Morgunblaðið - 28.02.1986, Blaðsíða 6
6
MÖRGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBROAR1986
Bjart yfir
Nýju kjarasamningarnir voru til
umræðu í morgunþætti rásar I í
gær, er Gunnar Kvaran leitaði álits
hins almenna borgara á samnings-
drögunum. „Símaborðið er að
brenna yfir ..Æpti Gunnar er
leið á símatímann en slíkt var álagið
að lá við öngþveiti enda ekki um
neitt smámál að ræða. Eins og vera
ber voru sumir með þessum djarf-
huga samningum aðrir á móti og
enn aðrir tvístígandi. Það er að
sjálfsögðu ekki mitt að leggja mat
á símaspjallið en ég hjó eftir einu
atriði er snertir máski umræðuna
um dagskrá ríkisfjölmiðlanna, hin
mikla óánægja manna með að verð-
lagsmálin skyldu ekki hafa verið
tekin fastari tökum og þá einkum
verðlagseftirlitið, eða eins og ein
kona orðaði það þá er nauðsynlegt
að skoða . . . alla þætti málsins
þannig að sumt vaxi ekki stjórn-
laust. Hér er væntanlega átt við
hinar hömlulausu verðhækkanir er
hafa átt sér stað hér að undanfömu.
Ekki hafa þó allir samningsaðilar
gleymt þessum veigamikla efna-
hagsþætti þannig segir Ásmundur
ASI forseti hér í blaðinu í gær: „Ég
tel ástæðu til að leggja sérstaka
áherslu á mikla þýðingu öflugs
verðlagseftirlits fólksins í landinu.
Slíkt eftirlit getur orðið mögulegt
með minnkandi verðbólgu — þá
fyrst verður hægt að muna hvað
hlutimir kostuðu í gær og hvað
þeir kosta í dag. Svo mörg voru
þau orð Ásmundar og lýsa máski
best hversu geipilega mikilvægt það
er að ná niður verðbólgunni. En
víkjum nú að þætti fjölmiðla.
Eftirlit fjölmiöla:
Ég tel persónulega að ríkisfjölmiðl-
amir einkanlega sjónvarpið hafi
bmgðist þeirri skyldu sinni að
upplýsa neytendur um verðlagsmál.
Tel ég mjög við hæfi að sérstakur
neytendaþáttur verði reglulega á
dagskrá sjónvarpsins. Þessi þáttur
gæti verið í höndum Neytendasam-
takanna, Verðlagsstofunnar, Kaup-
mannasamtakanna og kannski væri
ekki úr vegi að launþegasamtökin
kæmu hér á fót verðlagseftirlits-
nefnd. Ég held að lítill vandi sé að
heyja efni í slíkan þátt hvað til
dæmis um útsölumar sem hafa
geysað í tískuverslunum bæjarins.
Væri ekki fróðlegt fyrir hinn al-
menna launþega að fregna hvemig
á því stendur að verslunareigendur
geta boðið upp á allt að 70% afslátt
á vörum í hinum 110 tískuverslun-
um miðbæjar Reykjavíkur. Hvemig
er álagningu þessara verslana eig-
inlega háttað? Ég er viss um að
vendilega undirbúnir neytenda-
þættir í sjónvarpi gætu komið í
senn neytendum og verslunareig-
endum til góða. Vel reknar verslanir
fengju þama ókeypis auglýsingu
en hinir sem ekki standa undir nafni
yrðu að bíta í súra eplið. Yfírvinnu-
þrælkunin er og slík hér að menn
hafa almennt ekki tíma til að bera
saman verð í verslunum nema
máski í sjónvarpinu.
ÍEyjum:
Þáttur Ómars: Á líðandi stundu var
að þessu sinni sendur út frá Vest-
mannaeyjum í beinni útsendingu
en Qarskiptakerfí Póst og síma
gerir nú slík undur og stórmerki
að veruleika. Tel ég þessa breytingu
marka þáttaskil fyrir landsbyggðar-
búa er senn eiga þess kost að
mæta með það sama í sjónvarpið
rétt ejns og við hér í Stór-Reykja-
vík. Ég er annars orðinn svolítið
þreyttur á að rabba um þáttinn
hans Ómars en vil bara segja þetta
að lokum: Það var bjart yfir Eyjum
að þessu sinni og Vestmanneyingar
hressir að vanda og þá sérstaklega
Hrekkjalómamir. Þar hafa menn
sannarlega munninn fyrir neðan
nefið og veitir víst ekki af á líðandi
stundu.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTYARP/SJÓNVARP
Seymour Cassel og Gena Rowlands í hlutverkum sinum.
Minnie og Moskowich
Á dagskrá sjón-
varpsins kl.
22.55 er banda-
rísk bíómynd frá 1972.
