Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
Akureyri:
Hjúkrunarfræðingar
á dvalarheimilum fá
ekki launauppbótina
Akureyri.
BÆJARSTJÖRN Akureyrar
Morgunblaðið/B.Ar.
Þrenntá slysadeild eftirharðan árekstur
HARÐUR árekstur varð á mótum Hverfisgötu og Kalkofnsvegar klukkan 17.45 í gær. Þar rákust
saman fólksbifreið og strætisvagn. Ökumaður og farþegi í fólksbifreiðinni og einn farþegi í stræt-
isvagninum voru fluttir á slysadeild. Fólksbifreiðin skemmdist mikið og þurfti að draga hana af
slysstað.
Bjargar ríkisábyrgð
rekstri Arnarflugs?
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í gær var ákveðið að undirbúa
flutning lagafrumvarps um heimild fyrir fjármálaráðherra
til að veita Arnarflugi ríkisábyrgð fyrir láni að upphæð 2,5
milljónir bandaríkjadala. Forsætisráðherra, fjármálaráðherra
og samgönguráðherra var falið að undirbúa frumvarpið.
samþykkti á fundi sínum í
Hallgrímskirkja:
Þingnefnd
skipuleggi
skreytingar
ÞINGSÁLYKTUN, sem felur
kirkjumálaráðherra að skipa sjö
manna nefnd til að skipuleggja
og undirbúa skreytingu og frá-
gang á anddyri, kór og kirkju-
skipi Hallgrímskirkju í Reykja-
vík, var samþykkt á Alþingi í
gær.
Verkefni nefndarinnar skal vera
að gera verkáætlun og kostnaðar-
áætlun og tillögur um fjármögnun
verksins. Nefndin skal skipuð einum
manni er kirkjumálaráðherra til-
nefnir sem jafnframt verður for-
maður nefndarinnar, einum til-
nefndum af menntamálaráðherra,
einum af Biskupi íslands, einum
af Húsameistara nkisins, einum af
byggingamefnd Hallgrímskirkju,
einum af Félagi íslenskra myndlist-
armanna og einum af Kirkjulistar-
nefnd.
í umræðu um þingsályktunartil-
löguna kom fram hjá Árna Johnsen
þingmanni Sunnlendinga að for-
maður sóknamefndar Hallgríms-
kirkju, sem jafnframt er í bygging-
amefnd, hefði efasemdir um þessa
tillögu.
Ragnhildur Helgadóttir heil-
brigðis- og tryggingaráðherra flutti
breytingartillögu sem fól í sér að
Alþingi fæli kirkjumálaráðherra að
gera áætlun um þetta verk, en vís-
aði að öðm leyti þingsályktunartil-
lögunni til ríkisstjómarinnar. Þessi
tillaga Ragnhildar Helgadóttur var
felld með 37 gegn 6 atkvæðum, en
þingsályktunin samþykkt með 36
atkvæðumgegn 1.
gær tillögu bæjarráðs um að
synja beiðni dvalarheimila-
stjórnar um 15.000 króna
launaauka fyrir hjúkrunar-
fræðinga í fullu starfi við
dvalarheimili aldraðra í Hlíð
og í Skjaldarvík en slíkar
greiðslur hafa verið við lýði
hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri í nokkra mánuði.
Miklar umræður urðu um þetta
mál á fundi bæjarstjómar í gær
en tillaga bæjarráðs um synjun var
síðan samþykkt með níu atkvæðum
gegn tveimur. Á móti voru Sigríður
Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalags, og Auður Þór-
hallsdóttir, varabæjarfulltrúi
Framsóknarflokks, en hún á sæti
í dvalarheimilastjóm.
Gunnar Ragnars, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, sem er formaður
stjómar Fjórðungssjúkrahússins,
sagði varhugarvert að bæjarráð
væri að kmkka í launamál — þau
ættu að ganga venjulega leið
gegnum kjarasamninga — þannig
að hann gæti ekki samþykt uppbót
til hjúkmnarfræðinga á dvaiar-
heimilunum. „Stjórn FSA var ekki
að taka afstöðu til kjara hjúkmnar-
fræðinga þegar uppbótin var
ákveðin á sínum tíma heldur stóð-
um við frammi fyrir þeirri spum-
ingu hvort ekki væri hægt að reka
sjúkrahúsið vegna skorts á starfs-
fólki, og í mínum huga var þetta
ekki fordæmisskapandi, heldur til
að stofnunin yrði ekki að draga
saman seglin," sagði Gunnar.
Fram kom í máli bæjarfulltrú-
anna Valgerðar H. Bjamadóttur,
Kvennaframboði, og Sigurðar J.
Sigurðssonar, Sjálfstæðisflokki, að
greiða bæri sömu laun fyrir sömu
vinnu. Fólk í hlutastarfi yrði því
að búa við sömu launakjör og fólk
í fullu starfi. Ekki væri rétt að
verðlauna fólk í fullu starfí.
