Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1986 45 Soffía G. Vagns- dóttir Minning Fædd 28. apríl 1897 Dáin 15. apríl 1986 Hún er farin á undan okkur, þessi hetja hversdagsleikans, sem skilaði hljóðlátu og dyggu ævistarfi með sæmd og prýði. Soffía Guðrún Vagnsdóttir fædd- ist á Hesteyri í Sléttuhreppi þann 28. apríl 1897, einkabam hjónanna Margrétar Guðmundsdóttur og Vagns Benediktssonar bónda. Þann 6. september 1922 giftist hún heið- ursmanninum Guðmundi Jóni Guð- mundssyni, bónda og útgerðar- manni á Hesteyri. Hjónaband þeirra var sterkum böndum bundið í ást, kærleika og trúnaðartrausti alla tíð. Bæði höfðu þau göfugt hugarfar og margir voru þeir sem nutu góðs af höfðingsskap þeirra. Þeim varð ekki bama auðið, en þau tóku í fóstur nokkur munaðarlaus böm, ólu þau upp og unnu þeim sem væm þau þeirra eigin. Umhugsunin um aðra var þeirra sterkasti eigin- leiki. Haustið 1950 lögðu þau hjónin niður búskap og fluttu til Reykja- víkur. Voru þau næstsíðustu íbú- amir á Hesteyri. Þann 27. október 1971 dró dökkt ský fyrir sólu, er Guðmundur Jón var kallaður burt úr þessum heimi. Soffía stóð þá ein eftir og bjó alein í litla húsinu þeirra við Þrastargötu 7B í Reykjavík. Soffía var félagslynd að eðlisfari og gerðist því brátt meðlimur í ýmsum samtökum, svo sem Al- þýðuflokknum, Stórstúku íslands og Kvenfélagi Heimilissambands- ins. Auk þess var hún stofnfélagi Átthagafélags Sléttuhrepps. Hún hafði mikinn og traustan persónu- leika og var ófeimin við að segja sannleikann, tók alltaf málstað þeirra er minna máttu sín og var ákaflega næm á heiðarleika fólks. Hún hafði yndi af bókum, blómum og bömum og unni öllu því sem gott var og fagurt. Árin liðu. Vinum og kunningjum fækkaði og æ færri mundu eftir gömlu konunni með fallega hvíta hárið, sem bjó ein í litla húsinu við Þrastargötu 7B. En það sem menn- imir sjá ekki, það sér Guð. Blessuð sé minning hennar. Björg B. Sigurðardóttir í dag kveðjum við þessa sóma- konu. Og minningamar koma upp í hugann þegar ég í æsku dvaldi hjá ömmu og afa á Grímstaðarholtinu. Hún var mikill mannvinur og gat ég alltaf leitað til hennar þegar eitthvað var að. Soffía G. Vagnsdóttir var fædd 28. apríl 1897 og var dóttir hjón- anna Vagns Benediktssonar og Margrétar Guðmundsdóttur og var hún eina bam þeirra hjóna, hún ólst upp á Hesteyri og átti þaðan sínar ljúfu bemskuminningar. Þegar Soffía var 18 ára fór hún til ísafjarðar, vann þar í mörgum vistum. 7. september 1923 þegar Soffía var 26 ára kvæntist hún Guðmundi Jóni Guðmundssyni frá Hesteyri og bjuggu þau hjón saman á Hesteyri frá 1923—1950, þegar þau fluttust suður til Reykjavíkur. Leigðu þau fyrst á Grundarstíg þar til þau kaupa sér lítið og snoturt hús á Grímstaðarholtinu. Þeim hjónum varð ekki barna auðið og tóku þau að sér 3 fósturböm, 1 son og 2 dætur. Var Soffía mikill barna og dýravinur, og hafði hún sérstaka ánægju af blómarækt og náttúm- skoðun. Hún var virkur félagi í mörgum félagasamtökum og hafði mikla ánægju af öllu félagsstarfí. Soffía var mjög ung þegar hún mótaði sér ákveðna stefnu í pólitík og bindindismálum. Hún var mjög trúuð og hún var natin við að miðla trú sinni meðal okkar bamanna, hún las mikið af bókum og þar á meðal úr Biblíunni fyrir okkur börnin og minnist ég eins vers sem hún las fyrir mig og sagði hún að það væri eitt af uppáhalds versum sínum: „Stutta stund er ljósið á meðal yðar, gangið meðan þér hafíð ljósið Til þess að myrkrið komi ekki yfíryður og sá sem gengur í myrkrinu veit ekki hvert hann fer.