Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 52
HTTKDRTAllSSttlMLR FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Hjartatæki tek- ið úr neyðarbíl Ekki til staðar í neyðarútkalli í gærmorgun, en sjúkl- ingnr fékk hjartaáfall skömmu eftir komu í sjúkrahús VEGNA deilna á Borgarspítalanum var hjartahnoðtæki ekki í neyðar- bifreið í útkalli snemma í gærmorgun þegar hjartveikur maður í vesturbæ Reykjavíkur var fluttur í Landakotsspítala. Skömmu eftir kornuna þangað fékk hann hjartaáfall og fékk bestu meðhöndlun. Þannig er ljóst, að maðurinn hefði allt eins getað fengið áfallið í sjúkrabifreiðinni og illa hefði getað farið ef nauðsynleg tæki hefðu ekki verið til staðar. „Þama skall hurð nærri hælum. Ég mun sjá til þess að þetta endur- taki sig ekki og hef lagt bann við því, að tæki verði fjarlægð úr neyð- arbílnum að lokinni kvöldvakt. Það var ekki til staðar vegna bamalegra deilna þar sem báðir aðilar eru í sök,“ sagði Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans, í samtali við Morgunblaðið. Deilur hjúkmnarfræðinga og sjúkraflutningamanna um verksvið eru undirrót atviksins í gær. Um helgina tóku nokkrir hjúkrunar- fræðingar hjartahnoðtæki úr neyð- arbifreiðinni og hafa gert sfðan að lokinni kvöldvakt. Þetta gerðu þeir að eigin frumkvæði og án samráðs við stéttarfélag sitt eða stjóm sjúkrahússins. Snemma í gærmorgun barst neyðarkall og þá gleymdist að setja tækið í bifreiðina þegar lagt var af stað með lækni og hjúkruna- rfræðing innanborðs. „Deilur sem þessar á að leysa innan veggja sjúkrahússins á samstarfsfundi starfsfólks Borgarspítalans og sjúkraflutningamanna," sagði Jó- hannes Pálmason. Morgunbladið/Bjami Netin tekin um borð Vetrarvertíð er nú hafin og bátamir sem óðast að búa sig til veiða á þorskanetin. Sá guli hefur að undanfömu verið lítið fyrir það að ánetjast þrátt fyrir einlægan vilja sjómanna, en vonandi verður þessi vetrarvertíð með besta móti. Skipverjar á Stefni fara að minnsta kosti vongóðir á miðin. Flugvél af gerðinni Cessna 210, sömu gerðar og vélin sem fórst suðvestur af Reykjanesi í gær. Tveggja flugmanna sakn- að - leitað áfram í dag TVEGGJA manna er saknað eftir að lítil einkaflugvél sem skráð er í Bandaríkjunum nauðlenti i sjónum 36 mílur suðvestur af Kefla- vík. Hún var á leið frá Labrador til Grænlands en gat ekki lent þar vegna veðurs og varð síðan eldsneytislaus á leiðinni til Keflavíkur. Flugvélar og skip leituðu árangurslaust fram eftir kvöldi og verður leit hafin aftur fyrir hádegi í dag. Flugvélin er einshreyfils af gerð- inni Cessna 210. Mennimir tveir voru að fljúga henni frá Bandaríkj- unum til Evrópu. Fóru þeir frá Gæsaflóa á Labrador rétt fyrir há- degi í gær áleiðis til Narssarssuaq á Grænlandi. Vegna veðurs gátu þeir ekki lent þar og tóku þá stefn- una til Keflavíkur. Flugmaðurinn sá fram á að eldsneytið væri á mörkunum að duga til Keflavíkur og hafði samband við flugstjómar- miðstöðina og bað um radaraðstoð við flugið til Keflavíkur. Um klukk- an 15.20 óskaði Flugmálastjóm eftir aðstoð frá vamarliðinu og héldu Hercules björgunarvél og björgunarþyrla af stað upp úr klukkan 18. Vamarliðsvélamar mættu flug- vélinni um 188 mílur suðvestur af Keflavík og ætluðu að fylgja henni alla leið, en klukkan 18.26 var eldsneytið búið og vélin nauðlenti í sjónum, um 36 mílur suðvestur af Keflavík. Vamarliðsmennimir í Herculesvélinni vom í sambandi við flugmennina og leiðbeindu þeim við nauðlendinguna. Þeir sáu vélina lenda í sjónum og fljóta fyrst á eftir en svo hvarf hún þeim vegna nátt- myrkurs og særoks. Þyrlan var aðeins á eftir þeim en hún fann ekki flugvélina þegar hún kom á staðinn örfáum mínútum eftir slys- ið. Ekki sást heldur til mannanna. Neyðarsendir flugvélarinnar fór í gang strax eftir nauðlendinguna en ekki heyrðist í honum nema í um það bil 10 mínútur. Á slysstaðnum var norðnorðaustan átt, 7-8 vind- stig, og 5-7 metra ölduhæð. Varnarliðsvélamar héldu leitinni áfram og síðar kom þyrla Land- helgisgæslunnar, TF-SIF, og önnur þyrla frá vamarliðinu á vettvang. Slysavamafélagið stefndi nálægum