Morgunblaðið - 28.02.1986, Page 48
FÖSTUDAGUR. 28. FEBRÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra á Alþingi:
„Útvarp MH“
Heilladrjúgt samstarf
ríkis og samningsaðila
FYRSTA lögleyfða útvarps-
stöðin í einkaeign tók til
starfa í Menntaskólanum við
Hamrahlíð í gærkvöldi eftir
að nemendaf élagið hafði
fengið keyptan sendi, sem
fyrirtækið G. Helgason &
Melsteð átti i tolli og Póstur
og simi hafði skoðað hann. Á
myndinni er Sigmundur
Halldórsson, einn starfs-
manna „Útvarps MH“ sem
sendir út á FM 98,7.
FRUMVARP rikisstjórnarinnar
vegna nýgerðra kjarasamninga
var lagt fram í efri deild Alþingis
í gærkvöldi. Frumvarpið var
þegar tekið til umræðu og mælti
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð-
herra, fyrir því. Stefnt er að
þvi að það verði afgreitt frá
Alþingi nú um helgina í samræmi
við samkomulag milli þing-
flokka. Ákvörðun um að leggja
frumvarpið fyrir Alþingi var
tekin að loknum fundi forsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra
með fulltrúum samningsaðila í
gær, þar sem þeir kynntu jákvæð
svör rikisstjóraarinnar við sam-
komulagi ASI og VSÍ og VMS.
Samningsaðilar undirrituðu síð-
an formlega nýja kjarasamninga.
Þorsteinn Pálsson sagði í fram-
söguræðu sinni, að I frumvarpinu
væri mælt fyrir um þær ráðstafanir,
sem ríkisstjómin hefði gefið samn-
ingsaðilum fyrirheit um til að treysta
undirstöður kjarasamninganna. Hann
fagnaði niðurstöðum samninganna
og sagði að með þeim hefði tekist
mjög heilladijúgt samstarf milli ríkis-
stjómarinnar og aðila vinnumarkað-
arins og gmndvöllur verið lagður að
því takmarki að verðbólga yrði minni
og kaupmáttur styrkari, en miðað er
við f þjóðhagsáætlun þessa árs.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
þvf að rfkisútgjöld Iækki um 1,4
mil|jarða króna og rfkistekjur lækki
um 2,5 milljarða kr. Tekjuskattur á
að lækka um 150 milljónir kr. Störf
við fiskverkun og iðnað verða undan-
þegin launaskatti. Tollar á ýmsum
vömm, er vega þungt í framfærsiu-
kostnaði, em lækkaðir vemlega og
ýmsar breytingar til hagræðis gerðar
á tollskrárlögum. Verðjöfnunargjald
af raforku er fellt niður. Loks em
gerðar breytingar á lánsflárlögum,
sem veita m.a. heimild til aukinnar
innlendrar lántöku rfkissjóðs. Nema
innlend viðbótarlán, sem tekin verða
hjá lífeyrissjóðum og bönkum, allt
að 850 milljónum króna.
Fjármálaráðherra sagði, að vegna
þess hversu seint samningar hefðu
tekist hefði ekki reynst unnt að lækka
fyrirframgreiðslu skatta um næstu
mánaðamót, en greiðslan yrði þess í
stað lækkuð á næstu þremur gjald-
dögum þar á eftir.
Ráðherra gat þess að samkvæmt
fjárlögum ársins 1986 væri tekjuaf-
gangur ríkissjóðs 163 milljónir króna.
Nú yrði hins vegar halli á flárlögun-
um, sem næmi 862 milljónum kr. og
lfklega yrði erfitt að komast hjá ein-
hveijum halla á rfkissjóði á næsta
ári. Það væri hins vegar talið rétt-
mætt að fórna nokkru í því skyni að
ná mikilvægu efnahagslegu mark-
miði.
Umræðunni á Alþingi lauk laust
fyrir klukkan 23 í gærkvöldi og var
málinu vísað til annarrar umræðu og
nefndar.
