Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 6
3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Sorgar-
stund
Reagan forseti Bandaríkjanna
lýsti því yfir í sjónvarpsfréttum í
gærkveldi að menn gleymdu því
stundum að geimferðir væru rétt
að slíta bamsskónum og áfram yrði
haldið með geimferðaáætlunina.
Þessi orð eru mælt á þeirri miklu
sorgarstundu er Challenger-geim-
ferjan, þetta mikla undur geimald-
ar, varð logunum að bráð og lýsir
þeim stórhug er hefír breytt geim-
ferðum úr stopulum eldflaugarskot-
um í nánast reglubundnar áætlun-
arferðir út í eilífðina. Sorg þeirra
er horfðu á ástvinina hverfa í elds-
díkið er nístandi en máski mildast
hún er samúð alls heimsins flæðir
jrfír hin víðlendu Bandaríki Norð-
ur-Ameríku og það er mikill styrkur
þessu fólki að eiga að forseta slíkan
sem Ronald Reagan. Hin írska
kynfylgja Reagans hefir gætt hann
innsæi og stórhug er sameinar
milljónimar á sorgarstundu. Segir
ekki írska skáldið William Butler
Yeats í kvæðinu An Irish Airman
Foresees his Death, eða írskur flug-
maður sér fyrir dauða sinn: Eg
veit að ég mun mæta örlögum mín-
um/ Einhversstaðar meðal skýj-
anna____
Blámi himins
Sá er hér ritar hefír fyrir reglu
að hlusta daglega á fréttir í „kanan-
um“ í því augnamiði fyrst og fremst
að fá samanburð við fréttir íslensku
fréttastofanna. Eins og éðlilegt er
hafa geimfeijumar skipað veglegan
sess í fréttatímum Bandaríkja-
mannanna. Þá hafa bandarísku
fréttamennimir lagt mikla áherslu
á að skýra frá helstu sigrum á sviði
læknisfræðinnar, hjartaígræðslum
og öðru slíku. Þessar fréttir eru oft
svolítið ópersónulegar, en þær lýsa
af stórhug og framfarasókn. Ég er
ekki frá því að þær lyfti huganum
yfír hversdagsþrasið og hvetji til
dáða. Hér heima er allt smærra í
sniðum, ögn persónulegra máski en
nándin við eilífðina, við sigurinn
yfír efninu, er ekki slík sem í
Bandaríkjunum — þar eru menn
komnir að ystu mörkum mannlegr-
ar þekkingar og hugvits. Harmleik-
urinn á Canaveralhöfða getur ekki
tafíð þá sókn til stjamanna sem er
hafin undir forystu bandarískra vís-
indamanna, þessara tækniskálda
geimaldar.
Sum augnablik
Merkur breskur sjónvarpsþáttur
skreytir nú skjáinn á þriðjudögum
Nefnist sá því undarlega nafni
Television eða Sjónvarpið. Hér hefír
sum sé sjónvarpið tekið upp á því
að stunda naflaskoðun. í seinasta
þætti, er var sá fjórði í röðinni,
beindist athyglin að fréttaflutningi
sjónvarpsstöðva. Röktu hinir bresku
sjónvarpsmenn skilmerkilega
hvemig sjónvarpsfréttir hefðu
komist til vits og ára ef svo má að
orði komast eða allt frá því að
fyrstu sendingamar hófust í Bret-
landi og Bandaríkjunum og til
dagsins í dag. Of langt mál er að
telja upp öll þau fréttaskot er ófu
þama söguþráðinn en það var afar
einkennilegt að sjá morðið á John
F. Kennedy 22. nóvember 1963.
Við hjónin vorum sammála um að
þessi atburður hefði eins getað
gerst í gær. Ég hygg að svipað
verði upp á teningnum þegar hið
hörmulega Challenger-slys verður
skyggnt á spjöldum sjónvarpssög-
unnar og þar með mannkynssög-
unnar. Sum augnablik eru eilíf.
Ólafur M.
, Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Frá vinstri: Þorsteinn Gunnarsson, Guðbjörg Thoroddsen, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir og leikstjórinn Hallmar Sigurðsson.
Tónlistar-
kross-
gátan
■■■■ Tónlistarkross-
1 K 00 g^ta Jóns Grön-
dals verður á
dagskrá rásar 2 nk. sunnu-
dag kl. 15.00 og er það sú
45. íröðinni.
