Morgunblaðið - 28.02.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FögTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
Haukar unnu eftir
æsispennandi leik
VALSMÖNNUM tókst ekki að
setja Haukum brodd á barka í
fyrri leik liðanna í undanúrslitun-
um um íslandsmeistaratrtilinn í
körfuknattleik í gærkvöldi, en
æsispennandi leik lauk með 80-
77 sigri Hauka. Valsmenn lögðu
allt í sölurnar, börðust mjög vel
og náðu strax góðu lagi á Hauk-
um; náðu um tíma 15 stiga for-
^tystu, 38-23, en í hálfleik var stað-
an 42-33. „Þó mínir menn hafi
Badminton:
NM unglinga
hefst f dag
Unglingalandsliðið í badminton
hélt til Danmerkur í gærmorgun
en þar mun liðið taka þátt í
Norðurlandamóti unglinga, 18
ára og yngri, sem hefst í dag.
I dag verða landsleikir og allir
leika við alla en þeir sem þátt taka
^ eru auk okkar, Danir, Svíar, Norð-
menn og Finnar. Á morgun hefst
síðan einstaklingskeppni og lýkur
henni á sunnudaginn. íslensku
keppendurnir taka allir þátt í ein:
liðaleik og einnig í tvenndarleik. í
tvenndarleiknum leika Árni Þór og
Ása saman, Snorri og Guðrún Júl-
íusdóttir og Ármann leikur með
Guðrúnu Gísladóttur. Tvíliöaleikur
karla verður einnig á dagskrá og
þar leika Árni og Snorri saman en
Guðrún Júlíusdóttir og Ása leika
saman í tvíliðaleik kvenna.
Jóhann Kjartansson er lands-
liðsþjálfari en fararstjóri er Magn-
úsJónsson.
Staðan á HM fyrir
leikina í kvöid
A-riðill:
A-Þýskal. 2 2 0 0 51:42 4
Júgóslav. 2 2 0 . 0 58:50 4
Kúba 2 0 0 2 52:60 0
Sovétrík. 2 0 0 2 40:49 0
B-riðill:
V-Þýskal. 2 2 0 0 39:34 4
Sviss 2 1 1 0 33:32 3
Spánn 2 0 1 0 29:33 1
■^V Pólland 2 0 0 2 37:39 0
C-riðill:
Rúmenía 2 2 0 0 45:39 4
S-Kórea 2 1 0 1 50:43 2
ísland 2 1 0 1 40:47 2
Tékkósló.2 0 0 2 36:42 0
D-riðill:
Ung.v.l 2 2 0 0 48:43 4
Svíþjóð 2 1 0 1 46:39 2
Danmörk 2 1 0 1 48:42 2
Alsír 2 0 0 2 34:51 0
Morgunblaðið/Júlíus
Ólafur Rafnsson sœkir að körfu
Valsmanna f gærkvöldi. Torfi
Magnússon kemur litlum vömum
við en Leifur Gústafsson er við
öllu búinn.
lagt síg alla fram um að sigra
Hauka með góðum leik, þá er
ekki hægt að vinna þegar 5 menn
leika gegn 6-7 mönnum," sagði
Lárus Hólm, formaður körfu-
knattleiksdeildar Vals eftir leik-
inn, hinn óhressasti með dómara
leiksins. Taldi hann dómgæzluna
hafa kostað Valsmenn sigur í
leiknum.
Það var mikill broddur í sóknar-
leik Valsmanna í fyrri hálfleik og
þeir nær kollkeyröu Hauka. Kom-
ust Valsmenn í 26-13 eftir 11 mín-
útur, 32-18 eftir 14 og 38-23 er 3
mínútur voru til hálfleiks, en Hauk-
um tókst síðan að lagfæra stöðuna
örlítið fyrir hlé.
í fyrri hálfleik tók Jón Stein-
grímsson Valsmaður Pálmar Sig-
UMFNog
ÍBKíkvöld
ANNAR leikur UMFN og ÍBK í
úrslrtakeppninni í körfuknattleik
verður f kvöld í Keflavík og hefst
leikurinn kl. 20.
