Morgunblaðið - 30.01.1986, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR1986
Guðrún Hallgrímsdóttir
Haukur Ingibergsson
Paul Ragnar Smith
Skarphéðinn Óskarsson
Prófkjör
hjá Alþýðu-
flokknum í
Hafnarfirði
Alþýðuflokkurinn í Hafnar-
firði hefur ákveðið að hafa
prófkjör um skipan 5 efstu
sæta á framboðslista flokksins
við bæjarstjórnarkosningarnar
næsta vor. Prófkjörið fer fram
laugardaginn 1. febrúar kl.
14—19 og sunnudaginn 2. febr-
úar kl. 10—20. Kosið verður í
Alþýðuhúsinu f Hafnarfirði.
Ríkismat sjávarafurða:
Endurskipulagning og
ráðið í 4 nýjar stöður
Að undanförnu hefur verið unnið að endurskipulagningu Ríkis-
mats sjávarafurða f samræmi við ný lög um stofnunina, en með
þeim var verkefnum hennar breytt að mörgu leyti frá því sem áður
var. Skipulagsbreytingar miða að gera ríkismatið að virkari stofnun
með nútfmalegum starfsaðferðum, segir í frétt frá fyrirtækinu.
Hlutverk Ríkismats sjávarafurða er að stuðla að bættum hráefnis-
og vörugæðum íslenzkra sjávarafurða. Til að ná þessu markmiði
mun stofnunin vinna náið með fyrirtækjum, útflytjendum og samtök-
um í sjávarútvegi.
Nýtt stjórnskipulag tekur gildi hjá Rfkismati sjávarafurða 1.
febrúar næstkomandi og hefur verið ráðið i eftirfarandi ábyrgðar-
og stjórnunarstörf:
Forstöðumaður
f erskfiskdeildar
Guðrún Hallgrímsdóttir, mat-
vælaverkfræðingur, hefur verið
ráðin forstöðumaður ferskfískdeiid-
ar ríkismatsins. Hún mun hafa
faglega yfirumsjón með ferskfisk-
matinu og efla það á þann hátt að
það verði hvati að bættri meðferð
afla og bættum hráefnisgæðum. í
I
<3
Vandaðir bíl-
kranar í öllum
stærðum á
lægsta verði á
markaðnum
18tonn/m /\
Lyftigeta 8.5 tonn, þyngd
2.3 — 2.5 tonn.
Hátt á 2.hundrað gerðir fáan-
legar frá 2.5 tonn/m til 180
tonn/m
Hafið samband við okkur og
fáið nánari upplýsingar.
uTIMXMö)^
FUNAHOFÐA 1 - REYKJAVIK
S. 91-685260
þessu skyni mun hún m.a.a fylgjast
með þróun þessara mála í öðrum
löndum. Á næstunni verða veiga-
mestu verkefnin fólgin í samræm-
ingu ferskfískmatsins milli ver-
stöðva á landinu. Jafnframt er að
því stefnt að taka upp nýtt mat-
skerfi, svokallað punktamat, sem
miðar að því að gera matið áreiðan-
legra og sambærilegt um allt land.
Guðrún var áður forstöðumaður
afurðadeildar. Hún mun taka við
þessari nýju stöðu 1. febr. nk.
Rekstrarstjóri
Haukur Ingibergsson hefur verið
ráðinn rekstrarstjóri. Um er að
ræða nýja stöðu. Við endurskipu-
lagningu stofnunarinnar var komið
á fót sérstöku rekstrarsviði, en
undir það heyra yfirmatsmenn
svæða og ferskfiskmatsmenn.
Þessi skipulagsbreyting er gerð
til að gera starfsemi stofnunarinnar
markvissari. Haukur mun m.a. sjá
um skipulagningu verkefna og
verkstjóm stofnunarinnar um allt
land og skipuleggja eftirlitsferðir
og úttekt í samvinnu við forstöðu-
menn ferskfísk — og afurðadeilda
og hreinlætissérfræðing.
