/klst.), hæðin er 4,3 sjómflur
(8 km) og fjarlægð frá skotpalli,
miðað við jörðu, 3 sjómflur (5,8
km). Aflið eykst nú aftur. Hreyf-
ilaflið ernú 104%.
Stjórnstöð: Challenger, aukið
eldsneytisgjöfína.
Smith: Skilaboð móttekin,
aukum eldsneytisgjöf.
(Eldhnöttur sést á himni.)
Þulur: 75 sekúndur em liðnar
frá flugtaki og hraðinn er 29.000
fet á sekúndu (3.200 km/klst).
Hæðin er 16,5 kílómetrar og
fjarlægð miðað við jörðu 13 km.
Löngþögn.
Þulur: Sérfræðingar í stjóm-
stöð athuga grannt hvað er á
seyði. Meiriháttar bilun hefur
augljóslega átt sér stað. Allt
samband við feijuná hefur rofn-
að.
í dag var frá því skýrt að
ekkert hafí komið fram á mæli-
tækjum stjómstöðvar sem gefíð
hafí bilun til kynna; hvorki í
þremur hreyflum feijunnar
sjálfrar, í hjálparflaugunum
tveimur eða öðmm tækjabúnaði.
Geimfarið hafí splundrazt óvænt
og fyrirvaralaust og allt samband
við það rofnað 74 sekúndum eftir
flugtak. Vera kann að upplýs-
ingaskortur frá geimfeijunni geri
alla rannsókn á slysinu erfíðari.
„Ég fór í gær (þriðjudag) í
kennslustund hjá Gene McCoy,
sem hefur unnið við geimferða-
áætlunina í 20 ár. Hann sagði að
svona sprenging gæti í raun og
vem aðeins hafa átt sér stað ef
komið hefði upp eidsneytisleki eða
eldsneytisleiðsla frá stóra elds-
neytisgeyminum til hjálparflaug-
anna hefði losnað áður en hún átti
að losna. Þegar myndimar af
sprengingunni em glöggt skoðað-
ar sjást eldtungur leika um geym-
inn og hlaupa fram feijuna. Slíkt
átti vitaskuld ekki að gerast,“
segir Pétur.
„McCoy sagði að slysið myndi
í raun ekki tefja svo mjög ferðir
geimfeijanna. Það væri mun
fremur að geimstöðvaáætlunin
myndi tefjast og framgangur
geimrannsókna.
Brak úr feijunni hefur verið að
reka hér á ströndina í dag og
þræða hermenn og lögreglumenn
S,trandlengjuna í leit að braki.
Einnig hefur almenningur verið
beðinn um að láta yfírvöld hafa
allan reka, sem gæti verið úr
geimfeijunni.
Þetta slys hefur gert almenn-
ingi grein fyrir því að geimferðir
em ekki sjálfsagður hlutur, nokk-
uð, sem yfírvöldum bandarísku
geimvísindastofnunarinnar NASA
hefur alltaf verið ljóst. Scobee,
leiðangursstjóri í Challenger,
sagði einhveiju sinni í viðtali að
fyrr eða síðar kæmi að því að
geimfar myndi springa í loft upp.
Stjómmálamenn hér em flestir
á því að halda eigi áfram mönnuð-
um geimferðum um leið og kemur
í ljós hvað olli slysinu. Aftur á
móti hafa heyrst raddir, aðallega
blaðamanna og fréttaskýrenda,
um að næst bæri að senda ómann-
að geimfar út í geiminn.
Ibúar hér hafa verið þungbúnir
í dag og sorg hvílir yfír öllum.
Hér er flaggað í hálfa stöng og
verður alla næstu viku. Flestir
þeir, sem búa hér lifa á geim-
ferðaáætluninni, þetta er þeirra
helsta atvinnugrein og þeir em
uggandi um hag sinn. Ef geim-
ferðaáætlunin tefst að ráði gætu
margir misst vinnuna," sagði Pét-
ur að lokum.
Varaforsetinn á Kanaveral-höfða
á
George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, flaug til Kennedy-geimvísindastofnunarinnar
Kanaveral-höfða á þriðjudag eftr að geimfeijan Challenger fórst skömmu eftir flugtak.
Á myndinni eru (f.v.) Jake Garn, öldungadeildarþingmaður, George Bush, William Graham, settur
stjórnandi bandarísku geimvisindastofnunarinnar NASA, og John Glenn, öldungadeildarþingmaður.
Gengi
gjaldmiðla
London, 29. janúar. AP.
GENGI dollarsins lækkaði í dag
gagnvart ölium helstu gjald-
miðlum nema enska pundinu. Um
tíma var gengi hans gagnvart
japanska jeninu lægra en það
hefur verið í sjö ár.
Fréttir um að seðlabankinn í
Japan hefði lækkað miliibankavexti
um hálft prósent, úr 5% í 4,5%,
ollu því, að dollarinn féll en hann
rétti nokkuð við þegar á daginn
leið. Um tíma fengust fyrir hann
194,30 jen og hafði þá gengi hans
ekki verið minna síðan í desember
1978. Á aðeins fimm dögum hefur
gengi dollarsins lækkað um 8,13
jen.
Pundið, eini gjaldmiðillinn sem
féll gagnvart dollamum, lækkaði
vegna frétta um minna verð fyrir
Norðursjávarolíu. Fyrir pundið fen-
gust i dag 1,4010 dollarar en
1,4065 í gær. Gengi annarra gjald-
miðla gagnvart dollar var í kvöld
þetta: 2,3900 v-þýsk mörk
(2,3990), 2,0195 svissneskir frank-
ar (2,0335), 7,3225 franskir frank-
ar (7,3675), 2,6970 hollensk gyllini
(2,7075), 1.628,35 ítalskar lírur
(1.634,00), 1,4145 kanadískir doll-
arar (1,4197).
í kvöld fengust fyrir gullúnsuna
335 dollarar en búist er við, að það
hækk'i á næstu dögum.
Fékk hugboð
um slysið
Houston, Texas, 29. janúar. AP.
GEORGE Fulford, eigin-
maður Millie Hughes-Fulford,
sem upphaflega átti að fara
með Challenger á þriðjudag,
kveðst hafa fengið áleitið
hugboð um að illa mundi fara
og sagði hann við Millie síð-
degis á mánudag: „Ég er
feginn að þú ferð ekki með i
geimferðina."
Hughes-Fulford flutti til
Houston frá Kalifomíu til að
æfa sig undir för með geimfeiju.
„Hún hringdi í mig skömmu
eftir slysið," sagði George. „Hún
spurði aðeins hvort ég væri að
fylgjast með, fleira fór okkur
ekki ámilli."