„Mér er tjáð að rekstur Amar-
flugs geti stöðvast á næstu dögum
ef ekki verður samþykkt að veita
Amarflugi ríkisábyrgð. Þess vegna
tel ég mjög brýnt að þetta fram-
varp fari í gegnum Alþingi fyrir
þinglausnir," sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
samtali við Morgunblaðið. „Ríkis-
stjómin telur mikilvægt að kanna
til hlítar hvort ríkisábyrgð geti
orðið til þess að bjarga fyrirtækinu.
Vitanlega er það gert í þeirri góðu
trú að lánið falli ekki á rikissjóð.
Samkvæmt mati Amarflugsmanna
á að verða rekstrarafgangur í ár.
Lækkun dollarans og lækkun á
eldsneytisverði hefur þar mikið að
segja og auk þess er mikið um
bókanir í ferðir til Amsterdam og
Hamborgar, hins nýja viðkomu-
staðar Amarflugs."
Forsætisráðherra sagði að und-
irbúningur ráðherranna þriggja
hefði falist f því að kanna stöðu
Amarflugs og ræða við stjómar-
andstöðuna á Alþingi. í gær vom
gerð drög að fmmvarpi sem sýnd
vom stjómarandstöðunni og staða
mála skýrð fyrir henni, eins og þau
liggja fyrir stjómvöldum. Stein-
grímur sagðist fastlega gera ráð
fyrir að stjómarflokkamir féllust
á fmmvarpsdrögin. Fmmvarpið
yrði þá lagt fram á deildarfundi í
Alþingi, sem hefst í dag klukkan
10.00.
Skuldin við
Utvegsbankann
rúmar 720
milljónir
Heildarskuldbindingar Haf-
skips hf. gagnvart Útvegsbank-
anum námu samtals 721,9 millj-
ónum króna 5. desember 1985,
þ.e. daginn áður en fyrirtækið
var tekið til gjaldþrotaskipta.
Þetta kom fram í skýrslu við-
skiptaráðherra um stöðu Útvegs-
bankans sem lögð var fyrir Al-
þingi i gær. Samkvæmt athugun
bankaeftirlitsins 8. janúar 1986
nam fjárhæðin 808,5 milljónum
króna og eru þá taldar með
skuldbindingar íslenska skipafé-
lagsins hf. gagnvart bankanum
og viðskiptavixlar.
í nýrri skýrslu bankaeftirlitsins
dagsettri 21. apríl 1986 metur það
áætlað útlánatap vart undir 400
milljónum króna. Til viðbótar bætist
áæltað útlánatap bankans vegna
íslenska skipafélagsins hf. sem gert
er er ráð fyrir að nemi um það bil
12 milljónum króna. í ljósi þessa
gæti heildartapið numið 412 millj-
ónum króna. í skýrslunni segir
jafnframt að á það beri að leggja
áherslu að enn ríki óvissa um end-
anlegt tap Útvegsbankans vegna
þessara viðskipta.
„Mér fínnst margt benda til þess
að afkoma Amarflugs fari batn-
andi og þess vegna er ástæða til
að hjálpa fyrirtækinu yfír þrösk-
uldinn. Ég tel líklegt að framvarpið
verði samþykkt á morgun," 'sagði
Steingrímur Hermannsson að lok-
um.
Tef la Kasparov
og Miles ein-
vígi á íslandi?
GARRÝ Kasparov, heimsmeist-
ari í skák, hefur lýst því yfir við
Skáksamband íslands að hann sé
reiðubúinn til að tefla æfingar-
einvígi við breska stórmeistar-
ann Antóný Miles á íslandi dag-
ana 15.—20. maí næstkomandi.
íslensku stórmeistaramir Mar-
geir Pétursson og Helgi Ólafsson
fréttu af því í New York að Kasp-
arov hygðist tefla æfíngareinvígi
fyrir heimsmeistaraeinvígi sitt við
Ánatoly Karpov, sem fram fer í
London og Leningrad í sumar.
Margeir sagði að upphaflega hefðu
menn talið að Kasparov vildi tefla
við danska stórmeistarann Bent
Larsen. En nú hefur komið fram
að Kasparov kýs fremur að tefla
við Miles, þar sem skákstíll enska
stórmeistarans er líkari stfl
Karpovs. í framhaldi af þessu setti
Skáksamband íslands sig í sam-
band við Kasparov og umboðsmenn
hans og bauðst til að halda einvígið
hér á landi. Svarið var jákvætt.
Margeir Pétursson hefur haft
samband við breska aðstandendur
heimsmeistarakeppninnar, þá Ray-
mond Keene og Andrew Page. „Þeir
Keene og Page hafa tjáð mér að
Bretar treysti sér ekki til að halda
æfíngareinvígið til viðbótar við
sjálfa heimsmeistarakeppnina.
