Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 149. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 8. JULI1986 Prentsmíðja Morgunblaðsins Filippseyjar; Vægt verður tekið á uppreisnarmönnum Tolentino leggur upp laupana AP/Símamynd Corazon Aquino, forseti Filippseyja, talar við blaðamenn í herbúðum suðaustur af Manila í gær, umkringd herforingjum og starfsmönnum stjórnarinnar. Á hægri hönd Aquino er Fidei Ramos, yfirmaður hersins á Filippseyjum. Manila, AP. BORGARAR og hermenn, sem studdu misheppnaða tilraun Arturos Tolentino til valdaráns á Filippseyjum, yfirgáfu í morg- un hótel, sem þeir höfðu lagt undir sig í miðborg Manila. Ekki er vitað hvað varð af Tolentino og hefur hann ekki sést síðan hann tilkynnti að hann ætlaði að yfirgefa hótelið. Tolentino kveðst enn líta á sig sem forseta. Corazon Aquino, forseti, sagði að hún hefði engar áhyggjur af uppreisnartilraun Tolentinos. Aqu- ino gaf uppreisnarmönnunum sólarhrings frest til að yfirgefa hót- elið og rann hann út í morgun. Kvaðst hún ætla að taka vægt á byltingartilrauninni ef uppreisnar- mennimir gæfust upp. Hún kvaðst telja að Ferdinand Marcos, fyrrum forseti, hefði staðið á bak við þessa tilraun. Aðspurður kvaðst Marcos ekkert geta sagt um málið. Tolentino sagði að Marcos hefði hringt í sig úr útlegðinni á Hawaii. Marcos hefði skipað sér að sveija embættiseið sem forseti og gegna forsetaembættinu þar til hann gæti snúið heim frá Hawaii. Uppreisnartilraun Tolentinos þykir hafa verið fyrirfram dæmd til þess að mistakast. Þó þykir at- hyglisvert að Tolentino virðist hafa notið fulltingis margra háttsettra Stjórn Suður-Afríku hunsar Howe: Wiimie Mandela nú friáls ferða sinna London/Jóhannesarborg, AP. YFIRVÖLD Í Suður-Afríku hafa aflétt ferðabanni á Winnie Mand- ela, konu Nelsons Mandela. Þrjátíu og tveir menn létu lifið í Suður-Afríku þessa helgi, þar af sjö í gær. Tilraunir Evrópurikja til að koma á umræðum í Suður-Afríku strönduðu í gær vegna þess að leiðtogar bæði svartra manna og hvítra höfðu ekki tíma tii að taka á móti Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands. og handsprengjum. Fimmtán svart- ir námamenn létu lífið um helgina í átökum hjá gullnámu. manna í hemum. Tolentino lagði undir sig hótel í Manila á sunnudag. Hafði hann þá svarið embættiseið sem forseti á samkundu með tíu þúsund stuðn- ingsmönnum Marcosar. Um tíu þúsund stuðningsmenn söfnuðust saman fyrir utan hótelið á sunnu- dag, en í gær vom þar aðeins þijú þúsund. Rúmlega þúsund hermenn um- kringdu hótelið og benti ekkert til þess að uppreisnarmennimir gætu ógnað stjóm Aquinos.. Larry Speakes blaðafulltrúi Ro- nalds Reagan forseta ítrekaði stuðning Bandaríkjastjómar við Aquino. Speakes tók fram, að það hefði ekki áhrif á landvistarleyfi Mareosar þótt í ljós kæmi að hann hefði staðið á bak við uppreisnartil- raunina. Aftur á móti yrði rannsókn hafin á því hvort svo væri. Sjá einnig frétt á síðu 22. AP/Símamynd Francois Mitterrand og Mikhail Gorbachev ræðast við í Moskvu. Gorbachev og Mitterrand ræðast við í Moskvu: Vilja draga úr spennu í Evrópu Moskvu, AP. Francois Mitterrand, forseti Frakklands, var ekki jafn harðorður í garð Sovétmanna vegna mannréttindabrota og í heimsókn sinni til Sovétríkjanna 1984. Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, og Mitterrand ræddust við í tvær og hálfa klukkustund í gær og tók Mitterrand undir það með Gorbachev að draga þyrfti úr spennu milli Austur- og Vestur-Evrópuríkja. Mitterrand er í fjögurra daga heimsókn i Moskvu. Leiðtogamir virtust báðir stað- ráðnir í að leggja áherslu á sáttfysi fremur en að hamra á þeim ágrein- ingsefnum, sem vom upp á teningn- um þegar Mitterrand heimsótti Sovétríkin 1984. Þá sagði hann í ræðu að mál andófsmannsins Andr- Að sögn lögreglunnar er Mandela nú fijáls af öllum þeim boðum og bönnum sem hún hefur mátt lúta af hálfu ríkisins undanfarin tuttugu ár. Hún hefur virt bönn þessi að vettugi síðan hún átti í eijum við lögregluna í janúar. Hún hafði búið í átta ár í sveitahéraðinu Brandfort þegar hún í ágúst á síðasta ári sett- ist að í Soweto í Jóhannesarborg og sagðist hvergi fara. Nafn Mandela var ekki á bann- lista yfir fólk, sem fjölmiðlar í Suður-Afríku mega ekki vitna í. Listi þessi var gefinn út í síðustu viku. Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð- herra Bretlands, nefur slegið för sinni til Suður-Afríku á frest, en er hins vegar staðráðirm i að fara til Zimbabwe og Zambíu í dag. Vonast hann til að vtr.a þar að máli leiðtoga Afríska þjóðarráðsins. Howe er formaður nefndar utan- ríkisráðherra aðildarríkja Evrópu- bandalagsins og ætlaði til Suður-Áfríku á hennar vegum. Engin ástæða var gefin fyrir því hvers vegna suður-afríska stjómin lét hjá líða að samþykkja komu Howes. Denis Healy, talsmaður breska Verkamannaflokksins í utanríkis- málum, sagði að för Howes hefði verið dauðadæmd frá upphafi vegna þess að Desmond Tutu biskup hefði neitað að hitta hann og stjórnin í Pretoríu hefði „niðurlægt Howe með því að hunsa hann“. Lögreglan greindi frá því í gær- morgun að þrír skæruliðar hefðu beðið bana í skotbardaga norður af Durban. Þeir hefðu verið vopnað- ir sovéskum rifflum, jarðsprengjum Þingkosningar í Japan: „Kjósendur styðja stjórnarstefnuna“ — sagði Nakasone eftir stórsigiir flokks síns Tókýó,AP. „ÚRSLIT þingkosninganna sýna að kjósendur bera traust til stjórnarinnar og styðja stefnu hennar bæði í innanríkis- og utan- ríkismálum,“ sagði Yasuhiro Nakasone forsætisráðherra Japans í gær. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn undir forystu Nakasones vann sinn stærsta kosningasigur frá stríðslokum á sunnudag. Kosið var til beggja deilda þingsins. Hlaut flokkurinn hreinan meiri- einnig með forsætisráðherraembæt- hluta á þingi, eða 300 þingsæti af 512 í neðri deild. Samkvæmt flokkslögum má for- maður fijálslyndra aðeins gegna því embætti tvö kjörtímabil, en hann fer tið. Nakasone er skylt að láta af formennsku í október. Hins vegar hafa líkur á þvi að lögunum verði breytt aukist eftir sigurinn. Sjá einnig frétt á síðu 22. eis Sakharov hefdi komist í hámæli vestantjalds vegna þess að þar kæmi fram að hæpið væri að Sovét- menn færu að mannréttindaákvæð- um Helsinki-sáttmálans. Mitterrand flutti ræðu við svipað tækifæri yfir kvöldverðarborðum í gær. Sagði hann að landamæri gætu ekki staðið í vegi fyrir réttind- um manna og það væri siðferðileg skylda ríkisstjóma að tryggja sam- skipti milli þjóða og leysa úr málum fjölskyldna, sem lifðu aðskildar. Hann nefndi hvorki Sakharov né önnur einstök mannréttindamál. Þegar Yelena Bonner eiginkona Sakharovs var í París í maílok, sagði Mitterrand að hún skyldi aldr- ei hika við að tala við sig: „Ég skal tala máli ykkar.“ Verið getur að Gorbachev hafi búist við að Mitterrand myndi víkja að mannréttindamálum. Alténd sagði hann í ræðu yfir borðum að Sovétmenn væru ræðubúnir til al- þjóðlegs samstarfs um mannúðar- mál: „Og þetta eru ekki orðin tóm.“ Mitterrand og Gorbachev rædd- ust við fyrir málsverðinn. Sagði Mitterrand að þeir hefðu verið sam- mála um mikilvægi Evrópuríkja í alþjóðamálum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.