Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDAGUR 4. JÚNÍ1986 19 jökull er undir þeim austanverð- um. Þar seiglast hann áfram með framskriði sem mannlegt auga greinir ekki, en öll ummerki þarna um slóðir bera merki þeirrar hreyfingar sem mannlegur máttur getur ekki stöðvað. Við leggjum af stað upp frá tjaldsvæðinu við Fálkatind. Geng- ið er upp á heiðina fyrir neðan Bunka um gil nokkurt skammt sunnan við tindinn. Eins og önnur gil þarna um slóðir er tiltölulega greiðfært upp gilbotninn. Veggir gilsins eru þó brattir og óárenni- legir. Þegar komið er upp á brún blasir við allt annað landslag en fyrir neðan og miklu mildara. Þarna er dæmigert heiðaland, mýrar, klettaborgir, stoppaðar með mosa, lækjarsytrur og grasbalar. Á þess- um slóðum væri ekki vitlaust að slá upp tjöldum, nenntu menn á annað borð að bera farangurinn upp í gegnum gilið, en það er um það bil 100 m hækkun. Við göngum fyrir Bunka, veljum Tjaldsvæði ferðafélagsins Útivistar skammt frá Fálkakletti. Hér sér yfir hina víðu aura Núpsár. Núverandi farvegur hennar er þó fast undir bergveggnum hinum megin og sést hún illa á þessari mynd. eitthvert af lágu skörðunum fyrir sunnan hann. Það er ekki fyrr en komið er þangað upp að við sjáum Súlutinda og Súlu. Súlan er odd- laga, líkt og kirkjuturn. Á milli er Súludalur, breiður og fagurlega lagaður, dæmigert land sem skrið- jökull hefur sorfið til. Gönguleiðin er auðveld, aflíð- andi og hindrunarlaus. Farið er yfir Súlnadalsá í botni dalsins. Þar eru víðáttumiklar breiður af eyr- arrós, sem setja fallegan lit á annars tilbreytingarlaust um- hverfið. Rúmlega eitt hundrað metra hækkun er upp hlíðar Súlnatinda þar til komið er í svipaða hæð og fótstailur Súlu. Þar er mikið skarð og þverhnípi hinum megin niður að Skeiðarárjökli. Fyrir framan er svo heilt haf jökuls, skitugur ís og kuldalegar strýtur reglulega á jöklinum. Svalur vindur af jöklin- um kælir göngumóða. Mjög erfitt er að komast að Súlu. Leiðin liggur með snarbrattri og lausri skriðu, sem orðið hefur til þegar skriðjökullinn hefur svipt fjallið stuðningi sínum neðarlega og stór stykki rofnað frá. Skriðan er laus í sér og getur verið hættu- leg. Vegalengdin út að Súlu er um 200 m og tekur þar við allbreiður stallur þar sem hægt er að athafna sig mjög auðveldlega, snæða nestið Sjá næstu síðu. Myndin er tekin inn eftir Núpsstaðarskógi. llillSIS Tæpt á ónefndu gljúfri norðan við Klifgil. meira, því áin fyrir neðan hylinn er jökulgrá. Ekki er neinn leikur að taka mynd af fossunum tveimur. Best er að nota gleiðhornslinsu, á að giska 30 mm. Venjuleg 50 mm linsa nær ekki báðum fossunum í einu, þó svo að myndin sé tekin frá besta sjónarhorni sem völ er á. Nú er haldið upp eftir Klifgili upp á Eystrafjall og Ámundarflöt. Klifgil er eins og áður sagði hrika- legt og stórkostlegt í senn. Það er ákaflega djúpt og má finna í því margvíslegar myndanir eftir vatnsrof. Standa þar heilu berg- gangarnir eftir, háir og myndar- legir. Tvflitihylur. Þarna falla jökulsá og bergvatnsá í sama hylinn. Skammt fyrir norðan Klifgil er annað gljúfur, djúpt og ægilegt. Ekki ber það neitt nafn ef marka má landakort. Nú er gengið eftir Ámundarflöt og upp á töglin norðan við Bunka og síðan upp á Bunka sjálfan. Þaðan er gott útsýni yfir að Súlu- tindum og norður upp að Vatna- jökli. Af Bunka er tiltölulega auðveld gönguleið niður að tjaldsvæðinu við Fálkatind. Oft er hægt að fara niður á jafnsléttu eftir giljum, sem skera víða vesturbrúnir Eystra- fjalls. Veggir giljanna eru víðast brattir og erfiðir. Verður því að finna botn þeirra og ganga þaðan niðurájafnsléttu. Sú leið sem hér hefur verið lýst er nokkuð auðveld. Hún er ekki nema 10 km að lengd og göngu- tíminn kann að vera breytilegur eftir gönguhraða. Ekki er óeðlilegt þó sex tímum sé eytt í þessa göngu. Þá er um að gera að fara sér rólega og gefa sér nægan tíma til að skoða markverða staði á leiðinni. Kost- urinn við þessa leið er sá að mjög auðvelt er að stytta hana og halda t.d. til baka eftir að hafa litið Tvílitahyl augum. Súla og Súlutindar Næst liggur leiðin upp á Súlu- tinda. Fjallshryggur þessi er kenndur við súlu nokkra sem skag- ar upp í loftið ofan við Skeiðarár- jökul. Hún er þó engan veginn hæsti hluti hryggjarins, en tví- mælalaust sá formfegursti og til- komumesti. Súlutindar eru aust- asti hluti Eystrafjalls. Skeiðarár- Horft suður eftir Núpsáraurum. Fjærst er hæruskotinn Lómagnúpur. Nær heitir Seldalaöxl. Gengið á Eystrafjall. í baksýn er einn af tindum fjallgarðsins Bjarnarins, líklega Hvirfilsdalsöxl. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.