Morgunblaðið - 23.04.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
3
4.300 taka samræmd próf
Nemendur í 9. bekkjum grunnskólanna eru önnum kafnir þessa vikuna, þar sem samræmdu prófin
standa nú yfir. Á mánudaginn var tekið próf í ensku, í gær var dönskuprófið tekið, í dag er próf-
að í stærðfræði og á föstudaginn i íslensku. Tæplega 4.300 nemendur þreyta prófin að þessu sinni.
Nígería:
Hreyfing komin
á skreiðarsölu
Sala hertra hausa gengur sæmilega
Landsvæði
Hveragerð-
ishrepps
á þrotum
AÐ SÖGN Karls Guðmundssonar
sveitarstjóra Hveragerðishrepps
verður hreppurinn búinn að
byggja á öllu landsvæði sínu eftir
10-15 ár. Hreppurinn hefur fal-
ast eftir landi hjá Ölfushreppi.
„Okkur sárvantar land og hefur
vantað það í mörg ár,“ sagði Karl.
„Miðað við íbúaþróun undanfarin
40 ár höfum við fyrirsjánlegt land-
svæði til íbúðahúsabygginga næstu
10 árin. Það er lítil framtfð í því
að sjá ekki lengra fram í tímann.
Við höfum lengi leitað eftir því við
Ölfushrepp að fá land neðan þjóð-
vegar, við litlar undirtektir og engin
lausn á því máli er fundin enn.“
UM ÞESSAR mundir er verið að
flytja út talsvert af hertum fisk-
hausum til Nígeríu og nokkuð
af skreið. Þrátt fyrir það lætur
nærri að skreiðarbirgðir I
landinu séu tæpiega 200.000
pakkar og 70.000 til 100.000 af
hausum. Verð fyrir þessar afurð-
ir er nú um og yfir 30% lægra,
en þegar bezt lét. Nígeríumenn
skulda íslendingum um 240 miHj-
ónir króna fyrir skreið, sem flutt
hefur verið þangað.
íslenzka umboðssalan hefur að
undanfömu flutt út 3.000 pakka
af skreið og 11.000 af hausum og
í vikunni verða lestaðir hér um
25.000 pakkar af hausum til við-
bótar. Allt er þetta selt gegn stað-
festum ábyrgðum. Samkvæmt
upplýsingum Skreiðardeildar Sam-
bandsins hafa frá áramótum verið
fluttir utan 5.000 pakkar af skreið
og 16.000 af hausum og í næstu
viku fara 5.000 pakkar af hausum
utan til viðbótar. Ábyrgðir hafa
borizt fyrir þessu magni. Vonir
standa til að frekari útflutningur
verði á næstunni. Skreiðarsamlagið
og íslenzka umboðssalan hafa náð
samningum um sölu á 14.000 pökk-
um af skreið og 5.250 pökkum af
hausum og fer það utan á næst-
unni. Stærri hluti þessa magns
kemur í hlut Skreiðarsamlagsins.
Mikíð um
sinubruna
í gær
MIKIÐ var um sinubruna í
Reykjavík og nágrenni i gær.
Að sögn varðstjóra hjá slökkvi-
liðinu var í mörgum tilfellum um
að ræða fullorðið fólk, sem hafði
ætlað að brenna kanta hjá sér,
en síðan misst eldinn út úr hönd-
unum á sér þegar aðeins fór að
hvessa.
Ekki var vitað um umtalsvert
tjón af völdum þessara sinubruna,
nema að gróður skemmdist eitthvað
á stöku stað. Mestur var eldurinn
við Fífuhvammsveg í Kópavogi.
Slökkvilið og lögregla varar ein-
dregið við sinubrunum þessa dag-
ana þar sem jörð er mjög þurr.
Þarf lítið út af að bregða til að lít-
ill neisti geti orðið að stóru báli, sem
getur valdið miklu tjóni á mann-
virkjumoggróðri.
Greiðslur fyrir þessa skreið eru
tryggðar með víxlum til 6 mánaða
í London.
Þrátt fyrir að lítillega sé að losna
um skreiðina og sala á hertum
hausum gangi þokkalega, er ljóst
ap tap framleiðenda er verulegt,
þar sem útflutningur hefur verið
lítill sem enginn sfðustu árin, en
birgðir miklar. Vegna mikils fram-
boðs á skreið, bæði héðan og frá
Noregi og lítillar greiðslugetu Níg-
eríumanna hefur verðið Iækkað um
ogyfir 30%.
_ oct \/\nKonö •
ós^f&K^endaV
mbtgors, sem W 9 ^öana ___________
„ „vdtert '
pað et ne^a e^mtUegu spat