Morgunblaðið - 28.02.1986, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.02.1986, Blaðsíða 18
Í8 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986 Póstur og sími hefur ekki útvarpssenda Morgunblaðinu barst í gær eftirfarandi frá Jáhanni ffjálmarssyni blaðafulltrúa Pósts og sinuu „ÚTVARP MH gat ekki hafið útsendingar," stendur í frétt í Mbl. í gser (27. febr.), aðalfyrirsögn Einasti frfálsi útvarpssendirinn fastur í tolli. í fréttinni segir um fyrirhugaðar útvarpssendingar Mennta- skólans við Hamrahlíð: „Að sögn Þórunnar Þórsdóttur forseta nemendafélags MH byggðist umsókn skólans um Ieyfi til útvarps- rekstrar á þeirri forsendu að Póstur og simi ætlaði að lána sendibún- aðinn. Þegar til átti að taka gat stofnunin hinsvegar ekki staðið við það.“ Hér gætir misskilnings. Póst- og símamálastofnunin hefur ekki út- varpssenda og getur þess vegna ekki lánað þá. En þegar sendar hafa verið í vörslu stofnunarinnar hafa þeir verið lánaðir með leyfi útvarpsins. Að þessu sinni átti út- varpið engann sendi. Hjá Póst- og símamálastofnuninni hefur út- Morgunblaðið/Emilla Úthlutunarnefnd listamannalauna frá vinstri: Magnús Þórðarson framkvæmdastjóri, Bessí Jóhanns- dóttir kennari, Gunnar Stefánsson dagskrárgerðarmaður, Halldór Blöndal alþingismaður, Bolli Gústafs- son sóknarprestur, formaður nefndarinnar, Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri, ritari nefndarinnar og Soffía Guðmundsdóttir tónlistarkennari. varpsrekstur ekki verið á dagskrá, en útvarpið hafði eins og kunnugt er einkarétt á slíkum rekstri. Senda var því ekki unnt að lána nema með heimild útvarpsins. Af hálfu Póst- og símamálastofn- unar voru ekki gefin nein fyrirheit um að lána MH eða öðrum skólum senda að þessu sinni." Úthlutunarnefnd listamanna: Blóðbræður frumsýndir 22. marz hjá LA: Mikill áhugi 110 listamenn a verkinu fá 4,1 millión — segir Signý Pálsdóttir leikhússtjóri ÚTHLUTUNARNEFND lista- manna hefur úthlutað kr. 4.107.000 tíl 110 listamanna fyrir árið 1986. Listamenn i efri flokk fá kr. 40.000 og bætast sjö lista- menn í þann flokk að þessu sinni. Ijtnn liatamanna í neðri flokk eru samkvæmt lögum hlemingi lægri eða kr. 20.000 og hljóta þau fimmtán listamenn, sem ekki hafa fengið liatnmannalann áður. Sú hefð hefur komist á í nefnd- inni sem skipuð er af Alþingi að enginn er felldur úr efri flokki sem þangað hefur komist. í efri flokk eru því allir hinir sömu og í fyrra að einum undanskildum, Jónasi Guðmundssyni rithöfundi, er lést á árinu. Nýir í efri flokki eru: Einar Þorláksson myndlistarmaður, Elías B. Halldórsson myndlistarmaður, Hafliði Hallgrímsson tónlistarmað- SVR: Leið 7 um Suðurhlíð FRÁ og með 1. marz munu vagn- ar Strætisvagna Reykjavíkur á leið 7; LÆK.IARTOG-BÚSTAÐ- IR leggja lykkju á leið sina um Bústaðaveg og aka niður Suður- hlíð að hliði Fossvogskirkju- garðs. Þar snúa þeir við og aka sömu leið til baka og síðan áfram austur Bústaðaveg. í fréttatilkynningu frá SVR segir að þess sé vænst, að þessi breyting komi að notum fyrir Suðurhlfðabúa auk þeirra, sem eiga erindi í Foss- vogskirkjugarð, Óskjuhlíðarskóla og Heymleysingjaskólann. