Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 23. APRÍL1986 Ný o g merkileg* íslandssaga eftir Hákon Bjarnason Björn Þorsteinsson: Island. Bergsteinn Jónsson og Helgi Skúli Kjartansson aðstoðuðu við útgáfuna. Þýdd á dönsku af Preben Meulengracht-Sörensen. Gefin út af Politikens forlag. Kaupmannahöfn 1985. Loks kom að því, að söguþjóðin íslendingar eignaðist samfellda íslandssögu, allt frá upphafí land- náms og fram á síðasta áratug. Ég get ekki látið undir höfuð leggjast að vekja athygli á þessari bók, enda þótt ég sé enginn sagn- fræðingur. Hinsvegar hef ég gaman af sögu og sögnum, og má það vera til afsökunar. Þessi íslandssaga er rituð og sett fram á annan hátt en vani hefur verið í eldri bókum um sama efni. Sögubækur þær, sem kennd- ar voru á skólaárum mínum og um mörg ár eftir þau, brugðu glæstum ljóma á fomaldarhetjur, lýstu yfírgangi norskra konunga, sem loks náðu landinu undir sig, og síðan var sagt frá íslenskum ofurmennum á ýmsum öldum. Svo lenti norska krúnan undir þá dönsku, og þá fór heldur betur að halla undan fæti fyrir íslend- ingum með tilkomu einokunar- verslunar og einveldi konungs, sem ekki gat raknað úr nema með harðfylgi og einarðri framkomu einstakra manna. Ennfremur var svonefndri íslenskri menningu mjög hampað, sem ómetanlegu framlagi til heimsmenningarinn- ar, og þar fram eftir götunum. Ari fróði segir svo í íslendinga- bók að: „þá er skylt að hafa það heldur, er sannara reynist." I þessari bók Bjöms Þorsteinssonar er skýrt frá orsökum og tildrögum þess, hvemig landinu var stjómað á ýmsum tímum, og þá kemur ýmislegt upp á teningnum, sem menn hafa ekki vitað eða aðeins rennt gmn í. Eins og sést á bókartitli er bókin rituð fyrir danska lesendur og er hún einn þáttur í Dan- merkursögu þeirri er Politikens Forlag gefur út. Er það síst að furða að Danir þurfi að vita eitt- hvað um sögu okkar. Þjóðimar lutu sama konungi í 582 ár, sem er röskur helmingur af allri ævi íslensku þjóðarinnar. Tengsl þjóð- anna voru ærið misjöfn á ýmsum tímum. Framan af nokkuð losara- leg, en hertust síðar allmjög áður en úr raknaði. Bókin er alls röskar 300 blað- síður í stóru broti (24x16 sm) og er frágangur allur mjög vandaður. Hún skiptist í 20 kafla, sem gerir hana auðlæsari en ella. Fyrstu 8 kaflamir fjalla um landnámið, goðaveldið, kristnitökuna, deilur stórhöfðingja, ásælni kirkjunnar og loks uppgjöf fyrir norska kon- ungsvaldinu. Tímabilið frá 1262 til 1400 nefnir Bjöm norska tím- ann. Þá voru erlendir biskupar sendir til að treysta konungsvaldið en stórbændur stóðu fastir á sínu meðan þeir máttu. En þá óx út- gerðin og skreið varð útflutning- svara, sem bætti hag landsmanna. Tímabilið frá 1400 og fram undir siðaskiptin nefnir Bjöm Ensku öldina, og mun hann hafa rann- sakað það meira en aðrir. Á þessu skeiði stunduðu Englendingar og Þjóðveijar fískveiðar hér við land, en Danakonungar áttu fullt í fangi með að hafa nokkrar nytjar af landinu. Þegar hér er komið sögu drógu margir íslendingar físk ' fyrir þá erlendu, en stórbændur landsins gerðu allt hvað þeir megnuðu til að koma í veg fyrir þorpa- eða kaupstaðamyndun. Þegar nokkuð kemur fram á 16. öldina sögðu Danir skilið við páfann í Róm og það endaði með siðaskiptum á Islandi. Lentu þá kirkju- og klaustraeignir undir krúnuna og eftir það herti mjög að þjóðinni. Konungur seldi ís- landsverslunina á leigu og með því hófst hin illræmda einokunar- verslun. Nokkm síðar komst ein- veldið á og hélst fram á miðja 19. öld. Eins og flestir vita vom margir agnúar á einokunarversl- uninni, en þegar Danir buðust til að bæta úr vom það íslenskir stór- bændur, sem oftar en einu sinni lögðust á móti því að einokunin væri lögð niður eða miklar breyt- ingar á henni gerðar. Bjöm Þor- steinsson er ekki einn um að sýna fram á þessi atriði, heldur hefur og Lúðvík Kristjánsson gert þessu efni svipuð skil í bókinni Vestræna og komist að sömu niðurstöðu. Hugmyndir manna um að bölið og armæðan af einokuninni sé verk stjómenda í Danmörku em því rangar samkvæmt þessu. Eins og oft vill verða var fátæktin og armæðan heimatilbúinn vandi, og vom það stórbændur landsins sem héldu dauðahaldi í löngu stein- mnnið þjóðskipulag. Hákon Bjamason „En þessi bók á reyndar erindi til allra, sem hafa ein- hvern áhuga fyrir sögu þjóðarinnar. Að lestri ioknum gæti ég trúað að margir hug- suðu hvílíkt happ það var, að við vorum alla tíð undir mildum höndum Dana en lent- um ekki undir stjórn Englendinga.