Morgunblaðið - 30.01.1986, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö.
Geimferðum verður
haldið áfram
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir ÓLA BJÖRN KÁRASON
p ypiiiiii W - m ífiTT |§pTJ7* *Æ* I « í *2IA 'am W
t wíMml mjk á níÁWmJj**' -Aá
Vextir, lántökugjald og innheimtugjald eru meðal þeirra breyting’a, sem höfundar draga að frumvarpi ti
mannsson, menntamálaráðherra, segist ekki hafa tekið afstöðu til allra þeirra breytinga sem lagðar eru til.
Lánasjóður íslenskra námsmanna:
Ráðherra ætlar a
banka um reksti
DROG að frumvarpi að lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna, sem nefnd á vegum mennta-
málaráðherra hefur samið, á eftir að valda mildum deilum. Ástæðurnar eru rnargar. Hug-
myndir þær sem þar eru settar fram um breytingar á gildandi lögum og fyrirkomulagi náms-
lána, eru róttækari en svo að unnt sé að sameina þingmenn stjórnarflokkanna um þær.
Menntamálaráðherra er búinn að taka afstöðu til nokkurra liða í frumvarpinu, en ekki allra.
Hann segist staðráðinn í að gjörbreyta starfsemi Lánasjóðsins: „Ég ætla ekki að láta reka
sjóðinn, eins og hann hefur verið rekin — það er alveg ljóst. Ég ætla að semja við banka um
rekstur þessa sjóðs,“ segir menntamálaráðherra.
Slysið yfir Flórída á þriðju-
dag, þegar bandaríska
geimfeijan Challenger fórst
ásamt sjö manna áhöfn, er
hryggilegra en orð fá lýst.
„Þetta er mesta áfall í sögu
geimferðaáætlunarinnar, “
sagði Ronald Reagan, forseti
Bandaríkjanna, í ávarpi til
þjóðarinnar skömmu eftir að
harmleikurinn átti sér stað.
Enginn vafi leikur á því að
forsetinn hefur lög að mæla.
Slys hafa að vísu orðið áður
og geimfarar látið lífið, en ekki
með þeim hætti sem hér varð.
Fyrir tæpum tuttugu árum
biðu þrír bandarískir geimfarar
bana á jörðu niðri, er eldur kom
upp í geimflauginni Apollo 1.
skömmu fyrir flugtak. Þá hafa
bilanir nokkrum sinnum orðið
í geimflaugum og geimfeijum,
en það hefur ekki leitt til
manntjóns. Geimferðir Banda-
ríkjamanna, sem orðnar eru
55 að tölu, hafa því að mestu
leyti verið áfallalausar. Sömu
sögu er að segja af geimferðum
Sovétmanna, sem kostað hafa
fjögur mannslíf. Þetta er út
af fyrir sig undrunarefni, þegar
tekið er tillit til þess að fari
minnsta smáatriði úrskeiðis er
voðinn vís.
Reagan forseti segir, að
atburðurinn á þriðjudag megi
ekki verða til þess að buga
menn. Geimferðum verði hald-
ið áfram þrátt fyrir slysið.
„Framfarir verða ekki nema
einhveijir séu í fremstu víglínu,
sem taka áhættu,“ sagði hann
í fyrrakvöld, um leið og hann
lét í ljós djúpa sorg og samúð
með vandamönnum geimfar-
anna.
Geimferðir, sem eru eitt
mesta tækniafrek mannsand-
ans, vekja ekki lengur sömu
gífurlegu athyglina og fyrir
nokkrum árum, enda þótt þær
þyki enn mjög fréttnæmar.
Með för Challenger að þessu
sinni var hins vegar fylgst af
meiri áhuga, en fyrri ferðum
geimfeijunnar, vegna þess að
um borð var fyrsti óbreytti
farþeginn, sem kost átti á að
fara út í geiminn. Það var
Christa McAuliffe, 37 ára
gömul kennslukona, sem valin
hafði verið úr hópi 11.000
umsækjenda um að verða
fyrsti kennarinn í geimnum.