Hlustendum gefst kost-
ur á að leysa krossgátu um
tónlist og tónlistarmenn og
skulu lausnir sendast til:
Ríkisútvarpsins, rásar 2,
Efstaleiti 1,108 Reykjavík,
merkt Tóniistarkrossgát-
an.
Konsert
á biðlista
Fimmtudagsleikrit rásar 1
í kvöld nefnist „Konsert á
biðlista“ og er það nýtt
verk eftir Agnar Þórðar-
son. Leikstjóri er Hallmar
Sigurðsson.
Leikurinn gerist í
Reykjavík vorra daga.
Maður nokkur á miéjum
aldri er á leiðinni heim til
sín í roki og rigningu þegar
hann verður fyrir því
óhappi að aka á unga
stúlku á gangi. Í ljós kemur
að meiðsli hennar eru
óveruleg en f framhaldi af
þessu atviki gerist það að
stúlkan, sem er dægur-
lagasöngkona, flyst inn á
heimili mannsins og konu
hans, sem einnig hefur
dreymt um frama í tónlist-
inni. Kynni stúlkunnar af
þessum hjónum verða til
þess að örlög hennar eru
ráðin.
í aðalhlutverkum eru:
Þorsteinn Gunnarsson,
Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Guðbjörg Thorodd-
sen og Guðbjörg Þorbjam-
ardóttir. Aðrir leikendur
eru: Jakob Þór Magnússon,
Jónína H. Jónsdóttir og
Eyþór Ámason. Píanóleik
annast Snorri Sigfús Birg-
isson og Guðbjörg Sigur-
jónsdóttir. Tæknimenn eru
Ástvaldur Kristinsson og
Óskar Ingvarsson.
Þorsteinn Pálsson verð-
ur gestur í Gestagangi.
Gesta-
gangur
B Þátturinn
00 Gestagangur er
að venju á dag-
skrá rásar 2 í kvöld kl.
21.00. Stefán Jökulsson
sér um þáttinn að þessu
sinni í forföllum Ragnheið-
ar Davíðsdóttur og verður
gestur Stefáns Qármála-
ráðherrann Þorsteinn Páls-
son.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
30. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
9.00 Fréttir
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Pési refur" eftir Krist-
ian Tellerup. Þórhallur Þór-
hallsson lýkur lestri þýðing-
arsinnar(4).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir
10.05Málræktarþáttur. Endur-
tekinn þáttur frá kvöldinu
áður sem Helgi J. Halldórs-
son og Páll Theódórsson
flytja.
10.10 Veðurfregnlr.
10.25 LeslA úr forystugreln-
um dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tíð Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Morguntónleikar
a. Trompetkonsert op. 125
eftir Malcolm Arnold. John
Wallace leikur með Sinfó-
níuhljómsveitinni í Bourne-
mouth; Norman del Mar
stjórnar.
b. Sinfónia frá 1891 eftir
Sergej Rakhmaninoff. Con-
certgebouw-hljómsveitin í
Amsterdam leikur; Vladimir
Ashkenazy stjórnar.
c. Þrlr dansþættir fyrir ein-
leiksflautu eftir Yehezkel
Braun. Raanan Eylon leikur.
d. Valsar frá Prag eftir An-
tonín Dvorák. Sinfónlu-
hljómsveitin I Detroit leikur;
Antal Dorati stjómar.
e. „Manhattan Beach" eftir
John Philip Sousa. Hljóm-
sveit Morton Goulds leikur.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttlr
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Um-
hverfi.
Umsjón Anna Magnúsdóttir
og Ragnar Jón Gunnarsson.
14.00 Miðdegissagan: „Ævin-
týramaður", - af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra
Gils Guðmundsson tók
saman og les (21).
14.30 Áfrívaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
16.16 Úr byggöum Vestfjarða.
Finnbogi Hermannsson
ræðir við Bergstein Snæ-
björnsson á Patreksfiröi.
16.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 „Fagurt galaði fuglinn
sá". Siguröur Einarsson sér
um þáttinn.
17.00 Barnaútvarpið
Stjórnandi: Kristln Helga-
dóttir.
17.40 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón: Sigrún Björnsdóttir.
19.16 Ádöfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson.
19.26 Bamamyndir frá Norð-
urlöndum.
Átta loppur og tvö skott.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpiö). Hendur og hvíta-
birnir. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. (Nordvision —
Norska sjónvarpiö).
