Morgunblaðið - 04.06.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986
23
Nautiðhafði hetur
Spænski nautabaninn Luis Francisco Esplá var búinn að þreyta
naut frammi fyrír þúsundum manna og hugðist ljúka leiknum
með þvi að keyra sverð i herðakamb skepnunnar. Nautið gerði
sér þá litið fyrir, setti undir sig hausinn og renndi á Esplá, vó
hann á loft með þeim afleiðingum sem myndin sýnir. Nautaban-
inn slapp ómeiddur en niðurlæging hans var mikil.
Tekur hormón við hlut-
verki hjartalyfjanna?
Virðist laust við aukaverkanir
New York. AP.
TILRAUNIR, sem enn eru á byijunarstigi, hafa leitt í ljós, að hormón,
sem mannshjartað framleiðir, getur haft sömu áhrif og lyf, sem nú
eru notuð við háum blóðþrýstingi og æðaþrengslum.
Hormón þetta var uppgötvað ný- sér það daglega alla ævi sína,“ sagði
lega. Getur notkun þess hugsanlega
komið í stað núverandi lyfjameð-
ferðar. Með því væri unnt að komast
hjá aukaverkunum, að sögn vÍ3Índa-
manna, þar sem hormónið er í nátt-
úrulegu umhverfi í mannslíkaman-
um.
„Hormónið er afurð mannslíkam-
ans, og sérhver maður gefur sálfum
dr. John Baxter, prófessor í læknis-
fræði og forstöðumaður rannsókna-
deildar Kalifomíuháskóla.
Unnt er að víkka út æðar og eyða
umframsalti og vökva úr líkamanum
með því að nota lyf, sem gert yrði
úr hormóninu, og draga þannig úr
hættu á hjartaáfalli. Þetta kom fram
í máli nokkurra vísindamanna á ráð-
MEÐHENRÍETTU15.-22. JÚLÍ
í París ætlum við að:
• Fara í tyrkneskt kvennabað
• Skoöa stærsta markað í París, þar sem konur
geta skoðað allar þærtuskur sem þærvilja
• Ganga settlega um skrautgarða Parísarborgar
• Horfa á Eiffelturninn (það veröur beðið eftir þeim
sem þora upp)
• Fara á flot á Signu
• Heimsækja Pompidou-safnið
• Fara á kvennakaffihús — og fullt af gotukaffihus-
um , .
• Horfa á sæta stráka bera að ofan og i stuttbuxum
• Fara í skoöunarferð um borgina
Þetta er bara brot af þvi sem hægt er aö gera í París. En
fyrst og fremst ætlum við kellurnar aö hlægja saman,
kjafta saman, boröa saman, og skoða og skemmta okkur
saman.
VERÐAÐEINSKR. 26.940.-
Innifalið: Flug til Parísar, gisting á 3ja stjörnu
hóteli ogfararstjórn Helgu Thorberg.
FERCASKRIPSTOPAN
------ PERCASKRIFSIOPAN
yrp/erra
— ekki bara fyrir herra.
LAUGAVEGI 28, 101 REYKJAVÍK, SIMAR 29740, 621740. KVÖLD-
QGHELGARSÍMI: 82489
stefnu í New York um síðustu helgi.
Þeir lögðu samt áherslu á, að til-
raunimar væm á byijunarstigi.
Hormón það, sem hér um ræðir,
verður til í efri hluta hjartans. Hlut-
verk þess er að stjóma blóðþrýstingi
og losa likamann við umframsalt,
að sögn Baxters. Skynjarar í hjarta
og æðum gefa hjartanu merki, þegar
tímabært er, að framleiðsla horm-
ónsins heflist.
Nokkur helstu lyfjafyrirtækin í
Bandaríkjunum hafa þegar hafið
tilraunir með þetta efni, sem kallað
er „atrial natriuretic factor".
M.a. er stefnt að því að nota lyfið
gegn æðaþrengslum, sem valda því,
að hjartað dælir of litlu blóðmagni
út um likamann, svo að alvarlegur
sjúkleiki eða jafnvel dauði geta hlot-
ist af.
Einnig er stefnt að því að nota
lyfíð við meðferð á háþrýstingi, sem
valdið getur hjartaáfalli eða slagi.
Núverandi lyQameðferð getur
haft aukaverkanir i för með sér,
m.a. getuleysi, sykursýki, minnkun
kalíums og aukningu blóðfitu, að
sögn dr. John Laragh, forstöðu-
manns hjarta- og æðasjúkdóma-
deildar Comell-háskólasjúkrahúss-
ins í New York.
