Morgunblaðið - 30.01.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
25
Filipseyjar:
Marcos
vísar rógi
ábug
Davao, Filippseyjum, 29. janúar. AP.
FERDINAND Marcos, forseti
Filippseyja, sakaði andstæð-
inga sína í dag um að beita
persónulegum svívirðingum og
skítkasti í kosningabaráttunni
gegn sér. Hann sagði að full-
yrðingar um að skæruliðasveit
sín í síðari heimsstyijöld hafi
aldrei verið til væru hæsta stig
móðgunar.
„Eg hef séð lúabrögðum beitt,
en aldrei svo svínslega," sagði
Marcos á útifundi í borginni
Davao. 50 þúsund manns sóttu
fundinn.
Hetjuskapur Marcosar í stríð-
inu hefur undanfarið verið dreg-
inn í efa í bandarískum dagblöð-
um. Marcos státar af 27 heiðurs-
merkjum.
Marcos ítrekaði einnig þá skoð-
un sína að kommúnistar styddu
mótframbjóðanda sinn, Corazon
Aquino, og hún væri reiðubúin til
að samþykkja aðskilnað við syðstu
eyjar Filippseyja, þar á meðal
Mindanao, sem Davao stendur á.
Frú Aquino hefur kallað Marcos
lygara vegna þessara ásakana.
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið neitaði í gær að stjóm Reagans
reyndi á nokkum hátt að hafa
áhrif á forsetakosningamar á
Filippseyjum með því að leggja
áherslu á að pólitískra, efnahags-
legra og hemaðarlegra endurbóta
væri þörf í ríkinu. Slíkum ábend-
ingum væri ekki ætlað að velta
Þessi mynd var tekin af Ferdin-
and E. Marcosi, forseta Filips-
eyja, þegar hann var major í
hernum 27 ára að aldri. í texta
við myndina segir að hún hafi
verið tekin er heimstyijöldinni
síðari lauk og sjá megi þijú
heiðursmerki í barmi hans af
28, sem hann hafi hlotið fyrir
vasklega framgöngu. Þetta er
eina myndin úr síðari heims-
styijöldinni sem birtist i bók,
sem ríkið gaf út um forsetann
og nefnist „Filipseyja Marcos“.
Bókinni er lýst þannig að hún
taki yfir „feril Marcosar í máli
og myndum". Stríðsafrek
Marcosar hafa verið dregin í
efa undanfarið. AP/Sinuunynd
Marcosi úr sessi.
Leiðtogi rómversk-katólsku
kirkjunnar á Filippseyjum krafðist
þess á þrifjudag að kosningastjór-
ar samþykktu að skipaðar yrðu
óháðar varðsveitir til að fylgjast
með því að ekki yrði svindlað í
kosningunum 7. febrúar.
Uganda:
Museveni tekur
f orsetaembætti
Kampala, 29. janúar. AP.
YOWERI Museveni, leiðtogi
uppreisnarmanna í Uganda, sór
i dag embættiseið forseta og
hefur þar með náð takmarki
fimm ára skæruhernaðar. Þegar
Museveni hafði tekið við forseta-
embættinu hylltu hann þúsundir
áhorfenda.
Fjórir dagar eru síðan herir
Musevenis hröktu hermenn herfor-
ingjastjómarinnar úr höfuðborginni
Kampala, þar sem allt hefur verið
með kyrrum kjörum síðan á þriðju-
dag.
Uppreisnarherinn náði á mánu-
dag völdum í næststærstu borg
landsins, Jinja, og eru það nú aðeins
landsvæði í norðurhluta landsins,
sem Museveni hefur ekki náð á sitt
vald.
„Enginn skyldi halda að nú væru
aðeins vaktaskipti," sagði Museveni
í vígsluræðu sinni. „Þessi atburður
markar þáttaskil í sögu þjóðarinn-
ar.“
Hann sagði að brýnasta verkefni
stjómar sinnar væri að koma á lýð-
ræði og vemda þjóðina gegn mann-
réttindabrotum.
„Hver sá, sem ógnar okkur, fær
miskunnarlausar móttökur," sagði
forsetinn. „Ugandabúar eiga aðeins
að látast af náttúrulegum orsök-
um.“
Danmörk:
Þjóðarat-
kvæði um EB
Kaupmannahöfn, 29. janúar. Frá fréttarit-
ara MorgunblaÓsins, Ib Björnbak og AP.
DANSKA þjóðþingið samþykkti
í gær að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um tillögur þær til
breytinga á Evrópubandalaginu,
sem felldar voru á þinginu i síð-
ustu viku.
Atkvæði féllu þannig í gær, að
82 þingmenn greiddu atkvæði með
þjóðaratkvæðagreiðslunni, 66 þing-
menn sátu hjá, en enginn greiddi
atkvæði á móti. Sennilegast er, að
þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram
27. febrúar nk.
Skoðanakannanir í Danmörku að
undanfömu benda eindregið til
þess, að meirihluti kjósenda styðji
tillögurnar um breytingar á stofn-
skrá EB.
Suður-Afríka:
Zulu-menn skutu fimm
kynbræður sína til bana
Jóhannesarborg, 29. janúar. AP.
FIMM svertingjar voru skotnir til bana í Komoya-heimalandinu
suðvestur af Durban snemma í morgun, að sögn lögreglunnar.
Arásarmennimir vora um 50
talsins og skutu þeir á fómarlömb-
in, þar sem þau biðu eftir strætis-
vagni í dögun í morgun.
Dráp þessi eiga rót að rekja til
langvarandi eija tveggja ættflokka
innan Zulu-ættbálksins, en tengjast
á engan hátt nýlegum átökum
Zulu-manna og fólks af Pondo-
ættbálknum á þessum slóðum.
Ættbálkaátökin, sem kostað hafa
113 manns lífíð frá því um jól, stafa
af því, að Pondo-menn hafa í aukn-
um mæli sest að í landi Zulu-manna.
Ekki er nákvæmlega vitað um
ástæðumar fyrir bræðravígunum í
morgun.
VIÐ
AUGLÝSIIM
KJÖRBÓKINA,
GOÐA
BÓK
FYRIR
BJARTA
FRAMTÍÐ.
Og nú er ekkert En!
Kjörbók Landsbankans
er góður kostur til þess að ávaxta sparifé:
Hún ber háa vexti, hún er tryggð
gagnvart verðbólgu með
reglulegum samanburði við vísitölutryggða reikninga
og innstæðan er algjörlega óbundin.
Kjörbókin er engin smáræðis bók.
Þú geturbæði lagt traustþittog sparifé á Kjörbókina,
- góða bók fyrir
bjarta framtíð.
íslands
Banki allra landsmanna