Morgunblaðið - 30.01.1986, Side 29

Morgunblaðið - 30.01.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986 29 Ur verki 3. bekkjar Leiklistarskóla íslands „Allt i plasti". 3. bekkur Leiklistarskóla íslands: Frumsýnir „ Allt í plasti“ í kvöld ÞRIÐJI bekkur Leiklistarskóla íslands frúmsýnir unglinga- leikritið „Allt í plasti“ eftir Volker Ludvig og Detlev Micel í kvöld í Félagsheimilinu Sel- tjarnarnesi. Þetta verk var fyrst sýnt í Berlín fyrir fáum árum á vegum Grips leikhússins. Þýðandi verks- ins er Hafliði Amgrímsson, söng- texta þýddi og samdi Magnea J. Matthíasdóttir, hárgreiðslu og klippingar hannaði og gerði Ami Glóbó Kristinsson, tónlistina út- setti og samdi Jón Steinþórsson, dansatriði sömdu Þórdís Amljóts- dóttir og Hafdís Árnadóttir, lýsing er í höndum Egils Ámasonar, leikstjóri er Andrés Sigurvinsson, leikmynd og búninga hönnuðu og unnu nemendur úr Myndlista- og Handíðaskóla íslands undir hand- leiðslu Guðrúnar Sigríðar Har- aldsdóttur. í verkinu er komið inn á hin ýmsu unglingavandamál svo sem ástina, klíkuna, skólann, tilgangs- leysið og fleira. í upphafi leiksins fá áhorfendur að kynnast nokkr- um krökkum og fylgjast með þeim út sýninguna, hvemig þau bregð- ast við umhverfí sínu og hvemig þau reyna að ráða sér sjálf. Viljinn er sá að fínna sér eitthvert hlut- verk eða tilgang og í þeirri leit fara krakkamir eigin leiðir — til hins betra eða verra, segir í kynn- ingu. Námsgagnastofnun: Framlengir skila- frest í samkeppni um ritun bóka SKILAFRESTUR í samkeppni á vegum Námsgagnastofnunar um ritun bóka í tengslum við dag- skrána „Bókin opnar alla heima“ hefur verið framlengdur til 1. maí nk. Ásgeir Guðmundsson forstöðu- maður Námsgagnastofnunar sagði í samtali við blaðamann að mjög fá handrit hefðu borist um áramót og því hefði ákvörðun um framleng- ingu verið tekin. í mars á sl. ári stóð Námsgagnastofnun fyrir dag- skrá, sem bar heitið „Bókin opnar alla heima" í samvinnu við fjöl- marga útgefendur. Haldin var kynning og sýning á öllum fræðirit- um sem nýst gætu til kennslu í skólum og í lok þeirrar kynningar var ákveðið að ráðast í þessa rit- samkeppni og er hugmyndin að þau handrit sem metin eru til verðlauna verði gefin út og nntufl f skólum. Efnið skal einkum tengjast ís- landssögu, náttúru landsins eða sögu þess og vera við hæfí 9—13 ára skólabama. Lesmál skal vera 8 til 64 síður auk tillagna um mynd- efni. Dómnefnd skipuð af náms- gagnastjóm mun síðan meta inn- sent efni. FVrir tveimur ámm síðan gekkst Námsgagnastofnun fyrir álíka rit- samkeppni, en þá átti efnið að gagnast nemendum sem seinir væm til að lesa. Sextíu handrit bámst. Þijú þeirra fengu verðlaun og nokkur viðurkenningu. Búið er að gefa meginhluta þeirra út. Ás- geir sagði að hann vonaðist til að milli 20 og 30 handrit bæmst nú í samkeppnina. Fyrstu verðlaun em 40.