Hún hafði einsett sér að nota
geimferðina til að færa geim-
vísindin nær nemendum sínum
í menntaskólanum í Concord í
New Hampshire. Nemendur
hennar fylgdust með geimskot-
inu á þriðjudaginn fullir eftir-
væntingar, sem á skammri
stund breyttist í örvæntingu. Á
þessari stundu er ekki unnt að
spá neinu um það hvaða afleið-
ingar slysið hefur á viðhorf
almennings til þátttöku í geim-
ferðum. Mikill áhugi hefur
verið á slíkum ferðum í Banda-
ríkjunum, en líklega dregur nú
eitthvað úr honum. Það er hins
vegar ólíklegt, að slysið verði
til þess að skapa almenna
andstöðu við geimferðaáætlun-
ina, enda hefur hún verið eitt
helsta stolt Bandaríkjamanna
og mikilvægt tákn þess að
Bandaríkin eru stórveldi á fleiri
sviðum en í viðskiptum og víg-
búnaði.
Sérfræðingar NASA,
Bandarísku geimferðastofnun-
arinnar, vita enn ekki hveijar
voru orsakir þess að Challeng-
er splundraðist hálfri annarri
mínútu eftir flugtak frá Kana-
veralhöfða. Þeir segja, að vikur
og mánuðir geti liðið áður en
sú gáta verði leyst. Það þýðir
væntanlega, að ferðum mann-
aðra geimfara verður frestað,
þar til niðurstaða er fengin.
Geimferðaáætlun þessa árs fer
því úr skorðum. Rétt er að
bregðast við með slíkum hætti,
enda hvort tveggja í húfi
mannslíf og gífurlegir fjár-
munir. I því viðfangi má nefna
að smíði Challenger kostaði
1.200 milljónir bandaríkjadala,
sem er jafnvirði um 50 millj-
arða íslenskra króna. Fjárlög
íslenska ríkisins á árinu 1986
nema rúmlega 30 milljörðum
króna.
Forseti Bandaríkjanna hefur
lýst geimförunum sjö, er fórust
með Challenger, sem „hetjum
er aldrei muni gleymast".
Sannarlega kreflast geimferðir
hugrekkis og mikillar andlegr-
ar og líkamlegrar þjálfunar.
Geimfarar nútímans eru braut-
ryðjendur í könnunarsögu jarð-
arbúa. En sá dagur mun vænt-
anlega renna upp, að ferðir út
í geiminn þykja ekki merkilegri
og erfiðari en flugferðir nútím-
ans, sem voru mikið hættuspil
fyrr á árum. Geimferðum verð-
ur örugglega haldið áfram, en
slysið á þriðjudaginn er hins
vegar áminning um að í þess-
um efnum má ekki fara of
geyst.
Líklegt er að það reynist mennta-
málaráðherra erfitt að gera upp hug
sinn varðandi mörg atriði draganna.
Nokkrir þingmenn Framsóknar-
flokksins hafa þegar gefíð stóryrtar
yfirlýsingar um hugmyndir Sverris.
Frumvarpið hefur þó ekki verið
kynnt þeim eða öðrum þingmönn-
um. Ohætt er að fullyrða að þau
drög sem liggja fyrir að frumvarpi
að lögum um Lánasjóðinn nái aldrei
fram að ganga án verulegra breyt-
inga.
3% raunvextir
Það er einkum vaxtabinding lán-
anna sem á eftir að standa í mörg-
um þingmanninum. I frumvarpinu
er lagt til að vextir verði 3% auk
verðtryggingar — m.ö.o. 3% raun-
vextir. Til samanburðar má benda
á áð lán frá lífeyrissjóðum ríkis-
starfsmanna og verslunarmanna
bera 5% vexti. Fyrrnefndi sjóðurinn
veitir lánin í 25 ár, en sá síðamefndi
í allt að 32 ár. í frumvarpinu er
miðað við lánstímann 30 ár frá
námslokum.
Það er í sjálfu sér auðvelt að
setja fram tillögu um að reikna
vexti af námslánum, en erfíðara er
að gera sér grein fyrir þeim afleið-
ingum sem það kann að hafa.
Sverrir Hermannsson segist ekki
vera búinn að gera „vaxtadæmið“
upp við sig. Og það er greinilegt
að hann veigrar sér við að stíga
of stórt skref. Það verður því að
teljast líklegast að í endanlegri gerð
frumvarpsins verði lagt til að vextir
verði lægri eða 1 til 1,5%, þ.e. hljóti
hugmyndin um vaxtabindingu á
annað borð hljómgrunn meðal þing-
manna.
Oll samtök námsmanna, sem
höfundi þessara skrifa er kunnugt
um, eru andvíg því að reikna vexti
af lánunum auk verðtryggingar.