“ Hér á íslandi gekk hvorki né rak fram á miðja 18. öld. Þá hafðist danska stjómin handa um að efla ríkisheildina af öllum mætti. Þá var Harboe biskup sendur hingað til lands og upp frá því sendir danska stjómin menn til að rannsaka gögn og gæði landsins jafnframt þvl að kosta miklu fé til Innréttinganna í Reykjavík og útgerðar þaðan. Þá vom þær byggingar reistar, sem við eigum elstar nú, Hóla- kirkja, Stjómarráðshúsið og stof- umar í Viðey, á Bessastöðum og í Nesi. Eftir frelsishreyfíngamar, sem gerðu vart við sig í Danmörku í byijun 19. aldar, fór smám saman að losna um tengslin við Dani þótt hægt miðaði í fyrstu. Og eftir 1870 kom loks skriður á þau mál. Þá þætti sögunnar, frá 1870 til 1980, hafa þeir Berg- steinn Jónsson og Helgi Skúli Kjartansson skrifað. Hér hefur verið stiklað á stóm varðandi efni svo mikillar bókar sem þessi er. En framsetning efnis er yfirleitt mjög skýr og bókin er auðlesin öllum, sem aðeins kunna að vera stautfærir f dönsku. Val mynda í bókinni er ekki nægilega gott, en lesmálið stendur fyrir sínu. Væntanlega verður bókin þýdd á íslensku, en hvað sem því líður, þá er hún ágæt lesning fyrir þá, sem em í framhalds- eða æðri skólum landsins. En þessi bók á reyndar erindi til allra, sem hafa einhvem áhuga fyrir sögu þjóðarinnar. Að lestri loknum gæti ég trúað að margir hugsuðu hvílíkt happ það var, að við vomm alla tíð undir mildum höndum Dana en lentum ekki undir stjóm Englendinga. Höfundur er fyrrverandi skóg- ræktarstfóri. Kvenfélag Seltjarnarness: Hin árlega kaffisala á sumardaginn fyrsta Hin árlega kaffisala kvenfé- lagsins Seltjamar verður á morg- un, sumardaginn fyrsta, í félags- heimilinu á Seltjamamesi. Húsið verður opnað kl. 14.30. Lúðrasveit tónlistarskóla Seltjam- amess mun leika nokkur lög í upp- hafí fyrir kaffígesti. Einnig mun skólakór Seltjamamess syngja. Þá verður sölusýning á handavinnu aldr- aðra á jarðhæðinni að Melabraut 5-7 og byijar hún kl. 14.00. Á þessu 17. starfsári félagsins hefur það látið mjög til sfn taka í bænum, segir í tilkynningu frá félag- inu. Félagskonur héldu jólatrés- skemmtun fyrir böm að venju, buðu eldri bæjarbúum í ferð að Sólheimum í Grímsnesi, sáu um hátíðarhöldin 17. júní, gróðursettu tijáplöntur í nágrenni Valhúsaskóla, aðstoðuðu við þorravöku aldraðra og fleira. Þá lögðu félagskonur til 20.000 krónur vegna söfnunar Kvenfélagasam- bands íslands til kaupa á geislalækn- ingatæki fyrir kvennadeild Landspít- alans og þann 1. desember sl. var sóknamefnd Seltjamamessóknar afhentar 150.000 krónur vegna kirkjubyggingar í kaupstaðnum, en 25% af nettótekjum félagsins renna í kirkjubyggingarsjóð. Þá voru Strengjahljómsveit Tónlistarskólans og björgunarsveitin Albert styrktar fjárhagslega. .1. Kjöthitamælinum er stungið í þykkan fitulausan vöðva. Þegar steikin er orðin mátuleg skýst pinni upp úr mælinum. Kjöthitamæli fylgir öllum lambalærum Sláturfélagsins SLÁTURFÉLAG Suðurlands lætur nú kjöthitamæla fylgja öllum lambalærum frá SS. Mælirinn sýnir með einföldum hætti hvenær æski- legum steikingartfma í ofni er lok- ið. Kjöthitamælirinn er ókeypis og einnig verður dreift bæklingi með leiðbeiningum um notkun hans. Er þetta liður í viðleitni Sláturfélags- ins til að auka áhuga fólks á ís- lenska lambakjötinu. í frétt frá Sláturfélaginu segir að sérfræðingar í matreiðslu á kjöti hafi komist að því að kjöt haldist safaríkt og Ijúffengt við steikingu ef kjarnahiti þess fer ekki yfir um það bil 73 gráð- ur. Verði hitastigið hærra tapa vöðva- þræðir kjötsins eiginleikum sínum til að binda vatn, safmn lekur út og kjötið verður of þurrt. Mælirinn á að tryggja að þetta komi ekki fyrir. Honum er stungið í kaf í þykkan fitu- lausan vöðva áður en kjötið er sett í ofn og þegar réttu hitastigi er náð skýst pinni upp úr mælinum. Gefur það til kynna að steikin sé þá tilbúin á borðið. Sláturfélagsmenn segja að árangurinn verði bestur ef notað er vel meyrt kjöt og ofninn stilltur á vægan hita. I frétt Sláturfélagsins segir einnig: Sláturfélagið vonast eftir að með til- komu mælisins megi örva áhuga fólks fyrir íslenska lambakjötinu. í sam- vinnu við sérfræðinga kjötvinnslu Sláturfélagsins hafa sunnlenskir bændur leitast við það á undanfömum árum að framleiða eins fítulítið og kjamgott kjöt og kostur er. Markmiðið er að koma til móts við óskir og þarfir sem flestra neytenda. A SANITAS TÓMATSÓSA A M. VEIJUM ÍSLENSKT 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.