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í viðskipta- og atvinnulífsblaði Morgunblaðsins á fimmtudag að myndatexti víxlaðist milli greina um Qármögnunarleigu. Greinamar em eftir Kjartan Gunn- arsson og Þorstein Fr. Sigurðsson. Með víxlun textans var Kjartan sæmdur meistaragráðu í alþjóða Qármála- og markaðsfræðum frá Bandaríkjunum. Það er hins vegar Þorsteinn Fr. Sigurðsson, sem hefur aflað sér þeirrar menntunar en ekki Kjartan. Morgunblaðið biðst vel- virðingar á þessum mistökum um leið og þau eru leiðrétt. ur, Helga Ingólfsdóttir tónlistar- maður, Hjörtur Pálsson skáld, Hörður Ágústsson myndlistarmað- ur og Sigurður Pálsson skáld. Aðrir í þeim flokki eru: Agnar Þórðarson, Alfreð Flóki, Atli Heimir Sveinsson, Ágúst Petersen, Ár- mann Kr. Einarsson, Ámi Bjöms- son, Ámi Kristjánsson, Benedikt Gunnarsson, Bjöm J. Blöndal, Bragi Ásgeirsson, Bragi Siguijónsson, Einar Bragi, Einar Hákonarson, Eiríkur Smith, Eyþór Stefánsson, Gísli Halldórsson, Gísli Magnússon, Gísli Sigurðsson, Gréta Sigfúsdótt- ir, Guðbergur Bergsson, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur L. Frið- finnsson, Guðmundur Frímann, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Guðrún Á. Sím- onar, Gunnar Dal, Gunnar Eyjólfs- son, Gunnar M. Magnúss, Hallgrím- ur Helgason, Hannes Sigfússon, Heiðrekur Guðmundsson, Helgi Sæmundsson, Herdís Þorvaldsdótt- ir, Hringur Jóhannesson, Ingimar Erlendur Sigurðsson, Jakobína Sigurðardóttir, Jóhann Hjálmars- son, Jóhannes Geir, Jóhannes Helg Jóhannes Jóhannesson, Jón geirsson, Jón Bjömsson, Jón Dan, Jón Óskar, Jón Þórarinsson, Jón úr Vör, Jónas Ámason, Jómnn Viðar, Karen Agnete Þórarinsson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Krist- inn Hallsson, Krístinn Reyr, Krist- ján Albertsson, Kristján Davíðsson, Kristján frá Eljúpalæk, Leifur Þór- arinsson, Oddur Bjömsson, Ólöf Pálsdóttir, Óskar Aðalsteinn, Pétur Friðrik, Ragnar Kjartansson, Ragn- heiður Jónsdóttir, Róbert Amfínns- son, Rúrik Haraldsson, Rögnvaldur Siguijónsson, Sigfús Daðason, Sig- fús Halldórsson, Sigurður A. Magn- ússon, Sigurður Sigurðsson, Skúli Halldórsson, Stefán Hörður Gríms- son, Stefán Júlíusson, Steinþór Sigurðsson, Svava Jakobsdóttir, Sveinn Bjömsson, Thor Vilhjálms- son, Tiyggvi Emilsson, Valtýr Pét- ursson, Veturliði Gunnarsson, Vé- steinn Lúðvíksson, Vilborg Dag- bjartsdóttir, Þorkell Sigurbjöms- son, Þorsteinn frá Hamri, Þorsteinn Ö. Stephensen, Þuríður Pálsdóttir og Örlygur Sigurðsson. í neðri flokki og hljóta laun í fyrsta sinn em þau, Aðalsteinn Vestmann myndlistarmaður, Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleik- ari, Dóra Einarsdóttir hönnuður, Einar Kárason rithöfundur, Friðrik Guðni Þórleifsson ljóðskáld, Guðrún Gísladóttir leikari, Inga Bjamason leikstjóri, Kristín Pálsdóttir kvik- myndaleikstjóri, Mist Þorkelsdóttir tónskáld, Sigfús Bjartmarsson ljóð- skáld, Sigurður Sólmundarson myndlistarmaður, Sjöfn Haralds- dóttir myndlistarmaður, Valgarður Egilsson rithöfundur, Vigdís Gríms- dóttir rithöfundur og Öm Þorsteins- son myndlistarmaður. í úthlutunamefnd listamanna- launa eiga nú sæti, Bolli Gústavsson sóknarprestur, formaður, Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri, ritari, Bessí Jóhannsdóttir kennari, Gunn- ar Stefánsson dagskrárstjóri, Hall- dór Blöndal alþingismaður, Magnús Þórðarson framkvæmdastjóri og Soffia Guðmundsdóttir tónlistar- kennari. Akureyri, 26. febrúar. ÆFINGAR standa nú yfir á söngleiknum „Blóðbræður" hjá Leikfélagi Akureyrar. Að sögn Signýjar Pálsdóttur er ætlunin að frumsýna 22. marz. „Við erum þegar farin að taka niður pantanir. Það er greinilega mikill áhugi fyrir þessu verki," sagði Signý í samtali við Morgun- blaðið. „Það er mikið um að hópar vilji koma og sjá verkið; hópar utan Akureyrar, eins og var þegar við sýndum My Fair Lady og Piaf. Og ég er sannfærð um að áhorfendur verða eki sviknir af Blóðbræðrum. Ég held að þetta verði mjög skemmtileg sýning." Signý sagði að verkið hefði verið frumsýnt í Kaupmannahöfn í byijun febrúar og fengið mjög góðar við- tökur. Þar væri nú fullbókað tvo mánuði fram í tímann. „Það er einmitt