Morgunblaðið - 30.01.1986, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Starfsréttindi kenn-
ara, réttur foreldra
eftir ÓlafH. Jóhannsson
Tilefni þessa greinarkoms er
svohljóðandi ályktun sem samþykkt
var á aðalfundi Félags skólastjóra
og yfirkennara á grunnskólastigi í
september síðastliðnum.
„Aðalfundur FSY, haldinn á Hót-
el Esju dagana 7.-8. september
1985, beinir þeim eindregnu tilmæl-
um til skólastjóra að þeir staðfesti
ekki með meðmælum sínum ný-
ráðningu á réttindalausu fólki til
kennslustarfa."
Stjóm félagsins hefur, í fram-
haldi af þessari ályktun, beint þeim
tilmælum til skólastjóra að þeir taki
málið til umræðu við skólanefndir
í sínum heimahéruðum.
Ályktunin lætur ef til vill ekki
mikið yfir sér, en markar þó nokkur
tímamót, ef betur er að gætt. Fram
til þessa hafa skólastjórar borið
hitann og þungann af því að leita
— oft með logandi ljósi — að fólki
til kennslustarfa þegar ítrekaðar
auglýsingar eftir kennurum hafa
reynst árangurslausar.
Áður en lengra er haldið, er
ástæða til að líta á ástandið eins
og það birtist í eftirfarandi töflu,
sem sýnir hlutfall þeirra sem ráðnir
eru til kennslu án þess að hafa
hlotið tilskilda menntun og réttindi.
Skólaárið 1985-1986
Fnetehnund«ni m./kennsta- ánkennste-
réttindi réttinda
Reykjavk 97,3 2,7
Reykjanes 88,2 11,8
Vesturland 70,5 29,5
Vestfirðir 55,5 44,5
Norðurl. 64,2 35,8
vestra Norðurl. 71,2 28,8
eystra Austurland 55,9 44,1
Suðurlanhd 74,5 25,5
Hvað segja þessar staðreyndir?
Kennarar fást ekki til starfa.
Ástæður em eflaust margslungar.
Lág laun og takmarkaður skilning-
ur á gildi uppeldisstarfa vega þar
þungt. Hvers eiga vestfirsk böm
að gjalda? Þar em aðeins 55% Kkur
á að þau séu I umsjá kennara með
tilskilin réttindi, og víða næstum
árleg skipti á fólki því er kennslu
annast.
Skólaskylda felur það í sér, að
stjómvöld skylda foreldra til að fá
öðmm böm sín í hendur. Hjá ríkj-
um, sem vilja teljast til menningar-
þjóða, hefur því jafnan fylgt sú
siðferðilega krafa að þeir, sem við
bömunum taka, hefðu hlotið sér-
hæfða menntun, kennaramenntun
— og bæm því faglega ábyrð á
starfi sínu. Slík störf hafa á íslensku
verið nefnd siðferðilega skuldbund-
ið lífsstarf. Læknisstarfið er oft
tilnefnt sem skýrt dæmi um störf
af þessu tagi.
Fallist menn á, að kennarastarf
sé sérfræðilegt trúnaðarstarf af
þessu tagi, verður fullyrðingin —
allir geta kennt — jafn marklaus
og setningin — allir geta læknað.
Stundum var sagt, að tiltekinn
maður hefði læknishendur. Þá er
vísað til eðliskosta sem taldir em
lækni mikilvægir. Sama á við um
það fólk, sem annast hefur kennslu
án þess að hafa til þess réttindi.
Það hefur í ríkum mæli þá eðlis-
kosti sem prýða góðan kennara, en
vantar að sérhæfa hæfileika sína
undir faglegri leiðsögn og öðlast
síðan opinber réttindi til starfsins.
Mörgu af þessu fólki er þetta vel
ljóst, einmitt vegna áðumefndra
persónulegra eiginleika og áhuga á
kennslustörfum. Það hefur oft tekið
að sér kennslu fyrir þrábeiðni skóla-
nefnda eða skólastjóra á viðkom-
andi stöðum.
Skólaskyldu var komið á hérlend-
is árið 1907 og kennaraskólinn tók
til starfa 1908. Skólahús var reist
í einum áfanga á einu sumri, þó
að á þessum ámm væm íslendingar
ekki efnuð þjóð. Það er auðvitað
engin tilviljun að þetta tvennt fór
saman. Sýnir í hnotskum það sem
áður var sagt um ábyrgð og skyldu.
Mikið vatn er til sjávar mnnið
sfðan árið 1907. Byggðaröskun og
djúptækar breytingar á atvinnu-
háttum og lífsvenjum gera þessa
„tímana tvenna" erfíða í saman-
burði. Nú er meginregla að báðir
foreldrar vinna utan heimilis. í
flestum tilvikum er þar ekki um
neitt val að ræða. Lífsviðurværis
er ekki unnt að afla með öðmm
hætti, samkvæmt þeim lífsháttum
sem nú tfðkast, og atvinnulífið þarf
á þessu vinnuafii að halda.
Þeir munu fáir, sem ekki meta
að verðleikum kosti nútímans,
tæknivæðingu og aukna velmegun.
En sem fyrr er „það hið blíða bland-
ið stríðu . . .“. Mörg böm og ungl-
ingar em á okkar tíð haldin kvíða
og öryggisleysi. Fjölmargir foreldr-
ar finna afleiðingar þessa ástands
brenna á eigin skinni.
Fíkniefni, sem nú streyma inn í
landið, em ein vísbending um vá,
sem ógnar.
