Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.07.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 1986 43 Hryllingshótanir hluti af frægðinni? Sjónvarpsstjaman Ed Asner hafði til langs tíma þann hátt- inn á, að hann svaraði sjálfur öllum aðdáendabréfum sínum og sendi þá gjaman til baka ljósmynd af sér með áletruninni — Líttu við, ef þú átt leið hjá — Ed Asner. Vandinn var bara sá, að sumir tóku hann á orðinu — kíktu í kaffi, er þeir komu í bæinn — margir hveijir vel vopn- aðir. Eins og nærri má geta lærði Asner fljótlega sína lexíu og sagði skilið við slagorð þetta. Frægðin krefst sinna fóma, víst er það og stjömumar eru ekki aðeins eftir- sóttar sakir hæfileika sinna eða útlits heldur einnig sem skotmörk, leið geðtruflaðs fólks til að vekja á sér athygli. „Maður lærir bara að lifa með þessu," segir Asner. Meðan lögreglan vestan hafs leit- ar manns, sem hótað hefur m.a. Johnny Carson og Sylvester Stall- one öllu illu, hafa flestar stjörnumar tekið lögin í sínar eigin hendur og ráðið sér öryggisverði, fjárfest í vopnum eða öðru því um líku. Með- al þeirra, sem enn láta sér nægja að hafa hunda með sér til vamar eru þeir James Caan og Dennis Hopper. Eftir morðið á Lennon og skotárásina á Reagan, Bandaríkja- forseta 1980, hefur eftirspumin eftir öryggis- og lífvörðum aukist svo stórlega að heilu fyrirtækin hafa sprottið upp, sem eingöngu hafa það að markmiði að veija þá, sem velgengni njóta. Hægt er að fá tvær tegundir lífvarða — þessi stóm, sterku vöðvafjöll, svo og menn sem minni em vexti, en leyna þó á sér hvað styrk og snerpu varð- ar. Meðal þeirra sem kosið hafa kraftajötnana em Sylvester Stall- one og poppsöngvarinn Prince. Gamanleikarinn Eddie Murphy réði sér hins vegar tvo af smærri gerð- Goldie Hawn: „Hann vill mig feiga, en sendir mér samt rósir á hverjum degi.“ inni, þar sem hann segist fyllast minnimáttarkennd í félagsskap ris- anna. Það er afskaplega misjafnt hvemig fólkinu fræga gengur að sætta sig við þessar sífelldu símhringingar og hótanir. Skemmtikrafturinn Joan Rivers tekur þær til að mynda afskaplega nærri sér og auk þess sem hún hefur lífverði allt í kring um sig, gengur hún ávallt með táragas í vasa sínum. Þær stjömur sem ný- lega hafa orðið fýrir barðinu á þessum sálsjúku símamönnum em Linda Evans, Joan Collins, Ryan O’Neal, Olivia Newton-John og Jacklyn Smith, svo dæmi séu nefnd. A meðan sveitasöngkonan Loretta Lynn eyðir að jafnvirði 10 milljón- um íslenskra króna á ári hveiju í öryggisgæslu sína, láta þær Barbra Streisand, Zsa Zsa Gabor og Goldie Hawn sér nægja að girða heimili sín og húsgarða með sterklegri 6 metra hárri girðingu. Þó hefur Goldie t.d. lent æði illa í þess hátt- ar mönnum, sem hér um ræðir. „Það virðist vera sama hversu oft ég skipti um símanúmer, þá tekst þessum manni alltaf að hafa upp á því. Hann hringir líka á öllum tímum sólarhringsins og hefur marglýst því yfir að hann vilji helst ganga endanlega frá mér. Samt hefur hann sent mér rósir á hveijum degi í ein tvö ár. Er það nokkur furða þó maður velti því fyrir sér hvort frægðin og framinn séu virki- lega allrar þessarar martraðar virði?