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 15.000 krón- Fulltrúaráð sj álfstæðisf élaganna í Hafnarfirði: Mótmælir breytingnm á tollmeðferð í bænum FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfé- laganna í Hafnarfirði samþykkti samhljóða á fundi sinum fyrir skömmu að mótmæla breyting- um á tollmeðferð i Hafnarfirði. Breytingin er í þvi fólgin að tollverðir úr Reykjavík sjá nú um toUgæzlu í Hafnarfjarðarhöfn. Alyktun Fulltrúaráðsins er svohljóðandi: „Fundur Fulltrúaráðs Sjálfstæð- isfélaganna í Hafnarfírði,. haldinn Heimdallur: 16. janúar 1986, mótmælir þeirri ráðstöfun fjármálaráðuneytisins, sem fram kemur í bréfí þess dagsett 20. desember síðastliðinn, um breytingar á tollmeðferð f Hafnar- fírði. Fulltrúaráðið skorar á fjármála- ráðherra, formann Sjálfstæðis- flokksins, að draga nú þegar til baka þá ákvörðun ráðuneytisins, sem fram kemur í áðurgreindu bréfí. Ennfremur beinir Fúlltrúa- ráðið því til fjármálaráðherra að treysta svo sem kostur er sjálfstæði tollembættisins í Hafnarfírði, þann- ig að það geti áfram veitt þá lipru og rómuðu þjónustu sem það hefur veitt til þessa.“ Sjömenningarnir í „St. Elmo’s fire.“ Sljörnubíó frumsýnir „St. Elmo’s fire“ STJÖRNUBÍÓ frumsýnir i dag kvikmyndina „St. Elmo’s fire“ en hún segir frá skólakrökkum, sem haldið hafa hópinn árum saman. Leikstjóri er Joel Schumacher. í aðalhlutverkum eru: Emilio Estevez, Rob Lowe, Andrew McCarthy, Demy Moore, Judd Nelson, Ally Sheedy og Mare Winningham. Eitt eiga sjömenningamir þó sameiginlegt þótt ólík séu. Eigi eitthvert þeirra í vanda, koma öll til hjálpar, hvort sem er á nóttu eða degi. Ráðstefna um fjöl- miðlun í framtíðinni ÞAR SEM ný útvarpslög hafa nú tekið gildi er tímabært að fjalla nánar um fjölmiðlun í framtíðinni og þá möguleika sem fjarskipta- tæknin býður uppá. Af því tilefni efnir HeimdaUur, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, til ráðstefnu um þessi mál laugardaginn 1. febrúar nk. í Valhöll Háaleitisbraut 1. Ráðstefnan hefst kl. 14.00 og er öllum opin. Áhugamenn um þessi málefni eru sérstaklega hvattir til að mæta. Dagskrá ráðstefnunnar: Katrín Gunnarsdóttir varafor- maður Heimdallar setur ráðstefn- una, Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra flytur ávarp, Friðrik Sophusson varaformaður Sjálf- stæðisflokksins ræðir aðdraganda nýrra útvarpslaga, Kjartan Gunn- arsson framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins fjallar um verkefni útvarpsréttamefndar og Gústav Amar deildarverkfræðingur Pósts og síma segir frá tæknilegum möguleikum og hindrunum á mót- töku sjónvarpsefnis um fjarskipta- tungl. Jón Magnússon lögfræðingur talar um fjarskiptalög og útvarps- lög, Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra ræðir _ málvemd og menningaráhrif og Ásgeir Tómas- son blaðamaður talar um fram- leiðslu dagskrárefnis fyrir útvarps- stöðvar. Þá verður kaffihlé og pall- borðsumræður að því loknu. Úr fréttatilflnningu.) Nýr vallar- stjóri JÓHANNES ÓU Þórðarson hefur verið ráðinn vallar- stjóri við íþróttaveUi í Reykjavik og tekur hann við starfinu á laugardaginn. Jóliannes er formaður Fylk- is í Reykjavík og var hann einn af fjórum umsækjend- um um starfið. Baldur Jónsson lætur af störfum á föstudagskvöldið eftir 36 ára starf sem vallar- stjóri Reykjavíkur en hann mun starfa áfram með Jó- hannesi eitthvað fram á vorið. Chevrolet CHEVR0LET er gæða stimpill því CHEVR0LET þýðir fyrirtaks hönnun M CHEVR0LET bifreiðar eru framleiddar af stærsta bílaframleiðanda heims. BILVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 @0 19 hefur lagt sig fram viö aö hafa frumkvæði í tækninýungum bílaiðnaðarins og gert CHEVR0LET merkið eitt hið virtasta í heimi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.