Við þessar aðstæður virðist rök-
rétt að álykta sem svo að störf
uppeldisstétta beri að gera eftir-
sóknarverð, og tryggja þannig eftir
föngum að böm og unglingar bíði
ekki tjón af þeirri þróun samfélags-
hátta sem orðið hefur og þau fá
að siálfsögðu engu um ráðið.
í Ijósi þess, sem hér hefur verið
sagt, er þess vænst að skilningsrík-
ur lesandi fallist á eftirfarandi nið-
urstöður:
— Það er skýlaus réttur æskufólks
og foreldra þeirra að stjómvöld
tryggi að þær starfsstéttir, sem
uppeldisstörf annast, hafí til
Sala á ostum
jókst um 2%
SALA Á smjöri minnkaði veru-
lega á síðastliðnu ári en jókst í
smjörva. Sala á ostum hér innan-
lands jókst, en mun minna en
verið hefur undanfarin ár. Þrátt
fyrir mikinn útflutning á ostum
og mjólkurdufti voru verulegar
birgðir af mjólkurvörum til í
landinu um áramótin.
Á síðastliðnu ári voru seld innan-
lands 1.180 tonn af smjöri og
smjörva. Er það 229 tonnum minna
en á árinu 1984 og nemur samdrátt-
urinn 16%. Smjörsalan minnkaði
um 260 tonn eða 28% en smjörva-
salan jókst um 39 tonn eða 8,5%.
Um áramótin voru 735 tonn af
Ólafur H. Jóhannsson
„Með sameiginlegu
átaki foreldra, stjórn-
valda og kennara er
unnt að ráða bót á því
óf remdarástandi sem
nú ríkir.“
þess tilskylda menntun, og þessi
störf séu eftirsóknarverð.
— Skólastjórar, sem ábyrgð bera á
uppeldisstofnunum, eiga ekki að
smjöri og smjörva til í birgðum í
landinu og er það 282 tonnum eða
38% meira en var ári áður. Birgðim-
ar samsvara 7—8 mánaða sölu.
Ostasalan innanlands var á árinu
2.200 tonn, 46 tonnum eða 2%
meiri en árið áður. Út voru flutt
1.314 tonn, sem er 32% meira en
árið 1984. Þá vora ostabirgðir um
áramót 948 tonn, 6% meiri en fyrir
ári, og samsvara birgðimar rúm-
lega 5 mánaða sölu innanlands.
Innanlands vora seld 970 tonn
af mjólkurdufti (nýmjólkurduft,
undanrennuduft og kálfafóður) sem
er 6% meira en á árinu 1984. Út
vora flutt 700 tonn af dufti, en
ekkert árið áður, en þrátt fyrir það
vora 430 tonn til í birgðum um
áramót, sem er 14% meira en ári
áður. Offramleiðslan síðustu mán-
uði ársins fór að veralegu leyti 1
sætta sig við að þurfa að ráða
til starfa fólk án viðurkenndrar
starfsmenntunar og fullra rétt-
inda til að gegna starfí sínu.
— Foreldrar eiga að knýja á stjóm-
völd um úrbætur.
Eitt lítið skref í þessa átt er að
skólastjórar staðfesti ekki nýráðn-
ingu á fólki sem ekki hefúr starfs-
réttindi kennara. Það er grandvall-
arafstaða, óháð mannkostum við-
komandi manna sem einstakir
skólastjórar treysta til verksins.
Þau vandkvæði, sem af þessari
aðgerð kunna að hljótast, bitna
eflaust fyrsta kastið illa á ýmsum
sem hlut eiga að máli — ekki síst
á skólastjóranum sjálfum. En óhjá-
kvæmilegt er að spyma við fótum.
Það er persónulega ábyrg afstaða
og siðferðileg skylda þegar þessi
mál era skoðuð í samhengi og með
hagsmuni almennings í huga. Með
sameiginlegu átaki foreldra, stjóm-
valda og kennara er unnt að ráða
bót á því ófremdarástandi sem nú
ríkir.
Umhyggja fyrir velferð bama og
ungmenna er nánast öllum í blóð
borin. Þessi umhyggja þarf nú að
birtast í aðgerðum.
Höfuadur er skólastjóri Æfinga-
og tilraunaskóla Kennaraháskóla
fslands ogformaður Félags skóla-
stjóra og yfirkennara i grunn-
skólastigi.
nýmjólkurduft í nýrri verksmiðju
Mjólkurbús Flóamanna og skýrir
það duftútflutninginn. Til útlanda
vora seld 94 tonn af kaseini, sem
er 39% aukning og í birgðum vora
59 tonn.
Óskar H. Gunnarsson forstjóri
Osta- og smjörsölunnar sagði að
sölusamdrátt á smjöri mætti rekja
til þess háa verðs sem væri á smjör-
inu, það væri einfaldlega orðið of
dýrt miðað við markaðsaðstæður.
Hann var óánægður með minni sölu
á ostum en verið hefur undanfarin
ár. Eins og fram kemur hér að ofan
varð 2% aukning f sölu á ostum en
undanfarin ár hefur verið stöðug
aukning, á bilinu 6—10% á ári.
Taldi Oskar að minni söluaukningu
mætti heimfæra undir kaupmáttar-
þróunina, því enn ætti að vera tölu-
vert svigrúm til aukinnar ostasölu.
Osta- og smjörsalan:
Sala á smjöri minnkaði
um 260 tonn eða 28%
529l000 krónur og MAZDA 626 GrandLuxe 2.0L
meö vökvastýri, rafknúnum rúðum, rafknúnum
læsíngum og öllum lúxusbúnaðí aðeins 598.000
krónur! Opið laugardaga frá kl. 10—4.
BILABORG HF
Smiðshöföa 23 sfmi6812 99