“ Blessuð sé minning hennar. Guðmundur Jón Jónsson Soffía Guðrún Vagnsdóttir, fyrr- um húsfreyja í Heimabæ á Hesteyri í Jökulfjörðum, hafði mikið dálæti á ættfræði sveitunga sinna og kunni á henni betri skil en almennt gerist. Soffía lagði fram ómælda vinnu í samningu Sléttuhreppsbókar, ómetanlegt framlag, sem aldrei verður fullþakkað. Óvenjuleg frændrækni var henni og í blóð borin sem hún rækti af heilum huga, hún var fylgin sér og auðsýnilega mikið kappsmál. Einn af dugmestu höfðingjum SléttuhreppS 18. aldar og nú ætt- faðir margra þjóðkunnra manna og kvenna var Snorri Einarsson í Höfn, f. 1730, d. 1785, dugmikill, ötull, árvakur og vandaður maður að allri breytni, vel ættaður, auðugur og vitur. Snorri var sterkvaxinn, gæddur miklum líkamlegum burð- um, enda í nágrenni íshafsins, umkringdur af náttúrunni stór- hrikalegri, hár á vöxt og tígulegur á velli, sterkur og vel glíminn eftir því. Allt sem dapurt var rýmdi fyrir glaðværðinni. Gæddur þeirri guðs- gjöf að hafa lækningagáfu og var skyggn. Snorri var vinsæll. Hans verður lengi getið í ættfræðiritum sökum barneigna. Hann var þrí- kvæntur, síðasta kona hans var Sólveig Pétursdóttir frá Kollsá í Grunnavíkurhreppi. Sólveig var vel að mannkostum búin, samtaka manni sínum í góðgerðarsemi og líknsemi. Soffía Guðrún Vagnsdóttir á Hesteyri var einörð og ákveðin og hikaði ekki við að segja það sem í bijósti bjó um menn og málefni. Hinum mörgu frændum hennar og vinum duldist ekki, þegar sem mest lá á, hvað trúir og sannir eiginleikar réðu orðum og gerðum þessarar heiðurskonu. Kynni mín af frændkonu minni voru löng, eða allt frá því að móðir mín og ég heimsóttum Hesteyri saman fyrir 40—50 árum, rétt áður en í byggðinni fór að fækka. Eg minnist glaðværðarinnar og gest- risninnar á heimili Soffíu og Guð- mundar Jóns á Hesteyri og Gríms- staðaholti í Reykjavík. Eiginmaður Soffíu var Guð- mundur Jón Guðmundsson bóndi og hreppsnefndarmaður á Hesteyri. Guðmundur Jón var einstakur maður að allri gerð sakir góð- mennsku, dugnaðar og framtaks, glaður, ræðinn og skemmtilegur í tali, hjálpsamur og örlyndur við þá sem bágt áttu. Guðmundur Jón dó 27. október 1971 og höfðu þau Soffía þá verið í hjónabandi í 48 ár. Soffía og Guðmundur Jón voru einstaklega barnelsk en varð því miður ekki bama auðið, en um- hyggju þeirra og hlýju nutu 3 fóst- urbörn og eru hér talin í aldursröð: Friðgeir Guðmundsson í Kópavogi, Guðrún Ólafía Ámadóttir, Seltjam- amesi og Björg B. Sigurðardóttir í Kópavogi. Soffíu var það mikils virði að eiga góða að er sýndu henni alúð og hlýju er degi fór að halla. Fóstur- börnin og bamabörnin urðu henni miklir gleðigjafar, en mestrar unun- ar naut í hópi þeirra. Tengdasonur- inn Jón sýndi henni sérlega mikla umhyggju, sem lofsvert er og þakka ber við vegamót. Soffía bar orðstír dugnaðar, holl- ustu og trúfesti. Þakka ég henni smfylgd og allar hinar fróðlegu ættfræðiupplýsingar um frændur í Jökulíjörðum og á Homströndum. Helgi Vigfússon Nú fer hver að verða síðastur að komast í miDahópinn okkar í vetur! Aðeíns tvær vikur eftir. * *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.