Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986 3 Ovenju míkíð um auðnu- tittling SÍÐASTLIÐIÐ sumar og vetur hefur verið auðnutittlingi hag- stætt og hefur viðkoman í stofninum verið svo mikil, að ekki er munað eftir jafn mikl- um fjölda og nú í mörg ár. Auðnutittlingurinn verpir snemma og eru ungar hans viða orðnir fleygir. Erling Oiafsson, dýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði í samtali við Morgunblaðið, að síð- asta sumar hefði verið hlýtt og skilyrði til varps og útungunar góð. Vetur hefði síðan verið mild- ur og ekki valdið teljandi afföllum. Því væri nú svo mikið af auðnu- tittlingi að eldri menn myndu ekki annað eins. Hlýnandi veður en vætusamt Að undanförnu hefur verið fremur votviðrasamt á höfuð- borgarsvæðinu sem og víðar á landinu. Á Veðurstofu íslands fengust þær upplýsingar að líklega yrði veðrið með svipuðum hætti fram að helgi; fremur þungbúið og rign- ing annað slagið. Þá var einnig reiknað með að morgundagurinn yrði fremur vætusamur. Norðan og austanlands var reikn- að með að yrði léttskýjaðra en á Suður- og Vesturlandi og jafnframt ekki eins vætusamt. Þá var spáð hlýnandi veðri frá þvf sem verið hefur undanfarið. Reykhólasveit: Grásleppu- veiðin ætlar að bregðast Miðhúsum, Reykhólasveit. GRÁSLEPPUVEIÐI virðist ætla að bregðast hér í ár. Til dæmis má á það benda að útgerð sem fékk 80 tunnur af hrognum í fyrra er ekki búin að fá nema í eina tunnu í vor. Ef grásleppa kemur ekki með þess- um straumi, þá verða net dregin upp. - Sveinn. Áfengisútsöl- ur samþykktar SAMFARA kosningunum á laugar- daginn fór fram skoðanakönnun í Kópavogi og Ólafsvík um opnun áfengisútsölu í bæjunum. Á báðum stöðum var meirihluti fylgjandi áfengissölu. í Kópavogi sögðu 4.469 já og 2.680 nei. í Olafsvík voru 389 með áfengissölu en 188 á móti, en auðir og ógildir seðlar voru 26. .Aiiglýsinga- síminn er 2 24 80 Morgunblaðið/Snorri Snorrason Ungar auðnutittlingsins eru nú að verða fleygir, en hvort jafnmörgum auðnast að komast á legg nú og í fyrra skal ósagt látið. Skóla- akstri verður breytt í haust Menntamálaráðherra boðar nýja löggjöf Menntamáiaráðherra, Sverrir Hermannsson, hefur tilkynnt í ríkisstjóminni, að hann ætii að endurskoða lög um skóiaakstur og að hann telji, að með nýjum reglum megi jafnvel spara tugi miUjóna króna. Menntamálaráðherra hefur sagt, að þessi akstur sé nauðsynlegur sums staðar, en að fyrirkomulagi því sem nú sé á akstrinum verði slitið strax á hausti komanda. Rfkis- sjóður greiðir 85% kostnaðar við skólaakstur og nemur flárhæð hans nú í ár 150 milljónum króna. FYRSTA STARFSÁR H EWLETT- PACKARD Á ÍSIANDI LOFAR CÓÐU UM FRAMTÍÐINA VIÐTOKURNAR SANIMA FYRIRTÆKI SEM A FRAMTÍÐINA AÐ VIÐ ÁTTVIM ERINDI HL ÍSIANDS FYRIR SÉR CÓÐ TENGSL VIÐ ÍSIENSKT ÞJÓÐLÍF Hewlett-Packard er alþjóðlegt fyrir- tæki sem nýtur virðingar og trausts fyrir vandaða framleiðslu og viðtæka þjónustu. Fyrirtækið hóf starfsemi á Islandi 8. maí 1985 og hefur síðan átt góðu láni að fagna. Fjöldi fyrirtækja og stofnana hafa kosið tölvukerfi, búnað og mælitæki frá Hewlett-Packard. Það er ánægjulegt fyrir Hewlett- Packard að eiga drjúgan þátt í upp- þyggingu og mótun atvinnulífs, heil- brigðisþjónustu og menntunar á fslandi. Hér eigum við heima. Hewlett-Packard á íslandi er ungt fyrirtæki sem byggir á alþjóðlegri reynslu og þekkingu. Starfsfólkið legg- ur siq fram við að veita lipra, persónu- lega og góða þjónustu. Það hefur trú á vörum Hewlett-Packard og er full- visst um að fyrirtækið eigi bjarta fram- tfð fyrir höndum. Hewlett-Packard er fyrir fólk. WÁJM HEWLETT KH packard HEWLETT-PACKARD Á (SLANDI. Hewlett-Packard er traustur bakhjarl íslenskrar tækniþróunar. Samstarfið við hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki á borð við Þróun, Örtölvutækni, Pennann, TOK, VKS, Tölvutæki á Akur- eyri og Samfrost í Vestmannaeyjum skilar íslensku atvinnulífi fram á veginn. Meðal viðskiptavina fyrirtækis- ins eru VSl, ASÍ, Samband almennra lífeyrissjóða, Borgarspítalinn, Skyggnir, Pharmaco, Vatnsvirkinn, Norðurstjarnan, Hafrannsóknarstofnun og islandslax, svo fáeinir séu nefndir. Þannig erum við í góðum tengslum við alla þætti íslensks þjóðlífs. HÖFÐABAKKA 9. 112 REYKJAVlK. SlMI 91-671000. ISUENSKT HUCVTT OC ALÞJÓÐLEC REYNSLA P&Ó/SlA TRYCGJA GÓÐAN ÁRANGUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.