Morgunblaðið - 16.05.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986
25
Nýr
yfirmaður
NASA
AP/Símamynd
George Bush, varaforseti
Bandaríkjaima, sver James
Fletcher inn i embætti yfir-
manns bandarísku geimvísinda-
stofnunarinnar NASA í Roose-
velt-herberginu í Hvita húsinu.
Þetta er öðru sinni sem Fletch-
er gegnir þessu embætti. Ro-
nald Reagan forseti stendur
álengdar og fylgist með og
kona Fletchers, Fay, heldur á
bibliunni.
Bandaríkjaþing:
Útflutningsleyfi
fyrir lyf sem má
ekki selja heima
Washington. AP.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti á miðvikudag
að leyfa útflutning á bandarísk-
um lyfjum, sem ekki hefði feng-
ist formlegt söluleyfi fyrir á
heimamarkaði.
Stuðningsmenn frumvarpsins,
sem samþykkt var með 91 atkvæði
gegn 7, töldu, að í því fælist full-
nægjandi vemd gegn varasömum
og gagnslausum lyfjum, að því er
snerti erlenda neytendur, auk þess
sem áfram yrði tryggð forysta
Bandaríkjamanna í líftækniiðnaði.
Frumvarpið, sem nýtur stuðnings
stjómarinnar, fer nú fyrir fulltrúa-
deildina.
V estur-Þýskaland:
Aldraður nasisti
dæmdur fyrir morð-
ið á Emst Thálmann
Krefeld. AP.
ALDRAÐUR hermaður nasista í seinni heimsstyijöld var í gær
dæmdur i fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa haft umsjón með því
þegar Emst Thálmann, leiðtogi Kommúnistaflokksins, var myrtur
samkvæmt skipunum Adolfs Hitlers.
Wofgang Otto, sem er kennari á
eftirlaunum, var dæmdur fyrir að
hafa stjómað aftökusveitinni, sem
skaut Thálmann í fangabúðum
nasista í Buchenwald fangabúðun-
um 18. ágúst 1944. Lík Thálmanns
var dregið inn í líkbrennsluofn
fangabúðanna og brennt strax eftir
aftökuna.
Otto var þá foringi í Waffen SS
sveitum nasista og hélt hann þvi
þráfaldlega fram í réttarhöldunum
í Krefeld í Vestur-Þýskalandi að
hann hefði engan hlut átt í morðinu
á Thálmann. Þrír dómarar og tveir
kviðdómendur felldu dóminn yfír
Otto.
Málaferlin vöktu upp minningar
um það takmarkalausa hatur, sem
ríkti milli þýskra kommúnista og
nasista fyrir og meðan á seinni
heimsstyijöldinni stóð. Thálmann
varð formaður Kommúnistaflokks-
ins 1924 á tímum Weimar-lýðveld-
isins. Honum var varpað í fangelsi
þegar nasistar komust til valda
1933.
Réttarhöldin yfír Otto hófust í
nóvember og hafði rannsókn á
málinu þá staðið yfír í nokkur ár.
Rannsóknin gekk illa bæði vegna
þess að vitni voru fallin frá og
GENGI
GJALDMIÐLA
London. AP.
Bandaríkjadollari féll gagn-
vart öllum helstu gjaldmiðlum
i gær þrátt fyrir líkur á þvi
að bankar gripu inn í til að
styrkja gjaldmiðil Banda-
ríkjamanna.
Dollarinn hélt áfram að falla
gagnvart japanska jeninu og
gilti einu þótt Japansbanki
keypti dollara til að reyna að
stöðva fall hans. Dollarinn kost-
aði 162,70 jen síðdegis í gær
(164,00) en hækkaði lítillega
þegar gjaldeyrismarkaðir lok-
uðu í London, kostaði þar
163,35 jen.
Sterlingspundið kostaði
1,5365 dollara (1,5360).
Gengi annarra gjaldmiðla var
á þann veg að dollarinn kostaði:
2,1900 vestur-þýsk mörk
(2,1920), 1,8215 svissneska
franka (1,8235), 6,9875 franska
franka (6,9900), 2,4690 hol-
lensk gyllini (2,4715), 1.502,25
ítalskar lírur (1.503,50) og
1,3755 kanadfska doliara
(1,3772).
brigðult minni setti strik í reikning-
inn.
Dóttir kommúnistaleiðtogans,
Irma Gabel-Thálmann, sat öll rétt-
arhöldin og var viðstödd þegar dóm-
urinn var kveðinn upp. Hún reyndist
hissa sem og aðrir í réttarsalnum
enda höfðu meira að segja sækjend-
ur málsins farið fram á að Otto
yrði náðaður.
Sækjendumir sögðu að náða
ætti Otto vegna ófullnægjandi
sannana þótt mögulegt væri að
Otto hefði átt þátt í morðinu.
Þegar dómendur útskýrðu dóm-
inn var vísað til framburðar tveggja
vitna um 1960. Hér er um framburð
skjalavarðar í Buchenwald og fanga
að ræða. Skjalavörðurinn sagði að
Otto hefði eitt sinn sagt sér að
hann hefði undirbúið morðið en
ekki átt þátt í aftökunni sjálfri.
Fanginn sagði að hann hefði
borið lík Thálmanns að líkbrennslu-
ofninum og kvað Otto hafa verið
viðstaddan, hann hefði verið í af-
tökusveitinni.
Aðaldómarinn í málinu sagði að
einu gilti þótt Otto hefði aðeins
verið að hlýða skipunum yfírboðara.
Það gæti ekki kæft vitneskju um
óréttlæti að Hitler fyrirskipaði
manni að myrða.
Thálmann er þjóðarhetja í Aust-
ur-Þýskalandi og er algengt að
styttur af honum prýði torg borga
ogbæja.
Bangladesh:
Sex fórust er
hraðlest fór
út af sporinu
Dhaka, Bangladesh. AP.
HRAÐLEST fór út af jámbraut-
arspori nálægt bænum Kushtia,
227 km fyrir vestan höfuðborg-
ina Dhaka i gær. Sex manns létu
lífið og 24 slösuðust, er sjö af tólf
vögnum lestarinnar hvolfdi, að
sögn BSS-fréttastofunnar í
Bangladesh.
Ekki var vitað um orsök slyssins
þá þegar - né heldur hve margir
farþegar voru með lestinni.
BSS sagði, að fimm lík hefðu
þegar fúndist, en starfsmenn jám-
brautanna töldu, að tala látinna og
slasaðra ætti eftir að hækka.
Að minnsta kosti 40 manns létu
lífíð, þegar eldur kom upp f hraðlest
á þessari sömu áætlunarleið
snemma á síðsta ári.
TAUMINN MER
WÍSTH
RAKLEIBIS TIL
Enn þá er ekki loku
fyrir það skotið að
þér gefist tæki-
færi til aö eignast
annan bíl, þvf í
Bflabæ getur þú
selt, keypt eða
skipt um bíl.
Nú vantar okkur allar
tegundir bifreiða á söluskrá.
Á morgun opnum við
þessa nýju Bílasölu sem
á eftir að marka tíma-
mót í þínum bif reiða-
viðskiptum. Af því
tilefni þá verður taum-
laus gleði við Borgar-
tún 25 á morgun. Bjössi
boll mætir á svæðið kl.
14 og býður gestum
upp á Svala, kaffi og
konfekt.
Cefðu bílnum þínum
lausan tauminn á
morgun og skoðaðu úr-
valið hjá okkur í
Bflabæ.
símar 17770 & 12900