Höfundur og leikstjóri er
22^
John Cassavetes en aðal-
hlutverk eru í höndum
eiginkonu hans Genu
Rowlands og Saymour
Cassel. Sagan sýnir hvem-
ig leiðir ólíklegasta fólks
geta legið saman og að
ástin fer ekki í manngrein-
arálit. Þýðandi er Jóhanna
Þráinsdóttir.
Tón-
listar-
kross—
gátan
■■■■ Tónlistarkross-
1 Q 00 Kátan er á dag-
-1-0““ skrá rásar 2 kl.
13 nk. sunnudag. Lesend-
um gefst kostur á að leysa
krossgátu um tónlist og
tónlistarmenn og skulu
lausnir sendast til Ríkisút-
varpsins, rásar 2, Efstaleiti
1, 108 Reykjavfk, merkt:
Tónlistarkrossgátan.
Opið hús
Lestur nýrrar útvarpssögu eftir
Marie Cardinal hefst í dag
■■■■ Á dagskrá rásar
1/100 1 kl. 14.00 í dag
A ^4“ er fyrsti lestur
skáldsögunnar „Opið hús“
eftir frönsku skáldkonuna
Marie Cadinal. Skáldkonan
fæddist í Alsír árið 1929,
og vom foreldramir
franskir. Hún stundaði há-
skólanám í Frakklandi og
lagði stund á heimspeki.
Háskólaprófessor var hún
í 7 ár, en hin síðari ár hefur
hún helgað sig ritstörfum
eingöngu.
Skáldsögur Marie Card-
inal fjalla um líf kvenna á
nýstárlegan hátt, sumar
virðast nokkurs konar
sjálfsævisögur hennar. Is-
lenskir lesendur kannast
við skáldsöguna „Lausnar-
orð“ en hún er eina bók
Cardinals sem komið hefur
út á íslensku.
Skáldsagan „Opið hús“
fjallar um hið síðastnefnda,
móður sem býr með böm-
um sínum þremur í París,
bömin em á viðkvæmum
aldri, hana langar til að lifa
öðmvísi en venja er til og
koma til móts við þarfir
bamanna. Höfundurinn
hefur þetta að segja um
söguna: „Þessi skáldsaga
hefur gefið mér tækifæri
til að hitta fjölda lesenda
minna og það er þessari
bók að þakka að ég hef
loksins getað sökkt mér
niður í líf mitt sem rit-
höfundur. Bókin er þó fyrst
og fremst bók konu sem
skrifar þaðan sem hún er,
í miðri íjölskyldu sinni.
Hún skrifar um bömin sín
og vini þeirra sem em eins
mikið hjá henni og þau
vilja, búa jafnvel hjá henni.
Ein regla er í gildi fyrir
þennan heim, þú skalt virða
sjálfa þig og aðra. Sagan
er dagbók konu frá
ákveðnu tímabili sem reyn-
ir að skilja hvað það er að
vera ungur og skilja þá sem
em ungir . . . Ég iðrast
þess ekki að vera þessi
kona og hafa gengið í
gegnum það sem ég gerði
með unga fólkinu. Eg á
þeim allt að þakka.“
Opið hús er 11 lestrar
og lýkur lestri sögunnar
14. mars. Þýðandi er Guð-
rún Finnbogadóttir og
Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir les.
Heimsmeistara-
keppnin í hand-
knattleik;
ísland gegn
Rúmeníu
■■■■ Bein útsending
1 755 trá úrslitamóti
-I- • — heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik
í Sviss hefst í sjönvarpinu
í kvöld kl. 17.55 og á rás
2 kl. 18.00. í þetta sinn
eigast við lið Islands og
Rúmeníu.
UTVARP
FOSTUDAGUR
28. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.16 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Undir regnbogan-
um" eftir Bjarne Reuter. Ól-
afur Haukur Símonarson les
þýöingusína(14).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurður
G. Tómasson flytur.
10.00 Veðurfregnir.
10.25 Lesiö úr forustugreinum
dagblaðanna.
10.40 „Ljáðu mér eyra".
Umsjón: Málmfríður Sigurö-
ardóttir. (Frá Akureyri).
11.10 „Sorg undir sjóngleri"
eftirC.S. Lewis
Séra Gunnar Björnsson les
þýðingu sína (4).
11.30 Morguntónleikar
Rögnvaldur Sigurjónsson
leikur píanóverk eftir Robert
Schumann.
12.00 Dagskrá.Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miödegissagan: „Opið
hús" eftir Marie Cardinal
Guðrún Finnbogadóttir
þýddi. Ragnheiður Jóns-
dóttir byrjar lesturinn.
