Morgunblaðið - 30.01.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
31
Kennsla féll víðaniður
og samgöngur stirðar
Brasilískur Chevrolet
kynntur á bílasýningu
MJÖG slæmt veður hefur verið
á landinu síðustu daga, norðanátt
og hvasst. Víða um land var
kennsla felld niður í gter vegna
veðursins. í gær fór að draga úr
norðanáttinni vestast og var
búist við að hún mundi ganga
smám saman niður í nótt og snú-
ast í hæga breytilega átt. Jafn-
framt var gert ráð fyrir að úr-
komulaust yrði á öllu landinu.
Skafrenningur var víðast hvar á
landinu og snjókoma á Norður-
og Austurlandi. í dag snýst í
sunnan- og suðaustanátt og
þykknar upp á Vestur- og Suð-
Vesturlandi. Veður fer heldur
hlýnandi.
Vegir voru ófærir nánast um allt
Norður- og Austurland og á Suður-
landi, austan við Hvolsvöll, í gær
vegna veðurs. Ekki var hægt að
kanna hvort vegir væru ófærir
vegna snjóa. Fært var um vegi á
Suðvesturlandi og á Snæfellsnesi,
en ófært vestan við Búðardal.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
eftirlitinu átti að hefja mokstur alls
staðar í dag ef veður leyfír.
75 ÁRA er í dag Ólafur Þórðar-
son, bjargveiðimaður, Suðurgarði í
Vestmannaeyjum. Olafur er rafvirki
að mennt en hefur jöfnum höndum
á ævi sinni stundað iðn sína, búskap
og sjósókn. í dag taka Óli og Svala
á móti gestum í Suðurgarði.
Vitni vantar
Ekið var á kyrrstæða bifreið,
Ford Cortina, græna að lit, við
Lindargötu 13 í gærmorgun.
Talið er að þarna hafi silfurlitur
Subaru-fólksbíU verið á ferð, trú-
lega árgerð 1978 eða ’79. Þeir
sem gætu gefið upplýsingar um
þessa ákeyrslu eru beðnir að
hafa samband við lögregluna.
Innanlandsflug Flugleiða féll
alveg niður fyrri hluta dags í gær,
aðallega vegna þess að Reykjavík-
urflugvöllur var ófær vegna hálku
og hvassviðris. Síðdegis var flogið
til Patreksfjarðar og fór Isaíjarðar-
vélin í loftið, en gat ekki lent á
Isafírði og varð að snúa við. Hætt
var við flug til Vestmannaeyja og
Húsavíkur, en flogið var til Egils-
staða, Akureyrar og Sauðárkróks.
Morgunblaðið hringdi í nokkra
fréttaritara á Norður- og Austur-
landi í gær til þess að frá fréttir
af tíðarfari og færð.
Kalt og hvasst
„Það hefur verið ófært hér í
Strandasýslu að undanfömu og er
ekkert farið að ryðja vegi,“ sagði
Sigríður Þórarinsdóttir í Broddanesi
í Fellahreppi. „Engar rútuferðir
hafa verið hingað en búist er við
að þær byrji aftur á föstudaginn.
Mjög kalt hefur verið í veðri og
hvasst. í gær var einnig hríð og
skyggni mjög slæmt.
Það sem af er þessum vetri hefur
færð verið ágæt. Þó hefur verið
töluverð hálka og bflar farið útaf
af þeim sökum. Annars hefur veðrið
verið ágætt hér í vetur.
Símasamband hefur verið mjög
lélegt hér í Fellshreppi. Bæði hefur
samband slitnað og oft hefur fólk
þurft að bíða tímunum saman eftir
að fá són. Fólk er nú að velta því
fyrir sér hvort það þurfí að borga
fullt afnotagjald," sagði Sigríður
að lokum.
