Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986
7
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK
Tryggið ykkur miða og borð strax
ídagísíma 77500.
Staðurinn sem hrttir í mark.
Enn gefst tækifæri til aó upplifa þessa glæsi-
legu tónlistarhátíð með Gunnari Þórðarsyni og
okkar snjöllu tónlistarmönnum n.k. laugardags
* ,
5": iw*
Morgunblaðið/Júlíus
Rússneska skipið Ivan Franco 1A í Sundahöfn í fyrradag’, en er nú
á Akureyri.
Skemmtiferðaskip koma
17 sinnum hingað í sumar
SKEMMTIFERÐASKIP koma hingað til lands alls 17 sinnum í sumar
á vegum ferðaskrifstofanna Atlantik, Úrvals, Faranda og Samvinnu-
ferða-Landsýnar,
Fyrsta skipið á vegum Atlantik
kom í fyrradag og verður í dag á
Akureyri. Það er rússneska skipið
Ivan EVanco og er það með um 500
Þjóðveija innanborðs. Þá koma
hingað rússnesku skipin Maxim
Gorki, sem reyndar hefur siglt
hingað undanfarin 12 sumur, Mik-
hail Lermontov, Estonia og Odessa
— öll með þýska farþega. Síðasta
skemmtiferðaskipið, sem kemur á
vegum Atlantik, er Vistafjord sem
kemur 8. ágúst, en það er rekið af
breska skipafélaginu Cunard, sem
einnig rekur Queen Elisabeth II og
jafnframt var Titanic í eigu þess
félags. Alls verða 12 skipakomur á
vegum Atlantik og koma því sum
þessara skipa oftar en einu sinni
hvert.
Á vegum Samvinnuferða-Land-
sýnar kemur rússneska skipið
Kazakhstan, fyrst 26. júní og síðan
13. júlí. Sænska skipið Funchal
verður síðan á Akureyri 8. júlí og
í Reykjavík 9. júlí. Flest skipanna
fara til Akureyrar líka og þá sumir
farþeganna landleiðina á milli
Reykjavíkur og Akureyrar.
Á vegum Urvals kemur þýska
skipið Europa 13. júlí I sumar og
er það eina skipakoman á vegum
þeirrar ferðaskrifstofu að þessu
sinni.
Eitt skip kemur á vegum ferða-
skrifstofunnar Faranda. Það er
rússneska skipið Mihail Kalinin,
sem hingað kemur 28. júlí með um
300 tékkneska farþega.
Austur-Barðastrandarsýsla:
Hreppsnefndarmenn
biðjast undan kjöri
Miðhúsum, Reykhólasveit.
ÓTRÚLEGA lítill áhugi virðist
vera á sveitarstjórnarmálum hér.
Alls staðar eru óhlutbundnar
kosningar en margir af núver-
andi hreppsnefndarmönnum
hafa notað þann rétt sinn að
neita áframhaldandi setu í
hreppsnefnd.
í Geiradalshreppi hefur öll
hreppsnefndin beðist undan því að
vera í lq'öri en allir aðrir íbúar
sveitarinnar eru í kjöri. Meðal þeirra
sem nú hætta í hreppsnefndinni er
Gróðri hefir
lítið farið
fram undan-
farna daga
Stykkishólmi.
ÞÓTT komið sé fram I júní
hefir gróðri sáralítið farið
fram. Seinustu daga hefir
verið meiri hiti, en hann hefir
þó aldrei komist upp fyrir 8
stig og er það munur en
undanfarin vor. Tún og blett-
ir eru því verulega gráir
ennþá.
Grásleppuveiði hefir heldur
verið að glæðast undanfarið en
veiði í dag er langt frá því að
vera sæmileg. Sumir tala um
að veiðin sé 10—20% af því sem
hún var í fyrra. Þó hittir maður
sjómenn sem enn hafa ekki
tapað trú á að veiði glæðist, en
nú fer að síga á seinni hluta
vertíðar.
- Arni.
AL’WA.y
HEIMSFRÆGE
Grímur Amórsson á Tindum, en
hann hefur verið hreppsnefndar-
oddviti í áratugi.
í Reykhólahreppi hefur oddvit-
inn, Vilhjálmur Sigurðsson á Miðja-
nesi og einn annar hreppsnefndar-
maður, beðist undan kosningu. í
Gufudalssveit eru allir í kjöri nema
núverandi hreppsnefnd. Oddviti þar
hefur verið Reynir Bergsveinsson.
í Flateyjarhreppi eru allir í kjöri.
Ástaeðan fyrir þessari stöðu er
einfaldlega sú að fjárhagsstaða
hreppanna er þung og lítið hægt
að gera. í umræðunni hér er talað
um að rétt væri að hinar nýju
hreppsnefndir sameinist um sveit-
arstjóra að loknum kosningum til
að annast framkvæmdastjóm fyrir
hreppana fjóra. - Sveinn.
erbie
Hancock
Herbie Hancock fæddist í Chicago og hóf planónám sjö ára gamall. Hann
hafði undraverða hæfileika og lék píanókonsert ID dúr eftir Mozart með
sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar aðeins ellefu ára gamall. Á þessum árum
vaknaði áhugi hans á vísindum og elektrónlskum fræðum sem átti eftir að
skipta miklu fyrir list hans. Fyrsta plata hans kom út árið 1962 og þar voru
samverkamenn hans frægir jazzmenn: Freddie Hubbard og Dexter Gordon.
Sama ár hóf hann samstarf við Miles Davis sem varði á sjötta ár. Hann hefur
m. a. unnið sem píanóleikari með Wes Montgomery, Quincy Jones og Sonny
Rollins og samið mörg lög. Lag hans „The Watermelonman" er á plötum yfir
tvö hundruð listamanna. Hann hefur og samið tónlist við margar kvikmyndir,
m. a. við hið heimsþekkta meistaraverk Antonionis, „Blow up“. Hancock
hefur hvað eftir annað komið aðdáendum sínum sem öðrum á óvart I
tónlistarþróun sinni; hann hefur óhikað haldið eigin leiðir, opnað nýjar víddir I
funki, rokki og elektrónískri tónlist, sjaldan sá sami I dag sem hann var I gær.
Hvað sem því líður er heimsfrægð hans og geysilegar vinsældir tilkomnar
vegna þess að hann er frábær tónlistarmaður.
Matseðill
kvöldsins
Amerísk
baunasúpa
New York-
sleik
Oslakaka
Royal Orlane
Húsið opnar kl. 7
fyrír matargesti
Miðasala og borðapantanir í Gimli kl.
16.00—19.00 í dag, símí 28588, og í Broadway ð morgun
kl. 11.00—17.00, sími 77500
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK
Börkur seldi
í Grimsby
BÖRKUR NK seldi á þriðjudag
rúmar 140 lestir af fiski, mest
þorski, í Grimsby. Heildarverð
var 8.559.000 krónur, meðaiverð
61,05.