Morgunblaðið - 28.02.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR 1986
35
Ölöf B. Guðjóns-
dóttir—Minning
Fædd 29. september 1911
Dáin 14. febrúar 1986
í dag er gerð frá Fossvogskapellu
útför Ólafar B. Guðjónsdóttur,
Melabraut 5, Seltjamamesi, og vil
ég minnast hennar með nokkram
orðum.
Ólöf Björg fæddist 29. september
1911 á Kaldalæk við Vattames í
Kolfreyjustaðarsókn, níunda og
yngsta bam hjónannna Guðjóns
Jónssonar og Kristínar Jónsdóttur
er höfðu búið næstu tíu árin áður
á Kolmúla við Reyðaríjörð. Á
Kaldalæk, sem var grasbýli nálægt
sjó innan við Vattames, bjuggu
foreldrar hennar til 1914 að þau
fluttust til Eskifjarðar og vora þau
síðastir ábúendur á Kaldalæk að
því er segir í Sveitir og jarðir í
Múlaþingi.
Guðjón, faðir Ólafar, fæddist 15.
febrúar 1877. Móðir hans var Hall-
dóra dóttir Guðmundar Eyjólfsson-
ar frá Helgustöðum og konu hans,
Ólafar Jónsdóttur, og var Guð-
mundur bróðir Níelsar bónda á
Grímsstöðum á Mýram föður séra
Haraldar og þeirra systkina. Faðir
Guðjóns var Jón Ólafsson, „assist-
ent, Alaskafari í Kaupmannahöfn",
segir í kirkjubók. Kristín, kona
Guðjóns og móðir Ólafar, var fædd
í Kálfatjamarsókn á Vatnsleysu-
strönd. Foreldrar hennar vora Jón
Jónsson og Kristín Illugadóttir á
Brannastöðum. Þau fluttust til
Austfjarða með ijölskyldu sína og
settust þar að og þannig bar að
kynni þeirra Kristínar og Guðjóns.
Af níu bömum þeirra era fjögur
nú á lífí: Kristín á Norðfirði, Þórdís
og Jón á Eskifírði og Oddný í
Reykjavík.
Ólöf var á bamsaldri tekin í fóst-
ur af Magnúsi Gíslasyni sýslumanni
á Eskifírði og Sigríði, konu hans.
Átján ára að aldri fluttist hún til
Reykjavíkur. Var hún þar í vist
hjá Garðari Gíslasyni stórkaup-
manni og á fleiri stöðum. Síðar réðst
hún til Jóhannesar Hjartarsonar
verkstjóra og konu hans, Guðnýjar
Jónsdóttur, á Vesturgötu 27; vora
það hin ágætustu hjón og Guðný
menntuð og merk kona eins og fram
kemur í bókinni Þeir sem settu svip
á bæinn. Dvöl í húsi þeirrar konu
var góður skóli. Eftir fráfall
Guðnýjar var Ólöf ráðskona Jó-
hannesar.
Á þessum áram kynntist Ólöf
manni sínum, Jóni B. Helgasyni,
er rak verslun í sama húsi. Var
aldursmunur þeirra allmikill, 18 ár.
Jón var fráskilinn og átti íjögur
böm, Alrúnu, Sverri, Leif og Ragn-
ar (er vora uppkomin og á unglings-
aldri) með fyrri konu sinni, Charl-
ottu Albertsdóttur frá Páfastöðum
í Skagafírði.
Jón og Ólöf giftust 10. maí 1941.
Þau lifðu saman í farsælu hjóna-
bandi í 43 ár, en Jón lést 20. ágúst
1984 og skrifaði ég þá um hann
minningarorð í Morgunblaðið. Ólöf
átti dóttur fyrir hjónaband, Fjólu
Guðrúnu, sem er gift Inga Þor-
steinssjmi viðskiptafræðingi í
Kenya. Kjörsonur þeirra, Þorsteinn,
er við nám í tölvufræðum í Bret-
landi. Jón og Ólöf áttu eina dóttur,
Guðnýju Kristínu sem býr hér í
borg. Guðný á þijú böm og era tvö
þeirra að miklu leyti uppalin hjá
foreldram hennar. Böm Guðnýjar
era: Jón Bjami, 22 ára, við nám í
bifvélavirkjun, Ólöf Ástríður, 18
ára, nemi, og Björgvin Þór, 6 ára.
