Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986 5 Þjóðhagsstofnun: Halli á ríkissjóði verður að minnsta kosti 1500 m.kr. Líklegra að raunvextir hækki fremur en lækki ÞJÓÐHAGSSTOFNUN gerir ráð fyrir að rekstrarhalli ríkissjóðs á þessu ári geti numið að minnsta kosti 1500 milljónum króna eða rúmlega 1% af landsframleiðslu. Endurskoðun fjárlagaáætlunar fyrir yfirstandandi ár gerir ráð fyrir 7% lægri tekjum, en 2—2.5% lægri gjöldum, er fjárlög gera ráð fyrir. Ríkisstjórnin stefnir að þvi að afla aukins fjár með lántökum innanlands utan bankakerfisins og Þjóðhags- stofnun telur að það dragi úr þensluáhrifum, en leiði til þess að raunvextir hækki fremur en lækki samkeppni um sparifé landsmanna. í riti Þjóðhagsstofnunar, Ágrip úr þjóðarbúskapnum, segir að halli á ríkissjóði stefni í hættu þeim markmiðum um hjöðnun verðbólgu og lækkun viðskiptahalla, sem aðil- ar vinnumarkaðarins og stjómvöld stefna að, með aukinni eftirspum innanlands. í kjölfar kjarasamninga breyttust verðlags-, launa-, og gengisfor- sendur fjárlaga. Þannig er talið að tekjur ríkissjóðs lækki um 2.600 milljónir króna frá því sem reiknað var með í fjárlögum. Útgjöld lækka hins vegar ekki nema um 900 millj- ónir króna. Þjóðhagsstofnun bendir á að þróun ríkisijármála á þessu ári sé háð nokkurri óvissu, ekki síst vegna lækkunar aðflutningsgjalda af bflum og lækkun skatta. Bráða- birgðatölur úr ríkisbókhaldi um afkomu ríkissjóðs á fyrsta ársfjórð- ungi þessa árs sýna 1.800 milljóna króna rekstrarhalla. Þetta er 5% á áætluðum tekjum ríkissjóðs. Þessi halli á sér skýringar, s.s. óvenjulega miklar greiðslur útflutningsbóta og auknar niðurgreiðslur búvara, mikil vaxtagjöld og töf á innheimtu tekna. Þó úr þessum áhrifum dragi, telur Þjóðhagsstofnun að afkoma ríkissjóðs verði erfið á árinu og bendir fátt til að hún vænkist. Þess má geta að rekstrarhalli ríkissjóðs á síðasta ári var samkvæmt bráða- birgðatölum 2.400 milljónir króna (2% af landsframleiðslu) og er þetta nálagt þrefalt meiri halli en fjárlög 1985 gerðu ráð fyrir. í árslok 1985 námu erlendar lán- tökur opinberra aðila 4.800 milljón- um króna eða 400 milljónum um- fram lánsijáráætlun. Hins vegar varð lánsfjáröflun innanlands meiri en ráð hafði verið fyrir gert eða 3.400 milljónir króna og munar mest um lántökur hjá Seðlabanka. Lánsfjáröflun opinberra aðila (brúttó) var því 7,5% af lands- framleiðslu. Lánsfjárlög þessa árs reikna með 5.500 milljóna króna lántökum. Þessi fjárhæð hækkaði hins vegar við endurskoðun Þjóðhagsstofnunar í 6.800 milljónir og er fyrirhugað að afla 3.500 milljóna króna innan- lands. Nemendur Dalvíkurskóla um borð í Mimi RE 3 i Dalvíkurhöfn. Skólaskipið Mímir RE 3 á Dalvík Dalvík. UNDANFARNA daga hefur skólaskip okkar íslendinga haft viðdvöl á Dalvík í sambandi við kennslu á sjóvinnubraut við 9. bekk Dalvíkur- skóla, en þá valgrein hefur skólinn boðið nemendum upp á síðastlið- in 12 ár. Mánudaginn 10. apríl kom til Dalvíkur skólaskipið Mímir RE 3 sem er 15 tonna plastbátur, sam- eign Hafrannsóknastofnunar, Há- skóla íslands og Fiskifélags ísland. Það er Fiskifélagið sem hefur haft veg og vanda af þessari starfsemi og sér það um útgerð skips og til- högun á þeirri kennslu sem nem- endur grunnskóla vítt og breitt um landið fá í sjómannafræðum. Á Dalvík eru 14 nemendur á sjó- vinnubraut í vetur, auk 10 nemenda á 1. stigi stýrimannastigs sem veitir 200 tonna réttindi til skipstjómar. Nemendur í 9. bekk hafa lokið prófi til 30 tonna skipstjómarréttinda og em auk þess í alls konar verklegri kennslu þessu viðkomandi. Enda- hnúturinn er svo hnýttur á kennsl- una með komu þessa báts hingað. Famar vom tvær dagssjóferðir með nemendur, þar sem þeim var sýnd og kennd meðferð á hinum nýjustu siglinga- og fiskleitartækj- um. Þá vom lögð og dregin þorska- net og rennt var fyrir fisk með rafmagnsfærarúllu. Einnig vom lagðar krabbagildmr á gmnnmið- um, en lítil veiði var af trjónu- krabba. Slíka kennslu hefðum við íslend- ingar átt að vera búnir að taka upp löngu fyrr fyrir þá sem hyggjast leggja fyrir sig sjómennsku eða kynnast henni. Þá þyrftu þetta að vera lengri sjóferðir, en skip af þessari stærð gefa ekki tilefni til mikilla umsvifa. í áhöfn Mímis RE 3 em þeir Þórður Karlsson skipstjóri og Ólaf- ur Bjamason vélstjóri. Prýðismenn að sögn nemenda og má fullvíst telja að mikið velti á góðum mönn- um ef vel á að takast til í byijun hjá hinum ungu sjófarendum, því lengi býr að fyrstu gerð. Fréttaritarar. Hafnarfj ör ður: Sérkjaraviðræður fari strax í gang — segir varaformaður Hlífar „ÞÓTT bæjarráð hafi hafnað viðræðum við okkur um „Bolungarvík- ursamkomulag" þá höfum við enn ekki fengið svar um hvort og hvenær bæjarráð ætlar að taka upp viðræður við félagið um nýjan viðaukasamning í stað þess, sem felldur var af verkamönnum hjá Hafnarfjarðarbæ á dögunum," sagði Sigurður T. Sigurðsson, vara- formaður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði, í framhaldi af synjun bæjarráðs á ósk Hlífar um viðræður um fyrrgreint samkomu- lag. Sigurður kvaðst vera hissa á að bæjarráð hefði enn ekki svarað ósk félagsins um nýjar viðræður. „Ég sé ekki betur en að ég verði að gera þeim annað tilskrif því hug- mynd okkar um að reyna T>('h)i)g- arvíkurleiðina" á ekkert skylt við þær smávægilegu lagfæringar, sem gerðar eru með þeim viðaukasamn- ingum sem tíðkast hafa lengi,“ sagði hann. Fagnið sumrinu . með. grillveislu! Glæsilegt úrval af grillmat — steikur og pinnar — nautakjöt og svínakjöt Lambakjöt í 1/1 skrokkum án slaga, en með ljúffengum bjúgum Grillkol 3 kg. 25800 ... Við fognum sumn með smápartý í Mjóddinni frá kl. 4 í dag - þar bjóðum við grillaðar pylsur og géfum bömunum íspinna og gos. SALATBAR Sumarle^t úrval af nýjum ávöxtum og ______grænmeti. Q§|í|y AUSTURSTRÆTI 17 - MJÓDDINNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.