14.30 Upptaktur
— Guðmundur Benedikts-
son
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
a. Serenaða fyrir strengja-
sveit op. 48 eftir Pjotr Tsja-
íkovskí. Strengjasvit Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í Boston
leikur; Charles Munch
stjórnar.
b. Carmen-fantasía op. 24
eftir Georges Bizet í útsetn-
ingu Sarasate. Itzhak Perl-
man og Konunglega fil-
harmoníusveitin í Lundún-
um leika; Lawrence Foster
stjórnar.
17.00 Helgarútvarp barnanna
Stjórnandi: Vernharður Lin-
net.
17.40 Úr atvinnulífinu - Vinnu-
staöir og verkafólk Umsjón:
Tryggvi Þór Aðalsteinsson.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.35 Tilkynningar.
19.45 Þingmál. Umsjón: Atli
Rúnar Halldórsson.
19.55 Daglegtmál
Örn Ólafsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. í svalki austur og vestur
yfir Hellisheiði og Ölfus fyrir
65 árum. Baldur Pálmason
les frásögn Guðmundar
Bernharðssonar.
b. Leikið á langspil
Anna Þórhallsdóttir leikur.
c. Minningar austfirskrar
Ijósmóður
Helga Einarsdóttir les minn-
ingabrot eftir Sigrúnu Sigur-
jónsdóttur úr bókinni ís-
lenskarljósmæður.
Umsjón: Helga Ágústsdótt-
21.30 Frá tónskáldum
Atli Heimir Sveinsson kynnir
Sinfóníettu eftir Herbert H.
Ágústsson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma (29)
22.30 Kvöldtónleikar
Dietrich Fischer-Dieskau og
Elizabeth Schwarzkopf
syngja lög úr Spænsku
Ijóöabókinni eftir Hugo
Wolf. Gerald Moore leikur
með á píanó.
23.00 Heyrðu mig — eitt orð
Umsjón: Kolbrun Halldórs-
dóttir.
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur
-Tómas R. Einarsson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
SJÓNVARP
17.55 Heimsmeistaramótiö í
handknattleik
ísland — Rúmenía
Bein útsending frá Bern í
Sviss. Bjarni Felixson lýsir
leiknum.
19.15 Ádöfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.25 Húsdýrin
Annar þáttur
Barnamyndaflokkur i fjórum
þáttum. Þýðandi Trausti Júl-
iusson. (Nordvision —
Finnska sjónvarpið)
19.35 Finnskar þjóðsögur
Teiknimyndaflokkur í fimm
þáttum. Þýðandi Trausti Júl-
íusson.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpið)
19.50 Fréttaágripátáknmáli
20.00 Fréttirogveður
20.30 Auglýsingarogdagskrá
FOSTUDAGUR
28. febrúar
20.40 Unglingarnir i frumskóg-
inum
Ný þáttaröð um unglinga
og áhugamál þeirra. Um-
sjónarmaöur Jón Gústafs-
son. Stjórn upptöku Gunn-
laugur Jónasson.
21.10 Þingsjá
Umsjónarmaöur Páll Magn-
ússon.
21.25 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Einar Örn
Stefánsson.
22.00 Ævintýri Sherlock
Holmes
5. Flotasamningurinn
Breskur myndaflokkur í sjö
þáttum sem geröir eru eftir
smásögum Conan Doyles.
Aðalhlutverk: Jeremy Brett
og David Burke.
Millirikjasamningur, sem á
að fara leynt hverfur. Málið
getur stofnað heimsfriði i
hættu nema skjölin finnist i
tæka tíð.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.50 Seinni fréttir
22.55 Minnie og Moskowitz
Bandarisk bíómynd frá
1972.
Höfundur og leikstjóri John
Cassavetes. Aðalhlutverk:
Gena Rowlands og Seymo-
urCassel.
Saga þessi sýnir hvernig
leiðir óliklegasta fólks geta
legiö saman og að ástin fer
ekki í manngreinarálit.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
00.55 Dagskrárlok
10.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son ogÁsgeirTómasson.
12.00 Hlé
14.00 Pósthólfið
í umsjá Valdisar Gunnars-
dóttir.
16.00 Léttir sprettir
Jón Ólafsson stjórnar tón-
listarþætti með íþróttaívafi.
18.00 Tekið á rás — Heims-
meistarakeppnin í hand-
knattleik
Samúel Örn Erlingsson lýsir
leik Islendinga og Rúmena
sem háður er í Bern í Sviss.
20.00 Hljóödósin
Stjórnandi: Þórarinn Stef
ánsson.
21.00 Kringlan
Kristján Sigurjónsson kynnir
tónlist úr öllum heimshorn
um.
22.00 Nýræktin
Snorri Már Skúlason og
Skúli Helgason stjórna
þætti um nýja rokktónlist
innlenda og erlenda.
23.00 Ánæturvakt
með Vigni Sveinssyni oc
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjái
mínútur kl. 11.00, 15.00
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenn
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni -
FM 96,5 MHz.