Kynni mín af þeim hjónum, Ólöfu
og Jóni, era orðin löng, en leiðir
okkar lágu saman í Góðtemplara-
reglunni fyrir meira en §öratlu
áram. Frá þeim tíma er margs að
minnast. Oft var komið saman á
heimili þeirra Jóns og Ólafar til að
ræða um starfíð og undirbúa ftind-
arefni. Minningar mínar um Ólöfu
frá þessum áram era allar á einn
veg; glaðværð, hjartahlýja og góð-
vild einkenndu framkomu hennar,
tillögur og athafnir.
Mörg síðustu árin átti hún við
heilsuleysi að stríða sem asma- og
hjartasjúklingur. Var hún langdvöl-
um á Vífílsstöðum milli þess að hún
gat dvalið í heimahúsum. Eftir að
heimili aldraðra á Melabraut 5 á
Seltjamamesi var tekið í notkun
fengu þau hjónin íbúð þar og þar
fékk Ólöf að eyða síðustu ævidög-
unum við framúrskarandi hjálpsemi
viðkomandi aðila. í því sambandi
vil ég, vegna aðstandenda, færa
sérstakar þakkir Sigríði Krisljáns-
dóttur er annaðist hana og hlúði
að henni svo vel og fallega að telja
má einstakt. Ólöf veiktist snögglega
og dó föstudaginn 14. febrúar síð-
astliðinn.
Þegar leiðir skilur flyt ég Ólöfu
B. Guðjónsdóttur kærar þakkir
okkar hjóna fyrir löng og góð
kynni. Einnig flyt ég kveðjur frá
félögunum í stúkunni Andvara er
þakka liðna daga. Ég færi dætram
hennar og bamabömum einlæga
samúðarkveðju. Minningin um góða
konu er hlý og björt og lýsir upp
hugskotið í misviðram hversdags-
ins.
Indríði Indriðason
Minning:
Gunnar Kristjáns-
son tækniteiknari
Mig setti hljóða föstudagskvöldið
21. febrúar er tengdamóðir mín
hringdi og tilkynnti okkur andlát
Gunnars tengdaföður míns. Hann
fæddist í Reykjavík 14. júlí 1913
og var þvf á sjötugasta og þriðja
aldursári þegar hann lést. Hann var
sonur hjónanna Kristjáns Jóhannes-
sonar skósmiðs og konu hans, Ingi-
bjargar Jónsdóttur. Þau hjón eign-
uðust fímm böm. Gunnar var þriðji
í röðinni og eini bróðirinn. Systur
hans era þær: Ólöf, Sigrún og Ulja
sem allar era búsettar í Reykjavík.
Fjórða systirin var Guðlaug er lést
í desember árið 1982.
Gunnar stundaði nám við Versl-
unarskóla íslands og útskrifaðist
þaðan árið 1932. Vann síðan við
verslunarstörf hjá Silla og Valda í
nokkur ár. Árið 1944 hóf hann störf
sem teiknari hjá Vegagerð ríkisins
og vann þar, þar til hann hætti
störfum fyrir tæpum tveim áram
síðan. Árið 1947 kvæntist hann
eftirlifandi konu sinni, Guðlaugu
Klemensdóttur frá Vestri-Skógtjöm
á Álftanesi. Gunnar og Guðlaug
eignuðust fjóra syni, Kristján renni-
smið, Jón Gunnar sem lést af slys-
förum 10. febrúar 1960, Ólaf Rúnar
rennismið og Guðlaug sjómann.
Barnabömin eru fímm sonardætur.
Ég kynntist Gunnari fyrir um það
bil 10 áram er við stofnuðum heim-
ili ég og Ólafur sonur hans. Hann
var einkar tiyggur maður, hjálpfús
og hjartahlýr. Það kom sér vel
þegar við hjónin bjuggum hér í
Reykjavík fyrir litlu dætur okkar
þegar mikið lá við að fá að skjóta
þeim inn til afa og ömmu. Oft
minnast þær þessara stunda eftir
að við fluttumst til Vopnaíjarðar.
Það var svo gaman að fara með
afa f sumarbústaðinn og fá fínu
litina hans afa lánaða og lita með
þeim.
