Morgunblaðið - 23.04.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1986
21
Huliðshjálmi lyft
af þjóðfélaginu
eftir Hallgrím
Sveinsson
Á því er enginn vafi að vorhugur
fer nú um þjóðlífið eftir nýgerða
kjarasamninga. Það var sem huliðs-
hjálmi væri lyft af fólki, bæði til
sjávar og sveita, þegar það spurðist
út að nú ætluðu menn loks í alvöru
að sameinast í baráttu við Glám
þann sem riðið hefur húsum hjá
okkur í áratugi. Allir aðilar máls,
ríkisstjóm, verkalýðsforysta og
atvinnurekendur, virðast eiga góð-
an hlut að samstöðu þeirri sem
skapast hefur.
Sagt er, að hvar sem tveir menn
eða fleiri hittast þessa daga, sé
alltaf sama viðkvæðið: Nú verður
þetta að takast! Glíman við verð-
bólgudrauginn verður að vinnast.
Þessi mikla glíma vinnst þó ekki
með orðum heldur athöfnum. Og
nú reynir á þær næstu mánuði. I
þessum átökum er heilbrigt at-
vinnulíf ein aðalundirstaðan, ásamt
samstöðu allra sem hlut eiga að
máli.
Ræða Víglundar Þorsteinssonar
á ársþingi iðnrekenda, sem birtist
í Mbl. 20. marz, hefur vakið at-
hygli. Málflutning formanns iðn-
rekenda má gjaman taka sem eðli-
legt framhald kjarasamninga. Þar
er bent fram á veg, enda skiptir
nú höfuðmáli að viðhorf framtíðar
fái að ráða, en ekki mistök þess
liðna. Víglundur bendir á vel færa
leið til viðreisnar í íslensku atvinnu-
lífi. Leið formannsins er í stuttu
„Leið iðnrekendafor-
manns er vel fær. Hluti
af sparifé almennings
þarf að komast framhjá
bönkunum og beint inn
í fyrirtækin. Það er að
sjálfsög'ðu miklu heppi-
legra fyrir fjárvana
fyrirtæki að nálgast
fjármagn á þennan hátt
til uppbyggingar en
þurfa að greiða af því
beinharða okurvexti
strax.“
máli sú, að fjármagn hins almenna
borgara verði virkjað að hluta með
milliliðalausri þátttöku í atvinnu-
rekstri.
Víglundur telur að einstaklingar
eigi í dag um 70% alls spariQár i
bankakerfínu. Hann vill að nú sé
búið svo um hnúta að hinn almenni
borgari finni hvöt hjá sér til að
vetja hluta af þessum fjármunum
sínum til hlutabréfakaupa í atvinnu-
fyrirtækjum sem mörg hver eru að
veslast upp vegna þess að eigið fé
þeirra er að stórum hluta týnt og
tröllum gefið. Leið iðnrekendafor-
manns er vel fær. Hluti af sparifé
almennings þarf að komast framhjá
bönkunum og beint inn í fyrirtækin.
Það er að sjálfsögðu miklu heppi-
legra fyrir fjárvana fyrirtæki að
nálgast fjármagn á þennan hátt til
uppbyggingar en þurfa að greiða
af því beinharða okurvexti strax.
En að sjálfsögðu verður Qármagns-
eigandi að fá vexti og arð af sínu
fé. Vitað er að þróttmikið og heil-
brigt atvinnulíf skilar alltaf arði.
Til þess að slíkt megi ske þurfa
viss skilyrði þó að vera fyrir hendi.
Eitt af þessum skilyrðum er að
stjómendur fyrirtækja séu vanda
sínum vaxnir. Formaður iðnrekenda
bendir glöggt á þetta í ræðu sinni
þegar hann ■ tekur fram, að virk
þátttaka almennings í atvinnuupp-
byggingu sé það besta og harðasta
aðhald sem unnt sé að veita stjóm-
endum fyrirtækja.
Miðað við óbreyttar forsendur er
samt engin von til þess að venjulegir
borgarar hlaupi til og kaupi hluta-
bréf út um hvippinn og hvappinn.
