Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 23.04.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986 63 Brenndiafvítiá síðustu mínútu — og Bremen og Bayern skildu jöfn í gærkvöldi Frá Jóhsnni Inga Gunnarssyni, frétta manni Morgunblaftsins I Þýskalandi. WERDER Bremen og Bayern Múnchen gerðu markalaust jafn- tefli í hörkuspennandi uppgjöri efstu liðanna hór í gœrkvöldi. Litlu munaði þó að Bremen tœk- ist að vinna og tryggja sér meist- aratitilinn, því aðeins tveimur mfnútum fyrir leiksiok fókk Brem- en vitaspyrnu, en Kutzop skaut í stöngina og afturfyrir. og margsýnt var í sjónvarpinu hér eftirleikinn. Bremen sótti meira framan af leiknum og áttu að minnsta kosti þrjú þokkaleg færi en Pfaff varði frábærlega. Þegar líða tók á leikinn kom Bayern meira inn í myndina og í síðari hálfleik átti Mattheus skot úr aukaspyrnu sem Burdenski náði að verja á ótrúlegan hátt. Jafntefli var sanngjarnt og það hefði verið hörmulegt ef vítaspyrn- an hefði ráðið úrslitum því hún var dæmd á hendi, sem alls ekki var hendi. Rudi Völler, sem skömmu áður hafði komið inná sem vara- maður, átti skot að marki Bayern sem kom við Sören Lerby, og dóm- arinn, sem annars hafði dæmt erfiðan leik mjög vel, lét stjórnast af hrópum hinna 40.000 áhorfenda í Bremen og dæmdi víti. Knötturinn fór hinsvegar í höfuð Lerby, eins Eftir þessi úrslit er Ijóst að það ræðst ekki fyrr en um helgina hvaða lið verður vestur-þýskur meistari. Þá leikur Bremen í Stutt- gart og Bayern á heimavelli gegn Mönchengladbach. Bayern hefur hagstæðari markatölu, þannig að Bremen verður að tryggja sér stig í Stuttgart til að vera öruggt um titilinn. Paul Breitner sem var aðstoðarþulur í beinni útsedningu þýska sjónvarpsins frá leiknum í gærkvöldi, sagfði að Stuttgart-liðið gæti reynst of gott um þessar mundir fyrir Bremen, og að vel gæti svo farið að Bayern ynni titil- inn annað árið í röð. Heil umferð var leikinn í vestur- þýsku knattspyrnunni í gærkvöldi. Bayer Uerdingen hélt áfram sigur- göngu sinni og vann að þessu sinni Borussia Mönchengladbach á úti- velli. Lárus Guðmundsson skoraði annað markið í 1:2-sigri. Stuttgart tapaði hinsvegar sínum fyrsta leik í langan tíma. Liðið lék í Leverkus- en og tapaði 2:1 í alveg frábærlega vel spiluðum leik. Klinsmann skor- aöi mark liðsins. Staða efstu liða í Þýskalandi er nú þessi: Werder Bremen 33 22 9 4 82-39 49 Bayem Munchen 33 20 7 8 76-31 47 Mönchengladbach 33 16 12 6 86-46 42 Bayer Uerdingen 33 16 7 8 67-68 41 Stuttgart 33 16 7 10 67-44 39 Bayer Leverkuraen 33 16 9 9 81-49 39 Hamburger SV 33 16 6 12 61-36 37 B-keppnin í Belgíu: Fimm leikir á fimm dögum — og allir gegn mjög sterkum körfuknattleiksþjóðum Víðavangshlaup IR RÚMLEGA eitthundrað manns höfðu f gær skráð sig til þátttöku í 71. Víðavangshlaupi ÍR, sem háð verður á morgun, sumardaginn fyrsta, og stefnir þvf f metþátt- töku f hlaupinu. ÍR-ingar hafa ákveðið að framlengja skráning- arfrest til þess að sem flestir eigi kost á að hlaupa þetta sögufræga hlaup. Geta menn þvf haft sam- band við Guðmund Þórarinsson f s. 10082 f dag eða mætt í port Miðbæjarbarnaskólans klukkan 13 á sunnudag þar sem númer verða afhent og tekið á móti þátt- tökugjaldi, sem er 200 krónur. KR vann KR vann Fylki f Reykjavfkurmótinu í knattspyrnu f gærkvöldi 2:1. Júl- íus Þorfinnsson og Steinar Ingi- mundarson skoruðu fyrir KR og Oskar Theódórsson fyrir Fylki. • Mikið mun mæða á Pálmari Sigurðssyni f B-keppninni f Belgfu. FIMM leikmönnum hefur verið bætt við landsliðshópinn f körfu- knattleik sem tekur þátt f B-keppni Evrópumótsins f Belgfu f næsta mánuði — þeim Tómasi Holton, Ragnari Torfasyni, Hreini Þorkelssyni, Sturla Örlygssyni og Kristni Einarssyni. Tólf manna hópur fer til Belgíu, þannig að búast má við að einhver þessara leikmanna falli úr hópnum aftur áður en haldið verður út. Pétur Guömundsson, okkar fremsti körfuknattleiksmaður er hinsvegar fjarri góðu gamni. „Hann er því miður ólöglegur ennþá með liðinu þar sem hann er atvinnumaður," sagði Kristinn Albertsson hjá Körfuknattleiks- sambandinu í samtali við Morgun- blaðið. „Það stendur