Njarðvíkingar unnu fyrri leikinn
á miðvikudagskvöldið og ef þeir
vinna í kvöjd þá eru þeir komnir í
úrslit en ef ÍBK vinnur þá þurfa liðin
að leika þriðja leikinn og verður
hann þá á sunnudagskvöldið í
Njarövík.
urðsson nær alveg úr umferð og
munaði það miklu. Pálmar skoraði
aðeins tvö stig úr vítaskotum í fyrri
hálfleik og komst aldrei inn í leik-
inn. Honum tókst hins vegar að
snúa bakverði Vals af sér í seinni
hálfleik og gerði leikur hans þá
útslagið fyrir Hauka, sem smám
saman tókst að minnka muninn,
og komast yfir, 70-68, þegar rúmar
5 mínútur voru til leiksloka.
Gífurleg spenna var í íþróttahús-
inu við Strandgötu það sem eftir
var. Haukar höfðu undirtökin en
Valsmenn pressuðu þá stíft og
munaði aðeins tveimur stigum,
77-75, þegar rúmar 10 sekúndur
voru eftir. Þá skoraði Pálmar körfu
og fékk vítaskot í leiðinni og gerði
út um leikinn, kom Haukum í 80-
75, en Valsmenn minnkuðu á ný
muninn er 3 sekúndur voru eftir.
Liðin leika seinni leik sinn á
sunndagskvöld í Seljaskóla og
stefnir þá í góðan leik, því Vals-
menn eru í mikilli sókn og voru
nálægt sigri gegn Haukum þótt
þeir misstu þrjá lykilmenn útaf
með 5 villur í seinni hálfleik, Sturlu,
Torfa og Kristján.
Stig Hauka: Pálmar Sigurös 22, Ólafur
Rafns 18, ívar Webster 17, Kristinn Kristins
9, Eyþór Árna 7 og Henning Hennings 7.
Stig Vals: Tómas Holton 22, Leifur Gústafs
14, Jón Steingríms 12, Sturla Örlygs 8, Torfi
Magg 8, Kristján Ágústs 7, Páll Arnar 4 og
Jóhannes Magg 2.
— ógás.
Sfmamynd/AP
Sovéski risinn Sergei Kuschniruk kemst ekkert áleiðis gegn hinum
öfluga Frank Wahl f liði Austur-Þjóðverja f leiknum f gærkvöldi.
Sovétmenn
úr leik
EFTIR öruggan sigur Austur-
Þjóðverja á Sovétmönnum,
23:18 f gærkvöldi er orðið nán-
ast öruggt að Sovétmenn halda
ekki heimsmeistaratitli sínum
eftir HM-keppnina í Sviss. Þeir
áttu aldrei möguleika gegn
austur-þýska liðinu sem lék
feiknarlega árangursríkan
handknattleik, og vann öruggan
5 marka sigur.
í hinum leiknum ía A-riðlinum
í gærkvöldi sigruðu Júgóslavar
Kúbumenn með 32 mörkum
gegn 28, eftir að hafa haft tvö
mörk yfir í leikhléi, 15:13. Kúbu-
menn þóttu standa sig vel, og
hafa komið verulega á óvart í
keppninni. Ljóst þykir að Sovét-
menn gætu auðveldlega tapað
fyrir þeim og lent í því að leika
um 13—16 sætið í keppninni —
nokkuð sem engum datt í hug
fyrir HM.
„Eg öfunda ekki
íslenska þjálfarann"
— sagði Leif Mikkelsen í gærkvöldi eftir að Danir unnu Alsír örugglega
Ágústlngi
Jónsson
skrífar
fráSVISS
OHM86
25.2.-8.3.
„VIÐ MUNUM halda áfram að
berjast og vonandi gengur dæmið
upp hjá danska liðinu. En ég vildi
ekki vera í sporum íslenska þjálf-
arans núna — að eiga á hættu
að falla í C-hóp handknattleiksins
ef ekki vinnst sigur á fyrrum
heimsmeisturum Rúmeníu".
Þetta voru orð Leif Mikkelsens
er biaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við hann f Ziirich f gær-
kvöldi.
Danir höfðu þá fyrr um kvöldið
unnið Alsír með 27 mörkum gegn
18 (13:8) og sagðist Mikkelsen
vera mjög ánægður með þennan
sigur, því lið Alsír væri erfiður
andstæðingur. „Framhaldið verð-
ur mjög erfitt því við byrjuðum
ekki vel, en ef við vinnum Svía á
föstudag er allt galopið í riðlinum.