“ spyr Goldie. Leikarinn Larry Hagman hefur heldur ekki farið varhluta af hótunum og öðrum hryllingi og gengur hann nú alltaf í skotheldu vesti. „Eg geri mér fylli- lega grein fyrir því, að mörgum mislíkar sá maður, sem ég leik í sjónvarpinu," (JR) segir hann, „og þó svo flestir geri sér grein fyrir að ég er bara að leika eru sumir sem ekki hafa nógu góða dómgreind til að greina á milli mín og JR,“ bætir hann við. „Og ekki ætla ég að taka neina áhættu með líf mitt, svo rriikið er víst.“ Söngkonan Linda Ronstadt er ein af fáum, sem harðneitaði í lengstu lög að ráða sér lífverði. Hún sagð- ist ekki trúa því að heimurinn væri eins bijálaður og margir héldu fram. Sagðist vilja halda í trúna á' það góða í manninum, eins lengi og unnt væri. Ekki alls fyrir löngu fylltist þó hennar mælir, hvað um- burðarlyndi snerti. Kvöld eitt, er hún kom heim í íbúð sína, var búið að rífa sængurföt hennar í tætlur og skilinn var eftir miði, sem festur var við koddann með lýtingi. Á miðanum stóð: „Eg missti af þér í þetta sinn — það kemur ekki fyrir aftur.“ — Eins og nærri má geta var Linda Ronstadt umkringd lífvörðum strax morguninn eftir. Haukur Morthens í Kaupmannahöfn Það var heldur betur hátíð í bæ hjá þeim íslendingum, sem búsettir eru í Kaupmannahöfn, dag- ana 23.-25. maí sl. Þá sótti hinn síungi söngvari Haukur Morthens landa okkar í kóngsins Köben heim og tróð hann upp í Jónshúsi, sló á létta strengi og söng alla sína gömlu slagara, eins og honum einum er lagið. Eins og við mátti búast kunnu Frónbúar í fjarlægu landi vel að meta öll gömlu góðu lögin, sem hljómað hafa í eyrum okkar um langa hríð. Haukur og hljómsveit hans léku líka á als oddi, áheyrend- ur tóku hressilega undir og dansinn dunaði fram á rauða nótt. í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar var búið að hengja upp myndir eftir Árna Elfar í Jónshúsi og juku þær enn heldhr á hina íslensku stemmningu, settu svip á salinn. Það var því ekki laust við að heimþrá gerði vart við sig í í fullu fjöri — Haukur Morthens og hyómsveit. Morgunbiaðið/Jens Ormsiev sumum hjörtunum, enda Haukur Morthens einn af þessum föstu punktum í tilveru íslendinga, einn af þeim fáu, sem setja svip á bæinn. Haukur fyrir framan Jónshús í Kaupmannahöfn. • þeytir, hrærir, hnoöar, Verð SIEMENS SIEMENS - hrærivélin MK 4500: Fyrirferöarlítil og fjölhæf og allir aukahlutir fylgja meö! aðeins stgr. 8.890.- • rífur, sker, saxar, hakkar og blandar bæöi fljótt og vel. Siemens — stendur ætíö fyrir sínu. Siemens — einkaumboö: SMITH & NORLAND HF„ Nóatúni 4, 105 Reykjavík. Sími28300. LIKAMSRÆKT J.S.B. nr • UVJ áfram með sumarnámskeiðin 14. júlí—31 .júlí Suðurver — Breiðholt Kerfi I. Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum. Kerfi II. Framhaldsflokkar, þyngri tímar fyrir aðeins vanar. Kerfí III. Rólegir tímar fyrir eldri konur eða þær sem þurfa að fara varlega með sig. KerfilV. Megrunarflokkur fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna. Kerfi V. Eróbikk, okkar útfærsla af þrektímum með góðum teygjum. Hörkupúl og svitatímar fyrir ungar og hressar. STURTUR — SAUNA — UÓS Glæsileg ný aðstaða Allir finna flokk við sitt hæfi hiá JC[ T>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.