Morgunblaðið - 04.06.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1986
33
Stórmótið í Bugojno:
Karpov tapaði
fyrir Sokolov
Skýk
Margeir Pétursson
Um þessar mundir stendur
yfir í júgóslavneska smábænum
Bugojno geysilega öflugt skák-
mót með þátttöku átta af sterk-
ustu stórmeisturum heims. Mesta
athygli vekur þátttaka Anatoly
Karpovs, fyrrum heimsmeistara,
því þetta er hans sfðasta keppni
þar til hann mætir Gary Kasp-
arov f einvígi um heimsmeistara-
titilinn þann 28. júlf. Karpov
hefur ekki enn náð að vinna skák
þótt fjórum umferðum af mótinu
sé lokið. í fjórðu umferð varð
hann að lúta í lægra haldi fyrir
ungum landa sínum, Andrei
Sokolov og áður hafði hann gert
jafntefli við þá Spassky og
Timman. Þá á Karpov biðskák
við landa sinn Jusupov sem hann
á möguleika á að vinna.
Ummæli Karpovs í blaðaviðtali f
Belgrad rétt áður en mótið hófst,
kunna að skýra slaka frammistöðu
hans til þessa. „Vitanlega mun ég
reyna að sigra í Bugojno, en það
verður ekki auðvelt því ég verð að
geyma mörg byijanaafbrigði þang-
að til ég mæti Kasparov í sumar."
Þá sagðist Karpov vera bjartsýnis-
maður að eðlisfari og gera sér góðar
vonir um að vinna heimsmeistara-
titilinn til baka, strax á þessu ári.
Að loknum fjórum umferðum á
mótinu höfðu jjórar skákir unnist,
en staðan var nokkuð óljós vegna
fjölda biðskáka. í fyrstu umferð
vann Miles Ljubojevic í aðeins 22
leikjum, en Júgóslavinn svaraði
fyrir sig með því að vinna Jusupov
í þriðju umferð og Timman í þeirri
Qórðu. Staðan er nú þannig;
1,—2. Miles (Englandi) 2610 stig,
2 */2 v.
1.—2. Ljubojevic (Júgósl.) 2605
stig 2Va v.
3. Spassky (Frakkl.) 2610 stig
2 v.
4. Sokolov (Sovétr.) 2595 stig.
IV2+2 biðskákir.
5. Portisch (Ungvl.) 2610 stig
1 v.+2 biðskákir.
6. Karpov (Sovétr.) 2700 stig
1 v.l biðskák.
7. Timman (Hollandi) 2645
stig. V2 v.+2 biðskákir.
8. Jusupov (Sovétr.) 2645 stig
0 v.+3 biðskákir.
Það er athyglisvert að þrír stiga-
hæstu keppendumir verma botn-
sætin, en aðeins fjórum umferðum
af 14 er lokið og biðskákir ótefldar.
Góð frammistaða Miles bendir til
þess að sigur Kasparovs heims-
meistara yfír honum í einvíginu,
5V2—V2, hafí verið næstum einstakt
afrek. Sumir vildu halda því fram
að Miles hefði teflt undir styrkleika,
en aðeins viku eftir einvígið gerir
hann sér lítið fyrir, vinnur
Ljubojevic í 22 leikjum og tekur
forystuna á þessu sterka móti.
Það kemur engum á óvart að
Karpov skuli hafa valið Bugojno
sem síðasta áfangastað fyrir átökin
í sumar. Þar hefur honum ávallt
vegnað vel og júgóslavneski blaða-
maðurinn Bjelica, sem á stóran þátt
í mótshaldinu, er mikill vinur hans.
Fræg er t.d. spumingin sem Bjelica
hafði eftir Karpov þegar Ólympíu-
mótið í Grikklandi 1984 stóð sem
hæst og Karpov hafði 5—0 yfír f
heimsmeistaraeinvíginu í Moskvu
og þurfti aðeins einn sigur í viðbót.
„Hvemig er veðrið í Sáloniki?"
spyrði Karpov Bjelica, því hann
bjóst •Adð afrv vafgreiða 'K^sparpv
snarlegá óg ná sfðustu umferðum
Ólympíumótsins. En eftir þetía
virtist sem álög legðust á Karpov.
Það er liðið meira en eitt og hálft
ár síðan hann spurði til veðurs í
Grikklandi. Enn hefur honum ekki
tekist að afgreiða Kasparov, heldur
hefur hann misst titilinn.