Haukur hefur aflað sér mikillar
þekkingar og reynslu á sviði stjóm-
unarstarfa. Hann mun hefja störf
10. febr. nk.
Forstöðumaður gagna-
vinnslu og upplýs-
ingasviðs
Paul Ragnar Smith hefur verið
ráðinn forstöðumaður gagnavinnslu
og upplýsingasviðs. Hann mun hafa
yfirumsjón með tölvuvæðingu á
starfsemi stofnunarinnar og úr-
vinnslu gagna.
Með tölvuvæðingu ríkismatsins
er stefnt að því að veita aðilum í
sjávarútvegi og fjölmiðlum, fljótt
og vel, marktækar upplýsingar um
gæði og meðferð afla og afurða. Á
þann hátt væntir stofnunin að
umræður og ákvarðanir í sjávarút-
vegi taki í ríkara mæli mið af
gæðum og verðmætum afla en ekki
aðeins tonnafjölda. Paul Ragnar
hefur aflað sér víðtækrar þekkingar
og starfsreynslu á sviði tölvumála.
Hann mun hefja störf 1. febr. nk.
Hremlætissérfræðingrir
Skarphéðinn Óskarsson, mat-
vælafræðingur, hefur verið ráðinn
hreinlætissérfræðingur.
Hann mun hafa yfirumsjón með
eftirliti með hreinlæti og búnaði
fiskiskipa og fiskvinnslustöðva.
Skarphéðinn mun annast þjálfun
starfsmanna við framkvæmd hrein-
lætiseftirlits, hafa umsjón með út-
gáfu hæfnisvottorða fyrir fískveiði-
skip og útgáfu vinnsluleyfa fyrir
fískvinnslustöðvar. Einnig mun
Skarphéðinn vera ráðgefandi um
framkvæmdaatriði og móta stefnu
Jazz í Lækjarhvammi
STARFSÁRIÐ hefst hjá Jazz-
klúbbi Reykjavíkur með
„djamm-sessjón“ í Lækjar-
hvammi Hótels Sögu fimmtu-
daginn 30. janúar klukkan 21.
Aðalgestur kvöldsins er pólski
fiðlusnillingurinn Zsimon Kurm.
Til liðs við sig fær Kurm Áma
Elfar á píanó, Tómas R. Einarsson
á bassa og Guðmund R. Einarsson
á trommu. Ýmsir fleiri eru vænt-
anlegir á pallinn þetta kvöld, þar
á meðal hinn efnilegi jasspíanisti
Egill Finnsson, bassa- og básúnu-
leikarinn Priðrik Theódórsson og
Þórir Magnússon trommuleikari.
(Fréttatilkynning)
Zsimon Kurm fiðluleikari
ríkismatsins í hreinlætis- og búnað-
armálum.
Hann mun hefja störf 1. maí nk.
Óráðið er í stöðu forstöðumanns
afurðadeildar, segir í frétt frá Ríkis-
mati sjávarafurða.
Rétt til þátttöku hafa allir flokks-
bundnir alþýðuflokksmenn og aðrir
stuðningsmenn, sem lögheimili eiga
í Hafnarfirði og orðnir verða 18 ára
þann 31. maí nk.
í framboði í prófkjörinu eru:
Erlingur Kristensson, skrifstofu-
maður, Guðmundur Ámi Stefáns-
son, bæjarfulltrúi, Ingvar Viktors-
son, kennari, Jóna Osk Guðjóns-
dóttir, fulltrúi, María Ásgeirsdóttir,
húsmóðir, Sigrún Jonný Sigurðar-
dóttir, húsmóðir, Tryggvi Harðar-
son, jámabindingamaður, Valgerð-
ur Guðmundsdóttir, snyrtifræðing-
ur, Þómnn Jóhannsdóttir, ritari.
Þátttakendur í prófkjörinu skulu
raða frambjóðendum í fyrstu 5
sæti framboðslistans. Skylt er að
kjósa í öll sætin 5.