Gunnar var mjög listrænn maður,
málaði fjölda málverka og skar út
í tré og má eiginlega segja að hann
hafí verið þúsundþjalasmiður. Ég á
oft eftir að minnast Gunnars vegna
þess því fyöldi verka hans prýðir
heimili mitt. Áhugi hans á tónlist
var mikill. Uppáhaldshljóðfæri hans
var fíðla og spiluðu þau oft saman
hann og systur hans á fíðlu og
píanó.
Á hljóðlátri kveðjustund færi ég
mínum kæra tengdaföður þakkir
fyrir hugljúfar samverastundir.
Élsku tengdamamma, ég votta þér
mína dýpstu samúð.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimirkveðja
vininn sinn iátna,
er sefur hér sinn síðsta blund.
(V. Briem)
Steingerður Steingrímsdóttir
Móðir okkar og tengdamóðir, t
MARÍA SVEINFRÍÐUR SVEINBJÖRNSDÓTTIR,
Aðalstræti 22,
ísafirði,
verður jarðsungin frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 1. mars kl.
14.00. ,
Erla Ingadóttir, Húnbogi Þorsteinsson,
Haukur Ingason, Sigrfður Aðaisteinsdóttir,
Þorbjörg Ingadóttir,
Guðbjörn Ingason, Elfnborg Sigurðardóttir,
Steingerður Ingadóttir, Halldór Helgason,
Elvar Ingason, Ragna Halldórsdóttir,
Reynir Ingason, Alma Rósmundsdóttir,
Ester Ingadóttir, Halldór Ásgeirsson,
Ernir Ingason, Rannveig Pálsdóttir.
t
QUÐMUNDUR EINARSSON,
Heiðarbraut 5,
Garði,
lést 16. febrúar sl. Jarðarför hans fer fram frá Útskálakirkju laugar-
daginn 1. mars kl. 14.00.
Systkini hins látna.
t
Maðurinn minn,
SIGURÐUR H. GUÐMUNDSSON,
Sólvallagötu 2,
lést í Landakotsspítala 26. febrúar.
Karólina J. Lárusdóttir.
t
Móðirmín,
GEIRLAUG KONRÁÐSDÓTTIR
frá Bragholti,
sem andaöist á Seli, Akureyri, föstudaginn 21. febrúar, verður
jarðsungin frá Möðruvöllum í Hörgárdal laugardaginn 1. mars.
kl. 2. e.h.
Jenný Jónsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Móðir min, tengdamóöir og amma,
SIGRÚN BJARNADÓTTIR
fyrrverandi saumakona,
Dvalarheimililnu Ási, Hveragerði,
veröur jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 1. mars nk.
kl. 14.00.
Jarðsett verður í Kotstrandarkirkjugarði. Bílferð verður frá Bifreiða-
stöö íslands kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á líknar-
stofnanir.
Baldur Magnússon, Jónfna Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Baldursson, Bjarni Rúnar Baldursson,
Einar Baldursson, Jón Baldur Baldursson.
t
GUÐJÓN GUÐJÓNSSON
kaupmaður,
Patreksfirði,
verður jarösunginn frá Patrekskirkju laugardaginn 1. mars kl.
14.00.
Marfa Jóakimsdóttir,
Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Hallgrímur Matthfasson,
Helga Guðjónsdóttir, Hilmar Jónsson,
Gunnar Karl Guðjónsson, Ásdfs Sæmundsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
STEFÁNS JÓNS VALDIMARSSON AR
frá Hrfsey.
Marfa Árnadóttir,
Valdís Jónsdóttir, Jón Ásgeirsson,
Elsa Jónsdóttir, Sigurgeir Júlfusson,
Áslaug Kristjánsdóttir,
Brynjar Jónsson, Steinunn Jónasdóttir,
Selma Jónsdóttir, Ólafur Axelsson,
Ásgeir Ingi Jónsson, Fjóla Björgvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum af alhug samúð og vinarhug við andlát og útför
ÁRNA ÞÓRS YNGVASONAR,
Hraunbæ 18, Reykjavfk.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Bjarney Jóna Valgeirsdóttir,
Valgeir Yngvi Árnason, Fanney J. Gísladóttir,
Katrfn Árnadóttir, Yngvi Jónsson,
systkini, makar og systkinabörn.