skipum, 6—8 talsins, á staðinn. Vitað er nákvæmlega hvar vélin nauðlenti, en veður var óhagstætt til leitar. Gúmbátur var í flugvélinni og flugmennimir voru í hlífðarbúning- um. Ekki er vitað um þjóðemi flug- mannanna, en talið að þeir séu frönskumælandi. Varnarliðsflutningarnir: Urskurður undir- réttar staðfestur Málið tekið upp á diplómatískum grundvelli ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL i Washington DC hefur staðfest úrskurð undirréttar i máli bandariska skipafélagsins Rainbow Navigation Inc. gegn stjórnvöldum þar i landi. Rainbow höfðaði málið til að fá sett lögbann á útboð flotamálaráðuneytisins vestra á sjóflutningum til vamarliðsins í Keflavík. Þetta þýðir að islensk skipafélög hafa enn ekki möguleika á að keppa við Rainbow um þessa flutninga — félagið hefur áfram forgang á grundvelli bandarískra veradarlaga frá 1904. Dómurinn var kveðinn upp sl. mánudag, að sögn Guðmundar Eiríkssonar, þjóðréttarfræðings utanríkisráðuneytisins. Hann sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær, að af hálfu bandaríska utan- ríkisráðuneytisins væri verið að kanna til hvaða ráða stjómvöld þar í landi gætu gripið til að leysa málið á viðunandi hátt fyrir íslend- inga. Guðmundur sagði enn óákveð- ið hvert yrði næsta skref af hálfu Bandaríkjastjómar en hann sagði að af hálfu íslenska sendiráðsins í Washington væri talið ólfklegt, að þessum úrskurði yrði áfrýjað enn á ný- Sömuleiðis er óákveðið hvert verður næsta skref af hálfu íslensku ríkisstjómarinnar en málið verður væntanlega tekið upp innan hennar á næstu dögum. „Stióm“ heim til íslands íslendingar fá 83 handrit frá Dönum. „Get- um vel við unað,“ segir Jónas Kristjánsson RÁÐGJAFARNEFND sem skipuð var þremur íslendingum og þremur Dönum, um skipt- ingu þeirra 200 handrita, sem eftir urðu í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og sam- kvæmt niðurstöðum hennar fá íslendingar 83 handritanna i sinn hlut. Endanleg ákvörðun er í höndum kirkjumálaráð- herra Dana og íslenska menntamálaráðherrans, en að sögn Jónasar Kristjánssonar, forstöðumanns Stofnunar Árna Magnússonar og eins fulltrúa íslands í ráðgjafaraefndinni, er talið líklegt að ráðherrarnir fallist á niðurstöður nefndar- innar. Jónas Kristjánsson kvaðst vera ánægður með þessa niðurstöðu og sagði hann að íslendingar gætu vel við unað, að sínum dómi. Meðal þeirra handrita sem íslend- ingar fá í sinn hlut er handritið „Stjóm" AM 227 folio, sem Jónas sagði að væri hinn mesti kjörgrip- ur og eitt fallegasta íslenska handritið sem til væri. Handritið er þýðing á fyrri hluta Gamla testamentisins og fallega mynd- skreytt. „Við gerðum hóflegar kröfur á hendur Dönum, því þeir hafa verið rausnarlegir við okkur í handritamálinu, og við vildum því gera vel við þá svona að skiln- aði. Ég vona að fólk hér heima sé mér sammála í þeirri afstöðu. Hins vegar held ég að við getum vel við unað með þessi 83 handrit því þar er margur góður gripur- inn,“ sagði Jónas. Auk Jónasar voru þeir Jakob Benediktsson og Ólafur Halldórs- son fulltrúar íslands í ráðgjafar- nefndinni en fulltrúar Dana voru Jonna Louis-Jensen, John Kaus- gárd Sörensen og Iver Kjær frá Kaupmannahafnarháskóla. Shadows, Fats Domino og Petula Clark hingað SAMNINGAR eru á loka- stigi við nokkra heims- þekkta skemmtikrafta um að þeir haldi tónleika í veit- ingahúsinu Broadway í vor og sumar. Um er að ræða hljómsveitina The Shadows, söngvarann og píanóleikar- ann Fats Domino og söng- konuna Petulu Clark. „Ég tel nánast öruggt að þessir heimskunnu listamenn komið hing- að og skemmti," sagði Ólafur Laufdal, veitingamaður í Broad- way í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann hefur ásamt Björg- vini Halldórssyni unnið að þessum málum í gegnum þekktar erlendar umboðsskrifstofur. Brezka hljómsveitin Shadows kemur líklega aðra helgina í júní og heldur hér fema tónleika. Aformað er að Fats Domino komi hingað um páskana ásamt 12 manna hljómsveit. Fyrirhugað er að Petula Clark komi hingað ásamt hljómsveit í apríl eða maí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.