Agætt tíðarfar
í Miðfirði
„Hér hefur verið gott tíðarfar
þangað til í gær, en þá var fyrsta
hríðin sem hefur komið. í dag er
ekki vel bjart, en þó ekki mikil hríð,“
sagði Benedikt Guðmundsson á
Staðarbakka í Miðfírði. „Eg veit
ekki hvemig færðin er núna en það
hefur verið ákaflega snjólétt hér í
sveitinni í vetur. Eg held að færð
sé varlá erfíð því það fór skólabfll
hér fram í dali í morgun og er
kominn aftur. Veður hefur yfírleitt
verið gott í vetur, miklar stillur, en
ekki sérlega hlýtt. Annars er ekkert
sérstakt að frétta héðan, nema að
nú er undirbúningur undir þorrablót
í fullum gangi.“
Sér rétt í
bílskúrshornið
„Ég get lítið sagt um hvemig
færðin er því hér hefur ekki sést út
um glugga í tvo daga. Ég sé rétt
í bílskúrshomið hjá mér,“ sagði
Stefán Skaftason í Straumnesi í
Aðaldal. „Óveðrið skall á í fyrrinótt
og hefur verið mjög vont síðan.
Kennsla féll niður í Hafralækjar-
skóla þessa tvo daga. Ég hef ekki
trú á að neitt sé að færð. Þrátt
fyrir dálítil él hefur ekki verið það
mikil úrkoma, en það setur náttúru-
lega í skafla því mikill vindur er
og skafrenningur.
Veðrið hefur verið mjög gott í
vetur hingað til og það er langt
síðan að ég man eftir öðm eins
veðri og nú. Á annan í jólum var
að vísu leiðindaveður, en það er
ekki hægt að kvarta. Það snjóaði
svolítið. Svo rann það í svell um
áramótin og því hefur verið töluverð
hálka og miklir svellbunkar.
Aðfaranótt sunnudagsins gerði
mikið suðvestan rok og áttu margir
í erfíðleikum með að hafa sig heim
af þorrablótum því þítt var um
daginn og mikil hálka. Þorrablót
em haldin í hverri sveit og nú em
þau haldin eitt eða fleiri um hveija
helgi,“ sagði Stefán Skaftason.
Vitlaust veður
„Hér hefur verið vitlaust veður
með stórhríð í gær og í dag og
ekkert hægt að komast af þeim
sökum,“ sagði Benedikt Sigurðsson
á Grímsstöðum á Fjöllum. „Við
emm með vélsleða og komumst á
honum um allt, ef veður leyfír. Það
hefur hins vegar verið útilokað, í
gær og í dag. í vetur var góð tíð
hér lengi vel, alveg fram yfír jól.
En ekki er hægt að segja annað
en að það hafí verið hin versta tíð
alveg frá því í byijun jánúar. Snjór
hefur ekki verið mikill, en þó veit
ég ekki um færð núna, það hefur
ekki verið kannað. Við höfum haft
snjóbfl, sem er mjög gott tæki, svo
langt sem það nær. Famar vom
tvær póstferðir á honum í síðustu
viku.
Hestar hafa haft góða jörð í
vetur, en nú er búið að taka þá
flesta á hús vegna þess hve jörð
herti." sagði Benedikt að lokum.
Ekki góður beitarvetur
„Það er hið versta veður hér í
Fljótsdal núna,“ sagði Guttormur
Þormar í Geitagerði. „Það var ekki
fyrr en í nótt sem gekk í þetta
veður. í gær var ágætisveður, en í
nótt var norðan stormur og var
þetta með allra verstu veðmm. Hér
hefur ekki verið mikill snjór og
virðist sem ekki hafí bæst mikið
við hann þrátt fyrir að nú sé dimmt
af kófi. Þó ég hafi ekkert frétt í
morgun þá held ég að ekki fari
hjá því að veðrið hafí spillt færð.
Maður sér þetta ekki svo glöggt,
því það sést rétt í kringum bæinn.
Hér í sveitinni er mikið um svella-
lög, eða harða storku á jörðinni og
þess vegna ekki lengur hægt að
treysta á beit. Þetta hefði ekki verið
talinn góður beitarvetur hér áður
fyrr. Oft hefur verið erfíð færð
vegna hálku. Vegir hér á slóðum
em alveg undir svelli nema ef vera
skyldi að kantamir væm auðir,"
sagði Guttormur að lokum.
BÍLVANGUR er að hefja inn-
flutning á nýjum bíl af Chevrolet
gerð, er það Chevrolet Monza,
framleiddur í Brasilíu undir
ströngu gæðaeftirliti frá General
Motors í USA.