Sjá bls. 28 og 29 efnisatriði
frumvarpsins, frásögn af um-
ræðum á Alþingi og svar rfkis-
stjómarinnar til samningsaðila
og frásagnir af blaðamanna-
fundi forsætisráðherra og fjár-
málaráðherra og undirritun
samninga á bls. 12 og 13 og
ummæli um samningana. Sjá
ennfremur bls. 4 og forystu-
grein f miðopnu.
Um eða yfir þríðjungs
vaxtalækkun eftir helgi
VERULEG vaxtalækkun tekur
gildi eftir helgina. Almennt
munu vextir Iækka um eða yfir
þriðjung og gert er ráð fyrir að
vextir muni lækka enn frekar
eftir því sem dregur úr verð-
bólgu á næstu vikum og mánuð-
um. Ákvörðun þessa efnis var
tekin á fundi bankastjómar og
bankaráðs Seðlabankans í gær,
að sögn Jóhannesar Nordals,
Seðlabankastjóra.
Skuldabréfavextir munu lækka
úr 32% í 20%, vextir af afurðalánum
úr 28,5% í 19,25% og vanskilavextir
lækka úr 45% í 33%. Aðrir vextir
eru ákveðnir af innlánsstofnunum
sjálfum en tillögur þeirra um vaxta-
lækkanir hafa verið að berast Seðla-
bankanum og verður væntanlega
tekin ákvörðun þar um í dag, að
sögn Seðlabankastjóra.
Gert er ráð fyrir að þar verði um
svipaða lækkun að ræða. Þannig
munu víxilvextir, sem nú eru 30%,
lækka niður fyrir 20% og gert er
ráð fyrir að vextir af almennum
sparisjóðsbókum verði um 12% en
vextir af ýmsum sérkjarareikning-
um um 15%.
Ríkisstjómin hefur hafnað tiliögu
Seðlabankans um að vextir af verð-
tryggðum lánum hækki úr 5% í 6%.
Þessar vaxtalækkanir fylgja í I stjómarinnar í fyrradag, sem I að vaxtaákvarðanir styðji og fylgi
kjölfar nýgerðra kjarasamninga stjómin féllst á í gær, segir svo um verðlagshjöðnun. Vextir lækki
ASÍ og samtaka atvinnurekenda. f Iækkunvaxta: strax 1. mars ogsfðan mánaðarlega
tillögum samningsaðilanna til ríkis- | „Rfkisstjómin beiti sér fyrir því, | í samræmi við lækkun verðbólgu."
Verðlagsnefnd:
Utsöluverð gasolíu
lækkar 1. mars nk.
— Heimsmarkaðsverð hefur hækkað sl. hálfan mánuð
SAMÞYKKT hefur verið í verðlagsnefnd 80 aura verðiækkun á
hvera lftra af gasolíu frá og með 1. mars nk. Lítrinn af gasolíu
kostar nú 11,90 krónur og iækkar því f 11,10 krónur þegar verðlækk-
unin hefur tekið gildi. Aður kom til framkvæmda 1. febrúar sl.
krónulækkun á hvera bensfnlítra og 1.000 króna lækkun á hveija
lest af svartolfu. Sú lækkun kom til vegna stórfelldrar lækkunar á
bensin- og olíuverði á heimsmarkaði.
Að sögn Þórðar Ásgeirssonar
forstjóra Olís hefur heimsmarkaðs-
verð á gasolíu hins vegar hækkað
undanfarinn halfan mánuð. Það er
nú komið f 208 dollara lestin, en
var lægst 20. janúar 175 dollarar.
Þórður sagði að nú væri verið að
seija gasolíubirgðir í landinu sem
keyptar hefðu verið áður en til olíu-
verðslækkunarinnar kom. Reiknað
væri með útstreymi úr innkaupa-
jöfnunarsjóði fram til 20. mars, en
þá hefst sala á farmi sem keyptur
var á 199 dollara lestin. Þórður
sagði að sú ákvörðun verðlags-
nefndar að lækka gasolfuna um 80
aura lítrann þýddi að jafnvægi
kæmist ekki á innkaupajöfnunar-
reikninginn fyrr en í haust, og að
þvf gefnu að olíuverðið hækkaði
ekki mikið áfram.