Morgunblaðið - 28.02.1986, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
Kvöld
í Boston
Garden
I hverju landi eru lið sem hafa lengri o g litríkari
sögn en önnur. Þessi lið hafa jafnan stuðningsmenn
langt utan sinna eigin borgar- eða bæjarmarka og
skiptast íþróttaunnendur jafnan í einlæga aðdáendur
eða fjandsemi við þau. Lið þessi eru jafnan sterk í
sínum iþróttagreinum og hafa haldið þessari stöðu
sinni um áratugi vegna mikils stuðnings áhorfenda
og sterkrar fjárhagsstöðu. Þessi lið leika venjulega í
nýjum, glæstum íþróttamannvirkjum eða á völlum og
í „kofum“ þar sem hver fermetri hefur margar sögur
að segja af glæstum afrekum og frægum sigrum.
A Islandi er KR sennilega skýrasta dæmið um slíkt
lið. Fyrir önnur lið er alltaf eitthvað sérstakt við að
vinna KR. Flestir íþróttaunnendur eru annaðhvort
miklir aðdáendur KR eða finnst „þeir röndóttu“ vera
óþolandi lið. Manchester United, Real Madrid, Celtic,
Bayern Mtinchen og Juventus eru sennilega þekktustu
dæmin úr evrópskum knattspyrnuheimi hvað þetta
varðar.
en, er nálægt miðbæ borgarinnnar
og voru bflastæði af skomum
skammti, sem er mjög óvenjulegt
um íþróttahallir annars staðar í
Bandaríkjunum.
Lélegt gólf
Eftir að hafa fengið blaðamanna-
skírteinið mitt gekk ég um þessa
gömlu byggingu og kom á endanum
niður á leikvöllinn sjálfan. Það sem
vakti mesta undrun mína þegar ég
kom niður var hversu lélegt gólf
leikvallarins var. íslenskir sjón-
varpsáhorfendur hafa eflaust séð
parketgólf þetta sem samsett er af
metrabreiðum femingum, líkt og í
íþróttaskemmunni á Akureyri. Á
sjónvarpsskermi lítur það vel út, en
þegar komið er niður á gólfíð sjálft
lítur það jafn illa út_ (ef ekki verr)
og gólfíð í gömlu íþróttaskemm-
unni. Það gólf hefur alltaf verið
mér minnisstætt eftir nokkra körfu-
knattleiksleiki sem ég sá þar fyrir
fáum ámm. Það sem aðkomulið á
Akureyri áttu alltaf erfítt með að
átta sig á voru „dauðu" fletimir á
gólfínu, þar sem aðkomuleikmenn
vom að rekja knöttinn þegar allt í
einu hann kom ekki alla leið upp
aftur. Leikmenn aðkomuliðanna
trúðu því alltaf að heimamenn á
Akureyri vissu hvar þessi fletir
væm og að þeir notfærðu sér það
óspart. Af gólfínu í Boston Garden
er sömu sögu að segja, á því em
samskonar „dauðir" fletir sem leik-
menn verða að forðast í leik. Par-
ketið er mjög gamalt og ójafnt, og
virðist sem að Boston Celtics séu
ekkert á því að skipta um það.
Gólffletir sem ég hef séð í Cleveland
og Detroit em mjög góðir og virðist
svo vera um flesta leikvelli í NBA-
deildinni. Þessar leikaðstæður í
Boston hjálpa heimaliðinu að sjálf-
sögðu í leikjum (einsog þeir þurfí
þess við!) og hafa margir aðkomu-
Jeikmenn oft kvartað yfír gólfí
þessu.
Síjanað við blaðamenn
Ég þáði málsverð sem Celtics
bjóða blaðamönnum upp á. Ekki
Hér hefur Larry
Bird stungið sér á
milli tveggja leik-
manna Los Ange-
les Lakers og er
kominn i skotfæri.
Auðvitað brást
honum ekki boga-
listin frekar en
fyrri daginn.
Bird í baráttu við McAdoo í leik
EftirGunnar
Valgeirsson
Celtics eru bestir
Ibandarískum atvinnuk-
örfuknattleik er lið Boston
Celtics sennilega það lið
sem körfuknattleiksað-
dáendur hér vestra hafa
slíkar ástar- eða haturstilfínningar
gagnvart. Lið Celtics hefur unnið
langflesta titla í NBA-deildinni, það
kemst jafnan langt í úrslitakeppn-
inni og spilar í íþróttahöll sem öll
aðkomulið virðast eiga erfítt með
að sigra í. Það sem hefur einkennt
lið Boston um árabil er geysiagaður
leikur þess og reyna framkvæmda-
stjórar og þjálfarar þess jafnan að
ná í leikmenn sem eru miklir bar-
áttumenn, frekar en leikmenn sem
eru mikið gefnir fyrir tilþrif. Boston
vinnur marga leiki sína af einskærri
baráttu og margir körfuknattleiks-
unnendur skilja oft ekkert í því
hvemig jafn hæfíleikalítið lið vinnur
hvem leikinn á fætur öðmm. En
ástæðan er einföld, ef andstæðing-
amir eiga ekki góðan leik og beijast
eins og ljón um hvem bolta, þá
brýtur Boston andstæðingana niður
hægt og sígandi, rétt eins og lið
Liverpool hefur gert í ensku knatt-
spymunni nú um árabil.
Það var því með mikilli eftirvænt-
ingu sem ég fór á leik hjá Celtics
í Boston Garden, íþróttahöll sem
er nokkurskonar „Hálogaland"
bandarísks körfuknattleiks. Boston
tapar afar fáum leikjum í Garden
og skil ég það betur eftir að hafa
borið þessa „íþróttaskemmu“ sam-
an við aðrar íþróttahallir NBA-liða
sem ég hef komið í. Bæði eru áhorf-
endur mjög virkir og styðja vel við
liðið, auk þess sem leikaðstæður eru
hliðholiar Boston.
í byrjun nóvember sl. fór ég á
leik milli Boston og Phoenix í Gard-
en. Það var föstudagskvöld og eftir
langa bið í undirheimum neðanjarð-
arlestakerfís borgarinnar kom ég
loks að Garden, sem leit út eins og
vöruskemma að utan. „Höllin", ef
hægt er að nota það orð um Gard-