Hormónið virðist ekki hafa neinar
aukaverkanir, ef marka má tilraunir,
sem gerðar hafa verið á nærri 1.000
sjúklingum um allan heim, að sögn
Laragh.
Enn er þó langt i land, að sögn
visindamanna, og miklar rannsóknir
bíða, einkum langtímarannsóknir, til
þess að unnt verði að kveða upp úr
um virkni hormónsins. Auk þess
verður að breyta gerð þess, svo að
það henti í töflur eða nefúða og
verði þannig aðgengilegt sem há-
þrýstingslyf.
Eitraðir ostar
Bonn. AP.
Síðastliðinn sunnudag varaði
vestur-þýzka heilbrigðisráðu-
neytið fólk við að neyta tveggja
franskra ostategunda, þar sem
nokkurt magn þeirra reyndist
innihalda gerla, sem geta verið
hættulegir.
Ostategundimar tvær, Bonbel og
Gracile, sem em ffamleiddar af
, sama fyrirtæki, Fromagerie Bel,
reyndust innihalda gerilinn „listeria
Spassky
efstur
Bugojno, Júgóslavíu. AP.
BORIS Spassky, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, tók forystu
á alþjóðlega stórmeistaraskák-
mótinu í Júgóslavíu eftir sjöundu
umferð. Spassky, sem teflir fyrir
Frakkland, vann Jan Timman
frá Hollandi í fjörutíu leikjum.
Anatoly Karpov fyrrverandi
heimsmeistari og Anthony Miles
tefldu saman í þeirri umferð og
fór skákin í bið í 41. leik. Miles
er sagður hafa betri stöðu þótt
Miles hafi haft svart. Þá gerðu
sovézku stórmeistararnir Yus-
opov og Sokolov jafntefli í 36.
leik og sömuleiðis þeir Portisch
frá Ungveijalandi og Ljubovic
frá Júgóslavíu.
Staðan að loknum þessum sjö
umferðum er þá sú að Spassky
hefur 4 vinninga, hefur gert sex
jafntefli og unnið eina skák, Miles
er í öðm sæti með 3 V2 vinning og
eina biðskák, Ljubovic Sokolov og
Portisch 3 vinninga, Karpov hefúr
2V2 og biðskák, Yusopov 2V2 v. og
Timman rekur lestina með 1 vinn-
ing. Mót þetta er sagt vera sterk-
asta skákmót sem nokkm sinni
hefur verið haldið. Meðalstyrkleiki
keppenda er um 2631 ELO-stig.
Mótið er nú hálfnað.
New York:
Olíutunnan
niður fyrir
14 dollara
New York. AP.
HRAOLIUVERÐ lækkaði nið-
ur fyrir 14 dollara tunnan á
markaðnum f New York f gær
vegna ótta um að eftirspurn
færi minnkandi. Er þar um að
ræða verð vegna langtfma-
samninga.
Bensín lækkaði jafnvel enn
meir í verði, miðað við sams
konar samninga. Var gallonið á
tímabili alveg við tveggja centa
mörkin á dagsölumarkaðnum.
Hráolía lækkaði um 40—57
cent og kostaði, miðað við af-
hendingu í júlí, 13,81 dollar
tunnan. Húsolfa lækkaði um 0,18
til 1,11 cent og kostaði 44,89
cent gallonið, miðað við afhend-
ingu í júlí.
monocytogenes", en hann getur
valdið lifrarbólgu og bólgu í heila-
vefjum. I verstu tilvikum getur
hann valdið fósturláti.
Austurrísk heilbrigðisyfirvöld
gáfu út viðvömn á fostudag, en
vestur-þýzk á sunnudag. Engra
veikinda af völdum ostanna hefur
þó enn orðið vart. Frekari rann-
sóknir fara nú fram, en á þeim
veltur hvort ostar af þessum tveim-
ur tegundum verða flarlægðir úr
verzlunum.
Forstjóri fyrirtækisins, Bertrand
Dufort, sagðist ekkert um þetta
mál vita, enda hefði hann fyrst
fengið af þessu að vita í austurrísk-
um blöðum. Hann taldi að ekki
væri nógu mikið vitað til þess að
draga raunhæfar ályktanir, en hann
óttaðist að þetta kynni að hafa
áhrif á sölu annarra osta fyrirtækis-
ins, t.d. í Bandaríkjunum.