Vegna áhuga íslendinga hafa þeir
fyrir sitt leyti boðið okkur að halda
það,“ sagði Margeir. Að sögn
Margeirs hefur Kasparov fallist á
að tefla hér æfíngarskákir við bestu
skákmenn íslands, auk einvígisins
við Miles.
Margeir sagði að það væri tví-
mælalaust mikill ávinningur af því
að fá þetta einvígi hingað til lands:
„Kosturinn við slík æfíngareinvígi
er sá að þau em mjög ódýr í fram-
kvæmd miðað við einvígi í heims-
meistarakeppninni. Samt sem áður
kostar vart undir 1,2 milljónum
króna að halda slíkt einvígi, og það
verður ekki gert án utanaðkomandi
stuðnings.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ:
Áfengíshækkun nú
kemur mér á óvart
ÁFENGI og tóbak hækkaði í gær. Sterkt áfengi hækkaði að
meðaltali um 6-7%, en annars er hækkunin mjög mismunandi
eftir tegundum. Hækkun á tóbaki nemur um 7-8%. Þessi hækkun
áfengi og tóbaki hækkar visitölu framfærslukostnaðar um 0,22
til 0,23%.
Smimoff vodka hækkaði svo
dæmi sé tekið um 7%. Nú kostar
flaska af því 960 krónur en kost-
aði áður 900 krónur. Flaska af
Icy Vodka hækkar einnig um 7%.
Hún kostar nú 940 krónur en
kostaði áður 880 krónur. Vodka
Wyboróva hækkar hins vegar
aðeins um 1%. Flaska af því kost-
aði áður 860 og hækkar í 870
krónur.
Ballantines viskí hækkar úr
1030 krónum í 1100 krónur eða
um 7%. Bacardi romm hækkar úr
1000 krónum flaskan í 1030 eða
um 3%. íslenskt brennivín hækkar
ekki og kostar áfram 740 krónur
flaskan. Hennesy koníak hækkar
um 12% og kostar flaska af því
nú krónur 1220 en kostaði áður
1090 krónur.
Bandarískt hvítvín, Paul Mas-
son Chabiis, hækkar um 10%.
Flaska af því kostaði áður 290
krónur en kostar nú 320 krónur.
Franskt Chablis hvítvín hækkar
um 19%. Það kostaði áður 530
krónur flaskan, en kostar nú 630.
Þýsku hvítvínin hækka mismun-
andi mikið. Til dæmis hækkar
Blue Nun um 4% , en Liebfraum-
ilch Anhauser um 17%. Það fer úr
240 krónum í 280 krónur.
Franska rauðvínið St. Emelion
sem kostaði áður 400 krónur
hækkar nú í 480 krónur eða um
20%.
Tóbak hækkar að meðaltali um
7-8%. Algengustu vindlingateg-
undimar, eins og Winston, hækka
úr 85,10 pakkinn í 90,30. Ódýrari
tegundimar, t.d. Gold Cost,
hækka úr 72,20 krónum pakkinn
í 79,50. Ódýmstu sígarettumar
hækka úr 67,80 í 76,10 krónur.
Pakki af London Docks vindlum
kostar nú 137 krónur en kostaði
áður 121 krónu. King Edward
smávindlar kostar nú 65,10 krón-
ur pakkinn en kostaði áður 61,25.
Höskuldur Jónsson forstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins sagði að ástæður fyrir hækk-
uninni væm þær að innkaupsverð
á áfengi og tóbaki hefur hækkað.
Sérstaklega á það við um Evr-
ópuvínin. Hækkunin nemur 3-13%
frá því í nóvember 1985 er áfengi
og tóbak var hækkað síðast.
Önnur ástæða væri sú að skatta-
tekjur ríkisjóðs eiga að aukast
samkvæmt fjárlögum.
Morgunblaðið leitaði álits
þeirra Vilhjájms Egilssonar hag-
fræðings VSÍ og Ásmundar Stef-
ánssonar forseta ASÍ á hækkun-
inni:
Vilhjálmur sagði: „Mér fínnst,
að skynsamlegra hefði verið að
bíða með hækkun, a.m.k. eitthvað
fram í næsta mánuð. Samkvæmt
samningunum má framfærsluvísi-
talan hækka um 1,16% í apríl.
Það er vitað, að t.d. húsnæðislið-
urinn og bflatryggingar hafa áhrif
til hækkunar og því fleiri sem
svona hækkanir verða, því meiri
hætta er á, að vísitalan fari yfír
strikið. Því hefði ég talið áhættu-
minna fyrir ríkissjóð, að beðið
hefði verið með hækkunina."
Ásmundur sagði: „Ég verð að
segja, að það kemur mér á óvart,
að þessi hækkun skuli koma núna.
Hún hefur bein áhrif á fram-
færsluvísitöluna og getur valdið
því að hún hækki umfram það sem
áætlað var í kjarasamningunum.
Ef svo fer kemur til kasta launa-
nefndar sem samningsaðilar skipa
og hún metur hvaða launahækkun
skuli koma á rnóti."