Áramótadansleikur sjónvarpsins:
Verð á auglýsingum
átti að vera hærra
— segir Viðar Víkingsson leiklistarráðunautur
orðið að greiða við hverja endursýn-
ingu helming af upphaflegri
greiðslu. Mér finnst greiðslan ekki
óeðlilega há til hjómsveitarinnar þar
sem hljómsveitin getur leikið á
dansleikjum annars staðar fyrir
miklu hærri upphæð og vom þeir
í rauninni að gera Hrafni þama
greiða og styðja hann sem dag-
skrárstjóra. Eg tek undir það sem
Hrafn sagði í frétt Morgunblaðsins
í gær, 29. janúar, að kostnaður við
dansleikinn hafi verið um 750.000
krónur.
Upphaflega var gert ráð fyrir af
hálfu okkar Hrafns að hver mínúta
af auglýsingum yrði seld á 100.000
krónur og þá hefðu auglýsingatekj-
ur sjónvarpsins á gamlárskvöld
orðið um ein milljón króna og dans-
leikurinn komið út á sléttu eða
jafnvel með hagnaði, en það fórst
fyrir hjá framkvæmdastjóm sjón-
varpsins að selja auglýsingar á
þessu verði og því var það rangt
sem Hrafn sagði, eftir upplýsingum
frá mér, við Morgunblaðið 3. janúar
sl., að auglýsingar hefðu farið langt
með að jafna kostnað dansleiksins.
Við báðir stóðum þá í þeirri trú að
auglýsingar hefðu verið seldar á
þessu verði og að dansleikurinn
væri á sléttu, en svo reyndist ekki
vera. Engu að síður tel ég að hér
sé um ódýra dagskrá að ræða“.
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Viðari Víkingssyni, leiklistar-
ráðunaut sjónvarpsins, sem
stjórnaði útsendingu á áramóta-
dansieik sjónvarpsins á nýárs-
nóttsl:
„Ég tel rangt að tala um tap á
áramótadansleik sjónvarpsins.
Þama er um sjálfsagðan kostnað
við dagskrárgerð að ræða, annars
væri t.d. hægt að tala um tap á
fréttum. Ég vil taka það fram að
rangt er að draga Hrafn Gunn-
laugsson til ábyrgðar fyrir það að
kostnaður hafi farið úr böndum við
þennan áramótadansleik því að ég
bar ábyrgð á fjárhagslegri hlið
málsins sem hans staðgengill þegar
gengið var frá samningum.
Hrafn hafði samið við Stuðmenn
um að greiða þeim 200.000 krónur
fyrir að leika á dansleiknum, en ég
samdi við þá að þeir fengju 350.000
krónur og þá ekki einungis fyrir
að leika á dansleiknum, heldur
einnig fyrir að leika og leggja á sig
vikuvinnu við myndskreytingu á
§órum lögum og einnig fyrir að
æfa lög með gestum, sem fram
komu á dansleiknum. Jafnframt
fólst í þessum samningum ótak-
markaður endursýningarréttur,
sem ekki var gert ráð fyrir í upp-
haflega samningnum, annars hefði
V er ðlaunasamkeppni
um útvarpsleikrit
RÍKISÚTVARPIÐ - hljóðvarp -
hefur ákveðið að efna til verð-
launasamkeppni um útvarpsleik-
rit. Skilafrestur í keppninni er
til 15. september nk.
Verkin skulu vera frumsamin og
við það miðað að þau séu á milli
40 til 60 mínútur í flutningi. Verð-
launaféð, sem dómnefnd hefur til
ráðstöfunar, er 350.000 krónur og
verða fyrstu verðlaun ekki lægri en
200.000 krónur. Hefur dómnefnd
að öðru leyti fijálsar hendur við
úthlutun verðlaunafjárins. Dóm-
nefndina skipa Jón Viðar Jónsson
leiklistarstjóri, sem er formaður,
Þorvarður Helgason rithöfundur og
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri.
(Fréttatilkynning)