Chevrolet Monza er af millistærð
ijölskyldubfla og er fáanlegur bæði
þriggja og fjögurra dyra. Hann er
framhjóladrifínn, með 1800 cm :l
vél, 5 gíra eða sjálfskiptur. Þá er
hann fáanlegur í mörgum litum.
Einn bíll af þessari gerð hefur
RÍKISSTJÓRNIN nýtur nú
stuðnings meirihluta kjósenda ef
marka má niðurstöður skoðana-
könnunar DV. Samkvæmt könn-
uninni styðja 53% þeirra sem
tóku afstöðu stjórnina, en þeir
voru 51,6% í síðustu könnun
blaðsins í september síðastliðn-
um. 47% eru andvígir stjórninni
nú, en voru 48,4% í september.
Samkvæmt könnuninni nú sögð-
ust 35% þeirra sem spurðir vom
styðja stjómina, sem er aukning
um 0,2 prósentustig frá september-
könnuninni. 31% vom andvígir
ORATOR heldur almennan fé-
lagsfund um ónæmistæringu og
mannréttindi í dag fimmtudag-
inn 30. janúar í stofu 101 Lög-
bergi og hefst hann kl. 20.00 og
er öllum opinn.
Á fundinum tala: Margrét
Guðnadóttir prófessor, um sjúk-
verið í umferð hérlendis til reynslu
sl. tvö ár og reynst í alla staði mjög
vel.
Verð á Monzunni er frá kr.
536.000,- miðað við gengi dollars
24. jan. 1986. Chevrolet Monza
verður kynntur á bílasýningu hjá
Bílvangi sf., á Höfðabakka 9, um
næstu helgi:
Föstudaginn 31.janúar kl. 9—18.
Laugardag 1. febrúar kl. 10—18.
Sunnudag 2. febrúar kl. 13—18.
(Úr fréttatilkynningu)
stjóminni, sem er fækkun um 1,7%
frá fyrri könnun. Óákveðnir em nú
26,7%, sem er fækkun um 0,8%
frá því í september. 7,3% vildu ekki
svara spumingunni, en vom 5% í
september.
Samkvæmt könnuninni nú em
konur andvígari ríkisstjóminni en
karlar. Þá kemur fram, að fylgi
stjómarinnar er meira úti á landi
en á höfuðborgarsvæðinu. Spurt
var: Ertu fylgjandi eða andvigur
ríkisstjóminni? Úrtakið var 600
manns og skiptist jafnt milli kynja
og milli höfuðborgarsvæðisins og
landsbyggðarinnar.
dóminn, orsakir hans og smitleiðir,
Þór Vilhjálmsson hæstaréttardóm-
ari, um AIDS og mannréttindin,
Þorvaldur Kristinsson um AIDS og
mannréttindabaráttu homma og
Ingimar Sigurðsson deildarstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu, um lög um
vamir gegn ónæmistæringu. Um-
ræður verða eftir kaffihlé.
Ríkissljórnin nýtur
meirihluta kjósenda
Orator:
Ónæmistæring
og mannréttindi
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Hárgreiðslusveinn óskast á hárgreiðslustofu í miðbænum sem fyrst. Þarf einnig að geta unnið sjálfstætt. Uppl. í síma 41238. Blikksmiðir óskast Blikksmiðir, nemar og menn vanir blikksmíði óskast nú þegar. Upplýsingar í Blikksmiðju Gylfa, Tangarhöfða 11, sími 83121. Starfskraftur óskast Starfskraftur óskast til þrifa o.fl. hjá áhalda- húsi Hafnarmálastofnunar ríkisins í Kópa- vogi, frá kl. 10.00-16.00. Upplýsingar í símá 40055.
Sjúkraliðar Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða sjúkraliða til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi. Ennfremur á fasta næturvakt 50% starf frá 15. febrúar. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Selma Guðjónsdóttir í síma 98-1955 virka daga kl 13.00-16.00. Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Verksmiðjuvinna Stúlkur óskast til starfa í verksmiðju okkar. Upplýsingar gefnar á Skúlagötu 28 (ekki í síma). Kexverksmiðjan Frón hf. Ritari óskast Unglingaheimili ríkisins óskar að ráða ritara þrjá daga í viku eftir hádegi. Umsóknir send- ist skrifstofu Unglingaheimilisins, Garðastræti 16, 101 Reykjavík, fyrir 3. febrúar. Uppl. í síma 19980.