Og enginn skal vanmeta áhrif
þeirra innan þingflokkanna.
Ein meginröksemdin fyrir því að
reikna vexti af námslánum, er sú
sama og í öðrum lánaviðskiptum. í
greinargerð sem fylgir frumvarps-
drögunum segir: „Vegna vaxtaleys-
is námslána má gera því skóna að
ein ástæða fyrir gífulegri ásókn í
námslán hafi verið óeðlilegur mis-
munur kjara þeirra og annarra lána
í þjóðfélaginu. En eins og kunnugt
er hafa orðið miklar breytingar á
fjármagnsmarkaði á allra síðustu
árum og hafa raunvextir útlána í
mörgum tilfellum hækkað mikið.“
Þá er einnig bent á mikilvægi
þess að sjóðurinn verði fjárhagslega
sjálfstæður þ.e. endurgreiðslur
standi undir útlánum. Og síðar
segir: „Vegna þess að hagur þjóð-
félagsins af háu menntunarstigi er
mikill, er talið rétt að námslán beri
lægri vexti en markaðsvexti þannig
að þau séu ætíð í hópi hagstæðustu
lána.“ Undir þessi síðustu orð skal
tekið, en jafnframt er dregið í efa
að markmiðið með 3% raunvöxtum
náist, þ.e. draga úr eftirspurn eftir
lánum.
Vissulega hefur eitthvað verið
um að námsmenn hafí misnotað sér
námslánin, t.d. ávaxtað þau í bönk-
um, sparisjóðum eða hjá ríkissjóði
sjálfum. Þetta eru þó undantekn-
ingar og hafí það verið vilji þeirra
sem frumvarpið sömdu að koma í
veg fyrir slíkt má benda á að nú
býður ríkissjóður skuldabréf með
9% raunvöxtum. Tillagan um vaxta-
bindingu kemur því ekki í veg fyrir
að það borgi sig að taka lán og
kaupa ríkisskuldabréf, svo dæmi sé
tekið. Þetta er þó ekki kjami máls-
ins.
Jafnvel þó hægt sé að nefna
einhver dæmi um misnotkun lána,
er ekki þar með búið að færa rök
fyrir því að réttlætanlegt sé að láta
eitt yfir alla ganga. Það er örugg-
lega ekki í samræmi við réttlætis-
kennd meirihluta Islendinga að
hinir „saklausu" gjaldi fyrir gjörðir
hinna „seku“.
Hverjar eru afleiðing
arnar?
Það er nauðsynlegt að átta sig
á því hvaða afleiðingar það hefur
í för með sér að setja vexti á lán,
sem eru eingöngu ætluð til fram-
færslu (og greiðslu skólakostnað-
ar). Allir stjórnmálaflokkamir hafa
í gegnum árin lýst því yfir að
tryggja þurfi jafnan rétt lands-
manna til náms, óháð búsetu og
efnahag.
Meginhlutverk Lánasjóðsins er
að tryggja að menn geti stundað
nám þrátt fyrir bágan efnahag.
Þeir sem fyrst og fremst þurfa á
aðstoð að halda á meðan þeir eru
í námi eru efnalitlir námsmenn.
Vaxtabinding kemur harðast við
þá, sem hafa lágar tekjur að námi
loknu, en endurgreiðslur verða ekki
bundnar við tekjur nái tillögur
nefndarinnar fram að ganga.
Kosturinn við að reikna vexti af
námslánum er sá að það ætti að
leiða til þess að námsmenn hugleiði
betur en þeir gera nú hvaða gildi
þeirra nám hefur — bæði í nútíð
og framtíð. Vissulega eru einnig
aðrir kostir þessu samfara, en ekki
verður fjallað um þá hér. Hitt er
mikilvægara að í frumvarpinu er
lagt til að tekjur námsmanna komi
ekki til frádráttar láni, líkt og nú
er. Forsenda þess að svo megi verða
er að lánin beri vexti sem letja þá
sem ekki þurfa á lánum að halda
að taka þau. En telja verður vafa-
samt að vaxtabindingin dragi í
einhvetjum mæli úr eftirspurn eftir
lánum, en á hinn bóginn styrkir hún
verulega Qárhagsstöðu Lánasjóðs-
ins þegar fram líða stundir.
Auknar launakröfur
Ætli þingmenn að samþykkja
vaxtabindingu námslána ættu þeir