19.60 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttirogveður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Rokkarnir geta ekki
þagnað.
2. Pax Vobis. Tónlistarþátt-
ur fyrir táninga. Kynntar
verða íslenskar "rokk- og
unglingahljómsveitir. Kynn-
ir: Jón Gústafsson. Stjórn
upptöku: Björn Emilsson.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.60 Daglegtmál.
Sigurður G. T ómasson flytur
þáttinn.
20.00 Leiktrit: „Konsert á þið-
lista" eftir Agnar Þórðarson.
Leikstjóri: Hallmar Sigurös-
son. Leikendur: Þorsteinn
Gunnarsson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Guðbjörg
Thoroddsen, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Sigurður
Demetz Fransson, Jakob
Þór Magnússon, Jónína H.
Jónsdóttir og Eyþór Árna-
son. (Leikritiö verður endur-
tekið nk. laugardag kl.
20.30.)
21.10 Hamrahlfðarkórinn
syngur lög eftir Atla Heimi
Sveinsson. Stjórnandi: Þor-
gerður Ingólfsdóttir. Hljóð-
færaleikarar: Pétur Jónas-
son, Eggert Pálsson, Sigríð-
21.06 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaðuar Einar Sig-
urðsson.
21.36 Iþróttir.
22.00 Þingsjá.
Umsjónarmaður Páll Magn-
ússon.
22.16 Ævintýri Sherlock
Holmes.
Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Breskur myndaflokkur I sjö
þáttum sem gerðir eru efiir
smásögum Conan Doyles.
Aöalhlutverk: Jeremy Brett
og David Burke. í þáttunum
eru rakin sjö ævintýri fræg-
asta spæjara allra tlma,
Sherlock Holmes, og sam-
býllsmanns hans og sagna-
ritara, Watsons læknis. f
fyrsta þætti leysa þeir félag-
I ar úr vanda konungsins I
ur Helga Þorsteinsdóttir og
Svanhildur Óskarsdóttir.
21.40 „Fagurkerarnir" smá-
saga eftir Kristján Karlsson.
Bríet Héðinsdóttir les.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.16 Veðurfregnir.
FIMMTUDAGUR
30.janúar
10.00 Morgunþáttur.
Stjórnendur: ÁsgeirTómas-
son og Kristján Sigurjóns-
son.
12.00 Hlé.
Bæheimi. Þýðandi Björn
Baldursson.
23.10 Seinni fréttir.
23.16 DaisyMiller.
Bandarísk bíómynd frá
1974 gerð eftir samnefndri
sögu eftir Henry Jámes.
Leikstjóri Peter Bogd-
anovich. Aðalhlutverk:
Cybill Shepherd, Barry
Brown, Clovis Leachman
og Mildred Natwick. Mynd-
in gerist á öldinni sem leið.
Hún rekur sumarástir ungs
Bandaríkjamanns og löndu
hans, Daisy Miller. Unga
fólkið hittist á hóteli I Sviss
en þaðan liggur leiöin til
Rómar þar sem snurða
hleypur á þráðinn. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
01.00 Dagskrárlok.
22.20 Lestur Passíusálma (4).
22.30 Fimmtudagsumræðan.
Umsjón: Hallgrímur Thor-
steinsson.
23.00 Túlkun I tónlist. Rögn
valdur Sigurjónsson sér urr
þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
esdóttir.
15.00 Ótroðnarslóðir.
Halldór Lárusson og Andri
Már Ingólfsson stjórna
þætti um kristilega popp-
tónlist.
16.00 fgegnumtiðina.
Þáttur um íslenska dægur-
tónlist I umsjá Jóns Ólafs-
sonar.
17.00 Gullöldin.
Guðmundur Ingi Kristjáns-
son kynnir lög frá sjöunda
áratugnum.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö. Páll Þorsteinsson
kynnir tíu vinsælustu lög
vikunnar.
21.00 Gestagangur
hjá Ragnheiöi Davíðsdóttur.
22.00 Rökkurtónar.
Stjórnandi: SvavarGests.
23.00 Poppgátan.
Spurningaþáttur um tónlist
I umsjá Jónatans Garöars-
sonar og Gunnlaugs Sig-
fússonar. Keppendur I
þessum þætti eru Björgvin
Halldórsson og Guðmundur
Benediktsson.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar I þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
31. janúar
14.00 Spjall og spil.
Stjórnandi: Ásta R. Jóhann-