Morgunblaðið - 28.02.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.02.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR 1986 27 Sérstæð heimsókn VIKTOR Klimenko, kósakki frá Georgiu í Rússlandi, kemur til Reykjavíkur í dag, föstudaginn 28. febrúar. Hefur hann hljóm- leika sína klukkan 20.30 það kvöld og svo áfram laugardag 1. mars og sunnudag 2. mars öll kvöldin kl. 20.30. Hljómleikamir verða í Fíladelfíukirkjunni að Hátúni 2. Viktor Klimenko er heimsþekkt- ur söngvari og er tónsvið hans ótrú- lega breitt, eða frá dýpsta bassa og upp í bjartan tenór. Klimenko hefír hljóðfæraleikara með sér, sem aðstoða í undirleik. Viktor Klimenko Viktor Klimenko hefír sungið inn á snældur og plötur, sem selst hafa í tugum þúsunda eintaka. Hann hefír hlotið fleiri gullplötur. Frami hans við fínnska sjónvarpið ruddi honum braut. Var hann dýrasti skemmtikraftur þess, þar til hann söðlaði um og snéri sér til Jesú Krists, með líf sitt, í tali og tónum. Hér mun hann vekja athygli fólks á fýrirtækinu TV-Inter, sem mun sjónvarpa um gervihnött. Geislum hnattarins mun verða beint yfír Rússland. Fagnaðarerindið mun verða flutt af frelsuðum Rússum í tali og tónum. Eins og mörgum er kunnugt, þá er Hvítasunnuhreyf- ingin mjög sterk í Rússlandi. Hefir hún mikinn framgang, þrátt fyrir óhæg skilyrði. Sannast á þeim orð ritningarinnar: Orð Guðs verður ekki fjötrað. Islendingum gefst nú tækifæri til þess að sjá og heyra nýja hlið frá Rússlandi með því að hlusta á Viktor Klimenko. Um ijögurra ára skeið hefír verið unnið að þessari heimsókn, sem nú loks er orðin að veruleika. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Samskot verða tekin, vegna kostnaðar við heimsóknina. Verði eitthvað umfram við kostnað, þá gengur það til útbreiðslu Fagn- aðarerindisins (Rússlandi. Einar J. Gíslason Heiiræði! Hinn heyrnarlausi vill gjarnan ná sambandi við þig og vill gera allt til að skilja og verða skilinn. Góð ráð til þess að ná árangri: III. Endurtaklu með nýjum orðum og V. Talaðubeintvidhinnheymartausaog VI. Halðu aldrei pipu eóa sigarettu i handahreyfingum el þú skilst ekki þannig að hendur og andlít sjáist vel. munnmum á meðan þu talar VII. Notaðu lysandi látbragð og svipbngði samtara mali þinu. VIII. Bentu a hluti eða personur sem þu IX. Þu getur lika skrilað a blað skyrt og ert að tala um sé þess kostur greinilega það sem þu vilt segia Foreldra- og styrktarfélag heymardaufra: Veggspjald með heilræðum FORELDRA- og styrktarfélag heymardaufra hefur gefið út veggspjald fyrir heyrandi með heilræðum og skýrum myndum. Tilgangurinn er að vekja athygli á samskiptum þeirra sem hafa heym í lagi og hinna sem heyra illa eða ekki og hvað mætti betur fara í samskiptum þessara hópa. Veggspjaldið er til sölu á skrifstofu Foreldra- og styrktarfélags heym- ardaufra, Klapparstíg 28, Reykja- vík. Fréttatilky nning. Misnotkun ávísana eykst á Akureyri Akureyri, 27. febrúar. MISNOTKUN ávisanareikninga hefur færst í aukana á Akureyri að undanförau og í gær bárust