Löggjafarvaldið þarf því nú að
þekkja sinn vitjunartíma og gera
vissar breytingar á skattalögum. í
lögum nr. 9 1984 er almenningi
nokkuð gefið undir fótinn með að
leggja sparifé sitt beint í atvinnu-
rekstur. þó er það nú svo, eins og
um margt í skattalögum okkar og
reglugerðum, að tyrfíð orðalag og
málalengingar fælir venjulegt fólk
frá því að hugsa nokkuð út í þessa
hluti, enda þarf orðið reynda sér-
fræðinga til að útskýra all það
lögmál. Lítt skiljanlegt er t.d. að
það skuli einungis vera 20 hlutafé-
lög í landinu sem almenningur getur
Hallgrímur Sveinsson
lagt fé í að ákveðnu marki þar sem
til álita kemur að draga kaupverð
hlutabréfa frá skattskyldum tekj-
um. í þessum forréttindahópi em
tryggingafélög, flugfélög, bankar
og skipafélög uppistaðan. Þama
þurfa þingmenn okkar að rýmka
til og lagfæra og sýna meiri sveigj-
anleika í löggjafarstarfí sínu og það
helst áður en þeir halda heim í vor.
Aukið skattfrelsi hlutafjár mun að
vísu þýða aðeins færri krónur í rík-
ÁKVEÐIN hefur verið skrúð-
ganga skáta i Hafnarfirði sumar-
daginn fyrsta. Verður hún í
tengslum við skátamessu í Þjóð-
kirkjunni.
Safnazt verður saman við skáta-
heimilið Hraunbyrgi og skrúðgang-
iskassann fyrst í stað. En þrótt-
meira og heilbrigðara atvinnulíf
mun greiða þær krónur margfalt
til baka.
Iðnrekendaformaður tekur fram
í ræðu sinni oftnefndri, að við eigum
fjöldann allan af spennandi verkefn-
um að fást við. Hann segir að unga
fólkið vænti þess að nú komi at-
hafnir í orða stað. Hann tekur einn-
ig fram, að nú sé kominn tími til
að hætta slagorðaglamri og fagur-
gala um atvinnuuppbyggingu. Og
ýmsar fleiri staðreyndir bendir hann
á. En fyrst og síðast segir hann að
það þurfí peninga. Þeir em afl
þeirra hluta sem gera skal og liggja
í bönkum landsins og víðar. Þeir
bera þar háa vexti og em skatt-
frjálsir. Eigið fé margra okkar
undirstöðufyrirtækja hefur gufað
upp í verðbólguglímunni á einhvem
hátt undanfarin ár. Kannski liggur
það í bönkum landsins að hluta til.
Ef svo er þarf að beina þessu fjár-
magni aftur þangað sem það á
uppmna sinn. Formaður iðnrekenda
hefur bent á vel færa leið til fram-
kvæmda í þá átt.
Höfundur er skólastjóri á
Hrafnseyri.
an hefst þaðan klukkan 10. Gengið
verður um Flatahraun, Álfaskeið,
Smyrlahraun, Hverfisgötu og Lækj-
argötu að Þjóðkirkjunni. Þar hefst
skátamessa klukkan 11. Hörður
Zophaníasson skólastjóri prédikar
og séra Gunnþór Ingason þjónar
fyrir altari.
Sumardaginn fyrsti:
Skrúðganga skáta
í Hafnarfirði
GORKI
Tnnnn,
iiiiiiiiii
SIGLING UIVI EYSTRASALT
Með luxuss
ENN EIN LUXUS SKIPAFERÐIN I BOÐI
Nú verður haldið til Eystrasaltshafna. Um er að ræða skemmtifleyið MAXIM
— 25.000 tonn að stærð, búið öllum hugsanlegum þægindum, sem fjöldi íslending;
hafa notið undanfarin ár. ______....
SKOPUNARBERPIR---------------
Á öllum viðkomustöðum skipsins
verður boðið upp á spennandi skoðun-
arferðir.
FERPATILHÖGUN
Brottför 23. maf. Flogið til Osló,
gist 2 nntur. Haldið til hafs 25.
maf. siglt um Stórabelti til
Gdynia, Helsinki, Leningrad,
Stokkhólms, Borgundarhólms,
Wamemúnde í A-Þýskalandi,
komið til Kaupmannahafnar 4.
júnf og gist þar f 2 nætur og
flogið haim 6. júnf.
NOREGUR
—
DANMÖRK
USSR
GDVNIA
PÓLLAND
DDR
Verð kr. 64.250.- pr. mann í tvíbýli.
Innifalið: Skipsferðin í útklefa m/baði/sturtu. Fullt
fæði um borð. Flug til og frá íslandi. Gisting á
Hóteli 2 nætur í Osló og 2 nætur í Kaupmannahöfn.
sérgrein