Mótið í Bugojno er einnig merki-
legt fyrir þær sakir að þar tefla
þeir Artur Jusupov, 26 ára og
Andrei Sokolov, 23 ára, en í septem-
ber næstkomandi hefst í Sovétrílg'-
unum einvígi þeirra um sigurinn í
áskorendakeppninni. Sigurvegarinn
þar mætir þeim sem tapar í heims-
meistaraeinvíginu í sumar. Þeir
Jusupov og Sokolov standa því
næstir þeim Kasparov og Karpov f
keppninni um heimsmeistaratitilinn
og geta með réttu krafíst þess að
vera álitnir þriðju og fjórðu bestu
skákmenn í heimi.
Jusupov hefur enn ekki náð að
standa undir þessu á mótinu í
Bugojno, en Sokolov sýndi í fjórðu
umferð að hann virðist eiga fullt
erindi í einvígi við rísana tvo. Sok-
olov er afskaplega vaxandi skák-
maður. Hann hefur verið talinn
heppinn en er í raun óvenjulega
yfírvegaður og bjargar oft í hom í
flækjum og tímahraki. Hann er
sóknarskákmaður og eftir að
Karpov mistókst að fínna haldgóða
áætlun í miðtaflinu blés Sokolov til
sóknar. Hann fómaði peði á drottn-
ingarvæng en kom í staðinn peði á
kóngsvæng í návígi við svarta
kónginn. Karpov náði ekki að koma
mönnum sfnum í vömina í tæka tíð
og var óveijandi mát þegar hann
gafst upp.
Þetta var óþægiiegur ósigur fyrir
Karpov, því það er ekki ólíklegt að
hann mæti Sokolov í einvígi næsta
vetur. Þá tapar hann afskaplega
sjaldan með svörtu í spánska leikn-
um. Síðast var það gegn Ljubojevic
í Torino 1982. Enski rithöfundurinn
Raymond Keene sem ég ræddi við
í síma á laugardaginn benti mér á
að þessi ósigur Karpovs markaði
tfmamót að því leyti að þetta væri
í fyrsta sinn sem Karpov tapaði
fyrir landa sfnum á móti utan
Sovétríkjanna, a.m.k. síðan 1975,
er hann varð heimsmeistari. Senni-
lega þarf að fara allt aftur til ársins
1970 til að fínna dæmi um slíkt,
er Karpov tapaði fyrir Korchnoi í
Hastings.
Hvítt: Sokolov (Sovétr.)
Svart: Karpov (Sovétr.)
Spánski leikurinn
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 -
Be7, 6. Hel - b5, 7. Bb3 - d6,
8. c3 - 0-0, 9. h3 - Bb7, 10. d4
- He8, 11. Rg5 - Hf8, 12. Rf3
— He8,13. Rbd2
Meðal þeirra sem hafa lagst svo
lágt að þráleika gegn Karpov í
þessari stöðu eru stórmeistaranir
Hiibner, Nunn og Chandler.
13. - Bf8, 14. Bc2 - Rb8, 15.
a4 — c5,16. d5
Sokolov lokar miðborðinu og
miðar greinilega að því að sækja á
kóngsvæng.
16. — Rbd7,17. b4 — c4
Karpov hlýtur að vita hvað hann
er að gera, en eftir þessa lokun
virðist frumkvasðið lenda varanlega
í höndum hvíts. Til greina kom 17.
— cxb4, 18. cxb4 — a5!? eða ein-
faldlega 17. — g€ og halda spenn-
unni á drottningarvæng.
18. Rf 1 — Rh5?!
Upphafíð á slæmum kafla í skák-
inni fyrir Karpov þar sem hann
leikur.mönnunum fram og til baka
án árangurs. Mér virðist aem hann
hafi ætláð sér of stóra hluti í þess-
ari s}Cák, ;óireinlegá vanmetið Sok-
olov pg ætlað sjálfur að þreifa fyfir
sér með aðgerðir á kóngsvæng. Það
er eina skýringin á því að hann
hafnar hinu sjálfsagða og eðlilega
framhaldi 18. — g6 og 19. — Bg7.
19. R3h2
Ekki 19. Rxe5? - Hxe5, 20. f4
— Rxf4, 21. Bxf4 — He8 og svartur
stendur vel vegna yfírráða sinna
yfír e5-reitnum.
19. - g6,20. Be3 - Be7,21. Dd2
Hvítur leyfír að sjálfsögðu ekki
21. — Bg5.
21. - Hf8,22. Bh6 - Rg7,23. Rg3
Það er orðið ljóst að ef Karpov
hefur haft einhveija áætlun, þá
hefur hún mistekist. Riddarinn á
g7 stendur sérlega afkáralega.
23. - KI18, 24. Rg4 - Rf6, 25.
Rxf6 - Bxf6, 26. Hf 1 - Dd7, 27.
f4!
Andrei Sokolov vann Karpov
örugglega á kóngssókn. Hann
gæti senn ógnað veldi Kasparovs
og Karpovs í heimsmeistara-
keppninni.
