Morgunblaðið - 30.01.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1986
51
Þungu fargi
af okkur létt
— sögðu þeir Sigurður og
Einar sem koma heim í dag
„Það er þungu fargi af okkur létt.
Við urðum að vinna þennan leik
til að fá að fara heim og það
tókst,“ sagði Sigurður Gunnars-
son, landsliðsmaður f handknatt-
leik, eftir að lið hans og Einars
Þorvarðarsonar, Tres de Mayo,
hafði tryggt sér réttinn til að leika
í milliriðli spönsku 1. deildarinnar
í handknattleik, með því að vinna
Caixa Valencia, 27-22, í gær-
kvöldi.
Þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins náði sambandi við þá fé-
laga eftir leikinn seint í gærkvöldi
voru þeir að leggja af stað heim-
leiðis.
„Við förum með næturlest til
Madrid og síðan fljúgum við heim
í gegnum Kaupmannahöfn og
ættum að ná heim á morgun (í
dag), ef allt gengur að óskum."
Leikurinn byrjaði frekar illa fyrir
Tres de Mayo í gærkvöldi. Caixa
komst í 9-5, en Tres de Mayo tókst
að jafna fyrir hálfleik, 9-9. Sigurður,
Einar og félagar tóku síðan leikinn
í sínar hendur í seinni hálfleik og
unnu sannfærandi sigur, 27-22.
Sigurður var atkvæðamikill í
þessum leik eins og hefur veriö í
síðustu leikjum og skroraði sjö
mörk. Hann hefur þvi gert samtals
35 mörk í síðustu fjórum leikjum
liðsins og er næst markahæsti
leikmaðurinn í spönsku deildinni.
Þessi sigur liðsins í gærkvöldi
tryggir þeim örugt sæti í milliriðl-
um, þannig að þeir munu leika um
5. til 6. sæti deildarinnar, hvernig
svo sem næstu tveir leikir liðsins
fara.
Mikill fengur er í því fyrir ís-
lenska iandsliðið og handknatt-
leiksáhuga að fá Sigurð og Einar
heim í leikina um helgina og undir-
búninginn fyrir heimsmeistara-
keppnina. Þeir félagar verða með
á fullu í undirbúningnum fram að
heimsmeistaramóti. Lið þeirra
Tres de Mayo vill þó fá þá í einn
leik sem fram fer 9. febrúar. „Við
förum þá bara beint í leikinn og
strax aftur heim, þannig að við
ættum ekki að missa svo mikið úr
með landsliðinu heima," sagði
Sigurður Gunnarsson.
Chelsea úr leik
— Jesper Olsen með tvö
Frá Bob Hennessy, fróttamanni Morgunblaðsins á Englandi.
JESPER Olsen skoraði tvö mörk
fyrir Manchester United er þeir
sigruðu Sunderland með þremur
mörkum gegn engu í ensku bikar-
keppninni í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Þriðja mark United gerði
Norman Whiteside. Þeir mæta
því West Ham eða Ipswich f
næstu umfeð.
Chelsea varð enn fyrir einu áfall-
inu í gærkvöldi er þeir voru slegnir
út úr mjólkurbikarnum af QPR.
Eftir venjulegan leiktíma var stáð-
an jöfn, 0-0. Á 19. mínútu fram-
lengingarinnar skoraði Alan
McDonald með skalla eftir horn-
spyrnu. Michel Robinson skoraði
síðan á síðustu sekúndum leiksins
eftir mistök markvarðar Chelsea,
sem hafði farið í skógarferö og
Robinson átti auövelt með að
vippa yfir hann af 25 metra færi.
Sannarlega mikil vonbrigði fyrir
Chelsea sem nýlega var slegið út
úr enska bikarnum. Það verður
því QPR sem mætir Liverpool í
undanúrslitum.
Tottenham vann stórsigur á
Notts County, 5-0. Leikmenn
skiptu mörkunum bróðurlega á
milli sín, það voru þeir John Chi-
edozie, Clive Allen, Mark Falco,
Cris Waddle og Glen Hoddle. Tott-
Forsala
ídag
HSÍ verður með forsölu aðgöngu-
miða á Flugleiðamótið í hand-
knattleik í dag og stendur hún
yfir í Laugardalshöll frá kl.
12—18. Mótið hefst í laugardals-
höll á föstudagskvöld eins áður
hefur verið auglýst.
Hægt er að fá keypta miða á
alla leikina og ættu áhorfendur að
tryggja sér miða í tíma og forðast
biðraðir. Nú er Ijóst að allir okkar
bestu handknattleiksmenn verða
með í keppninni og er því tilvalið
fyrir fólk að koma og styðja vel við
bakiö á strákunum í þessu erfiða
verkefni sem framundan er.
SÆNSKUR KVENFATNAÐUR STÆRÐIR S-M-L-XL-XXL.
enham mætir Everton í næstu
umferð.
Millwall sigraði Aston Villa, 1-0.
Það var hinn þeldökki John Fash-
anu, sem gerði út um vonir Aston
Villa er hann skoraði sigurmarkið
á 56. mínútu. Millwall fékk einnig
vítaspyrnu sem Steve Lowndes lét
verja frá sér. Millwall mætir því
Southampton á útivelli.
Líneik
Póstsendum
Laugavegi 62 — 101
Reykjavík — Sími 23577
fiBi
TRUIR
ÞÚ ÞESSU?
Þaö er mögnuð útsala í GOLDIE sem stendur út
allan febrúar!
Allt að 75% afsláttur á frábærum tískufötum!
ÁSTÆÐAN?
- Jú, við erum að flytja í mars í nýtt og
betra húsnæði að Laugavegi 39.
En þangað til erum við með þessa líka rokna-
útsölu á gamla staðnum, Laugavegi 67,
til þess að rýma fyrir splunkunýjum vörum.
er líka útsala hjá Goldie niðri í Lækjargötu 2 þar
sem þú færð skó og leðurfatnað á frábæru verði.
ÚTSALA ÁRSINS - EKKI MISSA AF ÞESSARI!
LAUGAVEGI 67 og LÆKJARGÖTU 2.
UTSALA ALLAN FEBRÚAR ÚTSALA ALLAN FEBRUAR UTSALA