Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.01.1986, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986 37 Minning: Ingileifur Jóns- son Svínavatni Fæddur 23. október 1891 Dáinn 10. janúar 1986 Bændaöldungurinn Ingileifur á Svínavatni er látinn, rúmlega 94 ára að aldri. Hann andaðist á dval- arheimilinu Ljósheimum, Selfossi, en þar hafði hann dvalizt næstum tvö síðastliðin ár. Ingileifur fæddist 23. október 1891 að Svartagili í Þingvallasveit. Þar bjuggu þá foreldrar hans, hjón- in Jón Jónsson og Sigurleif Þorleifs- dóttir, er síðar bjuggu og dvöldust að Svínavatni í Grímsnesi á fimmta tug ára. Þegar Ingileifur var á þriðja ár- inu fluttist hann með foreldrum sín- um að Svínavatni og segja má, að þar væri eigi tjaldað til einnar nætur. Þar bjuggu örlögin honum ævidvöl. Hann ólst upp með foreldr- um sínum og systrum á Svínavatni, en þær voru Ólafía f. 1885 — dáin 1981; Helga f. 1894 - dáin 1967 og Sigríður fædd 1903 og er nú ein eftir á lífi af þeim systkinum, og hefur hún iengi búið á Álafossi í Mosfellssveit. Snemma þótti Ingileifur tápmikill unglingur og liðtækur til allra starfa og snemma kom í ljós, að hann myndi verða efni í góðan bónda. Engrar skólagöngu naut hann fremur en flest bændaböm á þeirri tíð, hann fékk þó tilsögn í skrift og reikningi hluta úr tveimur vetr- um fyrir fermingu hjá farkennara sveitarinnar, og var það öll bóklega fræðslan, er hann fékk í uppvextin- um. Vafalaust hefði hann þó, ef setzt hefði á skólabekk, haft alla burði til almennrar menntunar, því að skilningur, greind og gott minni var í bezta lagi samfara miklum dugnaði. En trúlegt er, að forsjónin hafí sett hann á réttan bekk í lífinu. Hann varð bóndi á Svínavatni eftir foreldra sína árið 1926 og bjó þar síðan nær hálfan sjötta tug ára. Hann var í eðli sínu sveitarsæll bóndi, _sem unni sauðfé og gróandi grasi. í þeirri stöðu var hann jafnan heill og óskiptur, svo að þar hallað- ist ekki á um forsjá, fyrirhyggju og snyrtimennsku í hvívetna. Hann fór vel með allar skepnur, svo að þær gáfu af sér góðan arð, átti ávallt heyforða nægan og oftast miklar fimingar. Ingileifur hafði snemma traust sveitunga sinna. Það fór því ekki hjá því, að honum voru falin ýms opinber störf í hreppsfélaginu. Hann var gangnaforingi á Gríms- nesafrétti í 35 ár, en fyrst fór hann í leitir 15 ára gamall og síðan um áratugi. Hann var Iengi réttastjóri í Klausturhólaréttum. Og þar kom hann f síðasta sinn haustið 1984 nær 93 ára gamall og var óvenju hress og ánægður að þeirri ferð lokinni. Hafði hann þá komið f Hólaréttir yfir áttatfu haust, og mun það nokkuð óvanalegt um menn á seinni tímum. í fjallferðum, smalamennskum og réttum naut Ingileifur sfn löngum vel, þvf að eins og áður getur, var hann fjár- maður góður, glöggur mjög á mörk og gætinn í allri meðhöndlun sauð- kindarinnar. Hreppsneftidarmaður var hann í 34 ár, stefnuvottur um 30 ár, umboðsmaður Brunabótafélags ís- lands um 40 ár, virðingar- og út- tektarmaður fasteigna í Grímsnes- hreppi lengi. Formaður sóknar- nefndar og meðhjálpari f Mosfells- kirkju yfir 20 ár. Fleira mætti nefna, en þetta nægir, til að sýna, að sveitungar hans báru jafnan gott traust til hans og töldu hveiju máli vel borgið, er hann hafði að sér tekið. Ingileifur á Svínavatni, en svo var hann löngum nefndur, var mörgum eftirtektarverður maður við fyrstu sýn. Hann var hvatlegur í framkomu, jafnvel orðhvatur, opinskár og hreinskilinn við hvem sem í hlut átti, svo að sumum gat fundizt nóg um sumt, sem hann sagði. En þessir eiginleikar ollu honum þó aldrei óvinsælda útf frá. Þeir sem þekktu hann, vissu um raunhyggindi hans, og að hann var ávallt mönnum og málefnum sam- vizkusamur og trúr. Á níræðisafmæli Ingileifs var hann gerður heiðursborgari Gríms- neshrepps og haldið þá samsæti á Hótel Sögu í Reykjavík. Fyrstu Ingileifur með móður sinni og systrum, en árið 1934 kvæntist hann Ingibjörgu Guð- mundsdóttur Ottesen, síðast bónda að Miðfelli í Þingvallasveit. Þau hjón eignuðust einn son baraa, Jón bónda á Svínavatni, sem kvæntur er Þóru Magnúsdóttur frá Akbraut í Holtum. Eiga þau hjón 7 syni og 2 dætur. Ingibjörg var dugnaðar- kona hin mesta, mikil og góðgerða- söm húsmóðir. Hún andaðist á Svínavatni haustið 1980, 85 ára gömul. Þeir voru margir gestir og gangandi, er komu að Svínavatni í búskapartfð þeirra hjóna, nutu þar góðra veitinga og annarrar fyrir- greiðslu, því að gestrisin voru þau hjón bæði og góð heim að sækja. Og nú að leiðarlokum munu margir minnast Ingileifs, hins mikla starfs- og þrekmanns, bóndans, sem á langri ævi vildi ávallt skila góðu dagsverki að kveldi. Þeir þakka honum samfylgdina, sem voru með honum góðan spöl af „lestaferð lífsins". Nafn hans mun lengi tengt við Svínavatn, jörðina, sem eflaust var honum kærastur allra staða á jörðinni, og sjálfur mun lengi lifa í hugum hinna eldri Grímsnesinga. Útför Ingileifs var gerð frá Skál- holtskirkju að viðstöddu fjölmenni og báru sex sonarsynir hans hann til grafar, en hann var jarðsettur að Mosfelli við hlið konu sinnar. Þessum fáu minningarorðum skal lokið með Ijóðlínum Einars Bene- diktssonar: Hið liðna sem að var og vann ervommtímayfir, þvi aldur deyðir engan mann, semáþaðverkerlifir. Já, blessum ðll hin hljóðu heit sem heill vors lands voru unnin, hvem kraft, sem studdi stað og sveit og steina lagði f grunninn. Skúli Helgason GlæsilGgt ítolskt leðursópQsett. Þriggjo sæto sóPi og tveir stólor 85.900.- kr. Þoð er ótrúlegt verð og jonúarkjörin: 10.000 - kr. útborgun og eftirstöðvornor o cil t oð ó mánuðum. Vörumarkaðurinn hl. Gabriel HÖGGDEYFAR I MIKLU ÚRVALI SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88 Mazda Bestu kaupin eru hjá okkur! Hjá okkur fáiö þiö original pústkerfi í allar geröir MAZDA bíla. Viö veitum 20% afslátt ef keypt eru heil kerfi meö festingum. Kaupiö eingöngu EKTA MAZDA pústkerfi eins og framleiöandinn mœlir meö — þau passa í bílinn. BÍLABORG HF Smiðshöfða 23. S. 81265 Slappleiki? Því ekki aö skella í sig QeðaQQ AAngnaB Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91-28777 x

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.