Morgunblaðið - 30.01.1986, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Fréttastofa sjónvarps:
___ ••
Einar Orn laus-
ráðinn í eitt ár
EINAR ORN Stefánsson fréttamaður, sem verið hefur lausráðinn á
fréttastofu sjónvarpsins undanfarið ár, var á mánudag lausráðinn
til eins árs enn frá 1. febrúar næstkomandi, að sögn Markúsar Arnar
Antonssonar útvarpsstjóra. Þegar umsókn Einars, ásamt átta öðrum,
var lögð fyrir fund útvarpsráðs sl. föstudag mælti ráðið með því
með sex atkvæðum gegn einu að Einar yrði ráðinn í auglýsta stöðu,
án þess að taka afstöðu til annarra umsókna.
Alþýðubandalagið:
Forvalið leiðbein-
andi fyrir kjörnefnd
í þessari málsmeðferð útvarps-
ráðs endurspeglast óánægja ráðs-
manna með að í fjölmiðlum hefur
verið fullyrt að nafngreindir um-
sækjendur hafí verið ráðnir á frétta-
stofuna, jafnvel áður en umsóknar-
fresturinn var útrunninn. Með
samþykkt sinni vildi ráðið taka af
öll tvímæli um að auglýsingin um
starfið væri ekki á ábyrgð þess og
í raun óþörf, að sögn Markúsar A.
Einarssonar veðurfræðings, sem
sæti á í ráðinu.
Hann sagði að umrædd auglýsing
hefði komið til umræðu á útvarps-
ráðsfundi fyrir rúmum hálfum mán-
uði og að þar hefði verið spurt hvort
verið væri að auglýsa laust starf
Guðjóns Einarssonar, sem hafði
verið í ársleyfi og ætlaði ekki að
snúa aftur á fréttastofuna.
„Á föstudaginn voru umsóknim-
ar lagðar fyrir ráðið og þá kom í
ljós að verið var að auglýsa laust
til umsóknar afleysingastarf í eitt
ár,“ sagði Markús A. Einarsson.
„Þá sagðist útvarpsstjóra svo frá,
að sú „hefð“ hefði skapast að það
lausráðna starfsfólk, sem hefði
lengstan starfsaldur, gengi inn í
fastar stöður sem losnuðu. Niður-
staðan var því sú, að Sigurveig
Jónsdóttir var komin í fasta stöðu
Gufjóns Einarssonar og verið var
að auglýsa aðra afleysingastöðu.
Einar Om Stefánsson fréttamaður,
sem verið hefur á fréttastofu sjón-
varpsins undanfarið ár, hafði áhuga
á að vera í afleysingum áfram enda
var hans umsókn ein af níu. Þar
með hlaut auglýsingin að vera
óþörf, meðal annars vegna „hefðar-
innar", sem útvarpsstjóri nefndi."
í framhaldi af þessu lagði Mark-
ús fram tillögu um að útvarpsráð
mælti með Einari Emi í þessa af-
leysingastöðu, „svo að ekki væri
verið að plata aðra umsækjendur,"
eins og Markús orðaði það. Inga
Jóna Þórðardóttir, formaður út-
varpsráðs, lagði fram frávísunartil-
lögu og vildi láta taka umsóknimar
allar til venjulegrar afgreiðslu og
umsagnar. Sú tillaga var felld og
tillaga Markúsar samþykkt með sex
atkvæðum gegn atkvæði Ingu Jónu,
sem ekki var sátt við þessa máls-
meðferð.
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri
sjónvarps, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að hann hefði ekki vitað
um að Einar Öm hefði hug á að
sækja um starfið. „Hann nefndi það
aldrei við mig og ég gekk út frá
að hann hefði í hyggju að fara aftur
í útvarpið. Það var ekki fyrr en að
starfsmannastjóri hafði auglýst
starfíð að ég vissi um umsókn
Einars Amar. Það má því ekki líta
svo á að fréttastofan hafi verið að
vísa honum frá og við höfum þegar
mælt með honum í starfið. Að því
leyti er þessi málsmeðferð rétt. Osk
fréttastofunnar um að fá einhvem
hæfasta blaðamann landsins, Hall
Hallsson, til starfa stendur þó
óbreytt og við munum færa það
erindi til útvarpsráðs eftir réttum
Ieiðum," sagði Ingvi Hrafn.
FORVAL Alþýðubandalagsins í
Reykjavík vegna borgarstjómar-
kosninganna í vor, sem eins og
kunnugt er verður haldið á föstu-
dag og laugardag, er ekki bind-
andi. Það er leiðbeinandi fyrir
kjörnefnd, en kjörnefndin leggur
tillögu að framboðslista fyrir
fuUtrúaráð og félagsfund þar
sem tekin verður endanleg
ákvörðun um röðun á listann.
