Morgunblaðið - 04.06.1986, Page 17

Morgunblaðið - 04.06.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986 17 „Margréttuð söngveisla“ — segir Kristinn Hallsson um afmælis- tónleika í Þjóðleikhúsinu í kvöld „Þetta verður margréttuð söngveisia," sagði Kristinn HaUsson á æfingu í Þjóðleik- húsinu í gær um tónleika sem haldnir verða þar í kvöld í til- efni 60 ára afmælis hans. A tónleikunum koma fram 18 söngvarar við undirleik 7 píanóleikara. Kristinn syngur dúett með Júlíusi Vífli Ingvars- syni, aríu úr óperunni „Simone Boccanegra“ eftir Verdi og auk þess syngur hann með Fóst- bræðrum í verki sem þeir flytja. I gær höfðu söngvaramir safn- ast saman í Þjóðleikhúsinu til æfínga og er blaðamaður leit þar inn voru þau Guðmundur Jónsson og Þuríður Pálsdóttir að æfa saman dúett á sviðinu. Að tjalda- baki sagðist Kristinn iítið hafa komið nálægt skipulagningu þess- ara tónleika, „Það eru mínir yndislegu félagar sem hafa séð um þetta, mestan þátt eiga þó þeir Guðmundur Jónsson og skák- jöfurinn Jóhann Þórir Jónsson, ég geri bara það sem fyrir mig er lagt.“ Að sögn söngvaranna er það orðin nokkurs konar hefð að halda stórsöngvurum slíka „Gala“- tónleika á stórafmælum og meðan Kristinn tekur lagið á sviðinu telur Júlíus Vífíll á fingrum sér nokkra slíka tónleika, sextugsafmæli Guðmundar Jónssonar var haldið hátíðlegt með þessum hætti fyrir nokkram áram, einnig sextíu ára afmæli Þorsteins Hannessonar og Maríu Markan, sjötíu ára afmæli Stefáns íslandi og sextíu og sjötíu ára afmæli Péturs Jónssonar. „Þetta leggst ágætlega í mig,“ segir Kristinn eftir að hafa hlust- að á dúett úr óperanni „Don Giovanni“ eftir Mozart sem þau Guðmundur og Þuríður sjmgja, en þau verða með fyrsta dagskrár- atriðið að loknu ávarpi Helga Sæmundssonar ritstjóra. Þrír aðrir dúettar era meðal dagskrár- liða, Júlfus Vífill Ingvarsson og Kristinn Hallsson syngja dúett úr óperanni „Vald örlaganna", Sieg- linde Kahmann og Sigurður Bjömsson syngja úr óperanni „Paganini" eftir Lehár, Ólöf Kol- brún Harðardóttir og Garðar Cortes syngja dúett úr óperett- unni „Sardasfurstinnan." Einsöng syngja þau Magnús Jónsson, Elín Sigurvinsdóttir, Jón Sigurbjöms- son, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Guð- mundur Guðjónsson, Halldór Vil- helmsson, Kristinn Sigmundsson, Kristján Jóhannsson, Anna Júl- íana Sveinsdóttir og Már Magnús- son auk afmælisbamsins, Kristins Hallssonar. Einar Markússon leik- ur einleik á píanó, Impromptu eftir Samuel Ball. „Það eru mínir yndislegu félagar sem hafa séð um þetta“, sagði Kristinn um undirbúning söngveishmnar. Dýrafjörður: Bíll út af vegi og niður í fjöru UM kl. 16 á mánudag var lögregl- unni á ísafirði tilkynnt umferð- arslys rétt utan við Lambadal í Dýrafirði. Fólksbifreið fór þar út af veginum og hafnaði niður í fjöru, liðlega 20 metrum neðar. Að sögn lögreglunnar á ísafírði var ökumaðurinn einn í bifreiðinni, og var í fyrstu haldið að hann væri mikið slasaður. Var ökumaðurinn fluttur í sjúkrahúsið á ísafírði, en við læknisrannsókn reyndist hann minna slasaður en talið hafði verið. Lögreglan upplýsti jafnframt að bifreiðin væri gjörónýt. Skagaströnd verður áfram Skagaströnd SAMFARA kosningunum á laug- ardaginn fór fram skoðanakönn- un á Skagaströnd um nafn stað- arins. Gefnir vora 3 möguleikar: Skagaströnd, Höfðakaupstaður og bæði nöfnin áfram eins og verið hefur. Úrslit urðu þau að 211 vildu Skagaströnd, 27 kusu nafnið Höfðakaupstað og 60 vildu hafa bæði nöfnin áfram. Sýning’ í Asgrímssafni í ÁSGRÍMSSAFNI hefur verið opnuð sýning á Reykjavíkur- myndum Asgríms Jónssonar í tilefni Listahátíðar i Reykjavík og 200 ára afmælis borgarinnar síðar í susnar. Flestar myndirnar era málaðar á á áranum 1910 til 1920, en As- grímur sneri heim frá námi erlendis 1909 og settist þá að í Reykjavík. A neðri hæð hússins eru sýndar vatnslitamyndir en í vinnustofunni uppi hefur verið komið fyrir olíu- málverkum. Safnið. verður opið í sumar alla daga nema laugardaga milli 13.30 og 16.00. Aðgangur er ókeypis. Stefnt að tveimur en ekki þremur í Morgunblaðinu í gær var það haft ranglega eftir Gísla S. Einars- syni, efsta manni A-listans á Akra- nesi, að þeir Alþýðuflokksmenn hefðu stefnt að því að fá þijá menn fyrir kosningarnar og það tekist. Hið rétta er að þeir stefndu að því að fá tvo menn kjöma, sem og tókst. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! LANDSHAPPDRÆTTI TÓNLISTARSKÓLA RAGNARS JÓNSSONAR GIÆSILEGIR VINNINGAR 11BÍIAR PS 44 hljóðfæri að eigin vali KENNSLU Mercedes Benz 190 E Volkswagen Golf CL árg. 87. KENNSLU TONUSTARSKOíA RAGNARS IONSSONAR TONLISTARSKOLA RAGNARS JÓNSSONAR Akureyrí—Reykja vík Tilstyrktarútgáfuátónlistarkennslumyndböndum, fyrirgrunnskóla ogalmenning. SPARISJÓÐUR GLÆSIBÆJARHREPPS LANDSBANKINN Baiiki allra laudsmanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.