Fómar peði, en nú hefur hvítur
það í hendi sér hvenær hann opnar
f-línuna með uppskiptum á g6.
28. — axb4, 29. cxb4 — bxa4, 30.
Hf3 — Kg8,31. Df2!
En alls ekki 31. Hafl? - a3!, 32.
Bbl — De7 og svarta frípeðið er
stórhættulegt.
31. - Bh4, 32. Bxg7 - Bxg3, 33.
Hxg3 - Kxg7, 34. f6+ - Kh8,
35.Hga3
Það er orðið ljóst að hvítur kemur
a.m.k. til með að vinna peðið til
baka og stendur þá miklum mun
betur að vígi.
35. - Db5,86. De3 - Hg8
Auðvitað ekki 36. - Dxb4?, 37.
Hbl
37. h4!
„Nú er hvítur með yfírburða-
stöðu," sagði Keene og það er ljóst
að Karpov stendur ffammi fyrir
erfíðu vali. Á hann að drepa á f4
og opna f-línuna yfír hvíta stór-
skotaliðið eða láta kyrrt liggja og
treysta á mótspilið á drottningar-
væng. Ég tel að hann hefði tví-
mælalauast átt að velja fyrri kost-
inn, eftir 27. — exf4, 28. Bxf4 (Ef
hvftur drepur með drottningu eða
hrók leikur svartur 28. — Be5 og
síðan 29. — f6 með nokkuð traustri
stöðu) De7 hefur hann a.m.k. vald
yfír e5-reitnum.
27. — a5?, 28. f5!
Hvítur er í sókn á bæðum vængj-
um. Ef nú 37. — Bc8 þá einfaldlega
38. Hxa4 og eftir að hvítur kemur
hrók á 7.-línuna verður fátt um
vamir. Viðbrögð Karpovs við þess-
um óþægiléga leik lýsa örvæntingu:
37. - g5, 38. hxg5 - Hg6, 39.
Kf2-h6
Eftir 39. - Hag8, 40. Hhl -
Karpov er ekki í nærri eins góðu
formi og Kasparov, en það eru
enn tveir mánuðir til stefnu.
Hxg5, 41. Dh3 - Hxg2+, 42. Kfl
— c3+, 43. Bd3 hefur svartur ekki
fleiri tromp á hendinni og mátið
blasir við.
40. Hhl - Kh7, 41. Bdl! - Hag8,
42. Dh3
Hótar 43. Dxh6+ og mátar.
42. — Hh8, 43. Bh5 og svartur
gafst upp. Endirinn gæti orðið 43.
— Hxg5, 44. Bxf7 - h5, 45. Dxh5+
— Hxh5,46. Hxh5 mát.
Heimsmeistaraeinvigið
í London og Leningrad
Einvfgi þeirra Karpovs og Kasp-
arovs um heimsmeistaratitilinn
verður háð í þessum tveimur borg-
um. Ifyrstu tólf skákimar verða í
London en hinar tólf í Leningrad.
Búist er við viku hléi á meðan skipt
verður um stað. Keppnin í London
hefst 28. júlí og má vænta þess að
flutt verði til Leningrad í lok ágúst-
mánaðar. Þeim sem hafa í hyggju
að sjá einvígið og aðra skákviðburði
á meðan það stendur jrfír skal bent
á að skrifa til John Boon, c/o
American Express, 19 Bemers
Street, London Wl, Englandi.
Skrifstofan útvegar hótel í London
á afsláttarkjömm, miða á einvígið
og aðra viðburði.s.s. Lloyds Bank-
mótið í lok ágúst og söngleikinn
„Chess" sem nýlega hefur verið
frumsýndir. Einvígið fer fram á
Park Lane-hótelinu, sem verður
undirlagt af skák og skákmönnum
seinni hluta sumars. Ffyrir sterkari
skákmenn (ca. 2100 stig og yfír)
virðist upplagt að taka þátt í opna
Lloyds Bank-mótinu í lok ágúst og
sjá nokkrar einvígisskákir í leiðinni.
AMBASSADEUR XLT 2
HHðuplótw tdbat Mfio-
n Of cn ati mttrt
BXtHifM.lMHpiatuir
pn HUMi áU.
Altir óraidir Uatar þéttir
gtfn Ueriagv.
N'
Ý AMBASSADEUR VEIÐIHJÓL í MEÐAL-
VERÐFLOKKI. Þau hjól hleypa sjaldan
snurðu á línuna. Þrjú stillanleg bremsukerfí,
tvö þeirra í köst og eitt í veiði.
^Abu
Garcia
HAENARSTRÆTI 5, REYKIAVÍK. SIMI16760.
£ ' 1$ÍI