Morgunblaðið - 04.06.1986, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986
27
Veruleg aukníng á
flutningum félagsins
ARNARFLUG jók flutninga sína talsvert fyrstu fínun mánuði ársins,
bæði í farþegaflutningum og vöruflutningum. I fréttatilkynningu
frá Arnarflugi segir að tekjuaukning félagsins hafi þó verið meiri
en sem því nam.
Samtals 10.482 farþegar ferðuð-
ust með millilandaflugi Amarflugs
á tímabilinu. A sama tímabili í fyrra
voru farþegamir 8.742. Aukningin
er því um 20 prósent.
Vöruflutningamir jukust um 48
prósent milli ára. Það sem af er
þessu ári hafa verið flutt 494 tonn
en 334 á sama tíma í fyrra.
Ljóst er að flutningar félagsins
munu enn aukast í sumar, segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
Unnið að götuleik-
sýningu á
GÖTULEIKHÚS verður í Reykja-
vik 17. júní nk. og er það leik-
hópurinn „Veit mamma hvað ég
vil“ sem stendur að sýningunni,
en hún er styrkt af Reykjavíkur-
borg.
Þátt í sýninguni geta allir tekið
17.júní
sem hafa áhuga, en unnið er að
undirbúningi hennar í Borgarskálan-
um, Sigtúni 5. Þangað geta þeir sem
áhuga hafa á að leika á götum
borgarinnar þjóðhátíðardaginn,
mætt kl. 20.00 næstu kvöld.
(Úr f réttatilkynningll.)
Velti öðrum og
ók hinum út af
Akureyri.
BIFREIÐ valt á Moldhaugna-
hálsi um helgina. Okumaðurinn
var ölvaður, hafði stolið bif-
reiðinni á Akureyri og er hún
talin ónýt.
Okumaðurinn meiddist ekkert
við veltuna en gekk frá slysstaðn-
um niður að Skjaldarvík, um kíló-
metra leið, þar sem Subaru-bifreið
varð á vegi hans. Lyklamir voru
í Subarunum og tók ökumaðurinn
hann einnig ófijálsri hendi. Ók
hann aftur vestur á bóginn en
lenti út af veginum við bæinn
Gloppu í Öxnadal.
Aftur slapp hann ómeiddur og
fékk síðan far með bíl sem var á
leið vestur. Lögreglan hafði fengið
upplýsingar um málið og stöðvaði
alla bíla sem leið áttu vestur
SkagaQörð. Sauðárkrókslögregl-
an fékk manninn afhentan við
Varmahlíð er hún stoppaði bifreið-
ina sem hann var í og játaði hann
strax. Hann svaf síðan úr sér hjá
lögreglunni á Sauðárkróki.
Seinni bifreiðin, sem hann ók
útaf i Öxnadalnum, er eitthvað
skemmd — en þó mun minna en
sú fyrri.
Meiðsli lítilsháttar
en eignatj ón verulegt
NAFN höfundar greinarinnar „Eitt
er nauðsynlegt" féll því miður niður
f blaðinu í gær. Hann er Pétur
Magnússon fyrrverandi kaup-
maður og bankamaður. - Blaðið
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um.
Morgunblaðið/Júlfus
Áreksturinn á mótum Barónsstígs og Skúlagötu. Báðir bílarnir eru mikið skemmdir, en ökumenn þeirra
meiddust aðeins lítilsháttar.
TVEIR mjög harðir árekstrar urðu í Reykjavík á mánudag. Meiðsli
á mönnum voru lítil en eignatjón mikið. Báðir árekstramir urðu
með þeim hætti, að sveigt var í veg fyrir bíla, sem komu á móti. í
öðrum árekstrinum skemmdust þrir bílar og einn ljósastaur eu tveir
bílar í hinum.
