Morgunblaðið - 23.04.1986, Síða 30

Morgunblaðið - 23.04.1986, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRlL 1986 Marcos svartsýnn: Spáir kommún- istum sigri innan mánaðar Manila. AP. FERDINAND Marcos, fyrrum forseti Filippseyja, fullyrti i sjón- varpsviðtali i gær, að nýja stjórnin á Filippseyjum myndi bíða ósigur fyrir uppreisnarmönnum kommúnista og falla innan mánaðar. Forsetinn fyrrverandi sagði enn- hve mikils stuðnings hann nyti fremur, að múhameðstrúarmenn hollir einum af helztu stuðnings- mönnum hans, Ali Daimaporo, á hinni stóru eyju, Mindanao, væru tíu sinnum fleiri en hermenn stjórn- arinnar þar. Hélt Marcos því fram, að þriðjungurinn af herliði stjórnar- innar hefði hætt störfum og haldið til heimila sinna, síðan hann lét af embætti 25. febrúar sl. Marcos sagði, að stuðningsmenn sínir væru að undirbúa mikinn úti- fund í Manila 1. maí nk. til þess að sýna andstöðuna við Aquino en jafnframt til þess að sýna fram á, áfram með þjóðinni. Bæði stuðningsmenn Marcosar og kommúnistar herða nú andstöðu sína við stjóm Aquino forseta. Hún tilkynnti um helgina, að hún hygðist eftir sem áður reyna að koma á vopnahléi þrátt fyrir harðnandi ár- ásir kommúnista á hermenn stjóm- arinnar. Hún varaði einnig stuðn- ingsmenn Marcosar við því að standa í vegi fyrir viðleitni sinni til að koma á friði í landinu og sagði: „Stjómin er friðarstjóm, en hún er ekki án vopna." Vladimir Horowitz veifar til áheyrenda á einleikaratónleikum sínum í Moskvu á mánudagskvöld. Moskvubúar fagna Horowitz með tárum og húrrahrópum Grænland: Bændur varaðir við laxa- hafbeit Kaupmannahðfn. Frá Nils Jörgen Bruun, Græniandsfréttaritara Morgimbiaðsins. BÆNDUR á Suður-Grænlandi hafa verið varaðir við að reyna að drýgja tekjumar með því að koma upp hafbeitarstöðvum fyr- ir lax. Vegna hrunsins á laxa- markaðnum séu slíkar tilraunir dæmdar til að mistakast. Mogens Wichrauch, fulltrúi Roy- al Greenland, stjómarstofnunarinn- ar, sem sér um útflutningsmálin fyrir landsstjómina, sagði í viðtali við grænlenska útvarpið, að ekkert vit væri í því fyrir sauðfjárbændur á S-Grænlandi að rejma að auka tekjur sínar með því að koma upp hafbeitarstöðvum. Laxamarkaður- inn væri hroninn saman og fengjust nú ekki nema 30 d.kr. (rúm. 150 kr. ísl.) fyrir kílóið. Um áramótin var verðið í 60 kr. Á síðasta hausti voro 800 tonn af laxi veidd við Grænland og var mest allur fiskurinn seldur áður en verðið féll. Enn ero þó 50 tonn eftir óseld. Verðhronið stafar af miklu framboði á laxi og einkum frá Noregi. PÍANÓLEIKARINN Vladimir Horowitz kom fram í Moskvu á mánudag og heillaði áheyrendur með stórkostlegum leik sínum. Margir grétu af fögnuði þegar tónleikunum lauk. Þetta voru fyrstu tónleikar Horowitzs í Sovétrílqunum frá því hann fór þaðan fyrir sextíu og einu ári til að öðlast frægð og frama á Vesturlöndum. Horovitz er nú átta- tíu og eins árs. • Vinir hljóðfæraleikarans sögðu að hann hefði ekki leikið jafn vel og í Moskvu í nokkur ár. Flutning- urinn hafi verið skýr og Horowitz hafi virst tengjast fyrrom samlönd- um sínum tilfinningaböndum. Margir áhorfenda hrópuðu upp yfir sig af hrifningu þegar Horowitz íék verk eftir Rachmaninov og Scriabin og einnig brotust út fagn- aðarlæti þegar hann spilaði aftur verk eftir Schumann. Lófatak áhorfenda var slíkt þeg- ar tónleikunum lauk að undir tók í höllinni og var Horowitz þrisvar kallaður aftur að flyglinum og sex sinnum klappaður upp á svið eftir það. Þegar Horowits hafði spilað þrjú aukalög stóð hann upp, studdi sig við flygilinn og benti með vísifingri á svitann, sem perlaðist á enni hans, eins og hann vildi segja að hann gæti ekki meira. „Hann var stórkostlegur. Það er eins og hann sé frá öðrom heimi," sagði Aleksei Bataschev, sovéskur tónlistarfræðingur. • Einleikaratónleikar Horowitz ero upphafið að menningarsamskipt- um, sem Reagan og Gorbachev ákváðu að fram skyldu fara milli Sovétmanna og Bandaríkjamanna á fundi sínum í Genf í nóvember. Og tónleikamir vöktu mikla athygli í Moskvu. Horowitz hafði mikið umleikis vikuna, sem