tvær kærur inn á borð til rann- sóknarlögreglunnar. Avísanir höfðu verið gefnar út og engin innistæða var til fyrir þeim; önnur kæran var upp á 80.000 krónur og hin 43.000 krón- ur. Að sögn rannsóknarlögreglunnar hefur misnotkun á krítarkortum í bænum einnig varið mjög vaxandi og hefðu slíkar kæmr raunar ekki þekkst þar til nú. Nú hefur komið upp eitt mál þar sem hinn kærði skuldar 250.000 krónur með drátt- arvöxtum fyrir krítarkortaviðskipti. Zontakonur opna félags- heimili á Akureyri Akureyri, 25. febrúar. ZONTAKLÚBBUR Akureyrar opnaði siðastliðinn sunnudag formlega félagsheimili sitt i Aðalstræti 54 hér i bæ. Staður- inn hlaut nafnið Zontahúsið. Zontaklúbburinn stofnaði á sín- um tfma Nonnasafn og hefur rekið það I fjölda ára. Safnið var opnað á 100 ára afmæli Nonna, Jóns Sveinssonar, þann 16. nóvember 1957, en hann bjó í „Nonnahúsi" er hann var drengur. Nonnasafn telst einnig til Aðalstrætis 54, er að baki hússins þar sem nýja fé- lagsheimilið er. Þann hluta Zontahússins sem Zontasystur eiga fengu þær til umráða fyrir allmörgum árum þar til í fyrra að húsið var leigt út. Unnið hefur verið að breytingum á húsnæðinu i níu mánuði og var um 1100 þúsund krónum varið i breytingamar. Skipt var um raf- lögn og húsnæðið innréttað upp ánýtt. Fjöldi gesta mætti á opnunina siðastliðinn sunnudag og þáðu veitingar í boði Zontasystra. Þá bárust klúbbnum nokkrar gjafír, peningar og fleira. Zontaklúbbur Akureyrar var stofnaður 4. desember 1948. Nú- verandi formaður klúbbsins er Ragnheiður Dóra Amadóttir. Á neðri hæð Zontahússins er fundarsalur en á þeirri efri íbúð sem leigð hefur verið út. Að sögn Ragnheiðar munu Zontasystur nota neðri hæðina sem eigið fé- lagsheimili en auk þess hyggjast þær leigja salinn á neðri hæðinni til fundahalda. Æskulýðsdagnr Þj óðkirkjunnar á sunnudaginn ÆSKULÝÐSDAGUR þjóðkirkj- unnar er á sunnudaginn og þá munu unglingar landsins sjá um guðsþjónustur í kirkjunum, ásamt presti sínum. í fréttatilkynningu frá Æskulýðs- starfí þjóðkiijunnar segir „Yfírskrift dagsins í ár er „Réttu mér hönd þína“. Hún sameinar atriðin tvö, sem til umræðu eru þennan dag, annars vegar hversu dýrmæt við öll emm ( augum Guðs og hins vegar að Guð E SiKlUILÍYÐ S'D'AG U!R RlKjJ U NIN'A BHWrÞI [IMl þarfnast handa okkar f starfínu fyrir ríki hans, söftiuð okkar. Markmið æskulýðsdagsins er þannig að hvetja alla til að starfa í söfnuði sínum. Á æskulýðsdaginn emm við einnig vakin til umhugsunar um þær hættur sem fylgja neyslu hvers konar ávana- efna. Jesús sjálfur býður okkur hönd sína, okkar er að fylgja honum. Mætum því i guðsþjónustur í söfnuði okkar á sunnudaginn." )ýE^y\ll\íl^URENE Vorlitirnir komnir Kynningar á YSL snyrtivörunum i eftirtöldum verslunum: Föstudaginn 28. febrúar í Snyrtivöruversluninni Laugavegi 76frá 13—18. Fimmtudaginn 6. mars í Ócúlus, Austurstræti 3, frá 13-18. Föstudaginn 7. mars í Bylgjunni, Hamraborg, Kópa- vogi, frá 13—18. K/E$AIN1^\URENE Beauté 1 ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.