Morgunblaðið - 28.02.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
19
Akureyri:
Morgunblaðið/Skapti
Tengibygfgingin sem nú er risin vestur úr Borgarbíói. Nýi salurinn verður síðan reistur í suður
(til hægri á myndinni) úr tengibyggingunni.
„Vona að nýi salurinn
komist í gagnið í haust“
— segfir Arnfinnur Arnfinnsson f ramkvæmdastj óri Bor^arbíós á Akureyri
Akureyri, 27. febrúar.
VERIÐ ER að byggja við Borg-
arbíó á Akureyri, eina kvik-
myndahús bæjarins, og verður
bætt við ððrum sýningarsal.
Ekki er ljóst hvenær hann
verður tekinn i notkun en vonir
standa til að það verði í haust.
Tengibygging hefur verið reist
vestur úr Borgarbíói, út á bifreiða-
stæðið, og síðan mun bíósalurinn
nýi ganga úr tengibyggingunni í
suður að húsi Búnaðarbankans.
Tengibyggingin verður á tveimur
hæðum, þar verður fundarsalur
og sýningarklefí fyrir báða salina.
Að sögn Amfínns Amfínnsson-
ar, framkvæmdastjóra Borgar-
bíós, em ekki uppi neinar sérstak-
ar áætlanir um það hvenær nýi
salurinn verði tekinn í notkun.
„Við bytjuðum á þessu í haust
og okkur langar til að koma þessu
áfram. Ég veit þó ekki hvemig
það mun ganga en ég vona að
nýi salurinn komist í gagnið í
haust,“ sagði hann. Nýi salurinn
mun taka um 130 manns í sæti.
Borgarbíó hefur verið eina kvik-
myndahúsið á Akureyri um nokk-
urra ára skeið, síðan Nýja bíói var
lokað, en kvikmyndahúsin í bæn-
um vora tvö um árabil.
Skógrækarfundur í Stykkishólmi
IANDSBANKINN
BÝÐUR ÖRUGG
SKULDABRÉF
10-12% ÁRSÁVÖXTUN UMFRAM
YÍSITÖLUHÆKKANIR
kuldabréf til 3ja og 5 ára að
upphæð kr. 10.000. -, 50.000.-
og 100.000.- eru til sölu hjá öllum
afgreiðslum bankans. Þessi bréf gefa 10%
ársávöxtun umfram vísitölu.
já fjármálasviði á Laugavegi 7
( eru til sölu skuldabréf að
upphæð kr. 100.000.- til 2ja, 3ja, 4ra og
5 ára með 11-12% ársávöxtun umfram
vísitölu.
egna endursölutryggingar
Landsbankans er ávallt hægt að
innleysa bréfin meðmánaðar fyrirvara.
Nánari upplýsingar .veita verðbréfadeildir
| bankans um allt land og fjármálasvið
§ Laugavegi 7, sími 621244.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Stykkishóimi, 14. febrúar.
LIONSKLÚBBUR Stykkishóhns
og Rotaryklúbbur Stykkishólms
héldu sameiginlegan fund í fé-
lagsheimilinu í Stykkishólmi í
gærkvöldi. Var þessu fundur
helgaður skógræktarmálum f
landinu og mættu þar Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri og
Snorri Sigurðsson skógfræðing-
ur en hann annast leiðbeiningar-
og hjálparstörf hinna ýmsu skóg-
ræktarfélaga á landinu, en alls
eru skógræktarfélög landsins 30
sem vinna að framgangi skóg-
ræktar.
Sigurður Blöndal flutti erindi um
þróun skógræktar í landinu og er
undraverður sá árangur sem hefir
átt sér stað. Eftir að sauðfé hefír
fækkað hefír reynst auðveldara að
fá lönd til skógræktar og allir þeir
staðir sem hafa verið girtir hafa
tekið ótrúlega fljótt við sér. Sigurð-
ur sagði að hann hefði mikla trú á
nytjaskógi í framtíðinni og með
sameiginlegu átaki væri kannski
ekki mjög fjarstætt að Islendingar
gætu fullnægt sjálfum sér hvað
tijávið snerti bæði til bygginga og
húsgagnagerðar. Hann sagði frá
nokkram stöðum á landinu þar sem
kjörið væri að koma upp nytjaskógi.