hann dvaldi í borginni, og var meira um dýrðir en Moskvubúar eiga að venjast. Embættismenn stjómarinnar, tónlistarmenn og erlendir stjómar- erindrekar sátu í hljómsveitargryfju tónleikahallarinnar. Á svölum stóðu bæði fólk, sem náð hafði í miða og tugir tónlistamema, sem rott höfðu sér leið gegn um vamarvegg lög- reglu inn í höllina. ERLENT Bandaríkin: Tölvuforrit notað til kynlífsráðgjafar Pittsburgh, Bandaríkjunum. AP. FÓLK, sem er of feimið til að segja sálkönnuði frá kynlífsvanda- málum sínum, getur brátt leitað á náðir rafeindatækninnar. Það getur rætt þessi vandamál við tölvu. Tölvuforrit, sem vísindamenn hann. við Camegie-Mellon-háskóla í Pittsburgh bjuggu til, hlustar á raunasögu viðkomandi, greinir rætur vandans og kemur jafnvel með tillögu um meðferð. „Rannsóknir sýna, að fólk er fúsara að tala við tölvu en mann- eskju um svo viðkvæm mál,“ segir dr. David Seervan-Schreiber, einn vísindamannanna, sonur franska rithöfundarins og hagfræðingsins Jean-Jacques Servan-Schreiber. „Það er alveg sama, hversu fær kynlífsráðunauturinn er í fræðun- um, honum getur orðið það á fyrir vangá að blanda eigin tilfinning- um í málið, og hinn aðilinn er fljótur að skynja það. Þegar tölva er annars vegar, er engin þörf á að hafa áhyggjur af slíku," sagði Servan-Sehreiber vann fyrr- nefnt forrit í samvinnu við tækni- deild háskólans og Westem- geðheilbrigðisstofnunina í Pitts- burgh. Honum til aðstoðar ero tveir kjmlífsráðgjafar og tveir forritar- ar, auk þess sem leikritahöfundur annaðist gerð samtalanna í forrit- inu „til þess að þau yrðu víxlverk- andi og eðlileg", sagði Servan- Schreiber. Forritinu er ekki ætlað að koma í stað kjmlífsráðgjafa, heldur fremur að veita grondvallarráð- gjöf á afmörkuðum sviðum, að sögn Servan-Schreiber. „Þörfin er miklu meiri en ráðgjafamir fá annað." í fyrra var gerð könnun á Westem-stofnuninni og tók hún til gifts fólks í „góðum hjónabönd- um“. í ljós kom, að a.m.k. helm- ingur hjónanna taldi sig lifa ófull- nægjandi kjmlífí, að sögn dr. Ellen Frank, sálfræðings og aðstoðar- prófessors við læknadeild háskól- ans í Pittsburgh, stjómanda könn- unarinnar. Slíkar niðurstöður sýna glöggt, að kynlífsráðgjöf er „ákaflega mikilvægur starfsvettvangur", segir Servan-Schreiber. Þó er ljóst, sagði hann, að það hafa ekki allir efni á að verða sér úti um ráðgjöf af þessu tæi. Slík þjónusta kostar frá 50 dollurom (ríflega 2000 ísl. kr.) eða þaðan af meira á tímann. Servan- Schreiber kvaðst vonast til, að forritið mundi kosta innan við helming af meðalgjaldi ráðgjaf- anna. Vísindamennimir ætla að prófa forritið í a.m.k. eitt ár, og hefjast prófanimar í sumar. Forritið, sem nefnt hefur verið „Sexpert" og skiptist í nokkra meginkafla, er ætlað til nota fyrir hjón. í fyrsta kaflanum spjrr tölv- an þau um 100 spuminga, og fer eðli spuminganna eftir undan- farandi svari viðkomandi hjóna. Tölvan rejmir að meta, hversu gott samband hjónanna er, að öðro leyti en því sem snertir vandamálið sjálft. Þegar hún hefur greint, hvað það er, sem amar að, rejmir hún að finna, hvar upptök vandans liggja. „Við erom ekki að reyna að búa til tölvutækt uppflettirit með lausnarorðum við öllum vanda-' málum á sviði kynlífsins, heldur erom við að leitast við að gera samskiptalíkan, sem tekur á sig sérstakt snið í hveiju einstöku tilviki," segir Servan-Schreiber. Filippseyjar: 21 hermaður fellur í fyrirsát Legapsi, Filippseyjum. AP. TUTTUGU og einn hermaður féll í gær, föstudag, er jarð- sprengja sprengdi upp ökutæki þeirra og skæruliðar kommún- ista hófu skothríð á þá sem lifðu af sprenginguna, að því er heim- ildamaður í hernum lætur hafa eftir sér. Átta aðrir hermenn særðust fyrirsátinni, sem var við bæinn Banao, suðaustur frá Manila. Her- mennimir voru á tveimur bifreiðum, jeppa og vörubfl. Skriðdreka- sprengjur sprongu undir jeppanum og eftir það hófst skothríð á vörobfl- inn. Ekki er kunnugt um hvort einhveijir skæruliðar féllu í bardag- anum sem stóð yfir í um 35 mínút- ur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.