22 em í framboði. Eingöngu
flokksmenn í Reykjavík hafa rétt
til þátttöku og eiga þeir að raða
frambjóðendum í sjö efstu sætin.
Að sögn Kristjáns Valdimarssonar
skrifstofustjóra Alþýðubandalags-
ins em um 900 manns í flokknum
í Reykjavík og auk þess hafa tölu-
vert á annað hundrað manns, mest
ungt fólk, gengið í flokkinn undan-
fama daga. Til þess að mega taka
þátt í forvalinu má flokksfólkið
ekki skulda meira en eitt árgjald.
Að sögn Kristjáns var árgjald ársins
1984, sem menn verða að greiða
áður en þeir kjósa, á bilinu 800-
3.000 kr. Það fólk sem nú gengur
í flokkinn verður að greiða hálft
lágmarksgjald, það er að minnsta
kosti 500 krónur, til að fá að taka
þátt í forvalinu. Kristján sagði óljóst
hvað margir yrðu á endanlegri
kjörskrá við forvalið, þar sem menn
gætu gengið í flokkinn og fengið
að kjósa þar til kjörstöðum yrði
lokað á laugardag, og skuldugir
félagar gætu líka greitt skuldir sín-
ar og fengið að kjósa til sama tíma.
Vonaðist hann til að 800 til 1.200
manns tækju þátt í forvalinu.
Forvalið fer fram í flokksmiðstöð
Alþýðubandalagsins á Hverfisgötu
105 og verður talið strax að próf-
kjörinu loknu. Fyrstu tölur úr for-
valinu verða tilkynntar upp úr
miðnætti á laugardagskvöldið á
þorrablóti Alþýðubandalagsins og
er búist við að lokatöiur liggi fyrir
áður en blótinu lýkur. Á þorrablót-
inu munu Siguijón Pétursson,
Guðrún Ágústsdóttir, Kristín Á.
Ólafsdóttir og Össur Skarphéðins-
son syngja „söngva um samstöðu
og bræðralag", eins og segir í
auglýsingu um þorrablótið. Þetta
fólk er eins og kunnugt er í baráttu
um tvö efstu sætin í forvalinu.
Hættir hjá
Úrval fer
til Polaris
KARL Sigurhjartarson hefur
sagt úpp starfi sínu sem fram-
kvæmdastjóri Ferðaskrifstof-
unnar Úrvals og gengið tíl liðs
við Pál G. Jónsson aðaleiganda
og forstjóra umboðs- og heild-
verslunarinnar Polaris hf. og
Ferðaskrifstofunnar Polaris.
Karl hefur gerst hluthafi í ferða-
skrifstofunni og verður fram-
kvæmdastjóri hennar frá næstu
mánaðamótum. Erling Aspelund,
sem var framkvæmdastjóri Flug-
rekstrarsviðs Flugleiða, og tók
fyrir skömmu við sem forstjóri
Urvals, tekur við störfum Karls.
„Þetta verður spennandi verk-
efni, sem ég hlakka mjög til að
takast á við. Ég fór út í þetta fyrst
og fremst vegna þess að eigendur
Urvals höfðu ákveðið að hætta að
selja ferðir til Mallorka og Ibiza.
Þeir töldu það ekki arðbært, en ég
er ósammála þeim og hyggst selja
ferðir til þessara staða hjá Polaris,"
sagði Karl í samtali við Morgun-
blaðið. Úrval er í eigu Flugleiða
(80%) og Eimskips (20%).
Fram til þessa hefur Ferðaskrif-
stofan Polaris stundað almenna
farseðlasölu í áætlunarflugi, auk
þess að hafa umboð fyrir banda-
ríska flugfélagið Pan American.
Stórviðburður
Feröaskrifstofa»
ÚTSÝN
Austurstræti 17, sími 26611
a sviði
fiskveiða,
fiskvinnslu og
fiskeldis
WORLD FISHING
EXHIBITION ’86
ásamt
FOOD FROM THE SEA
& FISH FARMING
17.-21. júní í BELLA CENTER, Kaupmannahöfn
Útsýn getur boðið viðskiptavinum sínum ódýra hópferð á
þessa stórmerku sýningu.
Yfir 10 þúsund manns sóttu World Fishing í Kaupmanna-
höfn 1983, en búist er við verulega aukinni aðsókn vegna
tilkomu Food from the Sea & Fish Farming, sem eru i
fyrsta sinn í tengslum við aðalsýninguna.
Brottför 16. júní — 7 dagar.
Verð frá kr. 26.150 (í tveggja manna herbergi).
GERIÐ PANTANIR TÍMANLEGA
■áB Éám i irT- Þ' r.ti - xðMl
SMttl
zammnjaa
tHöttáls
iMMW tii in»iniv tn