verið að frumsýna verkið á 8 stöðum á Norðurlöndum um þess- ar mundir og einnig í nokkrum helstu höfuðborgum Evrópu — þar á meðal á Akureyri!" sagði Signý og hló. Leiðrétting ÞAU Aiistök urðu í blaði Morgun- blaðsins um viðskipti og atvinnulíf á fimmtudag, að fatahönnuðurinn Magnea Haraldsdóttir var rang- feðruð í fyrirsögn og sögð Halldórs- dóttir. Eins og fram kemur í frétt- inni er Magnea Haraldsdóttir og biðst Morgunblaðið velvirðingar á þessum mistökum um leið og þau eru leiðrétt. Mj ólkurkvótinn: Reglumar afleiðing vandans en ekki orsök segir Guðmundur Stefánsson hagfræðingur Stéttarsambands bænda „ÞESSIR fundir hafa verið ágæt- ir. Greinilegt er að málin hafa skýrst, menn sjá hver vandamál- in eru. Auðvitað eru margir ósáttir við tilveruna, sérstaklega menn sem lenda harkalega í þessu og sjá ekki út úr vandamál- unum,“ sagði Guðmundur Stef- ánsson framkvæmdastjóri hag- deildar Stéttarsambandsins í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins. Guðmundur vann mikið að undirbúningi reglugerðarinn- ar um stjómun mjólkurfram- leiðslunnar og útreikningum á fullvirðisréttinum í framhaldi af henni. Hann hefur verið á nokkr- um fundum að undanfömu til að útskýra mjólkurkvótann fyrir bændum. Guðmundur sagði að menn væru sammála um að stjómun framleiðsl- unnar væri nauðsynleg, en gagn- rýndu mjög hvað mjólkurkvótinn hefði komið seint og hvað úpplýs- ingar hefðu verið torskildar og litl- ar. Þá væru störf búmarksnefndar- innar mikið gagnrýnd og hefðu margir sagt að sljómun framleiðsl- unnar hafi ekki verið nógu öflug á undanfömum árum. „Mér sýnist að það verði að leysa viss einstaklingsbundin vandamál,“ sagði Guðmundur, „hins vegar verður að horfast í augu við það að þessar nýsettu reglur eru ekki orsök vandans heldur afleiðing. Þá er ljóst að aldrei verða allir ánægðir með þær, jafnvel þó þær hefðu komið fyrr. Það er einfaldlega of lítið af mjólk fyrir of marga fram- leiðendur." Aðspurður um verstu agnúa reglnanna sagði Guðmundur að þeir væm hjá þeim sem stæðu í uppbyggingu. Ekki væri hægt að koma jafn mikið til móts við þá og nauðsynlegt væri. „Hættan er sú að þessir menn — framleiðendur framtíðarinnar — lendi í tímabundn- um erfiðleikum og komist aldrei út úr þeim. Það er því ekki nóg að hjálpa þeim sem hætta, við verðum líka að hjálpa þeim sem halda áfram svo þeir hætti ekki sem síst skyldi," sagði Guðmundur. Hann sagði að þessir menn væru búnir að fiárfesta í góðri aðstöðu og slæmt ef hætt yrði að nota hana og þurfa síðan að byggja upp að nýju eftir nokkur ár. Um möguleikana til að koma mönnum til hjálpar sagði Guðmund- ur að Framleiðnisjóði væri ætlað að stuðla að búháttabreytingum og endurskipulagningu búskapar. Þessi aðstoð yrði að vera verkefni hans og peningana væri ekki að fá annarsstaðar en hjá hinu opinbera. Guðmundur taldi að það gæti mjög vel komið til álita að heimila bændum að versla með framleiðslu- rétt innan svæðanna, leigja hann eða selja. Reglumar mættu ekki vera of stífar þannig að kerfið yrði steinrunnið eins og fyrra kerfí hefði að hluta til verið. Verslun með kvóta undir vissum almennum skilyrðum gæti orðið til þesss að kerfíð sjálft lagaði sig að breyttum aðstæðum. Guðmundur sagði að nú væri komið að stjómmálamönnum að taka af skarið með landbúnaðar- stefnuna í landinu. Stórlega hefði verið dregið úr niðurgreiðslu búvara sem leiddi til minni sölu og meiri offramleiðslu. Stjómvöld þyrftu að gera það upp við sig hvort þau ætluðu að stuðla að neyslu búvara eða ekki, þvf þeir dagprísar sem verið hefðu á búvörum dygðu ekki til lengdar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.