Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 42
fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ1986 Lokatónleikar Wham-dúettsins Sjónvajpsstjaman Ed Asner — bauð að vissu leyti hættunni heim. Hjónin Sylvester Stallone og Birgitte Nielssen eru venju- lega umkringd kraftajötnum. Þolinmæðin þraut að lokum. Linda Ron- stadt missti trúna á manngæsku mann- kynsins. I hita leiksins — George og Andrew á sviðinu. ' — en hvað svo? Við sögðum frá því nú um daginn að dúettinn dágóði, Wham!, væri að leggja upp laup- ana — lokahljómleikamir yrðu haldnir innan skamms. Nú hafa þeir hinsvegar farið fram og sam- . starf þeirra félaga George Michaels og Andrew Ridgeley heyrir sögunni til. Ef marka má okkar heimildir var stemmningin á Wembley-leikvanginum með eindæmum góð er þeir félagarnir tróðu þar upp, fólk söng hástöfum með, yngismeyjar féllu í yfirlið og stórir sem litlir strákar horfðu á átrúnaðargoð sín með mikilli lotn- ingu. En hvað er þá framundan hjá þeim félögum? — Heldur lítið hafa þeir gefíð út á það, segjast láta hverjum degi nægja sína þjáningu og tíminn einn geti leitt það í ljós. Þó þykir það nokkuð ljóst að Mich- •tael muni reyna fyrir sér á tónlist- arsviðinu, einn síns liðs en erfiðara er að ráða í áform Ridgeley. Þær sögur höfðu gengið Qöllunum hærra um langa hríð að Ridgeley væri Michael bara byrði. Hann væri með eindæmum latur og leið- inlegur og nennti ekkert að leggja á sig, nyti bara ávaxtanna af púli George. Þetta þvertekur George fyrir. Hann segir að Andrew hafí verið ómissandi í öllu þeirra starfi, sé mikill listamaður en óframfærinn. „Astæðan fyrir s, því hvers vegna hann hefur verið svo miklu minna áberandi en ég er einfaldlega feimni," segir George. „Við vorum hinsvegar sammála um að hætta þessu brölti okkar. Viljum báðir breyta þeirri ímynd sem við höfum skap- að okkur. Ég er til að mynda orðinn meira en hundleiður á þess- Whaml-dúettinn. ari kyntákns-stöðu minni, klígjar við öllu þessu gærulega kven- fólki. Hinsvegar gæti ég vel hugsað mér að kvænast, en þá aðeins góðhjartaðri konu, sem hefði einhvern „klassa". Ég er búinn að fá mig meira en fuilsadd- ann á þessum hljómsveitargærum, sem reyna allt hvað þær geta til að vera kynæsandi. Mér fínnast þær bara grátbroslegar, hallæris- legar og heimskar.“ Meðal þeirra, sem reynt hafa að ráða í framtíð Wham!-félag- anna er spámaðurinn Peter Lee. Hann segir að Andrew muni reyna að skapa sér sóló-feril, en það muni ekki koma til með að ganga. Hann mun taka þátt í alls kyns bflaíþróttum, en þar sem hann er einfaldlega lélegur bílstjóri mun sá draumur líka kollvarpast. Hann mun þó í sífellu reyna að ná at- hygli almennings og gerir sig líklegast að fífli í þeirri viðleitni sinni. Trúlega mun hann einnig reyna fyrir sér á hvíta tjaldinu og ná sér svolítið á strik með því. Að lokum mun hann þó fínna sjálf- an sig, helga sig viðskiptum og gera það gott. Hann hefur nefni- lega hæfíleika á því sviði og það nokkuð góða. Andrew mun kvæn- ast og eignast börn og verður hann að öllum líkindum afskap- lega góður fjölskyldufaðir. Sjálfur ólst hann upp við mikið ástríki og það mun skila sér í hamingju- sömu hjónabandi — segir Lee. Hvað George Michael varðar spáir Lee því að hann muni verða lífsseigur innan tónlistarheimsins. „Hann verður nokkurs konar Sin- atra síns tíma og mun semja fjölda laga sjálfur," segir hann. Hann er þtjóskur með eindæmum og mun þvi öðlast það sem hann sækist eftir. Innan þriggja mán- aða mun hann hinsvegar slasast á mótorhjóli. Meiðslin verða þó ekkert mjög alvarleg, en fótleggur hans verður illa leikinn. George mun einnig leika aðalhlutverk í einhverri kvikmynd, þó ekki söngvamynd. í einkalífínu er Michael afar einmana og óham- ingjusamur. Hann langar til að breyta skapgerð sinni, en það gengur illa. Að lokum mun hann ganga í hjónaband, en börn mun hann líklega ekki eignast. — „Og eitt er víst — Geroge og Andrew munu aldrei halda tónleika saman aftur, þó svo þeir muni verða fyr- ir miklum þrýstingi," fullyrðir Lee. Svo nú er bara að bíða og sjá hversu forspár maðurinn er. . . Kyntáknið George Michael. George Michael ásamt leikkonunni Brooke Shields.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.