Þetta væri nú allt í athugun enda
væri hópur manna sem ynni að
þessu framtíðarverkefni lands og
þjóðar.
Snorri lýsti síðan starfsemi hinna
ýmsu skógræktarfélaga í landinu.
Vora þeir félagar ekki í vafa um
að aukin skógrækt væri mikil lyfti-
stöng íslensks velferðarríkis. Ýmsar
spumingar komu fram, meðal ann-
ars um Þjóðargjöfína svonefndu og
hvemig henni hefði verið varið og
hvemig hún hefði nýst. Einnig var
spurt um mengun og hvort þyrfti
að óttast hana hér í framtíðinni,
bæði vegna öskugoss og eins út-
blásturs bíla og véla. Taldi Sigurður
að hann sæi ekki neinar hættur af
þessu og benti á að nánustu svæði
eldfjalla hefðu ekki farið illa og eins
að önnur svæði hefðu náð sér furðu
fljótt að gosi loknu.
Á eftir fundi sýndi Sigurður
skyggnur um vettvang skógræktar
á öllu landinu og síðan litmyndir
af skógum og gróðri um allt land
og vora þær myndir mjög fróðlegar
og sýndu mikla framþróun þessara
mála. Var undarvert að sjá sum
svæðin sem skógurinn vex á og
hversu stór sum trén era orðin og
sýndi þessi sýning Sigurðar að til
mikils er að vinna í þessum efnum.
Var gerður ágætur rómur að máli
þeirra félaga og sýning Sigurðar
Blöndals þökkuð með góðu lófataki.
Þessi koma mun hafa sín áhrif.
Skógræktarfélag Sykkishólms hefír
starfað um 40 ára skeið og hefír
ræktað tré í stóram reitum hér fyrir
ofan bæinn á svonefndum Grensás
og einnig hefir félagið fengið stórt
svæði í Sauraskógi og annast það
og plantað. Sigurður var með
nokkrar myndir frá Sauraskógi frá
fyrri áram, teknar á nokkru milli-
bili og mátti sjá mikinn árangur og
framför. Og nú notuðu þeir félagar
tímann til að líta jrfír skógræktina
hér og létu í ljósi mikla ánægju
yfír hve mikil gróska er í vexti
trjánna og hve mikill árangur er
sýnilegur.
Sveitarstjóri Sturla Böðvarsson
gat þess á fundinum að Stykkis-
hólmshreppur hefur lagt dijúgan
skerf af mörkum í starfi skógrækt-
ar og gróðurs til fegranar hinna
ýmsu svæða bæjarins. Áhugi fólks
væri að aukast fyrir tijárækt við
hús sín og í skrúðgarði bæjarins
væra gerðir góðir hlutir. Þetta
stefndi allt í rétta átt.
Þessi fundur var haldinn að
framkvæði Sigurðar Ágústssonar,
sem um árabil hefír verið í forystu
skógrækarmála hér og verið lengi
formaður Skógræktarfélags Stykk-
ishólms. Hann hefir unnið hér þarft
verk og fengið gott fólk í lið með
sér. Oft hafa félögin héma tekið
stund og stund í starfi til að setja
niður plöntur.
Þetta frumkvæði Sigurðar var
ágætt og ég vona og er raunar viss
um að þessi fundur skilar árangri.
Og þökk þeim Sigurði og Snorra
fyrir heimsóknina.
—Árni
KJARABÓT!
Veist þú?
að innaní Holtakjúklingi
finnur þú ekki plastpoka
með innmat og hálsbitum.
Veist þú?
Veist þú?
að innmatur og hálsbitar
eru ca. 8% af þyngd fuglsins.
Notar þú innmatinn?
að Holtakjúkling framleiðir
enginn annaren Holtabúið h.f.
Það tryggir gæðin.