Rétt fyrir klukkan 8 varð „rússn-
eskur" árekstur á mótum Hring-
brautar og Hofsvallagötu. Volgu-bíl
var þá ekið í austur eftir Hring-
brautinni og sveigði ökumaður bíls-
ins til norðurs inn á Hofsvallagötu,
en beint í veg fyrir Lödu-bíl, sem
var á leið vestur eftir Hringbraut-
inni. Við höggið stöðvaðist Ladan,
en Volgan hélt áfram eftir Hofsvalla-
götunni unz hún rakst á ljósastaur
með þeim afleiðingum að hann féll
á þakið á Volvo, sem ekið var fram-
hjá á sömu stundu. Ökumenn beggja
bflanna voru einir í bflunum. Oku-
maður Lödunnar var í bílbelti og
sakaði ekki en ökumaður Volgunnar
skarst lítillega.
í hádeginu á mánudag varð jap-
anskur" árekstur á mótum Baróns-
stígs og Skúiagötu. Bíl af gerðinni
Mazda var þá ekið til norðurs eftir
Barónstíg og hugðist ökumaður hans
sveigja til vesturs eftir Skúlagöt-
unni. Ekki vildi betur til en svo, að
hann ók beint í veg fyrir aðra Mösdu,
sem var á leið austur eftir Skúlagöt-
unni á innri akrein. Ökumenn voru
einir í bflunum og skárust báðir
nokkuð, hvorugur notaði bílbelti.
Báðir bílamir eru mikið skemmdir.
uwsnvoi
Nafn höfund-
ar féll niður
Sýslunefndar-
kosningar í
Stykkishólmi
Stykkishólmi.
í SAMBANDI við hreppsnefnd-
arkosningar í Stykkishólmi sem
fóru fram sl. laugardag, var
einnig kjörinn fulltrúi fyrir
Stykkishólmshrepp í sýslunefnd
Snæfellsness og Hnappadals-
sýslu.
Var Agúst Bjartmars kennari
kjörinn með 376 atkvæðum og
varamaður hans Benedikt Lárusson
framkvæmdastjóri. Alls vom 3 list-
ar í kjöri.
Ámi.
Röng mynd
RÖNG úrklippumynd birtist með
grein Sigrúnar Jónsdóttur í blaðinu
í gær. Var birt mynd af grein Selmu
Júlíusdóttur frá 29. maí, en átti að
vera af grein hennar, sem birtist
25. maí, þar sem Sigrún er að svara
þeirri grein. Biðst blaðið velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Byggingaþjónustan:
Arkitektar
veita almenn-
mgi raðgjof
Byggingaþjónustan hefur feng-
ið til liðs við sig arkitekta og
landslagsarkitekta sem veita
munu almenningi ráðgjöf inilli
16.00 og 18.00 á miðvikudögum.
Arkitekta hefur Byggingaþjón-
ustan á sínum snærum allan árs-
ins hring en Iandslagsarkitekt-
arnir verða út júní.
I fréttatilkynningu frá Bygginga-
þjónustunni segir að ráðgjöfin sé
bæði fagurfræðilegs og tæknilegs
eðlis. Byggingaþjónustan er til húsa
í Iðnaðarmannahúsinu við Hallveig-
arstíg.
Umferðin í aprfl:
Færri slys en
á sama tíma á
síðasta ári
í aprilmánuði slösuðust 37
manns í umferðinni og einn lést.
í aprfl 1984 slösuðust alls 66
manns og í apríl 1985 voru þeir
83.
í samanburði við þrjá fyrstu mán-
uði þessa árs virðist umferðarmenn-
ing landans þó ekki hafa tekið
miklum stakkaskiptum í apríl.
Samkvæmt bráðabirgðaskýrslu
umferðarráðs slösuðust 30 einstakl-
ingar í umferðinni í janúar sl., 32 í
febrúar og 24 í mars. Þá varð eitt
dauðaslys í janúar, Qögur i febrúar
ogþrjúímars.
GOTT KAST GEFUR FISK
S115DKR