Þetta mót er mjög opið og ég hef
ekki trú á því að sigurvegarinn
komist ósigraður í gegn. Ég tel lík-
legast að Júgóslavar verði heims-
meistarar og fyrst Ungverjar unnu
Svía þá komast þeir í úrslit.
Sigur Dana í leiknum í gærkvöldi
var allan tímann mjög öruggur.
Markahæstir voru þessir: Mikael
Fenger 7, Erik Veije Rasmussen
5, Kjeld Nielsen 5, Erik Roepstorf
4.
Knattspyrnulandsliðinu
boðið í keppnisferð til Asíu
— heldur utan í 12 daga ferð næsta þriðjudag
ÍSLENSKA knattspyrnulands-
liðinu hefur verið boðið f keppn-
isferð til tveggja landa f Mið-
Asíu. Næstkomandi þriðjudag
heldur liðið tit íraks og Baharain
og mun leika þar fjóra lands-
leiki, tvo f hvoru landi, f keppnis-
f erð sem tekur tólf daga.
Að sögn Gylfa Þórðarsonar
hjá KSÍ hafa staðið yfir samnin-
gaumleitanir við þessa aðila urr
skeið, en í gær komst loks á
hreint hvernig að þessu yrði
staðið. Þá var þegar byrjað að
hafa samband við leikmenn, en
óvíst er hverjir geta farið í tólf
daga ferðalag meö svo stuttum
fyrirvara. Ferðin er KS(, og að
sjálfsögðu leikmönnunum, al-
gjörlega að kostnaðarlausu.
Lið írak tekur þátt í heims-
meistarakeppninni í Mexíkó og
eru leikirnir tveir sem þeir leika
við íslendinga i Bagdad liður í
undirbúningi þeirra fyrir keppn-
ina. Landslið Bahrain er hinsveg-
ar ekki að undirbúa neitt sér-
stakt, en hefur oft boðið Evr-
ópuþjóðum til sín í landsleiki.
Það er til marks um styrkleika
íranska liðsins að það sigraði lið
Dana sem þar var í keppnisferð
fyrir nokkrum dögum í tveimur
leikjum. Reyndar voru Danir þar
ekki með sitt sterkasta lið.
Landsliðshópurinn er skipaður
eftirtöldum leikmönnum: Þor-
steinn Bjarnason, Eggert Guð-
mundsson, Gunnar Gíslason,
Guðmundur Steinsson, Halldór
Áskelsson, Ágúst Már Jónsson,
Loftur Ólafsson, Mark Duffield,
Viðar Þorkelsson, Ormarr ör-
lygsson, Ólafur Þórðarson,
Sveinbjörn Hákonarson, Pétur
Ormslev, Kristján Jónsson, Guð-
mundur Torfason, Sævar Jóns-
son, Teitur Þórðarson.
Leif Mikkelsen eegist vilje vere f
sporum Bogdans.
Ungverjar
unnu Svía
UNGVERJAR unnu Svfa með eins
marks mun 23:22 f hörkuleik f
Ziirich f gærkvöldi. Svfarnir voru
yfir, 12:9 í leikhléi, og voru betri
aðilinn f leiknum framan af.
Er þrjár mínútur voru liðnar af
seinni hálfleiknum leiddu Svíar
14:11, en þá kom mjög slæmur
kafli hjá sænska liðinu. Þegar 18
mínútur voru eftir af leiknum voru
Ungverjar komnir yfir, 16:15 og
gátu þeir fyrst og fremst þakkað
þaö stórskyttunni Peter Kovacs
sem átti frábæran leik. Þeir voru
yfir 23:20 en Svíar gerðu tvö síð-
ustu mörkin og misnotuðu á síö-
ustu mínútunum góð færi, eins og
þeir reyndar gerðu allan seinni
hálfleikinn.
Markahæstu leikmenn: Fyrir
Svía Erik Hajas 6, Björn Jilsen 6/5,
Per Carlén og Sten Sjögren 3 hvor.
Fyrir Ungverja Janos Gyurka 6,
Peter Kovacs 5/2, Laslo Szabo 4.