til að breyta þessum reglum, og við vonumst jafnvel til að það verði gert nú um mánaðamótin maí-júní á alþjóð- legu körfuknattleiksþingi í Lond- on," sagði Kristinn. íslenska liðið leikur fimm leiki á fimm dögum í þessari B-keppni. Fyrsti leikurinn er við Pólland 16. maí og síöan er leikið á hverjum degi — við Svíþjóð 17. maí, Tyrk- land 18. maí, Ungverjaland 19. maí og við ísrael í síðasta leiknum 20. maí. Allir leikir keppninnar fara fram í sömu íþróttahöllinni í Liege, þrír leikirá dag, hverá eftiröðrum. Fjögur af þessum sex liðum í B-keppninni komast í sjálfa A-keppnina, sem hefst í Antwerp- en strax tveimur dögum eftir að B-keppninni lýkur. Ólíklegt verður að teljast aö íslendingar verði meðal fjögurra efstu. Samvinnuferðir-Landsýn eru að undirbúa hópferð fyrir körfuknatt- leiksunnendur á B-keppnina, en hana ber einmitt upp ó hvítasunnu- helgina. HM í Mexíkó: Eftirvænting í Danmörku Frá Gunnari Gunnarasynl, fréttamannl Morgunblaftsfna f Danmörku. GEYSILEG eftirvænting ríkir nú hór í Danmörku vegna þátttöku Dana f heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu f Mexíkó sem hefst eftir rúman mánuö. Fjöl- miðlar eru yfirfullir af efni um dönsku knattspyrnustjörnurnar og manna á meðal er vart um annað talað en möguleika liðs- ins íkeppninni. Dönsku landsliösmennirnir leika sem kunnugt er flestir með stórliðum víða í Evrópu. Þeir munu hittast í Kaupmannahöfn 1. maí næstkomandi og fara tveimur dögum síðar áleiðis til Kólumbíu þar sem liðið verður við æfingar í 2.800 metra hæð í þrjár vikur fyrir keppnina til að venjast þunna loftinu. Áður fara þeir í sérstakt „þunnaloftspróf" í Kaupmannahafnarháskóla, en þar hefur verið útbúinn sérstakur klefi þar sem líkt er eftir loftað- stæðum í Mexíkó. Gerðar verða ýmsar rannsóknir á hverjum ein- stökum leikmanni og kannað hvernig líkami þeirra bregst við súrefnisskortinum. Mjög mikið er fjallaö um mál- efni Flemming Poulsen í tengsl- um við þátttöku Dana í HM. • Sepp Piontek undirbýr nú danska knattspyrnulandsliðið fyrirHM fMexfkó. Poulsen er 19 ára og talinn eitt mesta knattspyrnuefni sem fram hefur komið í Danmörku á undan- förnum órum — og er þó af nógu að taka. Mörg stórlið bíða nú eftir að hann Ijúki menntaskóla- nómi og gefi kost á sér í atvinnu- mennskuna. Og það er einmitt nám hans sem er í sviðsljósinu. Poulsen á að vera í stúdentspróf- um á sama tíma og leikið er í HM, og Ijóst að hann getur ekki klárað þau ef hann fer með liðinu. Sepp Pinotek, landsliðsþjálfari, hefur hinsvegar sagt að hann vilji ekki gera stráknum það að taka hann frá náminu, þó hann vildi gjarnan hafa hann f lands- liðshópnum, og bætir jafnan við að Poulsen muni hvort eð er aðeins verða varamaður. En Poulsen vill sjálfur ólmur fara til Mexíkó, enda einstakt tækifæri, og segist vel geta klárað skólann seinna. Pinotek er því í hlutverki pabbans — það er hans að ákveða hvað er drengnum fyrir bestul Um 50 danskir leikmenn eru í atvinnumennsku víða um heim og heima fyrir eru fjölmargir ungir og efnilegir leikmenn, eins og Poulsen, og eldri stjörnur eins og Allan Simonsen. Pinotek vantar því ekki mannskap. Það er til marks um styrkleika hóps- ins að talinn er vafi á því að pláss verði fyrir Simonsen í hópnum, og jafnvel Jesper Olsen er engan veginn öruggur um sæti í 22 manna hópnum sem fer til Mex- íkó. getrauna- VINNINGAR! 34. leikvika - leikir 19. apríl 1986 Vinningsröð: 1 2 X-1 2 1-X 2 1-1 X X 1. vinningur 12 réttir: kr 385.525,*. 73655(4/11) 95667(6/11) 2. vinningur 11 réttir: Kr. 5.697,- 10557 66499 71307 95664 97369 40681 68386+ 73626 95666 103740 42344 68396+ 73765+ 95668 104251 45040 69622+ 95505 95676 104287 52386* 70872+ 95586 95685 104305 58890 71224 95640 95694 104309 59705 71229 95661 95806 125401 *=2/11 Kærufrestur er til mánudagsins 12.maí1986 kl. 12.00 áhádegi. 125718 133735+ 126275 133736+ 126646 130034 Úr31.vlku: 130950*+ 75391 131801* 133734+ íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð lást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna tyrir lok kærufrests.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.